Alþýðublaðið - 24.12.1940, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.12.1940, Blaðsíða 7
Smásap eftir iiiaMiii ALÞÝÐUBLAÐSINS 7 EÓGM4LMUR EIR SEGJA, að gullið í borgunum sé rógmálmur og að það spilli mönnunum og glepji könurnar. Þeíta er sjálfsagt satt, þegar rangt er með gullið farið. En ég segi enn fremur: Varið ykkur á jörðunni! Hennar græna guli, grasið og viðurinn, h'ið ljómandi glasisbarr, geíur breytzt i rógmáím og leitt bölvun og utlegð yfir manuinn og tendrað hatur í augum bræðra, er {>eir horfa hvor á annan — ef þeir skilja ekki frá upphafi, að sá, sem hsfir skapað jörðina og gefið hana mönnum og dýi'um, á hana samt sem áður einn — að enginn maður ge.ur fiutt með sér eitt einasta korn af hennar gullnu akuröxum, né hinn minnsta ávöxt Iyngsins, þegar hann fer héðan úr heimi. Við erum eins og leigjendur í duft- inu, hins mikla lífsanda, sem Jæíur okkur fæðast og lifa lííiniu á þessari jiörð. En við viljum meira: Við viljum ve;a eigendur — viljum vera tré, með ræturnar djúpt í gróðrarmold, þegar ávöxtur lífs okkar er fullþroskaður og fallinn af greinum — vilj'um vera erfingjar og Iáta eflir okkur arf. Það er líka sælt og lífið leyfir það, en aifurinn má aðeins ekki vera Fáfnisarfur — heklur arfur mannvits og mannúðar, sem ber í ávöxt fögur fordæmi og dýrar dáðir, næstu kynslóð til handa. Eigi einhver blett jarðar að lögum manna, þá má hann ekki skilja haran eftir án aðvörunar, því að börn hans elska hann máske jafnheitt, tvö eða fleiri. Og þá er voðinn vís. Han-n á að segja við synina: Jörðin blessar ykkur aðeins svo lengi, sem þið eruð sáttir um hana. Deilið ehki.um erfða'and I Skifíið því bróðurlegá og ávaxti hver sitt, svo að það fullnægi honum — eða varpið hlutkesti um það, hver e:gi að búa á erfðajörðiani iog hver að kaiu-pa sér nýja staðfestu, ef hann kýs að verða sjálfseignarbóndi. Það er lika sælt að nema nýtt land, Það gerði forfaðir ykkar, sein fyrsrnr eignaðist þessa jörð. Þannjg eiga feður jarðarerfingja að mæia, áður en þeir hnfga í gröf sína, svö að blessun, en ekki óblessun fylgi arfi þeirra. Hver, sem skilur lögmál jarðarinnar, er frjáls og heill maður. Bn hinn, sem lifir blindur, í æði ágirndar og deilir við bfóður sinn, verður fyrir óblessun og andlegum dauða. Þétta lögmál gildir jafnt fyrir einstaklinga sem heilar þijióðir. Feður og mæður, sem eiga óðalsjörð og börn, eiga að skýra fyiir þeim leyndardóm ástarinnar á föðurleifðinni — að hún blessar þann einn, sem ekki gerir rangt — að deilur um jörðina eitra líf mannsins — að h.ið eina og ófrávíkjanlega skilyrði þess, að geta orðið sæll og lifað við hjartafrið til dauðans er þetta: að taka ekkert af bróður sínum, heldur vinna sjálfur til alls, er lífið veitir. Æskarr er öreigi á gull reynslunnar. Það er sá arfur, sem hún þarfnast fyrst og fremst. Þess vegna á jiarðeigandinn að safna reynslugulli sonum sínum M1 handa, innræta þeim frá fyrstu bernsku, að dyggðin ein veitir mörtnunum hjartafrið, en hitt er aukaatriði, hvar á jörðu þeir búa — að öll jörð, sem búið er á í friði og sátt vil> guð og menp, er blessuð, en öil jörð, sem um er deilt, verður vanblessuð. Þetta er lögmál alls, sem mennirnir teljast eiga. Þeíta veit ég nú. En reynsla mín var dýrkeypt, — af því að ég var alinn upp í blindni þagnarinnar. —- Ef miun kæri faðir hefði innrætt okkur brceðrunum ja'fn snemma málinu, að við mættum aldrei deila um ne'itt, sem kallast eign, því að þá breyttist blessun þess í óblessun og fiiður hjarlans týnist, þá hefði það aldrei skeð, sem nú er fram komið og eitrað hefir árum saman líf okkar tvibu abræðranna frá Goðadal — þá hefði jörðin aldrei komizt upp á milli ókkar Freysteins bróður míris og mín og gert okkur óhamingjusama. En íaðir okkar var þögull maður, eins og margir stór- bændur enu. .Hann hafði sjálfur skapað sér hamingju á föðurleifð sinni með góðri og graradvarri breytni við menn og skepnur. Og jiöröin gaf honúm blessun sína. Hann var einkasonur, og systur hans giptust á burtu. jiann var sjálfsagður erfingi Goðadals og vissi ekki hvað það var, að eiga að skipta jarðeign eða hverfa á burtu af föðurleifð. Þess vegna varaði hann okkur bræðurna ekki við hættunni. Ætt okkar hefir búið í Goðadal í tvö hundruð ár. Þá fara nú ræturnar að verða sterkar og standa djúpt í moldinni. Jörð, sem er elskuð mann fram af mianni er nrargfallt hættulegri en nýtt land. Það er eins og börnin fæðist með ást á henni í hja'rta og að einstiaklmgur erfi eftir eiinsjakling þrá til þess sarna, augu fyrir sömu feg- urð, umað við sama líf. Sonur, sem fæðist, er eins og hlekkur af festi. Djúpt í skauti gróðurmoldarinnar eru eldi-i hjekkir, er fjötra þan'n eða þá, sem ofanjarðar eru, við þennan jaröarbleít, sem hamingja ættarinnar er bundin við, mannsaldur af mannsaldri. — Þegar sonur óöals- bónda borfir í æsku yfir landareignina og er . sæll v:ið allt, sem hann sér og heyrir — þá er unaður hans dýpri en kaupamannsins unga, er lítur upp Um leið og sér dýrð himins og jarðar — því að staðfestusæla forfeðranria iifir í blóði erfingjans og gerir hann margsæian — og hann sefckur sér ofan i unað, sem ungi maðurinn með tvær hendur tómar, hvonki sér né heyrír. Draumar kaupa- mannsins og vonir stefna út í íönd, eitthvert langt í burtlu, og augun og athyglin fara eins og framhjá fegurð og og auðlegð óðalseiignarinnar, sem gerir son eiigandans sælan. Og betri sæla er óvíða til á þessiari jörð en friður þess, sem er fæddur af bóndanum, seun yrkir jörðina og breytir vel við hana og menn og málleysingja. Þarna er athvarf og' skjó', verkefní og framtíðarheill. Þarna vill bann lifa og s'kilja hörnum sínum eftir samastað og æfi- starf. — Þetta er tilfinning óðalsbóndasonarins, er horfir yfir landið, sem manndáð forföðurins varm í sinn hlut

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.