Morgunblaðið - 12.02.2013, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2013
Það er ekki lítið verk að tak-ast á við að fjalla í kvik-mynd um leitina að leið-toga hryðjuverkasamtak-
anna Al-Kaída, Osama bin Laden,
allt frá því samtökin gerðu hryðju-
verkaárás á Bandaríkin 11. sept-
ember 2001 þar til hann var felldur
af bandarískum sérsveitarmönnum í
Pakistan árið 2011. Óskarsverð-
launaleikstjóranum Bigelow tekst
það hins vegar vel í Zero Dark
Thirty, þótt sérfróðir muni eflaust
finna ýmsar eyður í frásögninni og
staðreyndavillur. Gagnrýnandi er
langt frá því að vera slíkur sérfræð-
ingur en þó nógu vel að sér til þess
að vita að ítarleg úttekt á þeirri leit
með öllum sínum pólitísku flækjum,
pyntingum og innrásum verða aldrei
gerð fullkomin skil í einni kvikmynd.
Nei, hér er farið hratt yfir sögu þótt
myndin sé 157 mínútur. Bigelow hef-
ur verið gagnrýnd fyrir að gera of
mikið úr þætti pyntinga í því að bin
Laden fannst á endanum. Hvort það
er satt vita aðrir en kvikmyndagagn-
rýnendur en vissulega er nokkuð um
pyntingar í myndinni og þá m.a.
sýnd hin skelfilega vatnsbrettis-
aðferð sýnd þar sem mönnum er
nær drekkt hvað eftir annað.
Í myndinni er sjónum fyrst og
fremst beint að þætti ungrar leyni-
þjónustukonu, Mayu, í leitinni að bin
Laden. Maya hefur seinni hluta
myndar uppi á nánasta samstarfs-
manni hryðjuverkaleiðtogans eða
boðbera og tekst í framhaldinu að
rekja slóð hans að húsi einu óárenni-
legu í Abbottabad í Pakistan þar
sem hann var veginn, 2. maí árið
2011. Sagan er æði flókin og ógern-
ingur að rekja hana í stuttu máli,
þótt hún sé vissulega einfölduð fyrir
kvikmyndarformið. Fyrrverandi
starfsmenn CIA sem unnu við að
rekja slóð bin Ladens halda því fram
að Maya sé ekki til, skv. viðtali í LA
Times frá 24. janúar sl. sem tekið
var í tilefni af frumsýningu heimild-
armyndar um sama efni á Sundance-
kvikmyndahátíðinni. Í viðtalinu
segja þessir fyrrverandi CIA-menn
að heldur frjálslega sé farið með
staðreyndir í kvikmyndinni. Það er
leitt því þótt þetta sé kvikmynd með
sínum skáldaleyfum þá er umfjöll-
unarefnið það mikilvægt að maður
gerir ákveðna kröfu um að stað-
reyndum sé fylgt.
En hvað um það. Ef kvikmyndin
er metin burtséð frá þessum vanga-
veltum um staðreyndir þá er hún
virkilega vönduð. Hún er að vísu
ruglingsleg á köflum, sögupersónur
birtast á tjaldinu án þess að vera
kynntar og áhorfandinn þarf að geta
sér til um hver sé á ferðinni. En
spennandi er hún, vel leikin, kvik-
myndatakan fyrsta flokks og ber þar
hæst magnað lokaatriði myndar-
innar þegar sérsveitin gerir áhlaup á
felustað bin Ladens, hálftíma eftir
miðnætti (titill myndarinnar er e.k.
her- eða njósnamál yfir þá tímasetn-
ingu).
Bigelow hefur áður fengið mann
til að naga neglurnar af spenningi,
sérstaklega í hinni marglofuðu Hurt
Locker og hér sýnir hún enn og aft-
ur þann hæfileika sinn. Zero Dark
Thirty er dramatísk, eins og gefur
að skilja, og spennan magnast hægt
og bítandi þar til hún nær rafmögn-
uðu hámarki undir lokin. Það kemur
ekki á óvart að Zero Dark Thirty
skuli hafa verið hlaðin lofi og keppi
um hin eftirsóttu Óskarsverðlaun
sem besta kvikmynd ársins 2012.
Skrítnara er, hins vegar, að leik-
stjórinn skuli ekki vera tilnefndur til
þeirra.
Lofuð Zero Dark Thirty er spennandi, „vel leikin, kvikmyndatakan fyrsta
flokks og ber þar hæst magnað lokaatriði myndarinnar,“ segir rýnir.
Stutta útgáfan af leitinni löngu
Smárabíó, Borgarbíó og
Laugarásbíó
Zero Dark Thirty bbbbn
Leikstjóri: Kathryn Bigelow. Aðalleikar-
ar: Jessica Chastain, Chris Pratt, Édgar
Ramírez, Jason Clarke, Jennifer Ehle,
Joel Edgerton og Mark Strong. Banda-
ríkin, 2012. 157 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Breska hljómsveitin Mumford &
Sons hreppti þau Grammy-
verðlaunanna sem sögð eru eftirsótt-
ust, fyrir hljómplötu ársins, plötuna
Babel, á verðlaunaafhendingunni í
Los Angeles á sunnudag. Hljóm-
sveitin The Black Keys og forsprakk-
inn Dan Auerbach hrepptu hins veg-
ar flest verðlaun, fern, þar á meðal
fyrir bestu rokkplötu ársins, El Cam-
ino, og bestu frammistöðu rokkara á
árinu, í laginu „Lonely Boy“.
Þeir Michael Amzalag og Mathias
Augustyniak, sem báru ábyrgð á
hönnun Biophilia-disks Bjarkar Guð-
mundsdóttur og myndefninu sem
honum tengist, hrepptu Grammy-
verðlaunin fyrir sinn þátt í verkinu.
Biophilia var einnig tilnefnd sem
besta óháða plata ársins, en þar bar
Making Mirrors með belgísk-
ástralska popparanum Gotye sigur
úr býtum. Hann hreppti þrenn verð-
laun alls, einnig fyrir upptöku ársins
og besta poppdúettinn, lagið „Some-
body That I Used to Know“ sem
hann flutti með Kimbra og var vin-
sælasta lag ársins í Bandaríkjunum í
fyrra.
Yngri listamenn tilnefndir
Að vanda voru veitt verðlaun í
fjölda flokka, fyrir alls kyns tónlist;
upptökur og flutning. Fun, sem er
popprokktríó frá Brooklyn í New
York, hreppti verðlaun sem besti ný-
liðinn og átti líka lag ársins, „We Are
Young“. Það hefur selst í yfir sex
milljónum eintaka. Skrillex, Jay-Z og
Kanye West hrepptu einnig þrenn
verðlaun en þeir tveir síðarnefndu
voru meðal annars rappflytjendur
ársins.
Í The New York Times er haft eft-
ir einum forsvarsmanna Grammy-
verðlaunanna að það hafi verið
óvenjulegt við verðlaunin í ár hvað
ungir listamenn voru áberandi í til-
nefningunum. Taldi hann það sýna að
umtalsverð endurnýjun væri í vænd-
um í tónlistarheiminum. Stórmeist-
arar halda þó áfram að hreppa sín
verðlaun; Paul McCartney átti bestu
„hefðbundnu poppplötuna“, Kisses
on the Botton.
Að vanda var fjöldi listamanna
með tónlistaratriði við verðlauna-
afhendinguna. Justin Timberlake
flutti lag af fyrstu plötu sinni í sjö ár,
studdur af Jay-Z sem rappaði með
honum. Rihanna flutti lag sitt „Stay“
og Bobs Marleys var minnst, þegar
Bruno Mars, Sting, Rihanna og þrjú
barna Marleys tóku lagið saman.
Djassgoðsögnin Dave Brubeck lést
nýverið og þrír stórmeistar úr djass-
heiminum, Chick Corea, Stanley
Clarke og Kenny Garrett, fluttu
frægasta ópus hans, „Take Five“.
Í djassi var plata Pats Methenys
Unity Band, „Unity Band“, valin sú
besta, og félagarnir Gary Burton og
Chick Corea, sem glöddu tónleika-
gesti í Hörpu á árinu, áttu besta
djassspunann á árinu, í laginu „Hot
House“. efi@mbl.is
Mumford & Sons fengu
Grammy fyrir plötu ársins
AFP
Lukkulegir Félagarnir í Mumford & Sons fögnuðu verðlaununum sem þeir
hrepptu fyrir bestu plötu ársins á Grammy-verðlaunahátíðinni í fyrrakvöld.
Heimstónar Anoushka tók við
verðlaunum föður síns, Ravis
Shankars, sem lést á liðnu ári.
Rappað Justin Timberlake og
Jay-Z fluttu lagið „Suit & Tie“.
Jay-Z hreppti þrenn verðlaun.
The Black Keys
hrepptu flest verð-
laun að þessu sinni
NAOMIWATTS
TILNEFNDTIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
NAOMI WATTS TILNEFND
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
-EMPIRE
NÚ Í FRÁBÆRRI ÞRÍVÍDD
SKRÍMSLIN SEM ALLIR ELSKA
“STALLONE IS BACK TO HIS BEST”
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
VIP
HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8 (10:10 3DÓTEXTUÐ)
HANSEL AND GRETEL VIPKL. 6 - 10:10
BULLET TO THE HEAD KL. 6 - 8 - 10:10
BULLET TO THE HEAD VIP KL. 8
PARKER KL. 8 - 10:30
GANGSTER SQUAD KL. 5:30 - 8 - 10:30
JACK REACHER KL. 10:30
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40 - 8
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50
KRINGLUNNI
HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8- 10:10
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:10
GANGSTER SQUAD KL. 8 - 10:30
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30
BULLET TO THE HEAD KL. 5:50 - 8 - 10:10
HANSEL AND GRETEL KL. 8 - 10:10
PARKER KL. 5:30 - 8 - 10:30
GANGSTER SQUAD KL. 8 - 10:30
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
HANSEL AND GRETEL KL. 8
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10
PARKER KL. 10
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 6
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6
AKUREYRI
HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10
PARKER KL. 10
THE IMPOSSIBLE KL. 6
-ZOO ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ
JEREMY RENNER Í AÐALHLUTVERKI
TILBO
Ð
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
–– Meira fyrir lesendur
.
Food and Fun
verður haldin í
Reykjavík
27. febrúar
- 3. mars.
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matarhátíðinni
föstudaginn 22. febrúar.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn
18. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is