Morgunblaðið - 12.02.2013, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Kjötkveðjuhátíðin í Rio de Janeiro í
Brasilíu hefur náð hámarki með
fjölskrúðugum sýningum tólf
sambaskóla. Sýningarnar standa
þrjú kvöld í röð og hófust í fyrra-
kvöld með sýningu sambaskólans
Inocentes de Belford Roxo. Að
þessu sinni eru skrúðgöngurnar á
kjötkveðjuhátíðinni einkum helg-
aðar Kóreu og framlagi Kóreu-
manna til þjóðlífsins í Brasilíu í til-
efni af því að hálf öld er liðin frá því
að margir Kóreumenn tóku að
flytja til landsins. Af 194 milljónum
íbúa Brasilíu eru um 50.000 af kór-
eskum uppruna.
Kóreu-
menn
heiðraðir
AFP
Kjötið kvatt Frá sýningu sambaskólans Unidos da Tijuca á kjötkveðjuhátíðinni sem fer nú fram í Rio de Janeiro.
Kjötkveðjuhátíðin í Rio de Janeiro
Heimild: Rio-carnival.net/Rio.com/Sambodrome.com
Fimm dagar af villtum sambadansi, skrúðgöngum, stórfenglegum
sambasýningum og stanslausri gleði
Kona á sýningu sambaskólans Unidos da Tijuca í febrúar 2012 (Vanderlei Almeida)
85 milljörðum króna
Áætlað er að ferða-
mennirnir eyði samtals
250.000
störf urðu til
vegna hátíðarinnar
14.500
lögreglumenn
annast löggæslu 72.500
sæti eru fyrir
áhorfendur á
sýningarstaðnum
3.000-5.000
taka þátt í sýningu
hvers skóla
Sambaskólar taka
þátt í samba-
sýningunum
12
250-650 millj. kr.
er fjárhæðin sem
hver skóli eyðir á ári
6 milljónir manna
sækja hátíðina, þeirra
á meðal meira en
900.000
ferðamenn
8.-13. febrúar
Forsætisráðherra Rúmeníu, Victor
Ponta, hefur neitað ásökunum um að
sláturhús þar í landi hafi selt evr-
ópskum matvælafyrirtækjum
hrossakjöt sem nautakjöt.
„Við höfum sannreynt þetta. Það
hafa ekki átt sér stað nein brot á evr-
ópskum reglum eða viðmiðunum,“
sagði Ponta á blaðamannafundi í
Búkarest og bætti við að ekkert
benti til þess að sláturhúsin hefðu
merkt hrossakjötið ranglega.
Áður hafði verið skýrt frá því að
kjötið hefði verið flutt inn til Frakk-
lands frá tveimur sláturhúsum í
Rúmeníu.
Hrossakjötið var notað í lasagna
og fleiri tilbúna rétti frá frystivöru-
fyrirtækinu Findus í Svíþjóð, þeir
voru merktir sem nautakjötsréttir
en vörusvikin komu í ljós í rannsókn
sem Findus lét gera. Hefur fyrir-
tækið nú höfðað mál gegn
dreifingarfyrirtæki vegna svikanna.
Málið hefur vakið spurningar um
flókna keðju framleiðenda og milli-
liða í matvælaiðnaði. Hrossakjötið
var fyrst selt til milliliðar í Hollandi,
þaðan til annars milliliðar á Kýpur,
þaðan til kjötvinnslu í Frakklandi
áður en unnu kjötvörurnar voru
seldar í Frakklandi, Bretlandi, Sví-
þjóð og Írlandi.
Owen Paterson, sem fer með mat-
vælamál í bresku stjórninni, sagði að
málið kynni að vera liður í „viða-
miklu, glæpsamlegu samsæri“. Að
svo stöddu kæmi ekki til greina að
banna innflutning á unnum matvör-
um en breska stjórnin myndi ekki
hika við að setja slíkt bann ef neyt-
endum stafaði hætta af vörunum.
Að sögn breska dagblaðsins The
Guardian eru bresk yfirvöld að rann-
saka hvort hrossakjötið hafi inni-
haldið leifar af lyfinu phenylbuta-
zone, eða bute. Bannað er að selja
kjöt hrossa sem fengið hafa lyfið.
bogi@mbl.is
Segjast ekki
bera ábyrgðina
Rúmenar neita sök í hrossakjötsmáli
AFP
Ekki við! Victor Ponta á blaða-
mannafundi í Búkarest í gær.
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð HRINGDU
OG FÁÐU
UPPLÝSINGAR
562 8500
BORÐDAGATÖL
OG BORÐMOTTUR
Framleiðum borðdagatöl og borðmottur fyrir fyrirtæki
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi
Lifandi tónlist
um helgar
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur hæðum í
miðbæ Reykjavíkur
Á föstudags- og laugardagskvöldum
töfrar hinn frábæri klassíski gítarleikari
Símon H. Ívarsson fram fallegar perlur
tónlistarsögunnar.
Njóttu þess að borða góðan mat
og hlíða á töfrandi tóna í hlýlegu
umhverfi. Hjá okkur er notalegt í
skammdeginu.