Alþýðublaðið - 24.12.1940, Page 1

Alþýðublaðið - 24.12.1940, Page 1
ALÞÝBUBLABIÐ JÓLABLAÐ 1940 JOLIN 1940. FRÁ UPPHAFI VEGA hafa íslendingar hugs- . að til jólanna með alveg sérstakri fagnaðar- kennd. Jólin eru æfa forn hátíð, miklu eldri en kristinn siður á Norðurlöndum. Frá því að byggð festist á norðurhjara veraldar hafa menn haldið þessa miðsvetrarhátíð til að fagna komu hækkandi sólar og lengjandi dags. Þrátt fyrir all- ar þær trúarlegu endurminningar, sem við jól okkar nútímamanna eru tengdar, eimir þó ennþá nokkuð eftir í hugum okkar allra af þessum forna skilningi á jólunum. íslenzki veturinn hefir löng- um verið strangur. Menn hafa gegnum aldirnar orðið að skoða hann sem harðvítuga baráttu fyrir lífinu við óblíð og duttlungafull náttúruöfl. Menn hafa lengst af orðið að spara við sig það, sem heyrir til þæginda líísins og prýði. Ljós og ylur var af skornum skammti. Hver einstakur bær í byggðum landsins var eins óg einangraður heim- ur með sínar áhyggjur og sína baráttu. En þegar leið að jólum var mönnum það löngum ljóst, að vetrarþrautin var hálfnuð, og til að marka þann atburð, gerðu menn sér þann dagamun, sem föng leyfðu. Menn snæddu ríkulega það, sem bezt var í búi, lýstu híbýli sín tíl þess að gera hátíða- braginn sem mestan. Og síðast en ekki sízt, menn tóku hugum sínum frí frá hinni daglegu áhyggju, glöddust sjálfir og glöddu aðra. Lífið fékk á sig vinalegri og ástúðlegri blæ en nokkurn annan tíma ársins. Einmitt á þennan hátt óskum við gjarna, að geta haldið jólin en þann dag í dag. En aldrei á síðari öldum hefir mannkynið búizt við að halda jól með eins skuggalegar horfur fram undan og ömurlegar eins og einmitt nú. Jólin 1940 eru mörkuð af styrjöldinni, sem nú er búin að standa nokkuð á annað ár. Enn höf- um við íslendingar sloppið furðulega vel við hinar þyngstu afleiðingar hennar. Þess í stað hefir borið hér á hendur ýmsum mönnum meira fé en dæmi eru til að menn hér hafi haft hánda á milli nokkru sinni áður. Og þó að við megum kalla okkur hafa ' sloppið vel, þá höfum við þó verið minnt á það á mjög átakanlegan hátt, hvílík hætta vofir yfir ís- lenzkum sjófarendum. Og hringurinn sýnist vera að þrengjast utan um land okkar. Fiskimiðin eru að lokast fyrir aðgerðir hernaðarþjóðanna, og má enginn vita, hvar það tekur enda. Það er þe&s vegna augljóst, að meiri áhyggja grúfir yfir jóla- haldi margra á þessum jólum en undanfarin ár. Það er ólíkt skapferli og lundarfari íslendinga að beygja sig fyrir erfiðleikum. í meira en 1000 ár hefir þjóðin gengið í harðan skóla, þar sem hún hefir lært að þola miklar raunir og taka með karl- mennsku á torveldum viðfangsefnum. Hún hefir æfinlega varðveitt í brjósti sér vissuna um það, að öll él birtir upp um síðir. Og á þessum styrj- aldarvetri, sem nú geisar um heiminn, geymum við öll í hugum okkar vonina um hinn langþráða frið. Við íslendingar geturn að vísu lítið lagt til þeirra mála sjálfir og hvorki knúið friðinn fram, né ráðið neinu um það, hvílíkur hann verður. En það er annað, sem við getum gert, við getum starf- að af alúð og drengskap að því áð skapa hér í okkar eigin landi fagurt og blómlegt athafnalíf og réttlátt félagsskipulag. Við getum gert að veru- leika í framkvæmdinni þá staðreynd, að gæði landsins eru eign allra barna þess og við getum starfað að því, að ala hér upp í landinu vel mennt- aðan, prúðan og reglusaman æskulýð. Ef við rækj- um allar þessar skyldur vel, getum við róleg beð- ið framtíðarinnar, fullviss um það, að þá muni enn rætast hin fögru orð skáldsins, „að eyjan hvíta á sér enn vor, ef fólkið þorir Guði að treysta, hlekki hrista, hlýða réttu, góðs að bíða." Sigurður Einarsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.