Morgunblaðið - 10.02.1974, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1974
47
— Eins
og mér sýnist
Framhald af bls. 25
skemmtileg dægradvöl að bera
saman framkomu sovéskra stjórn-
málamanna á opinberum vett-
vangi og svo starfsbræðra þeirra
bandarískra Þeir eru að vísu ekki
eins ólíkir og dagur og nótt, en
þeir eru að minnstakosti eins ólík-
ir og fremur tilgerðarleg ópera og
dálítið kjánalegur söngleikur.
Bandarísku stjórnmálamennirnir
kyssa aldrei hver annan: þeir
leggjast nær einungis á börn. Und-
ir kosningar er ekkert barn óhult
fyrir þeim ef sjónvarpsvél er ná-
lægt: þeir hremma þau nánast úr
fangi mæðranna til þess að hella
yfir þau hráblautum kossum.
Nixon hefur áreiðanlega kysst
fleiri börn um dagana en allar
ömmur á íslandi samanlagt, en
hann hefur líka staðið í þessum
slag flestum mönnum lengur þar
vesturfrá eða með mestum
bægslagangi er óhætt að segja.
Upp á slðkastið hefur hann samt
eins og tekið sér hvíld frá þessari
iðju; hann hefur haft öðrum
hnöppum að hneppa eins og menn
vita kannski. Ég hef ekki séð hann
í humátt á eftir óvita síðan tölu-
vert fyrir jól. Þá tókst honum að
klófesta reifabarn vestur í Kali-
forníu og smella á það kossi og
veifaði síðan höndunum sigri hrós-
andi framan í sjónvarpsvélarnar
eins og hann hefði verið að rota
Muhamed Ali. En síðan ekki sög-
una meir.
Bandarískir stjórnmálamenn
þrýsta líka eins margar lúkur og
þeir orka og geta þegar þeir eru í
atkvæðahug. Ennfremur þeytast
þeir um göturnar í krómuðum
kádiljákum og baða út öllum öng-
um. Ennfremur brosa þeir stund-
um svo vikum skiptir ef á þarf að
halda, eins og nefprúðu trúðarnir I
hringleikahúsunum sem brosið er
málað á með andlitsklístri. Loks
flytja þeir óskaplega harðskeyttar
ræður þar sem þeir segja að allt sé
að fara til fjandans (ef þeir eru
ekki í stjórn) eða að allt sé í
himnalagi (ef þeir eru í stjórn). En
það eru þeir að vísu ekki einir um.
Starfsbræður þeirra í Sovét eiga
langtum náðugri daga. Sovéskir
stjórnmálamenn kreista ekki lúk-
ur, flaðra ekki upp um fólk, standa
ekki upp á endann i opnum bílum í
misjöfnu veðri, veifandi eins og
vindmillur í ofsaroki. Mest að þeir
láti hengja af sér smámynd þar
sem hún er ekki fyrir — svosem
átta hundruð fermetra ferlíki
sem er skrúfað framan á þinghöll-
ina. Það má segja að sovéskur
stjórnmálamaður hafi aðeins eitt
vígorð: „Annaðhvort kýstu mig,
heillakallinn, eða þú þarft bara
ekki framar að vera að standa í
svoleiðis veseni."
Líklega erum við íslendingar
stálheppnir með stjórnmálamenn-
ina okkar. Þeir ausa að vísu úr sér
skömmunum undir kosningar og
verða því orðljótari sem nær dreg-
ur kjördegi, en þeir skyggja hvorki
á sólina með myndum af sjálfum
sér eins og þeir rússnesku né allt
að því slíta þeir af manni lúkurnar
með ekkisin káfinu eins og þeir
bandarísku.
Ég kýs landann.
Sæmdur
fálkaorðu
Ösló 8. febrúar — NTB
FORSETI íslands hefur sæmt
séra Egil Lehmann, sóknarprest í
Fana, hinni íslenzku Fálkaorðu
fyrir mikið starf í fjölda ára i
þágu samstarfs og gagnkvæms
skilnings og samúðar milli is-
lendinga og Norðmanna. Lehman
er m.a. einn af höfundum ,,ís-
lenzk-norskrar orðabókar“.
— Beint útvarp
Framhald af bls. 1
Innbrotsmaðurinn þreif i stúlk-
ma, sem hrópaði móðursjúk í
íljóðnemann: „Ég er með byssu
dð bakið.“
Flötusnúðurinn las síðan yfir-
ýsinguna þar sem sagði, að
^rakkar væru á góðri leið með að
'lata lýðræðisréttindum sinum og
Ið franska stjórnin bæri ábyrgð-
na vegna gaullistastefnu sinnar.
Félagsstarf
Sjálfstœðisflokksins
VIÐTALSTIMAR
Á AKRANESI
Alþingismennirnir Jón Árnason og Friðjón Þórðarson verða til
viðtals í Sjálfstæðishúsinu við Heiðarbraut á Akranesi, sunnu-
daginn 10. febrúar 1 974 kl. 81—1 0 sídegis.
HELLA
HELLA
Félagsmálanámskeið verður
haldið í Hellubíói sunnudaginn
10. febrúarog hefstkl. 1 0 árdeg-
is.
Leiðbeinandi verður Jón
Magnússon, lögfræðingur.
Farið verður i undirbúning,
gerð og flutning ræðu
Fundasköp og
Allir velkomnir.
Frekari upplýsingar veitir Hilmar
Jónasson, simar 5940 eða
5868
s.u.s.
HUGINN
HUGINN
Huginn félag ungra Sjálfstæðismanna Garð» og Bessastaðahreppi
boðar til almenns fundar þriðjudaginn 12. febrúar kl, 8.30 i Gagn-
fræðaskóla Garðahrepps
Dagskrá
1. Garðar Sigurðsson sveitarstjóri
Er hægt að fiýta hitaveituframkvæmdunum?
Á að byggja fjölbýlishús i hreppnum?
2. Sveinn Torfi Sveinsson verkfærðingur
Á Hafnarfjarðavegurinn að slita hreppinn í tvennt?
3. Gestur Ólafsson arkitekt og skipulagsfræðingur ræðir skipulag i
þéttbýli og skýrir með myndum.
4. Ólafur G. Einarsson alþingismaður og oddviti mætir á fundinn
Stjórnin.
kriggia kvðlda spiiakeppni
Miðvikudaginn 13. febr, kl. 8.30,' hefja Sjálfstæðisfélögin í Reykjavik,
þriggja kvölda spilakeppni, að Hótel Sögu, Súlnasal
Ávarp
Geir Hallgr.s.
form. Sjálfst.f
Heildarvinningur
Utanlandsferð til Mallorka með ferðaskristofunni
Úrval,7 glæsilegir kvöldvinningar.
Skemmtiatriði
Jörundur
Húsið opnað kl. 20.00
Aðgöngumiðar afhentir að
Laufásvegi 46,
(Galtafelli) simi. 15411.
Tryggið ykkur miða i tíma.
Skemmtinefndin.
MOSFELLSHREPPUR
Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ingólfsson og Félag ungra sjálfstæðis-
manna halda fund að Hlégarði miðvikud. 1 3. febr. kl. 21 Rætt verður
um sveitastjórnarkosningar að vori og tekin ákvörðun um framboð
Stjórnirnar.
Reykianeskjðrdæmi
Þau Sjálfstæðisfélög, sem enn eiga eftir að senda stjórn Kjör-
dæmisráðs skýrslu, eru beðin um að senda þær nú þegar til
formanns kjördæmisráðs, Jóhanns Petersen, Tjarnarbraut 7,
Hafnarfirði.
ReykjaneskjöPdæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjör-
dæmi, verður haldinn i félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, laugar
daginn 23. febrúar kl. 1 0 f.h.
Dagskrá auglýst siðar.
Stjórn kjördæmisráðs.
hvot, félag sjáifstæðlskvenna
heldur fund í Átthagasal Hótel Sögu, mánudaginn 11. febrúar kl.
20 30.
Fundarefni: Fóstureyðingafrumvarpið
Frummælendur: Guðrún Erlendsdóttir, hæstarréttarlögmaður og
Jón Þ. Hallgrímsson, læknir Sjálfstæðiskonur fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
Stjórnin.
Akurneslngar Akurneslngap
Þór, félag ungra sjálfstæðismanna á
Akranesi, heldur almennan fund, miðviku-
dagipn 13 febrúar kl 8 30 í Sjálfstæðis-
húsinu, Heiðabraut 20.
Saga og stefna Sjálfstæðisflokksms
Dhusson, formaður Sambam
Allir velkomnir. Ungt fólk sérstaklega hvatt til að mæta.
Frummælandi Friðrik Zóphusson, formaður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna
Stjórnin.
TIL LEIGU
150—160 fermetra skrifstofuhæð við vestanverða mið-
borgina til leigu.
Upplýsingar veitir:
RagnarTómasson, hdl.
Austurstræti 1 7.
Til sölu
4ra mánaða Chevrolet Blazer, árg. '73.
Er 8 cyl. með power stýri og power bremsum. Bíll í
toppklassa. Er alklæddur með stereo cassettu segulbandi
og útvarpi. Er á breiðum krómfelgum. Til sýnis og sölu að
Löngubrekku 1 2, Kópavogi. Sími 41 882.
Knattspyrnudðmaranámskelð
hefst mánudaginn 1 1. febrúar kl. 20, i Valsheimilinu.
Stjórn K. D.R.
Takmark okkar er, og heitir,
Ollu framar vllji blnn
9»
M
Oss það gleði alltaf veitir,
ef þú kemur hingað inn.
HAFÞÓRSBÚÐ,
Langholtsvegi 49,
simar: 34976 — 32353.
HtorgMnlhtaÍiiÍi
óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST
Upplýsingar i sima 35408
AUSTURBÆR:
Bergstaðastræti, Sjafnargata, Freyjugata 28 — 49,
Ingólfsstræti, IVIiðtún, Laugavegur frá 34—80,
Hverfisgata 63—1 25.
VESTURBÆR:
Seltjarnarnes: (Miðbraut), Garðastræti
Lynghagi, Lambastaðahverfi,
UTHVERFI:
Álfheimarfrá 43, Barðavogur, Karfavogur,
Smálönd, Hólahverfi Heiðargerði
KÓPAVOGUR
Blaðburðarfólk óskast:
í austurbæ
Upplýsingar í síma 40748.