Morgunblaðið - 10.02.1974, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974
13
mitt þess konar persóna, sem auð-
velt er að segja frá, svo í minni
festist. Þáttur er þarna af Torfa í
Ólafsdal og annar af Sigurði
búnaðarmálastjóra sem báðir voru
meðal áhugasömustu nýjunga-
manna í islenskum landbúnaði,
hvor á sinni öldinni. Til samræm-
is við það þykir mér vanta þarna
einhvern hinna miklu forvigis-
manna í sjávarútvegi á sama tíma
(auk Markúsar Bjarnasonar,
skólastjóra Stýrimannaskólans,
sem getið er i sérstökum þætti),
Pétur Thorsteinsson, Geir Zoega
eða Thor Jensen, svo dæmi séu
nefnd. Allir voru þeir að sínu
leyti eins áhrifamiklir í islenskri
atvinnusögu og til að mynda Torfi
í Ölafsdal og Sigurður Sigurðsson
búnaðarmálastjóri að báðum
þeim ágætu mönnum ólöstuðum,
eða Tryggva Gunnarssyni, sem
óneitanlega markaði minnisstæð
spor i sögu islensks athafnalífs
fyrir og um aldamótin, en um
hann er lika þáttur í bókinni.
En hér er auðvitað um sams
konar athugasemd að ræða og
gera má við hvert einasta rit af
þessu tagi, væri spurt, hver víkja
skyldi fyrir þeim, sem vantar,
tæki málið að vandast.
Oft hefur verið bent á, þegar
rætt hefur verið um íslenskar
barna-og ungíingabókmenntir, að
þær séu einhæfar; einskorðist við
samning og þýðing sagna, meðan
bækur vanti um öll önnur áhuga-
svið ungs fólk. Er það að nokkru
leyti afsakanlegt. Það lögmál gild-
ir víðar en hér, að ekki tjóir að
gefa ut bök, nema líkur séu til, að
hún seljist. Þvi verður — þegar
hér er gefin út bók ætluð börnum
eða unglingum — að treysta á
Framhald á bls. 45
LJOÐ UM AST OG
SAGA UM DJÖFLA
Bðkmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Hrafn Gunnlaugsson:
Ástarljóð. Helgafell 1973. —
Hrafn Gunnlaugsson: Djöflarn-
ir. Almenna bókafélagið 1973.
L] A síðastliðnu ári komu út tvær
bækur eftir Hrafn Gunnlaugsson,
ljóðabókin Ástarljóð og skáldsag-
an Djöflarnir. Hrafn Gunnlaugs-
son er lesendum Morgunblaðsins
að góðu kunnur fyrir Stokkhólms-
pistla sína og aðdáendur Matt-
hildar eru honum þakklátir fyrir
fjörlega útvarpsþætti. Leikrit eft-
ir Hrafn hefur verið leikið í sjón-
varpi og þegar þetta er ritað er
verið að flytja sögu hansumMorð
bréf Margeirs K. Laxdals að
nokkru i formi útvarpsleikrits. Af
þessu má ráða, að Hrafn Gunn-
laugsson er einn þeirra ungu
manna, sem líklegir eru til að láta
að sér kveða í framtiðinni.
Það er einkenni ljóða Hrafns
Gunnlaugssonar, að hann reynir
ekki að dyljast bak við þau, sveipa
sig einhverjum annarlegum
hjúpi. Ilann er opinskár, ekkert
hræddur við að vera hann sjálfur.
1 fyrsta kafla Ástarljóða, 1 skóla,
eru nokkur ástarljóð, játningar
skólasveins, sem með hispursleysi
sínu vekja tiltrú lesandans.
Fyrsta ljóð bókarinnar nefnist Að
roðna og er svona í látleysi sinu
og innileik:
ég ætla að yrka ljóð
um þessa stelpu
um hár hennar eins og laufið
<tg augun sem fuðra af þrá
um veikleika hennar
um líkama hennar
um viðkvæmni okkar
um allt sem varðar hana
og mig
og þennan fordómafulla heim
því þegar ég hef
lokið við þetta 1 jóð
þá sýni ég henni það
og bið hana að sofa hjá mér
I ljóðinu Sláttur og sút kynn-
umst við ungum ma'nni, sem er
„alltaf jafn sjálfumglaður. /I hag-
stæðum jakka og burstuðum
skóm / með slangur af bröndur-
Hrafn G unnlaugsson.
um upp á vasann". Það, sem kem-
ur honum í opna skjöldu, er
stúlka á götunni. Hann verður
„allt í einu álappalegur njóli" og
kinkar .Jlóttalega kolli", flýtir
Söngvar frá
Tðnlist
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Einsöngur: Margit Tuure-
Laurila. Píanóleikari: Meri
Louhos.
[]Um aldamótin voru flestir nýir
söngvar, sungnir hér á landi norr-
ænir að uppruna. Svo mjög voru
þessir söngvar í meirihluta, að tsl.
tónlistarmönnum þótti sumum
ástæða til að sporna við fótum,
svo sérkenni ísl. tónlistar yrðu
ekki þurkuð út, af hinni svoköll-
uðu dönsk-þýzku rómantík. Þau
sér siðan „niður asnalega göt-
una". Lýsing götunnar er I sama
anda og upphafslina ljóðsins:
„Heimskir góna búðargluggarnir
út i sumarið". I Janúar er því lýst,
hvernig „mjöllin hrynur / eins og
flasa yfir axlir húsanna". Övænt-
ar líkingar, nútimalegt orðfæri
setja svip sinn á þessi ljóð. Það
eru ekki einungis ástarljóðin, sem
bera því vitni. Þörf skáldsins fyr-
'r að sýna hlutina eins og þeir
eru, afklæða þá prjáli sínu er
ákaflega sterk og upprunaleg.
Þótt skáldinu takist misjafnlega
að orða hugsanir sínar, skila heil-
legu ljóði, er ferskleiki ljóðanna
mikils virði. Auðvelt er að benda
á klaufalegt orðalag, ýmislegt,
sem vel hefði mátt lagfæra. En
þegar á allt er litið njóta ljóðin
þess, hve æskuleg þau eru. Skáld,
semyrkirjafn athyglisverð ljóðog
Að roðna, Páskar, Matsölustaður í
Stokkhólmi, Brot, Baudelaire og
Flugan, er ekki óráðið lengur. Af
slíkú skáldi má nokkurs vænta. 1
löngum ljóðum eins og Formála
og Gdansk hættir Hrafni til að
verða skrafhreifinn um of. Eins
og fleiri þarf hann að vara sig á
Framhald á bls. 45
Finnlandi
lög norræn, sem náðu að festa
rætur hér á landi, voru aðallega
einfaldari tónsmíðar, þ.e.
ættjarðarlög og réði þýðing texta
miklu um rótfestu þeirra. Eins
duglegir og tónlistarmenn og
skáld voru við útbreiðslu
norrænnar tónlistar, um og
eftir aldamótin, hefur
samtíð okkar verið löt og
hefur samtíð okkar verið löt og
reyndar verið fremur fáskiptin
um norræna tónlist yfirleitt. Ein-
hverju valda erfiðleikar varðandi
útgáfu nótnabóka nú til dags, sem
að þvf er bezt verður séð, ef miðað
er við fjölda útgefinna nótna-
bóka, hefur ekki verið vandamál
áður fyrr. Finnlandsvinafélagið
Suomi ætti að athuga og þá í
samvinnu við önnur norræn vina-
Framhald á bls. 45
Sumardagar í Stóradal
Bókmenntir
eftir SIG. HAUK
GUÐJÓNSSON
Hugrún: Sumardagar í Stóra-
dal. Myndir: Gísli Rúnar Jóns-
son. Útgefandi: Bókamiðstöð-
in. Prentverk Kópavogs.
□ Fyrir nokkrum árum var sag-
an lesin í útvarpið, börnum, og
henni tekið það vel, að t.þ.a. verða
við óskum vina hennar er hún hér
birt. Sögusviðið er sumar i sveit.
12 ára snáði úr borginni,
Maggi, hefir vistazt í Stóra-
dal, hittir þar jafnaldra sinn,
Munda, og systkini hans Jonna og
Asu. Maggi stendur fyrir framan
margar gátur í sveitinni og meðán
þekking hans er ekki takt-
stíg við þekkingu systkinanna í
Stóradal, kallar slikt á storkun til
athafna, er börnin hefðu varla
látið sér annars detta í hug.
1 fyrstu telur lesandinn Magga
hálfgerðan pjakk, en síðar leiðir
höfundurinn tilþess skilnings, að
Maggi er aðeins litill strákur sem
hrjeddur er við að vera álitinn
smár. Hræddastur þó við álit
krakkanna i Stóradal. Hann leitar
því að sönnunargögnum i brjósti
sér, svo að þau sjái, hver kappi
hann er.
Höfundi þykir vænt um strák-
inn, því lætur hann fífldjarfa
leiki (hellisklifið og svaml-
ið í ánni) enda á far-
sælan hátt, gæðir uppátæk-
in yl kímninnar. Höfundur reyn-
ir líka að fræða um gamla trú
þjóðarinnar (fjársjóðurinn i
hólnum og kaflinn „Brekkusnígill
rektu út horn"), þanmg að um
leið og þú lest, kynnist þú þeirri
arfleifð, er þú ert sþrottinn úr.
Ilöfundur kann vel að segja frá,
hefir vald á máli og glöggt auga
fyrir aðalatriðum í þráðinn. Þetta
er því skemmtileg bók, bo'k, sem
greinir frá sigri góðleikans í
orrustu við hroka og pjakkshátt.
Myndir eru ekki að minum
smekk, stundum er ósamræmi
milli texta höfundar og þeirra
(bls. 51 og mynd á siðu 52).
Próförk er illa lesin, villur of
margaf. Það er óafsakanlegt hve
hroðvirknir margir prófarka-
lesararnir eru. Dæmi: Á bls. 43 er
verið að ræða um 4 börn og þar
stendur: „Þeir hentu sér í eina
kös niður í djúpan skorning, og
ríghéldu hvort utan um annað."
Prentun þokkaleg en prent-
svertan ójöfn.
Þrátt fyrir þetta eiguleg bók,
ungum holl lesning.
Nordmannslaget Nordmannslaget
Námskelð I norsku
Námskeið í norsku verður haldið í Norræna húsinu, ef
næg þátttaka fæst, og hefst þ. 18. febr. n k. Kennari
verður norski sendikennarinn frk. Ingeborg Donali. Allar
nánari upplýsingar veittar hjá frú Else Aass, sími 25096.
Stjórnin.
43000
er númerið á vinningsmiða fyrir Simca bifreið í jólahapp-
drætti voru. Miðinn var seldur í nóvember úr happ-
drættisbílnum í Bankastræti. Eigandi þessa miða er
beðinn að framvísa honum strax í skrifstofu félagsins og
taka jafnframt á móti vinningnum.
Happdrætti Krabbameinsfélagsins.
TIL SÖLU simi 10-2-2-0
4ra herbergja íbúð á 3. hæð við Holtsgötu í fjórbýlishúsi.
íbúðin er rúmgóð og í góðu standi. Hún selst með góðum
kjörum og er laus til íbúðar. Sér hiti.
Rishæð í Hlíðahverfi, þrjú herbergi og eldhús með
svölum. Sér hiti. Góð íbúð. íbúðir af flestum stærðum.
Okkur vantar í sölu eignir af öllum gerðum.
Sölustjóri Kristín Káradóttir.
Sími 10-2-20. Kvöldsími 25907.
Kaupendaþjónustan— Þingholtsstræti 15.
JÁRNSMIÐIR
Óskum eftir að ráða nokkra járnsmiði.
Vélsmidja
ORMS & VÍGLUNDARsf.
LÁGMÚLA 9 SÍMI 86199 REYKJAVIK
Nauöungaruppboð
2 og síðasta uppboð á Njarðvíkurbraut 1 1, Innri-Njarð-
vík, eign Reynis Arnar Leóssonar, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 1 4. febrúar 1 974 kl. 1 4.00.
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu,
Alfreð Gíslason.
I I
® Notaðir bílar til söl u < LA*a- -*OVi
V.W. 1200 '64, '68, '69.
V W. 1 300 '66, '67, '70, '71, '72, '73.
V.W. 1302 '71, '72.
V.W. 1303 '73.
V.W. fastback '66, '71, '72.
V.W. variant '69, '70, '72.
V.W. sendiferðabíll '69, '71
V.W. micro bus '71.
Landrover benzin '62, '66
Landrover diesel '62, '63, '65, '71.
Hillman station '67.
Cortina '70.
Moskvich '70.
Austin Mini '73.
Fiat 1 27 '74. Ekinn 2000
HEKLA hf
laugavegi 170—172 — Simi 21240