Morgunblaðið - 02.11.1963, Síða 57
* Laugardagur 2. nóv. 1963
MORCU N BLAÐIÐ
57
Stál-
hnefinn
Þannig leit forsiða Mbl. út 24. júli 1938. Enginn vissi hvað
hér var um að ræða, og skýring fékkst ekki fyrr en i augjýs-
ingu viku siðar. Reyndist „StáUmeiiun“ vera ný sáputegund
sagði strákurinn, sem mætti
vini sínum, er gekk haltur
af skóþrengslum, „mér er
ekkert illt í löppunum, því
ég er á stígvélum frá Lár-
usi“.
Það er Hka áreiðanlegt, að
hvergi fæst skófatnaður, sem
fer eins vel á fæti, og það
sem betra er, hvergi eins hald
góður, og það sem bezt er,
hvergi eins afar-ódýr, sem í
Skóverzlun Lárusar G. Lúð
vígssonar, Þingholtsstræti
2.
3. nóv. 1913 —
„Stillt og þrifin stúlka og
unglingstelpa, sem geta sof-
ið heima fyrst um sinn, ósk-
ast í létta vist nú þegar. Gott
kaup í boði“.
8. febrúar 1920
„ÞtJ, sem tókst töskuna á
vinnustofuborðinu hjá Ólafi
Magnússyni, gjörir réttast að
skila henni með öllu því, sem
í henni var, því það sást til
þín úr myrkraherberginu.
Eða viltu heldur láta lögregl-
una taia við þig?“.
18. nóv. 1913.
Svonefndur þáttur
„Hverníg á eiginmaðurinn
að vcra „virðist hafa átt
miklum vinsældum að
fagna fyrsta ár blaðsins.
Honum var svohljóðandi
hleypt af stokkunum 8.
nóvember 1913:
„Hvernig á Eiginmaðurinn
að vera?
10. kr. gefur Morgunblaðið
þeim, er bezt svarar þessari
spurningu.
Allir geta tekið þátt í þess-
ari samkeppni.
Skoðanir kvenfólksins um
hvernig elskuhuginn og eig-
inmaðurinn á að vera, hljóta
að vera — og eiga að vera
•— skiptar. Sá, sem einni konu
þykir fríður, er oft ófríður
í augum vinkonu hennar og
annara kvenna. Hverjum þyk
ir sinn fugl fagur — og hjarta
lagið er ætíð bezt „hjá hon-
um Jóni mínum“.
Mörgum af lesendum vor-
um mun þykja fróðlegt að
heyra álit ýmsra manna um
þetta atriði. Vér höfum því
ákveðið að láta samkeppni
fara fram þannig, að sá les-
enda vorra, sem fyrir 15. des.
þ.á. sendir Morgunblaðinu hið
bezta svar við spurningunni,
— hún — eða hann, íær að
launum fallega jólagjöf eða
10 kr. í peningum, eftir vali.
Munum vér velja 3 óvil-
halla menn til að vera dóm-
ara, einn úr ritstjórn Morg-
unblaðsins og hina tvo utan
ritstjórnar.......**
Fyrsta svarið hirtist dag
inn eftir, 9. nóvember, og
hljóðar m.a. svo:
„Góður eiginmaður er sá,
sem einlægt þegir meðan
konan talar, lætur konuna
ætíð hafa síðasta orðið og
kyssir hana fyrir vaðalinn,
þegar hún loksins þagnar.
Sem lætur konuna geyma
hæði budduna og forstofulyk-
ilinn.
Sem aldrei mælir möglun-
arorð, þótt enginn hnappur
sé á buxunum hans viku eftir
viku.
Sem aldrei flýgur æðra í
hrjóst, þótt pilsaþyturinn
heyrist ofan af þurrklofti og
niður í kjallara. — Slíkur
maður er góður eiginmaður;
hann er langhæfastur allra
núlifandi íslendinga til að
vera ráðherra hennar mömmu
é hverju heimili; hann er
hreinn og beinn premíumaður.
Sigríður stórráða".
★ ★
Og hér koma nokkrar
stuttar fréttir úr fyrsta ár-
gangi Morgunblaðsins:
„Prýði bæjarins. í gær var
farið að bera mykju á Arn-
arhólstúnið fyrir vestan Sal'na-
húsið. Geta bæjarbúar þann-
ig átt von á góðri lykt, er
þeir opna glugga sína næstu
daga — að minnsta kosti þeir
er á Hverfisgötu búa —. Grút
urinn í vestur- og miðbæn-
um og mykjan í austurbæn-
um“.
.Jíýjasta bifreiðin, sú er
Jónatan Þorsteinsson pant-
aði, fór reynsluferðir hér um
nágrennið í gær.....Bifreið-
um er nú farið að fjölga svo
hér í bænum, að nauðsyn
krefur þess að þær séu að-
greindar á einhvern hátt, ann
að hvort með því að gefa
þeim einhver nöfn, eða þá að
númera þær. Mun það og eig
endum sjálfum hagkvæmast
að þeim sé sem minnst rugl-
að saman, þegar samkepnin
byrjar í vor“.
11. des. 1913
„Austurvöllur: Hann var
vatni ausinn alla nóttina og
sunnudaginn með, en sást
íhvergi að völlurinn vöknaði.
Stjórnarmeðlimir skautafé-
lagsins stjórna vatnsaustrin-
um, og er sagt að sumir
þeirra séu farnir að örvænta.
Ausið bara, bræður og syst-
ur, og gefist eigi upp fyrr en
gamli Bertel stendur undir
hendur í vatni! Annars kvað
nú vera bezta skautasvell í
kjöllurum húsanna kring um
vöilinn“.
„Á Stjórnarráðsblettinum
tóku menn eftir stóði miklu
í gær, er var þar á beit. Alls
voru sjö skepnur innan stjórn
arráðsgirðingarinnar — fjór-
ar merar, þrjú folöld. Hefur
þeim vist fundist vistin held-
ur slæm á blettinum, því tvö
folöld stóðu við fætur Jóns
Sigurðssonar, á sjálfum fót-
stallinum, í skjóli fyrir út-
synningnum, og leið þar auð-
sjáanlega vel. Sjást enn merki
þess að þau hafa þar komið.
28. nóv. 1913
★ ★
17. nóvember 1914 birt-
ist á 3. síðu blaðsins stór-
brotin fyrirspurn, aðsend
blaðinu, sem fjallaði um
Staff hershöfðingja — Gen-
eral Staff, og fer hún hér
á eftir ásamt svari rit-
stjómar:
„Fyrirspum
Hver er General Staff?
í blaði einu á sunnudaginn
stendur, að hinn þekkti tyrkn
eski General Staff hafi brot-
ist með her manns inn á Eg-
yptaland og er bætt við að
kona hans og dóttir séu í för
með honum. En fyrir liðugum
hálfum mánuði stóð að sam-
nefndur General, rússnesk-
ur, Staff, væri önnum kafinn
við undirbúning innrásar
Rússa í Austur-Prússland.
Og við og við skýrir sama
blað frá, að hinn frægi þýzki
General Staff sé nú kominn
til framfylkinganna, eða hafi
aðsetur sitt í þessum og þess-
um bæ.
Má ég því leyfa mér að
spyrja yður, háttvirti herra
ritstjóri: Er þessi tyrkneski
General Staff skyldur hinum
rússneska General Staff og
er sá þýzki General Staff
kannske bróðir þeirra? Eða
er þessi General Staff ekki
neinn General Staff, því ekki
sést í nokkru innlendu eða
útlendu blaði (ekki einu
sinni „Tirnes") getið um
neinn tyrkneskan, rússneskan
eða þýzkan General Staff.
Má ég því biðja yður að
fletta ofan af þessum leynd-
ardómsfulla herra: hinum
þekkta, fræga, tyrkneska,
rússneska, þýzka General-
Generalissimus S-t-a-f-f-.
— Júlíus
Eftir tilmælum ritstj. svara
ég fyrirspurn hins fróðleiks-
fúsa herra Júlíusar.
Misskilningur sá í nefndu
blaði, sem ræðir um í fyrir-
spurninni, mun „staffa" af því
að enskukunnátta blaðsins er
dálítið ábótavant. „General
Staff“ þýðir herforingjaráð
en ekki Staff hershöfðingi.
En það er nú svo sem eng-
inn munur!! Staff er því
hvorki rússneskur, tyrknesk-
ur eða þýzkur, heldur er
hann skilgetið barn dagblaðs-
ritstjórans, er hann hefur get-
ið með einhverjum þeirra er
við blaðið starfar. Þó er talið
líklegt að hann sverji fyrir
Staff litla. Filurius."
Þá fara hér á eftir
nokkrar dagbókarfréttir
frá árinu 1914:
„Spaugsamur borgari. Vér
heimsóttum nýlega einn heldri
borgara Miðbæjarins, sem
alþekktur er fyrir ágætar
veitingar í heimahúsum. Höfð
um vér orð á því við að hann
hve gott „cognakið“ væri. „Þú
kvað eiga bezta „kjallara“ í
bænum“, sögðum vér. „Já“,
svaraði borgarinn, „það kem
ur aldrei vatn í hann hjá
mér.“
29. apríl 1914
„Eins og menn muna bann-
aði Páfinn nýlega öllum kaþ-
ólskum mönnum að dansa
Tango. Nú er kominn upp
annar dans, að sögn álíka ó-
siðlegur og Tango, en samt
fullyrða brezk blöð að páf-
inn hafi gefið sitt samþykki
til þess, að kaþólskir menn
og konur megi dansa hann.
Dansinn kallast Forlana.“
25. febr. 1914
„Eyjólfur Jónsson, rakari,
ætlar til Hafnarfjarðar á
sunnudaginn og rakar þar
menn á „Hótel Hafnarfjörð-
ur“. Gott fyrir Hafnfirðinga!“
3. apríl 1914
„Stelkurinn er kominn.
Heyrðist til ihans á Laufásvegi
í geor.”
15. aipiil 1914
„Góð varphæna. Hæna hér
í bænuan verpti 3 eggjuan á
an i <Vv iikud aginn vax — eintóm
örverpi.”
11. apríl 1914
„Á einni gangstétt bæjar-
ins mátti í gær líta marga
miða liggja á við og drehf í
Æorinni. Voru mörgum manni
áður að góðu kunnir — og eru
það enn, þegar þeir eru á sín-
. um rébta stað. En þarna
traðkaði bongarlýðurinn þó
niður í sorpið. Á miðunum
stóð: Gamle Carlsberg Export
Beer. Bottled at the Brewery.
— Skyldu þessdr miðar haifa
verið þvegnir af flöskum ný-
lega? hugsiuðum vér um leið
og vér gengum framihj'á.”
19. apríl 1014
Og loks tvær klausur úr
Dagbók 21. des. 1914.
„í dag verður haldið upp-
boð á áfengum vínurn í vöru-
geymsluíhúsi G. Gísilason &
Hay við Lindargötu. Það
móitti ekki seinna vera — en
margur mun þvi feginn verða
tift þess að geta druikkið út
gaanila árið og erfi Bakkusar
hér á landi“.
„Morgunblaðið kemur ekki
út á morgun, nýársdag“.
4/ í/ gulloddurinn er
» * ' * steyptur inn í bol-
inn til aukins styrkleika og
fegurðar. Sheaffer býður yður
penna við allra hæfi.
Viljið þér breiða skrif-
línu eða mjóa. Skrifið þér
fast eða laust. f næstu rit-
fangaverzlun getið þér valið
SHEAFFER'S penna einmitt
við yðar hæfi. SHEAFFER’S
penninn er kjörinn til gjafa
eða eignar.
SHEAFFER’S-umboðið
á fslandi
EGILL GUTTORMSSON
Vonarstræti 4.
ÁTLÁS
IMVJUIMG
WUWRI
fyrir einstaklinga og
litlar fjölskyldur.
HVfTUR í baðherbergi eða
eldhús
TEAK-SPÓNLAGÐIR í for-
stofu eða herbergi.
Ódýr og góð lausn á þurrk-
vandamálinu.
Notast einnig sem hitaofn.
Sendum un
allt land.
ROmiEilHPHAHHtW
?imi 12606 - Suðurgötu 10 • Rcykjavit