Morgunblaðið - 12.02.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
–– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið gefur út
ÍMARK sérblað
fimmtudaginn 28. febrúar
og er tileinkað íslenska
markaðsdeginum sem
ÍMARK stendur fyrir,
hann verður haldinn
hátíðlegur
1. mars n.k.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn
22. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
ÍMARK íslenski
markaðsdagurinn
„Við erum að auka á þessu og á
næsta ári enn frekar rafræna stjórn-
sýslu,“ segir Skúli Eggert Þórðar-
son ríkisskattstjóri.
Embætti ríkisskattstjóra hefur
verið í fararbroddi við innleiðingu
rafrænnar stjórnsýslu hér á landi á
umliðnum árum og verið mjög fram-
arlega hvað varðar rafræna þjón-
ustu við framteljendur í samanburði
við önnur lönd. „Ég held að við höf-
um leitt þetta lengst af en hins vegar
er rafræn stjórnsýsla komin á með
svipuðum hætti alls staðar annars
staðar,“ segir hann. ,,Þar eru menn
jafnvel farnir að velta fyrir sér að
fella niður framtalið sjálft og [álagn-
ingin] verði endanlega ákveðin í
staðgreiðslu. Við erum hins vegar
með tvo nefskatta sem við þurfum
alltaf að greiða eftir á, þ.e.a.s gjaldið
í Framkvæmdasjóð aldraðra og út-
varpsgjaldið, þannig að við sjáum
ekki alveg í næstu framtíð að fram-
talið hverfi en við munum hins vegar
einfalda það eins og við getum.
Við erum mjög framarlega í raf-
rænni stjórnsýslu og rafræn stjórn-
sýsla á Íslandi er langmest í gegnum
framtalsskilin,“ segir hann.
Skúli Eggert segir starfsmenn
embættisins leggja mikla áherslu á
að veita fólki góða þjónustu í
tengslum við framtalsgerðina.
„Við munum hafa starfsstöðvar
opnar eitthvað lengur þegar ann-
irnar eru mestar en það voru færri
sem komu á aðalskrifstofuna í fyrra
en komu t.d. á árinu 2011. Það tókst
m.ö.o. að leysa vandamál fleiri í
gegnum síma og með tölvupósti.“
Framtíð án
framtala?
Rafræn skattskil Flestir nýta þau.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Rafræn þjónusta embættis rík-
isskattstjóra vegna framtalsgerðar
og annarra skattskila færist sífellt í
aukana. Í fyrra var 97,3% allra
skattframtala skilað rafrænt.
Að sögn Skúla Eggerts Þórð-
arsonar ríkisskattstjóra er stefnt
að því að pappírsframtöl heyri sög-
unni til frá og með næsta ári og
verði eingöngu notuð í algerum
undantekningartilvikum. Slík ein-
stök tilvik gætu komið upp ef fram-
teljandi þarf t.d. að telja fram fyr-
irfram og getur ekki notfært sér
rafræn skil. Að sögn ríkisskatt-
stjóra var um það bil sex þúsund
framtölum í fyrra skilað á pappír.
Fá aðstoð gegnum síma
Þegar hefur verið hætt að senda
út pappírsframtöl til framteljenda
með árituðum upplýsingum og á
þessu ári fá framteljendur sem enn
nota pappírsframtöl þau eingöngu
send með auðum reitum.
,,Við munum líkt og við gerðum á
seinasta ári hringja í þá sem við að-
stoðuðum við framtalið og bjóðum
aðstoð. Þessir einstaklingar þurfa
því ekki að koma á starfsstöðvar
ríkisskattstjóra, heldur verður
þeim boðið að ljúka framtalsgerð-
inni í gegnum síma,“ segir Skúli
Eggert.
Netframtal einstaklinga vegna
skattframtals ársins 2013 verður
opnað 6. mars næstkomandi á þjón-
ustuvefnum www.skattur.is. „Það
verða nálægt 263 þúsund framtelj-
endur á skrá,“ segir Skúli Eggert,
en þeir voru 261.992 í fyrra.
Síðasti skiladagur framtala ein-
staklinga er 21. mars en þeir sem
sækja um frest á netinu munu fá
frest fram yfir páska og lýkur frest-
inum þá 2. eða 3. apríl.
Nokkrar nýjungar verða á fram-
talsgerðinni í ár. „Við munum
breyta framsetningu á bráða-
birgðaútreikningi þannig að koma
mun skýrar fram hvort framtelj-
andi eigi inneign eða hvort hann
skuldar eftir að hann hefur skilað
framtalinu,“ segir ríkisskattstjóri.
Senda skilaboð með sms
Hann á líka von á að fleiri fram-
teljendur en áður muni nota svo-
kallað einfaldað framtal, þar sem
búið er að árita allar upplýsingar
inn á framtalið.
,,Síðan erum við að kynna nýjung
sem er sérstök samskiptasíða á
skattur.is, þar sem menn munu í
framtíðinni fá alla úrskurði og bréf
og annað sem ríkisskattstjóri hefur
talið til framteljanda inn á sam-
skiptasíðu sem framteljandinn hef-
ur einn aðgang að. Síðan fær hann
send sms smáskilaboð ef nýjar upp-
lýsingar eða bréf o.fl. koma inn á
samskiptasíðuna hans,“ segir hann.
Pappírsframtöl heyri
sögunni til frá og með 2014
Framteljendum fjölgar um 1.000 Ný samskiptasíða tekin upp á skattur.is
Morgunblaðið/Ómar
Skjótvirkara Langflestir framteljendur þurfa eingöngu að yfirfara upplýsingar á skattframtölum á þjónustusvæði
sínu á netinu en um 6.000 töldu fram á pappír í fyrra. Stefnt er að því að engin þörf verði fyrir pappírsframtöl.
Innanríkisráðherra fer yfir samskipti
stjórnvalda við bandarísku alríkislög-
regluna FBI sumarið 2011 á fundi rík-
isstjórnarinnar í dag. Þá mun hann
kynna málið á sameiginlegum fundi
tveggja fastanefnda Alþingis, stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar og alls-
herjar- og menntamálanefndar.
Fulltrúar frá FBI komu hingað til
lands í ágúst 2011 og ræddu við ungan
íslenskan mann. Áður hafði FBI verið
í sambandi við stjórnvöld hér á landi
vegna yfirvofandi tölvuárásar og í
ágúst tilkynntu þeir að pilturinn hefði
gefið sig fram í bandaríska sendi-
ráðinu og hefði upplýsingar sem
tengdust málinu.
Málið var rætt í óundirbúnum fyr-
irspurnartíma á Alþingi í gær að
frumkvæði Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra sagði að ekkert lögreglulið
kæmi til Íslands til að hefja yfir-
heyrslu yfir íslenskum ríkisborgara
án þess að fyrir liggi skilgreind og
rétt fram komin beiðni um réttarað-
stoð. Sagði hann að slík beiðni hefði
ekki legið fyrir. „Ég tel það algjörlega
af og frá að líta svo á að heimsókn
þeirra hingað, sennilega sex vikum
fyrr, með leyfi íslenskra yfirvalda til
þess að kanna öryggisvarnir í tölvu-
kerfum, hafi náð yfir það að koma síð-
an aftur nokkrum vikum síðar og
hefja yfirheyrslur yfir einstaklingi
sem virtust beinast fyrst og fremst að
WikiLeaks,“ sagði Össur.
Þorgerður Katrín sagði að afskipti
utanríkisráðherra hefðu ekki verið til
þess fallin að tryggja réttarhagsmuni
viðkomandi einstaklings, heldur rýra
þá.
Ögmundur Jónasson hefur farið yf-
ir málið frá því hann kom úr heimsókn
til Kína, síðdegis á sunnudag, og með-
al annars átt fundi með ríkislögreglu-
stjóra, ríkissaksóknara og sérfræð-
ingum og yfirstjórn ráðuneytisins.
Gestir verða kallaðir á fund nefnd-
anna í dag. Ögmundur mun ekki tjá
sig fyrr en eftir fundinn, samkvæmt
upplýsingum ráðuneytisins.
FBI-málið kynnt í
nefndum Alþingis
Össur
Skarphéðinsson
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Þingmaður gagnrýnir afskipti ráðherra
Frestur launagreiðenda til að skila inn launamiðum
vegna skattframtalsgerðar rann út 10. febrúar.
„Við leggjum mikla áherslu á að skil á launamiðum
verði í betra horfi í ár en undanfarin ár,“ segir Skúli
Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
„Í fyrra náðist heilmikill árangur í þessu en núna
ætlum við að herða enn frekar á þessu þannig að þeir
launagreiðendur sem ekki höfðu sent inn launamiða
um nýliðna helgi og næstu tvo daga, munu fá heim-
sóknir frá starfsmönnum ríkisskattstjóra,“ segir Skúli
Eggert.
Ekki hefur áður verið gripið til þess ráðs að starfsmenn embættisins
fari út í fyrirtækin til að ganga úr skugga um ástæður þess að launa-
miðum vegna starfsmanna hefur ekki verið skilað innan tilskilins frests
vegna skattframtalsgerðar.
Boða heimsóknir á vinnustaði
HERTAR AÐGERÐIR EF EKKI ERU STAÐIN SKIL Á LAUNAMIÐUM
Skúli Eggert
Þórðarson
„Allt það sem ég kunni og hafði
lært rifjaðist upp. Öll þessi grunn-
atriði; að setja upp varnarþríhyrn-
inginn, hringa í Neyðarlínuna,
kanna viðbrögð fólksins, huga að
þeim sem ekki anda og eru ekki
með meðvitund og passa upp á lík-
amsstöðu fólksins Síðan var fólkið
hjá Neyðarlínunni mjög hjálp-
samt,“ sagði Arnar Hugi Birkisson
var valinn skyndihjálparmaður árs-
ins 2012 af Rauða krossinum í við-
tali við mbl.is í gær.
Arnar Hugi og kærasta hans,
Steinunn Hlíf Guðmundsdóttir,
komu að alvarlegu bílslysi á Stein-
grímsfjarðarheiði í fyrrasumar.
Ökumaðurinn lést en kanadískt
par, Jonathan Boilard og Emilie
Beaule, komust lífs af.
Slasaðist Arnar Hugi Birkisson og
Steinunn Hlíf Guðmundsdóttir með
Jonathan Boilard á spítalanum.
Allt sem
hann kunni
rifjaðist upp