Morgunblaðið - 10.02.1974, Side 24

Morgunblaðið - 10.02.1974, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 360,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 22,00 kr. eintakið. Mikill kengur er kom- inn í viðskipti okkar við Sovétríkin og taka þeir erfiðleikar til allra helztu útflutningsafurða okkar, sem seldar hafa verið þang- að á undanförnum árum. Nýlega eru komnir heim frá Moskvu samninga- menn, sem reyndu að semja við Sovétmenn um sölu á frystum fiski þang- að. Á sl. ári keyptu Sovét- ríkin um 16 þúsund lestir af frystum fiski. í samn- ingaviðræðunum nú kom í ljós, að Sovétmenn höfðu vissulega áhuga á að kaupa af okkur frystan fisk en hins vegar voru þeir ekki reiðubúnir til að greiða eðlilegt verð fyrir fiskinn heldur buðu verð, sem er langt fyrir neðan heims- markaðsverð. Þess vegna varð ekki af samningum og eru nú taldar litlar horfur á sölu freðfisks til Sovét- rfkjanna í ár. Þetia er því miður ekki eina tilvikið um erfiðleika á sölum til Sovétríkjanna. Fulltrúar frá Sölustofnun lagmetisiðju hafa verið í Moskvu til þess að reyna að selja þar lagmeti en það er sama sagan og með freð- fiskinn, að Sovétmenn vilja ekki greiða það verð fyrir lagmetið, sem íslenzkir framleiðendur þurfa að fá. Þess vegna hafa samningar ekki tekizt. Þá hefur Sam- band ísl. samvinnufélaga unnið að því að fá nýja samninga um sölu á ullar- vörum til Sovétríkjanna, en sagan endurtekur sig. Rússar eru tilbúnir til að kaupa en verðið, sem þeir bjóða, er svo lágt, að varan yrði framleidd með stór- felldu tapi. En það er ekki aðeins í útflutningi okkar til Sovét- ríkjanna, sem erfiðleikarn- ir koma fram. Verulegar vanefndir hafa orðið af hálfu Sovétmanna á af- greiðslu olíu til íslands, en sem kunnugt er, höfum við keypt nær alla olíu frá Sovétríkjunum um langt árgbil. Vegna afgreiðslu- svika hafa íslenzku olíu- félögin orðið að kaupa tals- vert magn af olíu frá Vesturlöndum. Nú vaknar sú spurning hvað valdi þessum keng i viðskiptum okkar við Sovétríkin. Á því virðist nærtæk skýring: Um þess- ar mundir standa yfir mikl- ar umræður hér á landi um framtíðarskipan varnar- málanna. Augljóst er, að Sovétrfkin eiga hér ríkra hagsmuna að gæta og að það yrði þeim í hag, ef varnarliðið hyrfi frá fs- landi og Keflavíkurstöð- inni yrði lokað. Ástæða er til að ætla, að með framan- greindum aðgerðum geri Sovétríkin tilraun til að beita íslendinga viðskipta- legum þvingunum í því skyni að fá vilja sínum framgengt í varnarmál- unum. Það er augljóst t.d., að það magn, sem við kaup- um af olíu frá Sovétríkj- unum, er svo lítið, að óhugsandi er, að þeir eigi í nokkrum erfiðleikum með að afgreiða það hingað. Frá Bandaríkjunum berast fregnir um, að Sovétríkin hóti að setja Island í olíu- bann, í sambandi við varn- armálin. Engin staðfesting hefur fengizt á þeirri frétt og hún hefur verið borin til baka af íslenzkum stjórn- völdum. Sh'kar fréttir fást heldur aldrei staðfestar af stjórnvöldum. Fyrir nokkrum vikum fóru hér fram viðræður milli íslendinga og Pól- verja um kaup á loðnu- mjöli. Þessar viðræður þóttu hinar furðulegustu af hálfu Pólverja en i þeim viðræðum endurtók sig sama sagan og í viðræðum við Sovétríkin. Pólverjar buðu svo lágt verð, að samningar náðust ekki, enda tilboð þeirra langt undir heimsmarkaðsverði og vitað, að þeir keyptu loðnumjöl um svipað leyti í Noregi fyrir miklu hærra verð. Þvi hefur verið hald- ið fram, að Sovétríkin hafi haft áhrif á Pólverja í þessu efni. Um það verður ekkert fullyrt og það fæst aldrei staðfest. En það er einkennileg tilviljun, svo að ekki sé meira sagt, að slíkir erfiðleikar skuli nú koma upp í viðskiptum okkar við hin sósíalísku lönd. Viðskiptalegar þvinganir eru alþekkt ráð stórvelda í viðureign við smáríki. Eng- inn vafi leikur á því, að talsverðir erfiðleikar geta skapazt í atvinnulífi okkar vegna afstöðu Sovétmanna og Pólverja. En afstaða þeirra, í viðskiptasamning- um nú ætti að sannfæra okkur um, að ekki megum við gerast of háðir þessum ríkjum í viðskiptum. Nú er- um við mjög háðir Sovét- ríkjunum um olfuviðskipti. Við vitum ekkert hvort við getum fengið keypta næga olíu á Vesturlöndum í þeirri olíukreppu, sem þar rfkir nú, ef Sovétríkin setja á okkur verulega þumalskrúfu. í því sam- bandi er vert að vekja at- hygli á þingsályktunartil- lögu, sem tveir af þing- mönnum Sjálfstæðisflokks- ins, þeir Matthías Á. Mathiesen og Geir Hall- grímsson hafa flutt um at- hugun á olíukaupum frá Noregi. Norðmenn auka stöðugt olíuframleiðslu sína og ljóst er, að eftir nokkur ár geta þeir annað eftirspurn frá Norðurlönd- unum öllum. Sú reynsla, sem við höfum haft af við- skiptum við Sovétríkin síð- ustu vikur gefur vissulega tilefni til, að þessi tillaga um olfukaup frá Norð- mönnum verði tekin til al- varlegrar athugunar. VIÐSKIPTALEGAR ÞVINGANIR? Rey kj aví kurbréf Laugardagur 9. febr. Einar Baldvin látinn Einn virtasti liisfrædinfiur lundsins, Einar Baldvin Gufimundsson, er látinn. Ilann var sómi stéttar sinnar, vinsæll inaðui', en hlédræf'ur. farsæll í störfum ojí haföi til ad hera þaö, sem hezt er í fari Kóðs liifí- fræðiníís, rökvísi, fióðvíld og sátt- fýsi. Hann var því einn af oddvitum stéttar sinnar. Til hans var oft leitail, þegar greiöa þurfti úr erfiðum ágreiningsefnuin, enda var hann læróur vel og átti að haki sér mikla reynslu. Þó aó Einar Baldvin Guðmunds- son væri heldur afskiptalítill um annarra hagi. var hann skoðana- fastur og ákveðinn, ef á reyndi. Vegna mannkosta hans var sótzt eftir honum í vandasöm störf, en ekki verður það rifjað upp hér. Aftur á móti er ástæða til að geta þess, að Einar Baldvin Guðmundsson var stjórnarfor- maður Eimskipafélags Islands undanfarna tvo áratugi og óx hann mjög af því starfi. Undir forystu hans og samstarfsmanna hans hefur Eimskipafélagið eflzt jafnt og þétt á undariförnum ár- um og má segja. að þau hafi verið mestu framfaraár í sögu þessa merka félags. En stofnun þess og starfsemi er liður í sjálfstæðishar- áttu íslenzku þjóðarinnar, eins og kunnugt er. Ahugi Einars Bald- vins á vexti og viðgangi Eimskipa- félagsins leyndi sérekki, enda fór hann ekki dult með umhyggju sína fyrir félaginu. Velferð þess var honum gleðiauki, og er ástæða til að óska félaginu, nú við fráfall hans, að áfram verði hald- ið á þeirri hráut, sem hann og forystumenn þe'ss hafa markað, landi og þjóð til heilla og far- sældar. Stofnun Eimskipafélags Islands •var hugsjónamál allrar þjóðar- innar. Einars Baidvins Guðmundssonar verður ekki bet- iu' minnzt en á þann hátt að gera miklar kröfur til félagsins, jafn- framt því sem hlúð verði að starf- semi þess og því gert kleift að sinna mikilvægu hlutverki sínu í heilhrigðri og frjálsri samkeppni. Einar Baldvin Guðmundsson var góður Morgunhlaðsmaður, eins og kallað er. Hann vildi veg blaðsins sem mestan, en var jafn- framt kröfuharður og aðhalds- sainur, kunni að greina hismi frá kjarna og gladdist yfir því efni, sem hann taldi tnáli.skipta og eiga erindi við almenning. Hann var hollráður lögfræðingur stjórn- endum hlaðsins og fyrir starf hans í þágu þess er honum nú þakkað að leiðarlokum. Merkilegt afmæli Ekki alls fyrir löngu hélt elzta daghlað heims, Berlingske Tidende, upp á 225 ára afmæli sitt. Þetta danska stórblað er ís- lendingum að góðu kunnugt, þó að ekki hafi ávallt farið saman hugsjónir íslendinga og afstaða hlaðsins. En Berlingur er virt hlað vfða um slóðir, enda hefur því verið stjórnað af mætum mönnum, framsýnum athafna- mönnum og góðum biaðamönn- um. Terkel M. Terkelsen hefur um langt árahil verið ritstjóri Berlingatíðinda, íslandsvinur ágætur, hefur oft komið til lands- ins og skrifað margar merkar greinar í blað sitt um land okkar og þjóð. Hann hefur nú Iátið af störfum, en er stjörnarformaður útgáfustjórnar hlaðsins. Nýir menn, ungir og dugandi, hafa tekið við ritstjórn |x>ss og er þess að vænta, að það haldi velli í skefjalausri haráttu við alls kyns yfirhorðsleg æsingablöð, sem gefin eru út í Danmörku eins og öðrum löndum. Góð, réttsýn, opin, en skoðanaföst dagblöð eru hyrningarsteinar frelsis og Ivð- ræðis í hverju landi. Af hlöðunum má marka eðli lýðræðis í við- komandi landi, og er Berlingur góður fulltrúi og hrjóstvörn ein- stakli ngsfrelsis og lýðræðis i Dan- mörku. Illutverk þess hefur því verið mikið og enginn vafi á því, að áhríf þess hafa horft til heilla, enda þ<>tt hlaðið hafi ekki ávallt sýnt íslendingum þann skilning, sem þeir hafa ætlazt til og er skemmst að minnast þess, að heldur var það okkur þungt f skauti i handritamálinu. En það er liðin saga og ástæðulaust að rifja hana upp á þessu merka afmæli blaðsins. Hins má geta, að í tilefni af afmæli Berlingatiðinda hefur útgáfust jórnm gefið út merka hók um hlaðamennsku, Avisen mellem fortid og fremtid. I riti þessu eru margar athyglis- verðar greinar, þ.á m. eftir Terkel M. Terkelsen, sem á augsýnilega erfitt með að segja alveg skilið við hlaðamannínn í hrjósti sínu,enda er það reynsla þeirra, sem lengi hafastarfað að blaðamennsku. Bylting hins þögla meirihluta I þessu afmælisriti Berlingatíð- inda er m.a. grein eftir ritstjóra Sunnudagshlaðs þess, Henning Fonsmark, sem hefur á undan- förnum árum verið einn helzti merkisheri hókmennta og menn- ingar i opinberu lífi Dana þrátt fyrir ungan aldur. Grein hans fjallar um menningarpólitík eftir- Auglýsing í ein stríðsáranna og er hin fróðlegasta fyrir margra hluta sakir. Einkum vekur hún athygli vegna þess, hvernig Fonsmark færir rök að þvf, að vinstri menn i Danmörku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.