Morgunblaðið - 03.12.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974
Dagný hefur
veitt fyrir
73,5 milljónir
Siglufirði 2. des.
SKUTTOGARANUM Dagnýju
hefur gengið mjög vel eftir
gagngerðar breytingar, sem
gerðar voru á skipinu. Heildar-
verðmæti er orðið rúmlega 73,5
milljónir frá því um miðjan
janúar sl. I siðustu veiðiferð
seidi Dagný í Grimsby 100 tonn
fyrir 33,416 sterlingspund, eða
8,8 milljónir. Skipstjórar hafa
verið Kristján Rögnvaldsson og
Arngrimur Jónsson til skiptis.
— Matthías.
Gott fiskverð
í Bretlandi
EINN fslenzkur bátur, Ólafur
Tryggvason frá Hornafirði,
seldi i Grimsby I gær. Alls seldi
báturinn 27.4 iestir fyrir 7648
sterlingspund. Meðalverðið
mun vera f kringum 75 kr., sem
er ágætis verð. Megnið af afla
bátsins var ýsa og þorskur.
Tveir íslenzkir bátar til
viðbótar munu selja í Grimsby
i vikunni.
Vinnuslys
VINNUSLYS varð við Rjúpu-
fell 48 i gær. Þar var komið að
pilti, sem var að handlanga hjá
múrara, þar sem hann lá með-
vitundarlaus á jörðinni við
vinnupall. Pilturinn var fluttur
í slysadeildina og komst þar
skömmu siðar til meðvitundar
en hann gat ekki gert sér grein
fyrir þvi hvernig slysið bar að.
Líklegast er talið að hann hafi
verið á öðrum eða þriðja palli
en runnið í hálku og fallið við
út af pallinum eða niður um
stigaop á pallinum. Við fyrstu
rannsókn virtist pilturinn ekki
aivarlega slasaður, hafði skrám-
azt töluvert en ekki beinbrotn-
að.
Forsetinn var
ekkiviðstaddur
FORSETI Islands hefur að
jafnaði verið viðstaddur full-
veldissamkomu stúdenta við
Háskóla Islands 1. desember.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið fékk hjá forseta-
ritara í gær, var forseti Islands,
herra Kristján Eldjárn, ekki
viðstaddur samkomuna að
þessu sinni.
Engin formleg
tilkynning um
löndunarbannið
ENGIN formieg tilkynning
hafði I gærkvöldi borizt frá
þýzkum stjórnvöldum um iönd-
unarbann á fslenzk skip í þýzk-
um hö/num. Einar Ágústsson
utanríkisráðherra tjáði Mbl. í
gærkvöldi, að reynt hefði verið
að fá á hreint hvort sambands-
stjórnin I Bonn stæði að þessu
banni, en það hefði ekki borið
árangur. Utanríkisráðherra
kallaði veztur-þýzka sendiherr-
ann á sinn fund f gær, en hann
vissi ekkert um málið. Þá var
Árna Tryggvasyni sendiherra I
Bonn f gær falið að kanna þetta
mál.
Ferðamenn gáfu 100
milljónum kr. meiri
gialdéyri en loðnan
BEINAR og óbeinar tekjur vegna
erlendra ferðamanna voru á ár-
inu 1973, skv. upplýsingum Seðla-
banka Islands, einn milljarður,
946 milljónir 239 þúsund krónur.
Þetta kom fram f ræðu formanns
Ferðamálaráðs Lúðvfgs Hjálmtýs-
sonar á fundi Ferðamálaráðs. Og
voru tekjur vegna erlendra ferða-
manna þvf um 100 milljónum
meiri en allt aflaverðmæti loðn-
unnar á vertfð 1973.
Tekjurnar skiptast þannig: Frf-
höfnin á Keflavfkurflugvelli 90,3
milljónir, isl. markaður á flug-
vellinum 75,1 milljón, Ferða-
Leki kom að Snæfugli
Reyðarfirði, 2. des.
SNÆFUGL SU kom heim klukk-
an 8 f morgun úr söluferð frá
Þýzkalandi. Snæfugl lenti f
hafnarbanni eftir töku þýzka
togarans hér heima. Umboðs-
maður fslenzku bátanna fór fram
á, að þeir lönduðu sjálfir, en það
fékkst ekki. Landað var á venju-
legan hátt. Snæfugl fékk lög-
regluvernd út úr fiskdokkinni, en
brottför tafðist um sólarhring
vegna veðurs.
Þeir fengu slæmt veður heim.
Eitthvað rakst i skrúfuna
skömmu eftir að farið var frá
Þýzkalandi, og kom leki að
bátnum, og voru dælur í gangi
alla leiðina heim. Snæfugl seldi
51,5 tonn fyrir 70 krónur meðal-
verð. Skipstjóri á Snæfugli þessa
ferð var Guðmundur Arnason.
Báturinn Gunnar SU 139 land-
aði hér 20 tonnum i fyrri viku.
Aflinn er unninn hér í vinnslu-
stöð GSR. Báturinn Gunnar fór
aftur út á veiðar á laugardag, en
Snæfugl fer i viðgerð vegna þess
tjóns, sem hann varð fyrir í ferð-
inni. Báðir bátarnir veiða í
þorskanet, og verða að sækja alla
leið til Vestmannaeyja. Hér er
fínasta veður í dag.
— Gréta.
skrifstofur 166,4 milljónir, hótel
72,9 millj., aðrir 728,3 millj.,
kaup erlendra ferðamanna á fsl.
peningum erlendis 13,1 milljver-
lend flugfélög 39 þús., gjaldeyris-
tekjur fsl. flugfélaganna af far-
gjöldum erl. ferðamanna 800 þús.
Hækkun frá árinu áður var
46,9%. Það kom fram f ræðu for-
manns, að beinar og óbeinar
gjaldeyristekjur vegna erlendra
ferðamanna eru 7,4% af heildar
vöruútflutningi landsmanna á ár-
inu 1973. Tók hann tölur um út-
flutningsverðmæti f heild, sem
sýna, að gjaldeyristekjur vegna
erlendra ferðamanna voru f
þriðja sæti, næst á eftir gjald-
eyristekjum af sjávarafla og áli
og álmelmi. Landbúnaður gefur
2,9% og iðnaðarvörur 5,2%.
Ólafur Ragnar formaður
framkvæmdastjórnar SFV
Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra:
Bátaflotinn fái 250 m.
kr. af gengishagnaði
MATTHlAS Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra greindi frá því í
ræðu á fundi Landssambands fs-
lenskra útvegsmanna í sfðustu
viku, að sjávarútvegsráðuneytið
myndi beita sér fyrir bráða-
birgðafyrirgreiðslu úr gengis-
hagnaðarsjóði til þeirra útgerðar-
aðila, sem verst væru settir.
Sjávarútvegsráðherra sagði, að
ráðgert væri að 250 millj. kr. yrði
varið til bátaflotans f þessu skyni.
Ræða sjávarútvegsráðherra er
birt f heild á bls. 29.
En um þessa bráðabirgðafyrir-
greiðslu sagði ráðherrann m.a.:
„Sjávarútvegsráðuneytið mun í
næstu viku hafa samráð við
sjávarútvegsnefnd Neðri deildar
sem nú hefur til afgreiðslu frum-
varp um ráðstafanir í sjávarút-
vegi um að verja 250 millj. króna
af gengishagnaði til bátaflotans,
og mun Aflatryggingasjóði vænt-
anlega verða falið að inna greiðsl-
urnar af hendi, þannig að þær
renni eftir aðstæðum, beint til
lánadrottna viðkomandi útgerðar-
aðila, en þá eru einkum haft í
huga mannakaup og ýmsir þjón-
ustuaðilar eins og t.d. skipavið-
gerðarstöðvar og vélaverkstæði.
í aðalatriðum má segja að
stefnt sé að því að bæturnar verði
miðaðar við lágmarksafla pr. út-
haldsdag eftir stærðarflokkun og
veiðiaðferðum á si. vertíð. Þá er
og gert ráð fyrir að tekið verði
tillit til einstakra óhappa við
ákvörðun bóta. Það hefði verið
æskilegt að greiða einhverjar
BROTIST var inn í Casanova,
félagsheimili ncnenda Mennta-
skólans í Reykjavfk, aðfararnótt
s.l. sunnudags. Var farið inn f
kjallara hússins og þaðan um
húsakynni þess. Höfðu þjófarnir
á brott með sér 50—60 þúsund
krónur af fé nemenda.
bætur pr. úthaldsdag, en hér er
um að ræða bráðabirgðafyrir-
greiðslu til þeirra sem verst eru
settir. Ekki er gert ráð fyrir að
bætur verði nú greiddar til báta
innan við 20 lestir. Að sjálfsögðu
verða þeir, sem vilja njóta bóta,
að skila þeim reikningum og öðr-
um upplýsingum, sem bankarnir
óskuðu eftir, hafi þeim ekki verið
skilað.
Það verður að segjast eins og er,
að mjög erfitt er að setja reglur
um tilhögun bótagreiðslna, og þá
fyrst og fremst vegna þess hve
takmarkaðar upplýsingar eru
fyrir hendi, en það stafar af því
að útvegsmenn hafa ekki skilað
þeim skýrslum til Aflatrygginga-
sjóðs, sem þeim lögum samkvæmt
ber að skila. Þannig varð að
ákveða bótagreiðslur miðað við
vetrarvertíð vegna þess hve mikið
vantar af skýrslum fyrir sumarút-
hald, en umrædd fyrirgreiðsla
þolir enga bið.“
MÖÐRUVALLAHREYFINGIN
og Samtök jafnaðarmanna hafa
nú endanlega og formlega sam-
einast Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna. Á landsfundi Sam-
takanna, sem haldinn var um sl.
helgi var Magnús Torfi Olafsson
kjörinn formaður þeirra. Kosnir
voru 15 menn f framkvæmda-
stjórn og á fyrsta fundi hennar
var Olafur Ragnar Grfmsson kjör-
inn formaður.
Fyrir landsfundinn héldu Sam-
tökin, Möðruvallahreyfingin og
Samtök jafnaðarmanna ráð-
stefnu, þar sem ákveðið var með
hverjum hætti sameiningin skyldi
eiga sér stað. Samþykktar voru
tillögur um breytingar á skipulagi
SFV og fólu þær m.a. í sér f jölgun
í framkvæmdastjórn og flokks-
stjórn. Jafnframt var ákveðið að
formennska i þingflokki, for-
mennska í flokknum og for-
mennska í framkvæmdastjórn
mætti ekki vera á hendi sama
manns. Þessar breytingar voru
ákveðnar til þess að auðvelda
sameininguna, og bær voru siðan
samþykktar á landsfundi SFV.
Við flokksstjórnarkjör var
Magnús Torfi Ólafsson kjörinn
formaður, Jón Helgason varafor-
maður, Andrés Kristjánsson rit-
ari og Eyjólfur Eysteinsson gjald-
keri. Auk þessara manna voru
eftirtaldir ellefu menn kjörnir í
framkvæmdastjórn: Arnór Karls-
son, Friðgeir Björnsson, Karvei
Pálmason, Ölafur Ragnar Grims-
son, Herdís Ölafsdóttir, Elías
Snæland Jónsson, Halldór S.
Magnússon, Haraldur Henrýsson,
Steinunn Finnbogadóttir, Sigur-
jón Ingi Hillaríusson og Kristján
Bersi Ólafsson. A fyrsta fundi
framkvæmdastjórnarinnar var
Ólafur Ragnar Grimsson kjörinn
formaður.
Þá var á fundinum kjörin
flokksstjórn, sem markar stefnu
Samtakanna milli landsfunda.
Auk framkvæmdastjórnar, sem er
sjálfkjörin i flokksstjórnina, voru
kjörnir 60 menn til setu þar. For-
maður flokksins Magnús Torfi
Ólafsson er formaður flokks-
stjórnar. Karvel Páimason er for-
maður þingflokks SP'V.
Kaupmátturinn getur ekki
haldið áfram að rýrna
r
— segir Björn Jónsson, forseti ASI
Ólöglegu gisti-
heimili lokað
LÖGREGLAN í Reykjavfk heim-
sótti hús nokkurt við Laugaveg sl.
föstudagskvöld, vegna gruns um
að þar væri rekið ólöglegt gisti-
heimili. Reyndist svo vera, og var
staðnum lokað. William Möller,
fulltrúi lögreglustjóra, tjáði Mbl.
f gær, að mál þetta væri í frum-
rannsókn, og þegar blaðið spurði
hann um þann orðróm, að þarna
hefði verið rekin vændisstarf-
semi, vildi hann sem minnst úr
þvf gera. Væri f athugun hvort
þarna hefði verið rekin einhver
refisverð starfsemi. Jafnframt
sagði William, að eigandanum
hefði verið gert ljóst, að ef hann
ætlaði að reka þarna gistiheimili,
yrði hann að afla sér tilskilinna
leyfatil rekstursins, en þau hefðu
ekki verið fyrir hendi.
BJÖRN Jónsson, forseti Alþýðu-
sambands Islands, sagði f viðtali
við Mbl. f gær, að sér sýndist, að
nauðsynlegt væri að koma f veg
fyrir að kaupmáttur launa héldi
áfram að rýrna sem verið hefði
undanfarið og þyrftu einhverjar
ráðstafanir að koma til. Slfkt sem
þetta gæti ekki haldið áfram.
Björn kvað verkalýðshreyfinguna
vera opna fyrir hverjum þeim
hliðarráðstöfunum, sem gerðar
yrðu til þess að bæta kjör launa-
stéttanna, en hliðarráðstafanirn-
ar einar myndu samt ekki nægja,
þótt þær myndu verða eitthvert
vægi á vogarskálinni.
Kjaramálaályktun sambands-
stjórnar ASl barst Mbl. í gær. I
ályktuninni eru starfsaðferðir
stjórnvalda gagnrýndar og segir
m.a. að kaupmáttur launa hafi
rýrnað um 12% frá 1. marz og
miðað við lægstu iaun. Meðal
stétta, sem ekki njóta jafnlauna-
bóta er kaupmáttarskerðingin um
20%, segir i ályktuninni. 1 álykt-
uninni er því mótmælt, að gengið
sé á samningsrétt með lögum og
segir að þeirri aðgerð hafi þegar
verið mótmælt með uppsögn
samninga. Fundurinn samþykkti
að kjósa 9 manna samninganefnd
sem ætlað sé það hlutverk að
freista samninga við atvinnurek-
endur og eigi nefndin jafnframt
að verða fulltrúi verkalýðssam-
takanna gegn ríkisvaldinu meðan
á samningum stendur. I samning-
um, sem í hönd fara, er lögð
áherzla á að full verðtrygging
launa hafi algjöran forgang, eða
launa- og kjarabreytingar, sem
svara til þess, að umsamdar verð-
lagsbætur væru í gildi.
Við atkvæðagreiðslu um álykt-
un greiddu tveir sambandsstjórn-
armanna ekki jáyrði við ályktun-
inni í heild og sögðu þeir að þá
óðaverðbólgu, sem lýst væri í
ályktuninni sjálfri, yrði að stöðva.
Bráðabirgðalögin um launajöfn-
unarbætur stuðluðu að því og tii-
gangur þeirra væri að koma á
jafnvægi í atvinnu- og efnahags-
málum þjóðarinnar og þar með
tryggja fulla atvinnu og koma í
veg fyrir kjaraskerðingu, sem
eðlilega hlytist af svo gífurlegri
óðaverðbólgu. Stjórnarmennirnir,
sem þannig gerðu athugasemd vió
kjaramálaályktunina voru þeir
Guðmundur H. Garðarsson og
Pétur Sigurðsson.
Björn Jónsson sagði, að 9-
manna nefndin, sem kosin var á
fundinum, myndi koma saman til
fundar í dag. Fyrsta hlutverk
hennar væri að leita eftir umboði
frá stéttarfélögunum víðs vegar
um land. Samningaumleitanir
hæfust ekki fyrr en umboð hefðu
borizt.
Kjaramálaályktunin verður birt
i Mbl. síðar, svo og hin sérstaka
bókun Guðmundar H. Garðars-
sonar og Pétur Sigurðssonar.
Geirfinnsmálið:
Lögreglumaður
við Sigöldu
RANNSÓKN hins dularfulla
hvarfs Geirfinns Einarssonar
frá Keflavfk stendur enn og er
f fullum gangi. Enn berast lög-
reglunni upplýsingar frá fólki
og er unnið úr öllum ábend-
ingum, sem berast. Þá er fortfð
Geirfinns einnig könnuð og
könnun á brottflugi af landinu
er brátt að komast á lokastig.
Lögreglan hefur staðsett sér-
stakan rannsóknarlögreglu-
mann við Sigöldu, en Geir-
finnur vann þar um skeið.
Einnig er sérstakur rann-
sóknarlögreglumaður staddur
á Héraði, en þar vinnur hann
að þvf að rannsaka uppruna
Geirfinns og tengsl hans við
fólk þar eystra.