Morgunblaðið - 12.02.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
G
öngu-Hrólfur er göngu-
klúbbur sem stofnaður
var árið 1998. Stofnand-
ann Steinunni Harðar-
dóttur langaði til að
taka þátt í skipulögðum gönguferðum
erlendis og kynnast á þann hátt nátt-
úru og mannlífi í fjarlægum löndum.
„Fyrir 20 árum langaði mig að safna í
kringum mig fólki sem hefði áhuga á
því að fara í gönguferðir erlendis. Þá
var ég að fara til Mallorka og lýsti eft-
ir fólki í Mogganum til að koma með
mér. Það heppnaðist vel og úr varð
góður hópur. Svo fór þessi hópur í
gönguferðir um Ísland og upp úr því
komumst við í samband við Úrval-
Útsýn. Í framhaldinu stofnuðum við
Magnús Jónsson gönguhóp sem heit-
ir Göngu-Hrólfur,“ segir Steinunn.
Fyrstu gönguferðirnar
Göngu-Hrólfur hóf skipulagðar
gönguferðir árið 1998. „Engin ferða-
skrifstofa bauð upp á gönguferðir er-
lendis á þessum tíma og því komu all-
ir sem vildu í slíkar ferðir til okkar,“
segir Steinunn.
Gönguklúbburinn hóf svo sam-
starf við Vitaferðir og í kjölfarið var
haldið áfram á sömu braut.
Toscana er meðal þeirra staða
sem hægt er að fara til á vegum
Göngu-Hrólfs.
,,Ég er líklega búin að fara til
Toscana í 14 ár. Þegar ég fór þarna
fyrst vorum við Magnús tvö að skoða
okkur um. Leitin að réttu gönguferð-
inni gekk erfiðlega og í þann mund
sem við vorum að gefast upp hittum
við þarna mann í fjallaskarði. Hann
sagðist elska þetta svæði og sig hefði
alltaf dreymt um að skipuleggja
gönguferðir þangað. Úr varð margra
ára samstarf,“ segir Steinunn.
Hún segir að fyrstu ferðir um
Garfagnanadal í Toscanahéraði hafi
verið sérlega eftirminnilegar enda
meðal annars gengið um eyðidal þar
sem fólk gisti í fjárhirðaskála. „Fólk
sem fór í þessar ferðir segir að það
Gengið um grundir
með Göngu-Hrólfi
Steinunn Harðardóttir auglýsti eftir fólki í gönguklúbb fyrir um 20 árum. Úr varð
gönguhópurinn Göngu-Hrólfur sem frá árinu 1998 hefur staðið fyrir gönguferð-
um erlendis. Var hann á þeim tíma sá fyrsti sem stofnaður var með gönguferðir
erlendis í huga.
Ljósmynd/Steinunn Harðardóttir
Kastali Gönguhópurinn fer hér framhjá Verucolekastala. Var hann byggð-
ur á miðöldum til varnar óvinveittum herliðum úr nærliggjandi héruðum.
20% AFSLÁTTUR
ÚT FEBRÚAR
AF ALLRI LÍNUNNI
Beygja, kreppa, sundur, saman.
Beygja, kreppa, sundur, saman. Hvað
þýðir þetta eiginlega? Svarið við því
færð þú á vefsíðunni swimsmooth.-
com þar sem rétt sundtök eru kennd
með hjálp þrívíðra hreyfimynda og
texta þess efnis hvernig beri að haga
sér í vatninu þegar synt er.
Þeir sem eru lengra komnir og
kunna þá þegar sundtökin geta, með
hjálp forritsins, sett upp æfingaáætl-
un sem einblínir á bættan árangur í
sundlauginni. Þá geta þjálfarar
skerpt á kunnáttu sinni með því að
kynna sér nánar þrekþjálfun sund-
manna og ýmsar tæknilegar út-
færslur á sundtökum.
Vefsíðan: www.swimsmooth.com
Morgunblaðið/Ómar
Synt Með bættri tækni er hægt að auka sundhraða mikið. Með hjálp swim-
smooth.com geta byrjendur sem lengra komnir kynnt sér réttu sundtökin.
Sundtökin kennd í smáatriðum
Í Fit Pilates eru djúpvöðvar líkamans
þjálfaðir. World Class í Ögurhvarfi
býður áhugasömum upp á kynningar-
tíma í dag klukkan 17.30 þar sem æf-
ingar fara fram í heitum sal. Tíminn
er öllum opinn. „Tímarnir eru eins
uppbyggðir og hefðbundnir Fit Pilat-
es-tímar þar sem unnið er út frá
miðju líkamans. Það er hins vegar
nýtt hjá okkur að vera í heitum sal en
hitinn hjálpar iðkendum að ná lengra
inn í teygjurnar, þeir hitna fyrr og eft-
irbrennslan verður meiri. Svo er líka
ofsalega notalegt og gott að vera í
hitanum,“ segir Aðalheiður Sigur-
sveinsdóttir, Fit Pilates-kennari.
Endilega…
…prófaðu Fit Pilates
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Í skoskri markaðsherferð sem ætlað
er að kynna ferðaþjónustu þar í
landi var notast við þessa ágætu
smáhesta. Hestarnir eru kenndir við
Shetland og eru hér komnir í hlýjar
ullarpeysur enda er það á allra vit-
orði hve dýr eru hégómagjörn og
óörugg með sig. Fötin skapa hestinn
sagði enginn, en vissulega eru peys-
urnar sniðugar og fara hestunum
ekki illa. Sérstaklega þessum hvíta.
Myndin er tekin í tengslum við
markaðsátakið Visit Scotland sem er
um margt líkt markaðsátakinu
Inspired by Iceland. Í því er sjónum
beint að náttúrufegurð í Shetland í
Skotlandi. Shetland er klasi yfir
hundrað eyja sem hafa verið um 6
þúsund ár í byggð. Á svæðinu er
gnótt náttúruauðlinda og er það eitt
það ríkasta í Skotlandi.
Hestar í markaðsátaki
Smáhestar Shetland-smáhestar
eru frá 70-100 sentimetrar á hæð.
Hestar í
ullarpeysu
- með morgunkaffinu