Morgunblaðið - 10.02.1974, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.02.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974 11 '#IWI! „Ætlarðu í nám í sjómennsku?" „Já, ég ætla í vélskólann á ísa- firði næsta vetur.“ „Fara margir Isfirðingar til annarra verstöðva á vetrum?" „Það eru a.m.k. einir 12 hérna í Keflavík.“ „Nokkrir öruggir frídagar í sjó- mennskunni?" „Varla, ef við erum fimm daga úti fáum við sólarhings löndunar- frí, en svo koma brælurnar einnig með sina frídaga." 22 ára útgerðarmaður og vélstjóri Það var slangur af bátum inni í Sandgerðishöfn og við brugðum okkur um borð i einn þeirra, Haf- ölduna, þar sem netatrossurnar lágu svo fínt niðursettar á þilfarið að það var eins og gamalgrónar hannyrðakonur hefðu verið að verki, en sjómennirnir vita líka hvað það þýðir að hafa veiðar- færin klár þegar á reynir. Hver hlutur úm borð þarf að vera klár. Um borð hittum við Ægi Frí- mannsson vélstjóra og annan út- gerðarmann bátsins. Hann, ásamt bróður sínum Þórhalli, keypti bátinn frá Eskifirði eftir áramót og ætluðu þeir að leggja nétin s.I. fimmtudag. Ægir er 22 ára gamall, en Þórhallur 32 ára og er hann skipstjóri. Hafaldan SU 155 á að fá nafnið Þorkell Arnason GK 262, væntanlega. Hafaidan er tveggja ára gamall bátur, 65 tonn, smíðaður á Neskaupstað og kostaði þá bræður 26 millj. kr. „Við verðum með sex trossur í fyrstu lögn,“ sagði Ægir, „en erum þó ennþá aðeins 7 á. Það vantar 1—3 í viðbót.“ „Hefur þú verið lengi á sjó?“ „Eg hef verið á sjó síðan ég var 15 ára, en í þrjú ár hef ég verið vélstjóri. Við áttum annan bát á undan þessum, 30 tonn að stærð. Þetta hefur gengið sæmilega, en það kostar mikla vinnu og er bindandi." Ogá bryggjunum bfðaþær oft og tfðum, blessaðar. „Svo höldum við hafnar til og heilsum með gleðibrag. Þeim lífsglöðu meyjum, sem löngum við þreyjum og létta okkur strangan dag.“ (Asi i Bæ). „Hvað finnst þér erfiðast i út- gerðinni?“ „Þetta hefur yfirleitt allt geng- ið vel. Vandamálin hafa verið leyst hvort sem er á verklega eða fjárhagslega sviðinu." „Hvað eru margir bátar hér i Sandgerði?" „Það eru 40—50 bátar hér i vetur og ætli helmingur þeirra sé ekki skráður hér.“ „Það er erfitt að manna bátana." „Já, það er frekar erfitt að manna á minni bátana. Kjörin eru ekki nógu góð miðað við það, sem menn hafa í landi. Þetta er svo mikil vinna á sjónum miðað við landvinnuna. Á sjónum er oft unnið allan sólarhringinn miðað við fast- an vinnutíma í landi og samt sem áður er sama upp úr þvi að hafa þegar til lengdar lætur.“ Ægir sagði, að þeir hefðu vana menn, aðeins einn óvanan og öll skipshöfnin er frá Sandgerði og nágrenni. Hann kvað ágætt að gera út frá Sandgerði, en höfnin væri fremur léleg og leiðinleg. „Þegar við átt- um litla bátinn" sagði hann, „urð- um við oft að vera dögum saman um borð að gæta hans í óveðrum, en þess þurfum við ekki eins með þennan nýja bát.“ „Hvernig leggst vertíðin í þig?“ „Hún leggst vel i mig, en það verður hrikalegt ástand ef það kemur til vekfalla. Maður vonar bara, að það verði samið áður, því það þarf að fiskast vel á þessari vertíð ef við eigum að geta staðið við allar okkar skuldbindingar. Það kostar t.d. um 300 þús. kr. að þinglýsa bátnum. Það opinbera er víða með puttana." -á.j. t spaklegri ró f Sandgerðishöfn. Ljósmyndir Mbl. A. J. Nýkomnir hljóðkútar og púströr í eftirtaldar bifreiÖir Bedford vörubila hljóðkútar og pústror Bronco hljóðkútar og púströr. Chervolet vörubíla Chervolet fólksblla hljóðkútar og púströr. Dodge fólksbila hljóðkútar og púströr. D.K.W. fólksbila hljóðkútar og púströr. Fiat fólksbíla hljóðkútar og púströr. Ford Amerískur fölksbila hljóðkútar og púströr. Ford Anglia og Prefect hljóðkútar og púströr. Ford Consul 1955—62 hljóðkútar og púströr. Ford Consul Cortina Ford Zephyr og Zodiac Ford Taunus 1 2M, 1 5WI og 1 7M .... hljóðkútar og púströr. Ford F100 sendiferðabíla 6 og 8 cyl. hljóðkútar og púströr. Ford vörubila F500 & F600 . hljóðkútar og púströr. Ferguson eldri gerðir Gloria Hillmann og Commer fólksb. og sendiferðab. hljóðkútar og púströr. Austin Gipsy jeppi hljóðkútar og púströr. Intemational Scaut jeppi hljóðkútar og púströr. Rússa jeppi Gas 69 Willys jeppi hljóðkútar og púströr. Landrover bensin og disel hljóðkútar og púströr. Mercedes Bens fólksb. 180—190— -200—220—250 hljóðkútar og púströr. Mercedes Bens vörubíla Moskwitch fólksbila Opel Rekord og Caravan hljóðkútar og púströr. Opel Kadett Opel Kapitan Rambler American og Classic hljóðkútar og púströr. Renault R4, R8, R10 Saab 99 Scania Vabis hljóðkútar með flönsum. Simca 1000 Skoda fólksbíla og station hljóðkútar og púströr. Taunus Transit Toyota fólksb. og station hljóðkútar og púströr. Vauxhall fólksblla hljóðkútar og púströr. Volga fólksbíla hljóðkútar og púströr. Volvo fólksbíla hljóðkútar og púströr. Volvo vörubíla Mjög hagstætt verð. Setjum pústkerfi undirbíla. Sendum í póstkröfu um land allt. BÍLABÚDIN FJÖÐRIN H.F. Skeifunni 2, simi 82944. Knattspyrnubiálfarar K.S.Í. hefur verið beðið um að útvega þjálfara til starfa úti á landi á sumri komanda. Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Knattspyrnu- sambandsins, sími 84444, milli kl. 1 3 og 1 6. Knattspyrnusamband íslands. Oplð irá 1 - 61 dag: Til sðlu 5 herb. ibúð við Þverbrekku (háhýsl Nokkrar 5 og 6 herb. íbúðir í Reykjavík og Kópavogi. 4ra herb. íbúð við Ferjuvog, kjallari. 4ra herb. íbúð við Kleppsveg. 3ja herb. íbúð við Kárastíg, Bólstaðarhlíð, Grettisgötu og Hraunbæ. 2ja herb. íbúð við Vífilsgötu, kjallari. 2ja herb. íbúð við Njálsgötu, kjallari. 2ja herb. íbúð við Njálsgötu, ris. Ennfremur einbýlishús og raðhús. Fasteignasala Péturs Axels Jónssonar, Oldugötu 8. Sími 13324 Kvöldsimi 86683.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.