Morgunblaðið - 12.02.2013, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
„Við teljum mikilvægt að verðkann-
anir séu gerðar út frá sjónarhóli
neytandans svo þær gagnist honum
sem best. Við leggjum mikla áherslu
á að sátt ríki um þær án þess þó að
það dragi úr upplýsingagjöf til neyt-
andans. Staðan eins og hún er í dag
er mjög slæm,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna. ASÍ sér um að gera
verðkannanir á matvöru. Fjórar
verslanir hafa neitað að taka þátt í
þeim og m.a. sagt þær illa unnar.
Ríkið borgar fyrir verðkönnun
Neytendasamtökin og ASÍ gerðu
þessar verðkannanir áður fyrr.
„Stjórnvöld greiddu ASÍ fyrir að
sinna verðlagseftirliti með verð-
könnun á matvöru. Þá hættum við og
ákváðum að einbeita okkur að öðru,“
segir Jóhannes en Neytendasamtök-
in munu ekki gera verðkannanir á
matvöru. Jóhannes harmar ágrein-
inginn um framkvæmd verðkannana
en er ekki tilbúinn að leggja mat á
framkvæmdina. Hann segir brýnt að
sátt ríki um verðkannanir svo sem
flestar verslanir taki þátt í þeim.
Víða pottur brotinn
„Gagnrýni á framkvæmd ASÍ á
verðkönnun á matvöru hefur verið
nokkuð lengi. Ósambærilegar vörur
eru bornar saman og við höfum séð
fjölmörg dæmi þess. Einnig er verið
er að bera saman verslanir með mis-
munandi þjónustustig. Það versta í
þessu er að eftir hverja verðkönnun
senda fyrirtækin athugasemdir við
verðkönnuina til ASÍ. Allar þær
ábendingar eru markvisst hunsað-
ar,“ segir Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjór Samtaka verslunar og
þjónustu.
Hann segir að nú sé ákall um
breytingar á framkvæmdinni því ef
allt væri í himnalagi væru fyrirtækin
ekki að hætta þátttöku.
„Það er pottur brotinn í þessu,“
segir Andrés. „Tilgangurinn er auð-
vitað sá að gefa neytendum réttar
upplýsingar en það er ekki gert. Það
er skiljanlegt að fyrirtæki kippa að
sér höndunum þegar þau verða
ítrekað fyrir því að kannanirnar gefa
ekki neytendum réttar upplýsingar,“
segir Andrés.
Hann bendir á að þeim mun meiri
kröfur verði að gera til kannana þar
sem þær eru framkvæmdar m.a.
með fjárframlögum frá ríkinu.
thorunn@mbl.is
Slæmt að ekki ríki sátt
um verðkönnun á mat
Verðkannanir mikilvæg upplýsingagjöf fyrir neytandann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðkönnun Neytendasamtökin og ASÍ gerðu áður saman verðkönnun á mat-
vöru en Neytendasamtökin hættu eftir að ríkið borgaði ASÍ fyrir kannanirnar.
Allt að 115.500 manns búa við um-
ferðarhávaða við heimili sín sem
fer yfir 55 db Lden en það er yfir
viðmiðunarmörkum. Vegagerðin og
sveitarfélög vinna að kortlagningu
á hávaða á vegum og á þétt-
býlissvæðum á Íslandi. Öðrum
áfanga af þremur var að ljúka.
Sveitarfélögum ber skylda til þess
að gefa út aðgerðaráætlanir fyrir
árslok 2013 fyrir þau svæði þar
sem hávaði er áætlaður yfir viðmið-
unarmörkum.
Í þessum öðrum áfanga var
kannaður umferðarhávaði á hús-
næði við vegi þar sem 3 til 6 millj-
ónir ökutækja fara um á ári. Í ljós
kom að 46.000 íbúar í 20.200 íbúð-
um á landinu öllu búa við vegi þar
sem hávaði fer yfir 55 dB Lden. Á
þéttbýlissvæðum fer hávaðinn yfir
mörkin á slíkum vegum við hús-
veggi um 20.000 íbúða, eða hjá allt
að 45.000 íbúum. Til viðbótar fer
hávaði yfir viðmiðunarmörk á slík-
um vegum við húsveggi um 700
íbúða í iðnaðarhverfum. Þetta sýna
niðurstöður sem birtust á vef Um-
hverfisstofnunar.
Unnið hefur verið að úttektinni í
þremur áföngum. Fyrsta áfanga
lauk í júlí 2012 þegar stórir vegir
þar sem umferð meira en 6 milljón
ökutækja á ári voru kortlagðir.
Þeir útreikningar sýndu að hávaði
vegna umferðar fer yfir 55 dB
Lden við húsveggi um 14.000 íbúða
á þessu svæði, eða hjá allt að
24.000 íbúum.
Þriðja áfanga lýkur 2013. Þá ber
sveitarfélögum skylda til þess að
gefa út aðgerðaráætlanir fyrir þau
svæði þar sem hávaði er áætlaður
yfir viðmiðunarmörkum.
Vegirnir sem um ræðir eru stað-
settir innan höfuðborgarsvæðisins,
í Reykjanesbæ, á Selfossi og Ak-
ureyri. Fimm sveitarfélög voru
kortlögð sem eru Reykjavík, Sel-
tjarnarnes, Kópavogur, Garðabær
og Hafnarfjörður. Hávaðamælingar
og útreikningar hafa farið fram á
flestöllum vegunum áður.
thorunn@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Hávaði Sveitarfélögum ber skylda til að gefa út aðgerðaráætlanir fyrir árs-
lok 2013 fyrir svæði þar sem hávaði er áætlaður yfir viðmiðunarmörkum.
115.000 manns búa
við umferðarhávaða
Hávaðamengun á landinu kortlögð
Rafrænt uppboð
á tíðniheimildum
fyrir 4G hófst í
gær á sérstökum
uppboðsvef Póst-
og fjarskipta-
stofnunar. Er
þetta í fyrsta
sinn sem slík að-
ferð er notuð til
að úthluta þessum notkunarheim-
ildum.
Fjögur félög sendu inn þátt-
tökubeiðni í uppboðinu og uppfylltu
þau öll þau skilyrði sem sett voru
fyrir þátttökunni. Þetta voru 365
Miðlar ehf., Fjarskipti ehf. (Voda-
fone), Nova ehf. og Síminn hf.
Eftir að uppboði lýkur áskilur
Póst- og fjarskiptastofnun sér frest
í þrjár vikur til að fara yfir niður-
stöður uppboðsins og mun síðan út-
hluta þeim 10 tíðniheimildum sem
um ræðir til hæstbjóðenda.
Fjórir bjóða
í 4G-tíðni
Hæstiréttur hef-
ur staðfest úr-
skurð Héraðs-
dóms Reykja-
víkur um að vísa
beri frá dómi
hluta ákæru á
hendur karl-
manni sem vann
skemmdarverk á
Ráðherrabú-
staðnum í
Tjarnargötu í Reykjavík. Er það
vegna þess að þegar málið var
höfðað var liðinn frestur til að
krefjast málshöfðunar.
Ákæran er á hendur karlmanni
sem er óstaðsettur í hús. Frá 22.
ágúst 2011 til 2. september 2012
vann hann fimm sinnum skemmdir
á Ráðherrabústaðnum. Fjórum
sinnum braut hann rúðu með
grjóti eða járnstöng í því skyni að
komast þar inn í heimildarleysi og
dvaldi inni í húsinu þar til lög-
regla fjarlægði hann þaðan
skömmu síðar.
Málið höfð-
að of seint
Ráðherrabústaður-
inn.
Voltaren Dolo 25 mg húðaðar töflur. Inniheldur 25 mg kalíumdíklófenak. Er notað við vægum
verkjum eins og höfuðverk, tannverk, tíðaverk, gigt- og bakverk. Skammtar fyrir fullorðna og börn 14
ára og eldri: Upphafsskammtur er 1 tafla, en síðan 1 tafla á 4-6 klukkustunda fresti, þó mest 3 töflur
(75 mg) á sólarhring og lengst í 3 sólarhringa. Meðhöndla á í eins skamman tíma og í eins litlum
skömmtum og mögulegt er. Töfluna á að gleypa í heilu lagi með glasi af vatni, helst fyrir máltíð. Ekki
má taka Voltaren Dolo ef þú ert: yngri en 14 ára, með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna,
acetýlsalicýlsýru eða öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum, með sár eða blæðingu í meltingarvegi,
hjartabilun, skerta lifrar eða nýrnastarfsemi, mikla blóðflagnafæð, á síðasta þriðjungi meðgöngu.
Leitaðu ráða hjá lækni eða lyfjafræðingi áður en þú tekur lyfið ef þú: ert með astma, hjartasjúkdóm,
sjúkdóm í meltingarvegi, notar önnur lyf, notar verkjastillandi lyf við höfuðverk í langan tíma, ert
næmur fyrir vökvaskorti, ert með sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðstorku, ert að fara í aðgerð, ert eða
ætlar að verða þunguð eða ert með barn á brjósti. Gæta skal þess að lyfið getur dulið einkenni
sýkingar. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleið-
beiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis
Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Verkir
í baki?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi við
verkjum í baki!
V
O
L1
30
10
2