Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2002, Síða 35
Aldraðir sem og aðrir þjóðfélagsþegnar eiga að fá tækifæri
til að dvelja á eigin heimili svo lengi sem unnt er. Svo lengi
sem heilsan er góð þarf þjónustan ekki að vera mikil. En fari
heilsan að bila kemur til kasta hjúkrunarþjónustunnar. í öldr-
unarhjúkrun sem og annarri hjúkrun er veitt félagsleg, andleg
og líkamleg hjúkrun. Þar sem hjúkrun nær til svo margra þátta
í mannlegum samskiptum eru hjúkrunarfræðingar þeir aðilar
sem best eru til þess fallnir að stýra þessari teymisvinnu.
c) Dregið verði úr tíðni mjaðma- og hryggbrota um 25%.
Þetta markmið teljum við að geti náðst með því að útbúa
og kynna ffæðsluefni. Þessi ffæðsla þyrfti að vera aðgengileg
og markviss og á vegum heilsugæslunnar. Einnig mætti hugsa
sér fræðslufundi á vegum félagsmiðstöðvanna. Koma þyrffi á
fót miðstöð er sér um beinþéttnimælingar. Þessi rannsókn gæti
t.d. verið á þann veg að gefa fólki kost á markvissri mælingu
annað hvert ár og oftar ef þurfa þykir.
d) Yfir 50% fólks 65 ára og eldra hafi að minnsta kosti 20
tennur í biti.
Þetta markmið teljum við að geti náðst. Mikilvægt er að
tannhirða og tannheilsuvernd sé í hávegum höfð frá unga
aldri. Tannfræðingar fari í reglubundnar fræðsluferðir í fyrir-
tæki og stofnanir.
Eins og ffam hefur komið eru verkefnin ærin og þurfa margir
aðilar að leggja hönd á plóg til að markmiðin náist. Mikið er af
áhugasömu og vel menntuðu fólki er kemur beint og óbeint að
öldrunarþjónustunni. Takist að sameina þessa kraffa, með fram-
lögum ffá hinu opinbera og séu markmið skýrslunnar höfð að
leiðarljósi verður enn meira gaman að vinna við öldrunarhjúkrun.
Hjúhrunarþing
Félags íslenskra hjúhrunarfræðinga
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga efnirtil hjúkrunarþings þann 15. nóvember n.k.,
kl. 9:00-17:00. íBorgatúni 6.
Á þinginu verður fjallað um Heilbrigðisáætlun til ársins 2010, hlutverk
hjúkrunarfræðinga í áætluninni og á hvern hátt hjúkrunarfræðingar
geti stuðlað sem best að því að markmiðum áætlunarinnar verði náð.
Fjallað verður sérstaklega um forgangsverkefni heílbrigðisáætlunar
sem eru áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir, börn og ungmenni,
eldri borgarar. geðheilbrigði, hjarta og heilavernd.
krabbameinsvarnir og slysavarnir.
Á dagskrá verða framsöguerindi, hópvinna og pallborðsumræður.
í hópunum munu hjúkrunarfræðingar ræða hvernig hjúkrunar-
fræðingar telja að þeir geti náð markmiðum forgangs-
verkefnanna, tækifæri hjúkrunarfræðinga innan heilbrigðis-
þjónustunnar og forgangsröðun verkefna.
Þátttöku skal tilkynna fyrir 4. nóvember 2002 á skrifstofu félagsins í síma 540 6400 eða á netfangið
hjukrun@hjukrun.is þar sem fram kemur nafn og kennitala.
Þátttökugjald er 1.500 kr. og er hádegismatur og kaffi innifalið.
Hjúkrunarfræðingar sem vilja hafa áhrif á stefnumótun félagsins eru hvattir til að mæta.
Dagskrá hjúkrunarþingsins verður auglýst nánar á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
www.hjukrun.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 78. árg. 2002
227