Morgunblaðið - 12.02.2013, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 43. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Annað hrun óumflýjanlegt
2. Páfinn segir af sér
3. Það var ekki pláss fyrir hræðslu
4. Heita milljón dollurum í ...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Uppistandsgengið Hjólastólasveit-
in hyggst ganga af göflunum í uppi-
standi í Gaflaraleikhúsinu annað
kvöld klukkan 20.30. Sveitina skipa
„tourette-drottningin“ Elva Dögg
Gunnarsdóttir og „öryrkinn ósigr-
andi“ Leifur Leifsson. Ljóti hálfvitinn
Sævar Sigurgeirsson verður gestur.
Morgunblaðið/Kristinn
Hjólastólasveitin
með uppistand
Jón Geir Jó-
hannsson trymbill
fór mikinn á út-
gáfutónleikum
Skálmaldar í Há-
skólabíói um liðna
helgi, jafnvel svo
undrum sætti í ljósi þess að það tók
hann þrjár klukkustundir að komast
fram úr rúminu um morguninn –
vegna þursabits. Ekki heyrðist það á
trumbuslættinum en glöggir gestir
veittu því athygli eftir tónleikana að
göngulag Jóns var svolítið skrýtið.
Trymbill lét þursa-
bitið ekki stöðva sig
Tvíburasysturnar Jófríður og Ást-
hildur Ákadætur munu í stefnumóta-
kaffi Gerðubergs á miðvikudagskvöld
klukkan 20 segja frá ævintýralegri
tónleikaferð hljóm-
sveitar sinnar,
Pascal pinon, til
Japans og Kína.
Þær stofnuðu
sveitina 2009,
þegar þær voru
14 ára, og hafa nú
gefið út nýja
breiðskífu.
Tvíburar segja frá
tónleikaferð til Asíu
Á miðvikudag Gengur í norðaustan og austan 8-15 m/s, en 15-20
við SA-ströndina. Slydda eða rigning á SA-landi og Austfjörðum.
Á fimmtudag Norðlæg átt, 5-13 m/s. Dálítil slydda eða snjókoma
N- og A-lands og snjókoma í innsveitum, en bjartviðri S-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Slydda eða snjókoma austast á landinu síð-
degis. Hiti 0 til 4 stig við ströndina, en frost 0 til 6 stig til landsins.
VEÐUR
„Ég ætla að aðstoða Heimi
eftir megni og þykir það
verðugt verkefni miðað við
stöðuna hjá Val um þessar
mundir,“ sagði hinn þraut-
reyndi handknattleiksþjálf-
ari, Þorbjörn Jensson, sem í
gær var nokkuð óvænt ráðinn
aðstoðarþjálfari hjá karlaliði
Vals í N1-deildinni. Þorbjörn,
sem er fyrrverandi landsliðs-
þjálfari, var sigursæll þjálfari
hjá Val á tíunda áratug síð-
ustu aldar. »1
Verðugt verkefni
að aðstoða Heimi
Vilhelm Gauti Bergsveinsson, fyrirliði
Íslandsmeistara HK í handbolta, ætl-
ar að leggja skóna á hilluna eftir
þetta tímabil. Vilhelm, sem er leik-
maður 14. umferðar hjá Morgun-
blaðinu, og eiginkona hans eiga von á
tvíburum og hann segir að það hafi
verið umsamið að
hann myndi hætta
þegar fjölgaði frekar
í fjölskyldunni. »4
Tvíburar á leiðinni og
Vilhelm Gauti hættir
Breiðholtsliðið Leiknir varð í gær-
kvöld Reykjavíkurmeistari karla í
knattspyrnu í fyrsta skipti með því að
sigra KR, 3:2, í úrslitaleik í Egilshöll-
inni. Leiknir er áttunda félagið frá
upphafi sem vinnur þetta næstelsta
knattspyrnumót landsins sem hefur
verið haldið frá 1915 en Leiknismenn
hafa aldrei áður komist í úrslitaleik
mótsins. »1
Sögulegur sigur Leikn-
ismanna gegn KR
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Hammondhátíðin á Djúpavogi
verður haldin í áttunda skipti dag-
ana 25-28. apríl næstkomandi.
Eins og nafnið ber með sér er há-
tíðin haldin til heiðurs og til kynn-
ingar á Hammond-orgelinu.
„Eðlilega er Hammond-orgelið í
aðalhlutverki á hátíðinni. Vissu-
lega hefur hátíðin þróast og vaxið
undanfarin ár í áttina að því að
verða almenn tónlistarhátíð en við
höfum alltaf passað okkur á því að
Hammond-orgelið sé í aðalhlut-
verki. Það er í raun frumskilyrði
að Hammond-orgel sé notað í öll-
um atriðum,“ segir Ólafur Björns-
son, framkvæmdastjóri hátíðar-
innar.
Hátíðin alltaf að stækka
Skipuleggjendur leggja mikið í
sölurnar og segir Ólafur að ávallt
hafi verið lögð áhersla á að boðið
sé upp á vandaðan tónlistarflutn-
ing á hátíðinni. Hátíðin í ár sé þar
engin undantekning. „Ég tel
reyndar, að í ár séu áherslurnar
örlítið hlustendavænni,“ segir
Ólafur og nefnir að hljómsveitir
eins og Nýdönsk og Dúndurfréttir
muni koma fram á hátíðinni í ár.
Hinsvegar sé fjölbreytt tónlist í
boði alla hátíðardagana og t.a.m.
sé fyrsta kvöldið hápunkturinn hjá
mörgum. Þar komi fram tónlistar-
menn og hljómsveitir frá Djúpa-
vogi og Austurlandi á svokölluðu
austfirsku kvöldi.
Ólafur segir hátíðina alltaf
vera að þróast og stækka og
hún setji mark sitt á sam-
félagið á Djúpavogi ár hvert.
Heimamenn standi fyrir ýms-
um viðburðum og starf-
semi á hátíðardögunum.
„Slíkt hefur aukist
undanfarin tvö ár.
Það er ýmislegt í
gangi í bænum. Á laugardeginum,
þegar hátíðin nær ákveðnu há-
marki, er mjög líflegt í bænum.
Handverksfólk og listamenn opna
stofur sínar, kaffihús eru opin og
fólk röltir á milli staða í plássinu.
Það myndast mjög lífleg og
skemmtileg stemning í bænum,“
segir Ólafur.
Skipuleggjendur hátíðarinnar
segja að í fyrra hafi um 600 manns
mætt á tónleika á hverju kvöldi á
hátíðinni. Þess má geta að 450
manns búa í Djúpavogshreppi.
Ólafur segir hátíðina vinsæla með-
al brottfluttra Djúpavogsbúa en
einnig séu Austfirðingar duglegir
að láta sjá sig á þessari for-
vitnilegu hátíð þar sem Hammond-
orgelið er í hávegum haft.
Hammond-orgelið í aðalhlutverki
Standa árlega
fyrir tónlistar-
hátíð á Djúpavogi
Mynd/Björn Hafþór Guðmundsson
Gleði á Hammondhátíð Hér má sjá Samúel Jón Samúelsson tónlistarmann í góðum gír á Hammondhátíðinni árið
2008. Miðað við þessa mynd er óhætt að lofa hátíðargestum taumlausri skemmtun á hátíðinni á Djúpavogi.
Það er Svavar Sigurðsson, fyrrver-
andi tónlistarkennari á Djúpavogi,
sem er upphafsmaður Hamm-
ondhátíðarinnar. Sérstakt fé-
lag, Tónlistarfélag Djúpa-
vogs, var stofnað utan um
hátíðina undir forystu
Svavars á sínum tíma.
„Svavar hefur brennandi
áhuga á Hamm-
ond-orgelinu og
fannst vanta há-
tíð tileinkaða þessu hljóðfæri sem
honum þykir merkara en mörg
önnur í tónlistarsögunni,“ segir
Ólafur. „Hann langaði að búa til
hátíð til að heiðra og ekki síður
kynna þetta hljóðfæri sem kemur
víða við í tónlistarsögunni en ekki
er víst að margir þekki sérstaklega
vel,“ segir Ólafur. Svavar stýrði há-
tíðinni allt þangað til á síðasta ári
en hann starfar í dag sem tónlist-
arkennari á Blönduósi.
Heiðra og kynna hljóðfærið
ÁHUGAMENN UM HAMMOND-ORGELIÐ
Svavar
Sigurðsson