Morgunblaðið - 02.11.1963, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 2. nóv. 1963
samhugur um það, sem mestu
varðar, mundi eflast við slíkar
rökræður. Leiðtogar flokksins,
ungir sem gamlir, yrðu að vísu
að ganga í gegnum þann hreins-
unareld að kynna sjónarmið sín
opinberlega og standa þar fyrir
máli sínu. En ég hygg, að þeir
mundu njóta þess meir en
harma, jafnvel þótt öll sjónarmið
þeirra næðu ekki fram að ganga,
eins og verða vill í mannl&gum
samskiptum. Þeir mundu njóta
þess að hafa ekki einungis sið-
ferðilegan rétt til þess, heldur
beinlínis skyldu, að túlka sér-
sjónarmið sín.
En meginatriðið hlýtur að
vera, að sérhver sá, sem aðhyll-
ist Sjálfstæðisstefnuna, byggir
sigurvonir hennar á því, að hún
virðir rétt einstaklingsins, þ.á.m.
rétt hans til að fá í hverju máli
að vita hið sanna. Sjálfstæðis-
flokkurinn á aldrei að þurfa
að óttast sannleikann. Hitt er
rétt, að oft hefur þurft að glíma
við svo máttuga lygi, að menn
hafa freistazt til að bregðast við
henni á þann hátt að segja ekki
nema hálfsannleika, draga fram
allt það bezta í eigin fari og
flokks síns, en þegja um hitt,
sem ver kann að hafa farið en
menn vildu. Það hefur hent okk-
ur alla, sem fáumst við stjórn-
málaskrif. Aðstæðurnar, flokks-
blödin, hafa gert það að verkum,
að greinar okkar hafa oft verið
lágreistar.
Þróunin stefnir samt í rétta
átt. En úrbóta er enn þörf —
líklega verður svo ávallt. Megi
umbætur verða miklar í fram-
tíðinni — engar stökkbreyting-
ar, heldur markviss þróun.
Stilliverkstæðið Diesill
(Magnús G. Marteinsson).
Vesturgata 2 (Tryggvagötu megin) — Sími 20940.
Ronson hársnyr titæki
Framkvæmum stillingar á öllum diesel
olíukerfum, varahlutir í kerfin fyrirliggj-
andi. — Vönduð vinna, fljót afgreiðsla.
SÆKJUM — SENDUM.
C.A.V. Þjónustan á íslandi
Skurðgröfur, ámokstur, — jarðýtu-
vinna, — ákvæðis- eða tímavinna.
— sími 18158. —
fást víða
Píanó
FlygSar
HORNUNG & M0LLER
KGU HOF-PIANOFABRIK
Merkið sem allir þekkja.
Merkið, sem engan svíkur.
Mikil mýkt og tónfylling einkenna
þessi hljóðfæri.
ÁRATUGA REYNSLA SANNAR GÆÐIN.
Þetta merki þolir eldraun hins mikla
hitastigs í íslenzkum íbúðum.
Kynnið yður mynda- og verðlistana og veljið
þá viðartegund, sem þér óskið.
Hr. Guðmundur Stefánsson, hljóðfæraSmiður hefir nýlega
verið brautskráður með beztu meðmælum frá verksmiðj-
unni og tekur hann að sér stillingar og eftirlit á þessu merki.
Föntunum veitt móttaka í verzluninni.
Hornung & Möller
Einkaumboð á íslandi:
Hljóðíæraverzlun
Sigríðor Helgadóttur
Vesturveri. — Sími 11315.