Morgunblaðið - 12.02.2013, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Benedikt XVI. páfi tilkynnti í gær að
hann hygðist segja af sér í lok mán-
aðarins og kvaðst vera orðinn of
gamall til að geta sinnt skyldum
páfa. Benedikt er á 86. aldursári og
fyrsti páfinn í nær 600 ár til að segja
af sér. Hann hefur gegnt embættinu
í tæp átta ár.
Talsmaður Páfagarðs sagði að
ákvörðun páfa hefði komið nánum
samstarfsmönnum hans á óvart. Páfi
kvaðst ætla að segja af sér klukkan
19 að staðartíma (kl. 20 að íslensk-
um) 28. febrúar. „Ég er þess fullviss
að vegna hás aldurs hef ég ekki leng-
ur þann styrk sem þarf til að sinna
störfum páfa með fullnægjandi
hætti,“ sagði páfi.
Talsmaður Páfagarðs, Federico
Lombardi, sagði að kardinálar, sem
kjósa nýjan páfa, myndu koma sam-
an í mars, innan 15-20 daga eftir af-
sögnina. Kardinálarnir loka sig þá
inni í Sixtusarkapellunni í Páfagarði
til að kjósa 266. páfa rómversk-kaþ-
ólsku kirkjunnar.
Samkvæmt breytingu, sem Bene-
dikt XVI. gerði á reglum um páfa-
kjörið, þarf páfinn að fá að minnsta
kosti tvo þriðju atkvæðanna og einu
gildir hversu oft kardinálarnir þurfa
að kjósa til að ná því hlutfalli. Mark-
miðið með breytingunni var að
tryggja að nýi páfinn nyti sem mests
stuðnings í kirkjunni. Kardinálarnir,
sem kjósa páfa, mega ekki vera fleiri
en 120 og ekki vera eldri en 80 ára.
Veðjað á Afríkumenn
Talsmaður Páfagarðs sagði að
stefnt væri að því að niðurstaða páfa-
kjörsins lægi fyrir á páskadag, 31.
mars. Veðmangarar byrjuðu strax
að taka við veðmálum vegna páfa-
kjörsins og telja mestar líkur á því
Francis Arinze, áttræður kardináli
frá Nígeríu, verði næsti páfi. Þar á
eftir koma Peter Turkson, 65 ára
kardináli frá Gana, og Marc Ouellet,
69 ára kardináli frá Kanada.
Marco Politi, sérfræðingur í mál-
efnum Páfagarðs, telur ólíklegt að
kardinálarnir kjósi aldraðan mann í
páfastólinn. „Sú ákvörðun Benedikts
að segja af sér vegna hás aldurs mun
hafa mikil áhrif á valið á næsta páfa,“
segir Politi. „Gömlu mennirnir þurfa
að víkja fyrir þeim yngri. Kirkjan
þarf á því að halda.“
Benedikt XVI. hefur verið gagn-
rýndur fyrir að leggja of mikla
áherslu á Evrópu og nokkrir sér-
fræðingar spá því að næsti páfi komi
frá Rómönsku Ameríku, Afríku eða
Asíu.
Alls geta 118 kardinálar tekið þátt
í páfakjörinu. 62 þeirra eru frá Evr-
ópu, þar af 28 frá Ítalíu, 19 frá
Suður-Ameríku, 14 frá Norður-Am-
eríku, ellefu frá Afríku, ellefu frá
Asíu og einn frá Eyjaálfu.
Benedikt XVI. hefur verið mjög
veikburða síðustu mánuði og þurft
að standa á færanlegum palli þegar
messur eru sungnar í Péturskirkj-
unni. Hann ýjaði að því í viðtalsbók,
sem gefin var út árið 2010, að hann
kynni að segja af sér ef hann teldi sig
ekki lengur geta sinnt skyldum sín-
um.
Kom á óvart
Talsmaður Páfagarðs viðurkenndi
þó að ákvörðunin hefði komið sam-
starfsmönnum páfa á óvart. Lomb-
ardi lagði áherslu á að páfi hefði tek-
ið ákvörðunina sjálfur eftir að hafa
„ígrundað málið mjög vel“. Enginn
sjúkdómur hefði stuðlað að ákvörð-
uninni. Lombardi bætti við að flest-
um kardinálunum hefði verið
ókunnugt um ákvörðun páfa áður en
hann tilkynnti hana.
Bróðir Benedikts XVI., Þjóðverj-
inn Georg Ratzinger, sagði hann
hafa íhugað afsögn í nokkra mánuði.
Hann hefði átt erfitt með gang og
læknar hans hefðu ráðlagt honum að
fara ekki í langar flugferðir.
„Þessi óvæntu tíðindi fengu mjög
á okkur,“ sagði Mario Monti, for-
sætisráðherra Ítalíu, um afsögnina.
Ráðamenn margra ríkja sögðu hana
hafa komið á óvart en sögðust virða
ákvörðun páfa. „Hann er og verður
einn merkasti trúarhugsuður okkar
tíma,“ sagði Angela Merkel, kanslari
Þýskalands.
Fyrsta afsögnin frá 1415
Þetta er í fyrsta skipti sem páfi
segir af sér frá afsögn Gregoríusar
XII. páfi árið 1415, að því er fram
kemur á fréttavef BBC. Gregoríus
XII. sagði af sér til að reyna að binda
enda á klofning kirkjunnar á þeim
tíma og greiða fyrir kosningu nýs
manns í embættið.
Að sögn fréttaveitunnar AFP hafa
í mesta lagi fimm páfar sagt af sér í
2.000 ára sögu kaþólsku kirkjunnar.
Þeirra á meðal er Selestinus V. sem
sagði af sér fimm mánuðum eftir að
hann var kjörinn páfi þvert gegn
vilja sínum. Hann gerðist einsetu-
maður, dó tveimur árum síðar og var
seinna tekinn í tölu dýrlinga.
Annar páfi, Benedikt IX., seldi
guðföður sínum, sem var prestur,
páfadóminn árið 1045 til að geta
kvænst. Hann endurheimti þó páfa-
dóminn síðar og sagt er að hann hafi
snúið aftur til Rómar vegna þess að
konan sem hann vildi eiga hrygg-
braut hann.
Fyrsta afsögn páfa í 600 ár
Nokkrir sérfræðingar spá því að næsti páfi komi frá Rómönsku Ameríku, Afríku eða Asíu
Talið ólíklegt að kardinálarnir velji mjög aldraðan mann í páfastól eftir afsögn Benedikts XVI.
AFP
Söguleg afsögn Benedikt XVI. flytur ræðu í Páfagarði í gær þegar hann tilkynnti að hann hygðist segja af sér.
Umdeildur í páfastóli
» Þjóðverjinn Joseph Alois
Ratzinger var kjörinn páfi í
stað Jóhannesar Páls II. sem
lést 2. apríl 2005 eftir rúm-
lega tuttugu og sex ár á páfa-
stóli.
» Benedikt XVI. var 78 ára
gamall þegar hann var kjörinn
páfi. Hann varð þar með elstur
manna til að ná kjöri sem páfi
síðan Klement XII. varð páfi
árið 1730.
» Hann varð jafnframt fyrsti
Þjóðverjinn í rúm 480 ár til að
verða kjörinn páfi. Hann fædd-
ist í bænum Marktl Am Inn í
Bæjaralandi 16. apríl 1927.
» Benedikt XVI. hefur verið
umdeildur vegna íhaldssamra
skoðana sinna, t.a.m. vegna
andstöðu sinnar við vígslu
kvenpresta, notkun getnaðar-
varna, hjónaskilnaða og hjóna-
banda para af sama kyni.
Formaður nefndar, sem skipuleggur Kumbh Mela, trúarhátíð hindúa á
Indlandi, sagði af sér í gær eftir að minnst 36 manns biðu bana og 39 slös-
uðust í troðningi sem varð í lestarstöð í borginni Allahabad. Slysið varð
þegar um 30 milljónir hindúa sneru heim til sín eftir að hafa baðað sig þar
sem fljótin Ganges og Yamuna renna saman. Yfirvöld á Indlandi sögðu að
slysið hefði orðið vegna þess að of margt fólk hefði verið á brautarpöll-
unum. Sjónarvottar sögðu hins vegar að troðningurinn hefði hafist eftir að
lögreglumenn hefðu ráðist með bareflum á hóp fólks á lestarstöðinni.
Flestir þeirra sem létu lífið eða slösuðust voru konur eða börn. Indverjar
skoða hér myndir af fólki sem fórst til að bera kennsl á ættingja sína.
AFP
Tugir fórust í troðningi
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
25% af gulli
Í tilefni af því að Jens hefur
verið í Kringlunni í 25 ár ætlum
við að lækka verð á öllu gulli*
um 25%.
Íslensk hönnun
og handverk
*nema giftingarhringum
Kringlunni og
Síðumúla 35
Íslenskir steinar