Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.02.1974, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974 TÍZKAN SÍKKAR TÍZKUSÝNINGAR hafa verið hjá ýmsum helztu tízkufyrirtækjum í París, Rómaborg og víð- ar og kom þá ,í ljós, að flest fyrirtækin hafa fært pilsfaldinn niður, og er sfddin sögð ósköp áþekk því, sem var upp úr stríðslokum. Aftur á móti eru fötin sögð þægilegri og vandaðri en fatnaður var þá, svo sem eðlilegt er. I París virðist tízku- sýning Diors hafa vakið hvað mesta athygli en þar er aðalstjórnandi Marc Bohan. Ekki hefur kveðið mikið að Diorföt- um á allra síðustu árum, en þess meira verið hampað klæðnaði frá Courreges og Saint Laurent. Nú segja sér- fróðir menn, að Dior hafi slegið í gegn að nýju. Sú tilraun tízku- hússins að síkka pilsin að mun mæltist ágæt- lega fyrir. Blússur eru víðari og hafa léttari svip og yfirleitt eru föt- in hvergi látin þrengja að lfkamanum. Stúlkurnar til hægri sýna hér kjóla frá italska fyrirtækinu Biki og er hugmyndin innblásin af itölskum þjóðbúningum. Til vinstri er kvöldklæðnaður úr gráu krepefni, pliseruð slá úr sama efni og perlufesti notuð með. Hárgreiðslan er, eins og sjá má, svipuð og var upp úr striðslokum. Frá franska tizkuhúsinu Jules-Francois Grahay. Siðbuxur fyrir kvenfólk eru jafnvinsælar eins og hér má sjá. Barðastór og mikill hattur og ullarjakki. hvítur og svartur. Til hægri buxnadragt úr jersey-efni og Ijós blússa innanundir. Slæður og höfuðklútar eru aftur i tízku eins og sjá má á þessari mynd. Og perlufestar, langar, stuttar með litlum eða stórum perlum (auðvitað gerviperlum) má nota við hvað sem er. I Rómaborg hafa tízkufrömuðir farið enn lengra aftur í tímann og bera föt margra svipmót þeirrar tízku, sem var allsráðandi í kringum 1934. Meiri litadýrð er þó í fatnaðinum en þá var og hann er sömu- leiðis smekklegar teikn- aður, að margra dómi. Hjá ýmsum ítölskum tízkufyrirtækjum bar og mikið á fatnaði úr tau- þrykki með austurlenzk- um fyrirmyndum, og blómamynztrum og þótti gestum þetta all- nýstárlegt margt. Tvískiptur kjóll: ekki úr einlitu efni eins og var fyrir 30 árum, heldur er nú lagt allt kapp á að hafa efnin skrautleg og litfögur. Frá Balestra i Rómaborg: Svokallaður strandklæðnaður i sterkum litum, pilsin i appelsínugulum og dumbrauðum lit, langir treflar, sem bundnir eru um höfuð og síðan yfir brjóstin. Mörgum þótti þessi klæðnaður skemmti- legur, en efuðust um, að hann myndi ná almennri útbreiðslu. Frá Dior: Barðastór hattur, viðar ermar, festin ómissandi og siddin er komin vel niður á kálfa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.