Morgunblaðið - 02.07.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.07.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JULI 1974 13 nýir 13 nýir þingmenn taka sæti á næsta alþingi tslendinga. Sumir þeirra hafa áður setið sem vara- menn, er eru nú ýmist kjörnir kjördæmakosningu eða hljóta uppbótarþingsæti. Hér fylgja með myndir af hinum 13 nýkjörnu þingmönnum. □ Guðmundur H. Garðars- son alþingismaður er við- skiptafræðingur að mennt. Hann er 45 ára gamall, for- maður Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur og I for- svari fyrir verkalýðs- hreyfinguna. Guðmund- ur er blaðafulltrúi SH. Hann er 8. þingmaður sjálfstæðismanna í Rvík. □ Sighvatur Björgvinsson alþingismaður er ritstjóri Alþýðublaðsins. Hann er fæddur 23. L 1942. Hann er þingmaður Alþýðuflokks- ins í Vestf jarðakjördæmi. □ Gunnlaugur Finnsson alþingismaður er bóndi og kennari að Hvilft í Flat- eyrarhreppi. Hann er fæddur 11.5. 1928. Gunn- laugur er 2. þingm. Fram- sóknarflokksins í Vest- fjarðakjördæmi. □ Sigurlaug Bjarnadótt- ir alþingismaður er fædd 4.7. 1926. Hún er mennta- skólakennari og lét af störfum sem borgarfulltrúi sjálfstæðismanna í Reykja- vík við síðustu kosningar. Sigurlaug er nú þriðji þingmaður sjálfstæðis- manna í Vestfjarðakjör- dæmi. alþingismenn □ Albert Guðmundsson alþingismaður er 7. þing- maður sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann er fæddur 5. okt. 1923, hefur samvinnuskólamenntun, er stórkaupmaður, borgar- fulltrúi í Reykjavík og ræðismaður Frakklands m.a. □ Halldór Ásgrfmsson al- þingismaður og lektor er fæddur 8.9. 1947. Hann er þriðji þingmaður Fram- sóknarflokksins í Austur- landskjördæmi. □ Stefán Jónsson al- þingismaður og kennari er fæddur 9.5. 1923. Hann hefur setið á alþingi sem varamaður, en er nú þing maður Alþýðubandalags- ins i Norðurlandskjördæmi eystra. □ Axel Jónsson alþingis- maður og bæjarfulltrúi í Kópavogi er fæddur 8. júní 1922. Hann hefur setið áð- ur á alþingi, en er nú 4. þingmaður sjálfstæðis- manna í Reykjaneskjör- dæmi. □ Jón Helgason alþingis- maður og bóndi í Seglbúð um í Kirkjubæjarhreppi er fæddur 4.10. 1931. Hann er 2. þingmaður Framsóknar- flokksins í Suðurlandskjör- dæmi. □ Tómas Árnason al- þingismaður og fram- kvæmdastjóri er fæddur 21.7. 1923. Hann er nú 2. þingmaður Framsóknar- flokksins í Austurlands- kjördæmi. □ Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður er ritstjóri Mörgunblaðsins. Hann er lögfræðingur að mennt, fæddur 13.6. 1928 og hefur áður setið á alþingi sem varamaður. Eyjólfur er 2. þingmaður sjálfstæðismanna í Norður- landskjördæmi vestra. □ Páll Pétursson alþingis- maður og bóndi á Höllu- stöðum í Austur-Húna- vatnssýslu er 2. þingmaður Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Hann er fæddur 17. 3.1937. □ Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður er bústjóri að Laugardælum í Hraun- gerðishreppi. Hann er fæddur 26.7. 1923. Þórar- inn er 1. þingmaður Fram- sóknarflokksins í Suður- landskjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.