Morgunblaðið - 10.02.1974, Page 1
34. tbl. 61. árg.
SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rætt um
eftirmann
Pompidous
Paris,9. febrúar — AP.
MIKLAR umræður hafa spunnizt
í Frakklandi um hver verði hugs-
anlegur eftirmaSur George
Pompidous forseta, en veikindi
forsetans hafa enn á ný valdið
bollaleggingum um, að hann
verði að láta af embætti áður en
kjörtímabil hans rennur út árið
1967. Raunar segja sumir frétta-
skýrendur, að sjálfskipaðir póli-
tfskir krónprinsar notfæri sér nú
vægt inflúensutilfelli forsetans
til þess að auka sigurlíkur sjálfra
sín í næstu kosningum.
Serge Maffert hjá blaðinu
France Soir, sem styður Pompi-
dou, nefnir Jacques Servan-
Schreiber leiðtoga róttæka flokks-
ins og útgefanda L'Expres, Val-
ery GiscardD’Estaing efnahags-
málaráðherra, Jacques Chabán
Delmas fyrrum forsætisráðherra,
Francois Mitterand leiðtoga
sósíalista og Edgar Faure forseta
þingsips sem tilvonandi fram-
bjóðendur í forsetakosningum.
Segir Maffert, að bjástur þeirra
nú beri merki kosningaskjálfta,
sem ekkert eigi þó skylt við inflú-
ensuhita. Engu að síður viður-
kennir hann, að heilsa Pompidous
sé mikilvægur þáttur i frönsku
stjórnmálalífi um þessar mundir.
Heath forsætisráðherra var hylltur af stuðningsmönnum við
bústaðinn í Downing-stræti, þegar hann ákvað að rjúfa þing og
efna til nýrra kosninga.
Danmörk:
Ekki kosningar
en umdeild lausn
Kaupmannahöfn 9. febrúar.
Frá fréttaritara Mbl.
Jörgen Harboe:
NOKKUÐ ljóst er, að efnahags-
vandi Danmerkur muni ekki i
bráð leiða til kosninga i landinu,
eftir að minnihlutastjórn Poul
Hartlings náði samkomulagi við
Jafnaðarmannaflokkinn um
stefnuna í þeim efnum. Helztu
úrræðu stjórnarinnar voru íviln-
anir til handa atvinnuvegunum,
skvldusparnaður, skattapólitískar
ráðstafanir og samdráttur opin-
berra útgjalda. Nú þegar er þjóð-
þingið búið að samþykkja tillög-
una um stuðning \ið atvinnulífið,
og hinar tillögurnar verða sjálf-
sagt samþykktar líka fyrir tilstilli
einhverra hinna tíu þingflokka.
Þrjár umræður þarf til að hver
tillaga verði að lögum. En þrátt
fvrir þetta hafa þessar tillögur
þegar verið harðlega gagnrýndar
af hagfræðingum og fulltrúum
at vinnu veganna.
A föstudagskvöld gengu
danska vinnuveitendasambandið,
iðnaðarráðið og félag stórkaup-
manna á fund ríkisstjórnarinnar
og lýstu þeirri skoðun, að efna-
hagstillögurnar væru ófullnægj-
andi. Tveir fyrrnefndu aðilarnir
lögðu til að tillögurnar yrðu
dregnar'til baka og viðræður
hæfust um drög og nýjum. ,,Við
óttumst, að tillögurnar muni ekki
duga til að hefta sivaxandi
atvinnuleysi, sérstaklega með tíl-
liti til haustsins," segir i yfirlýs-
ingu samtakanna.
Og Jörgen Gelting, prófessor í
hagfræði, sagði í útvarpsviðtali í
gær: „Tillögurnar munu hafa
mjög lítil áhrif. Þetta samkomu-
lag um efnahagsaðgerðir mun
koma svo til eingöngu niður á
fólki i efri tekjuflokkum." „Hann
kallaði samkomulagið útþynn-
ingu á upphaflegum efnahagstil-
lögum ríkisstjórnarinnar.
Portisch
sigraði
Palma de Majorca, 9. febr. AP.
LAJOS Portisch frá Ungverja-
landi vann 10. einvígisskákina við
Tigran Petrosian frá Sovétríkjun-
um.
Petrosian hefur unnið tvær
skákir, en öllum öðrum skákum í
einviginu hefur lyktað með jafn-
tefii. Petrosian þarf aðeins að
vinna eina skák til þess að sigra.
Neyðarástand vofir
nú yfir í Bretlandi
London, 9. febrúar, NTB. AP.
HÖRÐ orðaskipti Edward Heaths
forsætisráðherra og Ilarold Wil-
sons leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar hafa markað upphaf harðr
ar kosningabaráttu í Bretlandi.
Jafnframt gætir vaxandi svart-
sýni um ástand og horfur í efna-
hagsmáiunum cg sagt er, að
neyðarástand blasi við.
Heath og Wilson sökuðu hvor
annan um að eiga sökina á því
ástandi, sem nú rikir. Heathgagn-
rýndi Wilson fyrir að hafa ekki
tekið undir áskorun stjórnarinnar
til námamanna um að fresta verk-
fallinu fram yfir kosningarnar 28.
febrúar. Wilson sakaði Heath um
að reyna að skella allri skuldinni
á námaverkamenn og sagði, að
stjórnarstefnan hefði brugðizt.
Stjórnmálamenn i Bretlandi
fyrirhuga mikil ræðuhöld í næstu
viku og jafnframt er ljóst, að
erfiðleikarnir í efnahagsmál-
unum munu aukast næstu daga.
Þriggja daga vinnuvikan heldur
áfram, járnbrautamenn halda
áfram verkfallsaðgerðum og á
miðnætti í kvöld leggst vinna
námamanna niðurmeð öllu.
Námamenn bjuggu sig undir
allsherjarverkfall sitt í dag. Segja
má, að verkfallið hafi byrjað í
dag, þar sem þeir vinna ekki á
laugardögum, en á miðnætti átti
það að koma til framkvæmda.
Fyrirsjáanlegt er, að verkfallið
Beint útvarp frá
martröð plötusnúðs
París, 9. febrúar. NTB.
HUNDRUÐ þúsunda útvarps-
hlustenda fylgdust f nótt með
beinni útsendingu á því, er vopn-
aður maður hafði í hótunum við
plötusnúð Utvarps Luxemborgar
í Parfs. Maðurinn neyddi plötu-
snúðinn til þess að lesa yfirlýs-
ingu með harðri gagnrýni á
frönsku st jórnina.
Eftir fjögurra tíma þóf gafst
maðurinn upp fyrir lögreglu, sem
hafði umkringt byggingu útvarps-
stöðvarinnar rétt hjá Champs
Elysees.
Maðurinn kom hlaupandi inn i
mun strax hafa víðtæk áhrif og
talið er að minnka verðí stálfram-
leiðslu þegar í stað um 30%.
Þúsundum verkamanna verður
sagt upp og allir landsmenn munu
finna fyrir áhrifum verkfallsins.
Áskorun Heaths til námamanna
um að fresta verkfallinu fram
yfir kosningar var felld i stjórn
félags þeirra með 20 atkvæðum
gegn sex. Joe Gormley formaður
félagsins kvaðst sjálfur hafa
greitt atkvæði með því, að verk-
fallinu yrði frestað.
Heath forsætisráðherra og tals-
menn iðnaðarins hafa margoft
sagt, að alger vinnustöðvun í
námunum mundi hafa hörmu-
legar afleiðingar fyrir iðnaðinn í
Bretlandi.
Sagt er, að stálframleiðslan
stöðvist alveg eftir sex vikur,
milljónir missi atvinnuna og
hundruð fyrirtækja verði gjald-
þrota.
Um 70% raforku Breta koma
frá orkuverum, sem eru knúin
með kolum.
bygginguna um miðnætti og veif-
aði skammbyssu og hand-
sprengju. Hann tók kvenritara i
gíslingu, en sleppti honum eftir
hálftima og lokaði sig síðan inni i
upptökusal með plötusnúð, sem
var í miðri beinni útsendingu.
Plötusnúðurinn hélt, að maður-
inn væri að grínast, þegar hann
krafðist þess, að hann læsi póli-
tíska yfirlýsingu en skipti um
skoðun, þegar hann skaut kúlu
rétt fram hjá höfði hans. Auk
plötusnúðsins var starfsstúlka og
tæknimaður í upptökusalnum.
Framhald á bls. 47
Enoeh Powell
Powell, Crossman og
Sandys ekki í kiöri
London, 9. febrúar. AP.
ENOCH Powell, Richard Cross-
mann og Duncan Sandvs verða
meðal margra kunnra brezkra
þingmanna, sem verða ekki í
framboði í þingkosningunum
síðar 1 þessum mánuði.
Þeir munu þó ekki allir hætta
stjórnmálaafskiptum, til dæmis
ekki Powell, sem er enn talinn
koma til greina sem forsætis-
ráðherra síðar. Powell kveðst
ekki vilja taka þátt í kosninga-
baráttu undir forystu Edwards
Heaths, sem hann hefur gagn-
rýnt í fjögur ár.
Alls hætta 57 þingmenn þing-
mennsku, en ýmsir þeirra
verða aðlaðir og halda áfram
stjórnmálaafskiptum i lávarða-
dei ldinni.
Sandys, sem nú dregur sig í
hlé, var tengdasonur Sir Win-
stons Churchills. Sem nýlendu-
ráðherra samdi hann um sjálf-
stæði margra nýlendna i Afríku
á árunum eftir 1960. Um skeið
kom hann til greina sem eftir-
maðurHarold Macmillans.
Crossman hefur verið einn
kunnasti menntamaðurinn í
forystuliði Verkamannaflokkg-
ins. Hann átti sæti i stjórn
Harold Wilsons 1964—70 og var
ritstjóri tímaritsins New States-
man.
Ernest Marples dregur. sig
einnig i hlé. Hann var sam-
gönguráðherra 1959—64 og
stóð fyrir þjóðvegaáætlun, sem
var mjög umdeild og leiddi til
baráttu fyrir því, að hann segði
af sér.
Colin („MadMitch") Mitchell
ofurstu, sem barðist i Aden,
lætur nú af þingmennsku, þar
sem hann hefur sigrað í baráttu
sinni fyrir því, að herdeíld
hans. The Argyll and Suther-
land Highlanders, verði ekki
lögð niður.