Morgunblaðið - 12.02.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Við bræðurnir ætlum að bjóða okkar nánasta fólki í mat íkvöld. Ég reikna svo með að hljóðfærin verði dregin fram ogEyjalögin sungin,“ segir Svanur Ingvarsson á Selfossi. Svan-
ur og Þröstur tvíburabróðir hans eru fimmtugir í dag. Þeir bræður
eru fæddir í Vestmannaeyjum og ólust þar upp fyrstu árin. Í eldgos-
inu árið 1973 flutti fjölskylda þeirra á Selfoss og hefur búið þar síð-
an.
Svanur er húsasmiður að mennt. Þeir Þröstur störfuðu sjálfstætt í
nokkur ár, en haustið 1989 slasaðist Svanur og hefur verið í hjóla-
stól síðan. „Í kjölfar slyssins varð ég að vinna hlutina alveg upp á
nýtt, en ég bjó þó alltaf að smíðinni,“ segir Svanur, sem aflaði sér
kennsluréttinda og hefur sl. níu ár starfað við tréiðnadeild Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Áður sinnti hann grunnskólakennslu.
„Sem strákur var ég mikið í íþróttum, æfði frjálsar, fimleika og
sund. Raunar hefur íþróttastarf alltaf verið stór hluti af daglegri til-
veru minni,“ segir Svanur, sem eftir slysið varð virkur í íþrótta-
starfi fatlaðra og var fulltrúi Íslendinga á tveimur ólympíumótum.
„Í dag stunda ég íþróttirnar sem daglega heilsubót; fer í sund, er á
kajak á sumrin og ferðast um bæinn á handknúnu þríhjóli sem við
félagi minn smíðuðum endur fyrir löngu,“ segir Svanur Ingvarsson,
sem er kvæntur Maríu Óladóttur og eiga þau tvö börn, Ara Steinar
og Hörpu, sem fermist í vor. sbs@mbl.is
Svanur Ingvarsson er fimmtugur í dag
Fjölskyldan Svanur Ingvarsson á góðri stundu síðastliðið sumar með
eiginkonu sinni, Maríu Óladóttur, og dótturinni Hörpu.
Kom sér vel að
búa að smíðinni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigríður Guð-
mundsdóttir frá
Hurðabaki, til
heimilis í Grænu-
mörk 2 á Selfossi,
er níræð í dag,
12. febrúar. Sig-
ríður er að heim-
an og eyðir deginum með fjölskyld-
unni.
Árnað heilla
90 ára
Bryndís Flosa-
dóttir verður sjö-
tíu og fimm ára á
morgun, 13. febr-
úar. Eiginmaður
hennar er Sig-
tryggur Bene-
dikts. Þau búa á
Carl-Bødker Nilsensvej 19, Hornbæk
Danmörku.
Árnað heilla
75 ára
Húsavík Sara Rut fæddist 23. maí kl.
23.10. Hún vó 4.285 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Ásgerður
Heba Aðalsteinsdóttir og Sigþór Sig-
þórsson.
Nýir borgarar
Hvanneyri Egill Árni fæddist 25. maí
kl. 10.33. Hann vó 3.930 g og var 52
cm langur. Foreldrar hans eru Anna
Sigríður Hauksdóttir og Kristján Ingi
Pétursson.
S
igrún Arnardóttir fædd-
ist í Reykjavík 12.2.
1963 og ólst þar upp til
sex ára aldurs við
Hrefnugötu, síðan í
Garðabænum næstu sex árin og
loks í Fossvoginum. Hún var í
Flataskóla, Réttarholtsskóla og
MS, lauk þaðan stúdentsprófi
1983, lauk embættisprófi í lækn-
isfræði frá HÍ 1989, öðlaðist al-
mennt lækningaleyfi 1992, var
kandidat á krabbameinsdeild
Landspítalans 1989, á slysadeild
Borgarspítalans 1990, á Landspít-
alanum, og lyflæknisdeild Borg-
arspítalans, 1991 og kvennadeild
Landspítalans 1991-92, aðstoð-
arlæknir í sérfræðinámi í kven-
sjúkdómum- og fæðingarhjálp á
kvennadeild Hull Maternity Hosp-
ital á Englandi 1996-97 og á
kvennadeild Castle Hill Hospital
1997-2001. Er sérfræðingur í kven-
sjúkdóma- og fæðingarlækningum
við kvennadeild LSH frá 2002.
Sigrún var flugfreyja á sumrin á
árunum 1985-89, er sérfræðingur í
Sigrún var ritari í stjórn Félags
íslenskra fæðingar- og kven-
sjúkdómalækna 2007-2011 og er
meðlimur í Soroptimistaklúbbi Ár-
bæjar og meðlimur í Gospelkór
Sigrún Arnardóttir, kvensjúkdómalæknir í Reykjavík, 50 ára
Tinna nýstúdent Frá vinstri: Tómas; Tinna; Bryndís Arna, afmælisbarnið og Níels Rafn Guðmundsson.
Læknir og hestakona
Móðir og systkini Talið frá vinstri: Stefanía; Kolbrún, móðir Sigrúnar;
Björn; Inga, og Sigrún.