Morgunblaðið - 02.11.1963, Page 28
MORCU N BLAÐIÐ
28
Laugardagur 2. nóv. 1963
SÓLARHRINGUR VIÐ MORGUNBLAÐIÐ
i *;
Svona hýrlega taka þær , frá kl. 8 á morgnana, á móti þeim sem koma með auglýsingar. Frá
vinstri: Sæunn Gunnarsdóttir, Unnur Færseth, Björg Karlsdóttir, Ólöf Sigurgeirsdóttir, Klara
Aradóttir og Helga Þórðardóttir.
EFTIR ELÍNU PÁLMADÓTTUR
SÁ SEM leggur leið sína í há-
hýsið með áletruninni Morgun-
blaðið við endann á Austur-
stræti, kemur aldrei að tómum
kofunum, sama hvaða tíma sól-
arhringsins hann ber að garði.
Ætíð er þar hópur manna önn-
um kafinn við störf og í kapp-
hlaupi við tímann, því verk
hvers starfshóps verður að falla
í tíma inn í starf allra hinna.
Hver minnsta töf veldur röskun.
Þó verður allt að vera liðlegt
í vöfum og breytanlegt, því
fréttir eru þeirrar náttúru að
gerast fyrirvaralaust og alveg
án tillits til prentunartíma blað-
anna. En þegar lesendur vakna
á morgnana vilja þeir auðvitað
geta séð í blaði sínu á augabragði
hvað eina sem gerzt hefur í höf-
uðstaðnum, úti á landsbyggðinni
og víðs vegar í hinum stóra
heimi.
Allan sólarhringinn eru um 100
starfsmenn blaðsins að koma,
leysa sinn hluta starfsins af
hendi og halda að því loknu
heim. Og eru þá ekki talin blað-
burðarbörnin, 115;—120 talsins,
sem reka endahnútinn á útkomu
hvers blaðs með því að dreifa
því til lesenda. í hvert skipti
sem einhver hópur starfsmanna
heldur heim, þreyttur eftir dags-
starf, kvöldstarf eða næturstarf,
er annar hópur kominn og byrj-
aður vinnu.
■
....................................................
Skrifstofufólkið kemur niður stigann, sem liggur upp í skrifstofuna. Fremst frá vinstri: Sigur-
björg Símonardóttir, Örn Jóhannsson og Sigríður Guðmundsdóttir. Önnur röð: Pálína Aðalsteins-
dóttir, Snæfríður Jensdóttir og Lilja Helgadóttir.priðja röð: Dagný Lárusdóttir, Ma-ía Árnadóttir
og Elín Skarphéðinsdóttir. Aftast standa Jón Guðnason og Gunnar Eggertsson.
Ef einhver þyrfti að hitta allt
þetta fólk á .vinnustað, yrði hann
að leggja það á sig að bíða í 24
klukkustundir. Það væri sama
hvenær sólarhringsins hann byrj
aði biðina. Við skulum segja að
hann komi að morgni til.
Eftir kl. 8 liggur straumurinn
í blaða- og auglýsingadeildina á
götuhæð í framhúsinu. Úr því
og fram til kl. 12 streymir þang-
að fólk, sem þarf að auglýsa eitt-
hvað eða eftir einhverju í næsta
blaði, t.d. barnlaus ung hjón sem
vantar íbúð, reglusamur eldri
maður sem óskar að kynnast
konu á aldrinum 40—50 ára,
starfsmaður fyrirtækis, sem vill
vekja athygli á hinu glæsilega
Kleopötruhjónarúmi, kvikmynda
hússtjón, sem þarf að benda
fólki á að missa ekki af æsi-
spennandi og vel gerðri amer-
ískri kvikmynd o.s.frv., því borið
saman við útbreiðslu er lang ó-
dýrast að auglýsa í Morgunblað-
inu, svo sem alkunnugt er. —
Starfsfólk í auglýsingaafgreiðsl-
unni hefur nóg að gera við að
taka við auglýsingum, flokka
þær og koma í setningu til setj-
aranna á dagvakt á hæðinni fyrir
ofan. Og eftir hádegið er strax
byrjað að taka við í þar næsta
blað.
Kl. 10 byrjar umferðin fram-
hjá auglýsingadeildinni og upp á
skrifstofuna, þar sem 11 manns
starfa. Skrifstofuhald er um-
fangsmikið hjá svo stóru fyrir-
tæki, sem hefur fjölþætt skipti
við svo márga aðila vegna efnis-
öflunar og sendir frá sér 32 þús.
blaða framleiðslu í nærri jafn
mörgum skömmtum.
Nú er líka byrjað að undirbúa
efnið í næsta blað. Setjararnir
setja lengri greinar, leiðara og
annan „innmat“. Ritstjórarnir
hafa með sér fund og ræða skipu
lagningu næsta blaðs og málin
sem efst eru á baugi. Og kl. 1
heldur einn þeirra a.m.k. fund
með blaðamönnum og ljósmynd-
urum. Þar er rætt hvað gera
þurfi, hver leggur fram sínar
tillögur og verkum er skipt. Alls
vinna á ritstjórn 25 manns og
því nauðsynlegt að hver viti
hvað hinir gera, jafnframt sín-
um eigin viðfangsefnum, því á
Morgunblaðinu er lítið um
stjörnuleik en meira lagt upp úr
samvinnu. Ritstjórinn skipulegg-
ur nú blaðið með þeim blaða-
manninum, sem sér um umbrot-
ið og gengur frá blaðinu. Og
margt þarf að ræða áður en
menn dreifast og hver gengur
til sinna starfa. Þeir fréttamenn
sem bera ábyrgð á innlendum og
erlendum fréttum þann daginn
fara með langa lista af viðfangs-
efnum, „sem ekki má gleyma'*
Elín Pálmadóttir, blaðamaður,
safnar fréttum í síma.
og víkja ekki af staðnum
fyrr en yfir lýkur og siðustu
síðurnar eru farnar í steypingu
kl. 1—2 að nóttu, sem getur dreg-
izt fram eftir, jafnvel til kL
4—5 ef stórviðburðir gerast. Aðr-
ir hverfa til sinna verkefna í
bænum eða fara út á land, minn-
ugir þess að efni þeirra verður
að vera komið fyrir ákveðinn
tíma. Á þessari stundu er hver
hlutur skipulagður og í sínum
skorðum. En þá fara atburðir
Síminn hringir í sífellu, 10 línur eru í notkun. Kl. 5,30 skilar
Bryndís Brynjólfsdóttir símaþjónustunni í hendur Hrefnu Magnús-
dóttur, sem svarar hringingum til miðnættis.