Morgunblaðið - 02.07.1974, Page 18
18
Algjört
áhugaleysi
A sunnudaginn fór fram á
Laugardalsvellinum knattspyrnu-
kappleikur f tilefni þjóðhátfðar-
haldanna f Reykjavfk. Voru það
lið Reykjavfkur og „landsins",
sem mættust. Áhugi á leik
þessum virtist vera f algjöru iág-
marki, svo sem vænta mátti. Leik-
menn 1. og 2. deildar liðanna
standa nú f strfðu, og voru nokkr-
ir þeirra, sem valdir voru f úrvals-
lið þessi, f keppni á laugardaginn,
þannig að engan þarf að undra
þótt þeir hefðu ekki brennandi
áhuga á þessum leik. Af þeim
leikmönnum, sem valdir höfðu
verið f lið landsins, mættu ekki 10
og einnig voru mikil forföll f Iiði
Reykjavfkur. Var rokið til á síð-
ustu stundu og hringt um borg og
bý til þess að freista þess að
smala saman f lið. Heppnaðist það
að lokum, m.a. með þvf að Þor-
steinn Ólafsson landsliðsmark-
vörður var látinn leika úti á velli
f liði landsins og eini varamaður
þess liðs var landsliðsþjálfarinn
Tony Knapp, sem kom inná f
seinni hálfleik og sýndi, að hann
kann ýmislegt fyrir sér f knatt-
spyrnu.
Þrátt fyrir allt brá fyrir all-
skemmtilegum leikköflum f
þessum leik, en úrslit hans urðu
þau, að Reykvfkingarnir sigruðu
með þremur mörkum gegn engu.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLI 1974
Hörð barátta við KR-markið. Magnús Guðmundsson markvörður er umkringdur varnarmönnum sfnum og sóknarmönnum Akurnesinga,
sem hafa hug á að koma knettinum rétta boðleið f netið.
Nú voru KR-ingar heppnir
ENN eitt jafnteflið varð stað-
reynd í 1. deildinni, er Eysteinn
Guðmundsson flautaði leik ÍA og
KR af á Akranesi á laugardaginn.
Þessir gömlu andstæðingar
skoruðu sitt hvort markið og
verða KR-ingar að teljast heppnir
að sleppa með þau úrslit. Það
voru um 2000 manns, sem horfðu
á leikinn og tóku 600 þeirra sér
far með nýju Akraborginni frá
Reykjavík, sem hóf áætlunar-
ferðir þennan dag. Sjóferðin var
að því leyti söguleg, að einn
farþeganna henti sér f sjóinn á
leiðinni til Akraness, en var
dreginn um borð aftur illa til
reika. Við þetta seinkaði því
nokkuð að leikurinn hæfist, því
dómarínn var með skipinu.
Akurnesingar byrjuðu vel:
Akurnesingar byrjuðu leikinn vel
og áttu í byrjun góð tækifæri, eins
og t.d. þegar Þröstur skallaði að
marki af stuttu færi, en Magnús
varði, þá skaut Eyleifur í mark-
vörðinn af stuttu færi og þannig
mætti telja. En brátt tók
leikurinn að jafnast og áttu KR-
ingar sín hættulegu upphlaup,
sérstaklega voru þeir Atli Þór og
Jóhann Torfason skeinuhættir
vörn Akurnesinga. Ekki var
mikið um marktækifæri, en á 27.
mín'. brunaði Jóhann Torfason
upp vinstra megin og skoraði við
mikinn fögnuð KR-inga, sem voru
fjölmennir á vellinum. Litlu síðar
var Jóhann borinn af velli, en
hann meiddist er þeir hlupu
saman Davíð markvörður lA og
hann. Reyndist hafa brotnað bein
í fæti hans og verður þvf frá
knattspyrnu um einhvern tíma.
Sfðari hálfleikur:
Akurnesingar tóku völdin
snemma í .sinar hendur í sfðari
hálfleik og héldu frumkvæðinu
það sem eftir var. Ekki hefði
verið ósanngjarnt, að sigurinn
hefði verið þeirra, en eins og svo
oft áður, hefur liðunum reynzt
erfitt að finna leiðina að marki
andstæðinganna. Hvað eftir
annað lá við að þeir skoruðu, en
allt kom fyrir ekki, fyrr en á 74.
Texti og myndir:
Helgi Danfelsson.
mín. er Jón Alfreðsson skoraði
með skalla eftir hornspyrnu, en
þá rétt áður höfðu bæði Eyleifur
og Hörður Jóhannesson notað illa
góð færi.
Fleiri urðu mörkin ekki og enn
eitt jafnteflið varð í 1. deild.
Akurnesingar hafa ekki enn
tapað leik og hafa eftir 7 umferðir
3ja stiga forystu.
Karl Þórðarson átti mjög góðan
leik að þessu sinni og var hann
áberandi bezti maður liðsins. Þá
áttu Jón Alfreðsson og Jóhannes
Guðjónsson, sem nú var með að
nýju, góðan leik. Hörður Jó-
hannesson, sem kom inná í síðari
hálfleik átti góðan leik og hætt er
við, að úrslit leiksins hefðu verið
önnur, ef hann hefði verið með
allan tfmann f stað Sigþórs
Ömarssonar, sem tók sæti Teits,
sem var meiddur.
Hjá KR voru þeir Jóhann Torfa-
son og Atli Þór beztir og varð
skarð fyrir skildi, er Jóhann
meiddist í fyrri hálfleik og varð
að yfirgefa völlinn, auk þess sem
Atli Þór gekk ekki heill til skógar.
Aðrir leikmenn KR börðust vel og
er erfitt að gera upp á milli
þeirra.
I heild var leikurinn ekki vel
leíkinn, en nokkuð spennandi á
köflum og brg fyrir skemmti-
legum augnablikum.
Leikurinn f stuttu máli:
Islandsmót 1. deild.
Akranesvöllur, 29. júní 1974
IA—KR 1—1 (0—1)
Mark KR: Jóhann Torfason á 27.
mín.
BREIÐABLIKSMENN sluppu
heldur betur með skrekkinn er
þeir léku við Völsunga frá Húsa-
vfk f Kópavogi á laugardaginn.
Þegar um 10 mfnútur voru til
leiksloka var staðan 2:1 fyrir
norðanmenn og þótt Breiðablik
hefði sótt mun meira um tfma,
hafði hvorki gengið né rekið. Þá
var það loks, að Ólafi Friðrikssyni
tókst að skora og jafna fyrir UBK.
Var það hans annað mark f leikn-
um, og Ólafur átti eftir að bæta
um betur. Skömmu fyrir leikslok
skoraði hann sitt þriðja mark, og
tryggði þar með stöðu UBK í
toppbaráttunni f 2. deild.
Leikurinn í Kópavogi var
annars heldur tilþrifalftill. Flest-
um á óvart var Völsungur lengst
af betra liðið og sérstaklega í
fyrri hálfleik sýndu þeir það litla,
sem sást af knattspyrnu f
leiknum. Þeir höfðu forystu, þeg-
ar gengið var til leikhlés 1:0 og
var það Júlíus Bessason, sem
mark þeirra hafði skorað.
Breiðablik jafnaði svo snemma
f seinni hálfleiknum, en um hann
Mark ÍA: Jón Alfreðsson á 74.
mín.
Gult spjald: Tony Knapp þjálfari
KR.
Áhorfendur: 1761
miðjan náðu Völsungar aftur
forystu 2:1. Hreinn Elliðason
stakk sér inn fyrir vörn Breiða-
bliksmanna og skoraði með skoti
af stuttu færi.
Eftir að Húsvíkingarnir höfðu
aftur náð forystu var sem Breiða-
bliksmenn vöknuðu loks til lífsins
og tóku að sækja af miklum
krafti, en oftast alltof þröngt,
þannig að tiltölulega auðvelt var
fyrir Húsvíkingana að verjast. Af
og til áttu þeir svo upphlaup og
komst Breiðabliksmarkið eitt
sinn í stórhættu er Júlíus komst
einn inn fyrir. Hlupu þá þrir
Blikar á hann og hreinlega
keyrðu hann niður inni í teignum.
Þarna hefði einhver dæmt víta-
spyrnu, en Sveinn Kristjánsson
dómari lét sem ekkert væri, en
hann dæmdi þennan leiic heldur
slælega. Aður hefur verið vikið að
lokamfnútunum og mörkum UBK
á þeim.
Haraldur Erlendsson var bezti
maður Breiðabliksliðsins í
þessum leik, en einnig stóðu þeir
Einar Þórhallsson og Ólafur Frið-
Dómari: Eysteinn Guðmundsson
dæmdi leikinn af röggsemi, en
sleppti augljósri vftaspyrnu undir
lok leiksins.
riksson vel fyrir sínu, og þá sér-
staklega Clafur, sem skoraði hin
dýrmætu mörk. Húsavíkurliðið
náði öðru hverju skemmtilegum
leikköflum, en féll síðan niður í
meðalmennskuna eða niður fyrir
hana á milli. Hreinn átti laglega
spretti f leiknum, en bezti leik-
maður Völsunga var þó Július
Bessason, sem setti vörn UBK oft
í mikinn vanda.
-stjl.
Islands-
mótið
2. deild
-.IIIMIUtlHDI
Útbúum borðfána, hornveifur og bílmerki fyrir
íþróttafélög og önnur samtök. Prentum merki og
myndir á boli. Prentum gluggamerkingar fyrir
verzlanir og fyrirtæki. Útbúum alls konar plast-
skilti. Reynið viðskiptin, vönduð vinna.
Silkiprent Lindargötu 48 sími 14480.
Metaregn í Helsinki
Frábær árangur náðist í
mörgum greinum á hinum svo-
nefndu Helsinki-leikum í
frjálsum íþróttum, sem fram
fóru í síðustu viku. Má nefna,
að Mann, Bandarfkjunum,
sigraði í 400 metra grinda-
hlaupi á 49,7 sek. John Akii-
Bua, sem vann gull í þessari
grein á Olympíuleikunum 1972,
varð annar á sama tfma. Feuer-
bach frá Bandaríkjunum
sigraði í kúluvarpi, varpaði
21,26 metra, en Finninn Stál-
berg varð annar og setti
Norðurlandamet, varpaði
einnig 21,26 metra. Karst frá
V-Þýzkalandi jafnaði Evrópu-
metið f 3000 metra hindrunar-
hlaupi: 8:18,4 mfn., og
Kantanen frá Finnlandi setti
nýtt finnskt met í hlaupinu:
8:19,6 mín. Einnig var þar sett
bæði pólskt og ítalskt met.
Knut Kvalheim frá Noregi
sigraði í 5000 metra hlaupinu á
nýju norsku meti: 13:20,4 mín.,
en Steve Prefontaine frá
Bandaríkjunum, sem varð
annar, setti nýtt bandarfskt
met: 13:22,2 mín. Leif Roar
setti nýtt norskt met í hástökki,
stökk 2,19 metra, en sigur-
vegari f þeirri grein varð
Jesper Törring frá Danmörku,
sem stökk sömu hæð.
UBK-sigur á
elleftu stundu