Morgunblaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 14. JULI1974 Dropastein- ar, Eldborg í BláfjöUum, Melrakkaey, Surts- ey og Éldey friö- lýst konar akstur utan vegar á hinu friðlýsta svæði bannaður. 2. Skylt er vegfarendum að sýna varúð, svo ekki spillist gróð- ur eða aðrar minjar á hinu frið- lýsta svæði í umhverfi eldstöðvar- innar. 3. Jarðrask allt og mannvirkja- gerð á hinu friðlýsta svæði er háð leyfi Náttúruverndarráðs. 4. Ekki má fara með hesta um svæðið utan vegar og stranglega er bannað að beita þeim innan þess. Um viðurlög vegna brota á regl- um þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga. Felld eru úr gildi eldri ákvæði um friðun svæðisins. Ráðuneytið er samþykkt frið- lýsingunni og birtist hún hér með skírskotun til 32. og 33. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, og tekur friðlýsingin gildi við birt- ingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum. □ Friðlýsing Surtseyjar. Samkvæmt heimild 24. gr. laga nr. 47/1971 um náttúurvernd, hefur Náttúruverndarráð ákveðið fyrir sitt leyti að lýsa Surtsey friðland. Um friðlandið gilda þessar regl- ur: 1. Óheimilt er að fara í eyna nema með leyfi Surtseyjarfélags- ins, sem hefur umsjón með vls- indarannsóknum þar, og hefur Náttúruverndarráð falið félaginu umsjón með eynni. 2. Bannað er að raska nokkru i eynni. Leyfi Náttúruverndarráðs þarf til að reisa þar varanleg mannvirki. 3. Bannað er að flytja í eyna lifandi dýr, plöntur, fræ eða plöntuhluta. 4. Bannað er að skilja eftir hvers konar úrgang f eynni og við hana. 5. Skot eru bönnuð nær eynni en í 2ja km fjarlægð. Um viðlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga. Felld eru úr gildi eldri ákvæði um friðun eyjarinnar. Ráðuneytið er samþykkt frið- lýsingunni og birtist hún hér með með skírskotun til 32. og 33. gr. laga nr. 47/1971 um náttúru- vernd, og tekur friðlýsingin gildi við birtingu þessarar auglýsingar f Stjórnartíðindum. Menntamálaráðuneytið hef- ur samkvæmt tillögu frá Nátt- úruverndarráði ákveðið fjðr- ar friðlýsingar. Dropasteinar í hellum landsins eru nú frið- lýstir, Eldborg hjá Drottn- ingu f Bláfjöllum, Melrakka- ey á Grundarfirði, Surtsey og Eldey. Frá þessu er skýrt í Stjðrnartíðindum, sem nýlega eru komin út og þar stendur, að friðlýsingin hafi átt sér stað 3. aprfl sfðastliðinn. □ Friðlýsing dropastema. Samkvæmt heimild í 23. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd hef- ur Náttúruverndarráð ákveðið, fyrir sitt leyti, að lýsa dropasteina í hellum landsins náttúruvætti. Tekur friðlýsing þessi til allra hellna landsins. Til dropasteinsmyndana teljast bæði dropasteinsdrönglar, sem hanga niður úr hellisþökum og niður með hellisveggjum, svo og dropasteinskerti, sem standa á hellisgólfum og syllum hellis- veggja. Bannað er að brjóta eða skemma á annan hátt umræddar dropasteinsmyndanir. Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga. Felld eru úr gildi eldri ákvæði um vernd dropasteina. Ráðuneytið er samþykkt frið- lýsingunni og birtist hún hér með með skírskotun til 32. og 33. gr. laga nr 47/1971 um náttúruvernd, og tekur friðlýsingin gildi við birtingu þessarar auglýsingar f Stjórnartíðindum. Friðlýsing Eldborgar f Bláfjöllum. Samkvæmt heimild í 22. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, hefur Náttúruverndarráð ákveðið fyrir sitt leyti að lýsa Eldborg í Bláfjöllum náttúruvætti. Mörk hins friðlýsta svæðis eru þessi: Að austan ræður (1) Bláfjalla- vegur eins og hann er nú. Að sunnan (2) hugsuð lfna skemmst 200 m frá rótum Eldborgar frá vegi að suðurenda Drottningar, (3) með hábrún hennar að norð- urenda hennar og (4) þaðan til austurs að vegi, 200 m frá rótum hið næsta. Um svæðið gilda eftirfarandi reglur: 1. Óheimilt er að ganga um hlfðar og barma gfgsins utan merktra gönguslóða. Ennfremur er hvers □ Friðlýsing Melrakkaeyjar. Samkvæmt heimild í 24. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, hefur Náttúruverndarráð ákveðið fyrir sitt leyti að lýsa Melrakkaey á Grundarfirði friðland. Um friðlandið gilda þessar regl- ur: 1. Bannað er að fara í eyna án leyfis Náttúuruverndarráðs eða umboðsmanns þess. 2. Skot eru bönnuð nær eynni en í 2ja km fjarlægð og netalagnir V, km frá stórstraumsfjörumáli. 3. Náttúruverndarráði er heimilt að leyfa nytjar æðarvarps og annarra hlunninda. Um viðurlög vegna brota á regl- um þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga. Felld eru úr gildi eldri ákvæði um friðun eyjarinnar. Ráðuneytið er samþykkt frið- lýsingunni og birtist hún hér með með skírskotun til 32. og 33. gr. laga nr. 47/1971 um náttúru- vernd, og tekur friðlýsingin gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum. □ Friðlýsing Eldeyjar. Samkvæmt heimild i 24. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, hefur Náttúruverndarráð ákveðið fyrir sitt leyti að lýsa Eldey úti af Reykjanesi friðland. Um friðlandið gilda þessar regl- ur: 1. Bannað er að fara f eyna án leyfis Náttúurverndarráðs. 2. Skot eru bönnuð nær eynni en i 2ja km fjarlægð. 3. Bannað er að hafa eyna að skotmarki, hvort heldur er af landi, sjó eða úr lofti. Um viðurlög vegna brota á regl- um þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga. Felld eru úr gildi eldri ákvæði um friðun eyjarinnar. Ráðuneytið er samþykkt frið- lýsingunni og birtist hún hér með með skírskotun til 32. 33. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, og tekur friðlýsingin gildi við birt- ingu þessarar auglýsingar f Stjórnartíðindum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.