Morgunblaðið - 12.02.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta er sorgardagur, þegar við
ákváðum að kaupa húsið árið 2002
voru trén hluti af þeirri heildar-
mynd sem við heilluðumst af. Ég
verð að viðurkenna að þau hafa
tilfinningagildi fyrir alla fjölskyld-
una,“ segir Jón S. Jörundsson.
Hann og eiginkona hans hafa stað-
ið í deilum við nágranna sinn í
nokkur ár vegna trjánna sem ná-
grannakona þeirra taldi skyggja á
dagsbirtu og sól á palli sem hún
byggði árið 2007. Hæstiréttur
komst að þeirri niðurstöðu í jan-
úar að Jóni bæri að fella trén.
Þess má geta að trén voru um 18
metrar og teygðu sig allt að 2,40
metra inn á lóðina þar sem konan
sem kvartaði býr.
Jón og eiginkona hans treystu
sér ekki til að vera heima í gær
þegar trén voru felld. Morgun-
blaðið náði tali af Jóni rétt eftir
að hann kom heim og sá ger-
breytta ásýnd lóðar sinnar. Hann
segir að það hafi verið meira áfall
en hann átti von á að koma heim,
aðkoman hafi verið skelfileg.
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir
að skert birtuskilyrði á lóð ná-
grannakonunnar og stærð og ná-
lægð trjánna við lóð hennar sé
henni til verulegra óþæginda og
langt umfram það sem hún á að
þurfa að þola skv. ólögfestum
reglum um nábýlisrétt. Fyrir-
spurnum til sveitarfélaga vegna
sambærilegra mála hefur fjölgað
töluvert á undanförnum árum en
fram hefur komið að reglur vegna
þessa séu að einhverju leyti óljós-
ar.
Málareksturinn hefur tekið sinn
toll fjárhagslega fyrir Jón og hans
fjölskyldu. Spurður um heildar-
kostnað vegna málsins segir Jón
hann vera yfir fjórar milljónir
króna. heimirs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Grenitré felld eftir áralangar deilur
Útsýni Stæðilegu grenitrén sem um ræðir voru gróðursett árið 1961.
Eigandi trjánna sorgmæddur og
treysti sér ekki til að vera viðstaddur
Aldrei hafa fleiri erlendir ríkisborg-
arar afplánað óskilorðsbundna fang-
elsisrefsingu hér á landi en á síðasta
ári. Alls afplánaði 91 útlendingur refs-
ingu hér árið 2012 en þeir voru 89 árið
áður sem var metár. Erlendum föng-
um hefur fjölgað um 260% frá árinu
2007.
Af þessum 91 erlenda fanga voru
Pólverjar fjölmennastir en þeir voru
18 eða tæp 20%. Þar á eftir voru átta
frá Nígeríu og sjö frá Litháen.
Tuttugu inni vegna fíkniefna
Algengustu tilefni fangavistarinnar
eru auðgunarbrot, skjalafals og brot á
útlendingalögum en 54 fanganna sátu
inni af þeim sökum. Þá sátu tuttugu
manns inni vegna fíkniefnabrota.
Þegar rýnt er frekar í tölurnar
kemur í ljós að flestir þeirra erlendu
ríkisborgara sem afplánuðu fangels-
isvist á síðasta ári voru ekki búsettir
hér á landi. Alls voru 56 ekki búsettir
hér, eða rúm 61%. Langflestir þeirra
sátu inni vegna auðgunarbrota,
skjalafals eða brota gegn útlendinga-
lögum, eða 43. Tólf afplánuðu refs-
ingu vegna fíkniefnabrota og einn
vegna ofbeldisbrots.
Aðeins einn erlendur ríkisborgari
var færður til afplánunar í heimalandi
sínu í fyrra. Til samanburðar voru
þrír fluttir til síns heima árið 2011.
Erlendum föngum fjölgar
Einn fangi afplánaði í heimalandi
Meirihlutinn var ekki búsettur hér Fjöldi erlendra ríkisborgara í afplánun
óskb.fang.refs. í fangelsum innan hvers árs; 2006 –2012
(Luku afplánun pr. ári eða voru í afplánun í lok árs)
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
35 35
64 67 62
89 91
Heimild: Fangelsismálastofnun
„Það má segja
að ég hafi m.a.
þann starfa að
greiða úr flækj-
um,“ segir Þór-
unn Sveinbjarn-
ardóttir,
fyrrverandi
þingmaður og
ráðherra Sam-
fylkingarinnar,
sem hefur verið
ráðin aðstoðarmaður Árna Páls
Árnasonar, formanns Samfylking-
arinnar.
„Það er ákveðið flækjustig í því
að vera formaður stjórnmála-
flokks sem er í ríkisstjórn en vera
ekki í ríkisstjórninni,“ bendir Þór-
unn á í samtali við mbl.is.
Þórunn mun aðallega aðstoða
Árna Pál en einnig veita flokknum
aðstoð í komandi kosningabaráttu.
Greiðir úr flækjum
fyrir Árna Pál
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Frestur sem hjúkrunarfræðingar
hafa til að ákveða hvort þeir ætla
að halda áfram störfum var fram-
lengdur um tvo daga eða fram á
fimmtudag. Þetta var ákveðið á
fundi samninganefnda hjúkrunar-
fræðinga og Landspítalans í gær-
kvöldi. Annar samningafundur
verður í fyrramálið.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formað-
ur Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, sagðist eftir fundinn
ekki geta svarað því hvort Land-
spítalinn hefði í dag boðið frekari
launahækkanir til hjúkrunarfræð-
inga. Fundur hennar með Guð-
bjarti Hannessyni velferðar-
ráðherra í gær hefði verið góður
og fundurinn með stjórnendum
Landspítalans sömuleiðis. Það
væri jákvætt að ákveðið hefði ver-
ið að halda áfram viðræðum.
Deilan á viðkvæmu stigi
„Við Katrín Júlíusdóttir fjár-
málaráðherra funduðum með
samninganefnd hjúkrunarfræð-
inga, sem fjallar um stofnana-
samning, til þess að fara yfir stöð-
una frá þeirra hlið og hlusta á þá.
Það er það nýjasta í stöðunni,“
sagði Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra skömmu fyrir upp-
haf þingfundar í Alþingishúsinu í
gær.
Guðbjartur var þá nýkominn af
þingflokksfundi Samfylkingar þar
sem kjaradeila hjúkrunarfræðinga
og ríkisins var meðal umræðuefna.
„Þessi deila er á mjög við-
kvæmu stigi og við ætlum ekki að
tjá okkur um hana að sinni.“
Guðbjartur sagði tilboð Land-
spítalans um launahækkun til
hjúkrunarfræðinga hafa borið á
góma á fundinum, en þeir hafa
sem kunnugt er hafnað því. „Það
var meðal þess sem við ræddum,
hvort það dygði. Það er áfram
spítalans að vinna úr því. Fjárveit-
ingin liggur fyrir,“ sagði Guð-
bjartur um tilboðið.
Frestur
fram-
lengdur
í deilunni
Elsa B.
Friðfinnsdóttir
Guðbjartur
Hannesson