Morgunblaðið - 03.12.1974, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974
21
Fjármál KSÍ:
Hagnaður tæp mílljón
SKÝRSLA stjórnar KSÍ fyrir siSasta
starfsár var aS vanda lögS fram fjöl-
rituS á þinginu, mikil aS vöxtum. eSa
83 blaSsíSur. Hér eru ekki tök aS aS
geta þeirra mörgu mála, sem þar er
fjallaS um, heldur verSur aSeins
drepiS á fjármál sambandsins og aS-
sókn aS leikjum 1. deildar s.l. sumar,
sem var nokkru meiri en áriS á
undan. Velta KSf var um 8 milljónir
á starfsárinu, en niSurstöSutölur
reikninga 5,3 milljónir. Reksturs-
hagnaSur varS 995 þúsund krónur.
Eignir umfram skuldir reyndust vera
4.3 milljónir.
Tekjur af 1. deildarkeppninni s.l.
sumar reyndust vera 10,4 milljónir.
Þar af fengu félögin í sinn hlut 6,5
milljónir. VarS tekjuskiptingin þessi:
Kr.
Akranes 1.198.986,50
Keflavik 1.071.614,50
KR 809.091.25
Fram 798.911,60
Vlkingur 779.610.20
Valur 765.114,95
ÍBA 610.215,50
ÍBV 508.416.50
I Reykjavik komu inn 5 milljónir,
mest á leik Vtkings og ÍA, 322 þús-
und. en minnst á leik Fram og ÍBA,
74 þúsund. Leikir voru samtals 28.
Á Akranesi komu inn 1,3 milljónir i 7
leikjum, mest á leik ÍA og KR, 294
þúsund, en minnst á leik ÍA og ÍBA,
110 þúsund. Á Akureyri komu inn
1.4 milljónir í 7 leikjum, mest á leik
ÍBA og ÍBK, 288 þúsund en minnst á
leik ÍBA og Vals, 178 þúsund. I
Keflavik komu inn 1,5 milljónir,
mest á leik ÍBK og ÍA, 561 þúsund
krónur, sem er mesta aSsókn
sumarsins, en minnst inn á ieik ÍBK
og ÍBA. 118 þúsund krónur. f Vest-
mannaeyjum komu langfæstir áhorf-
endur, þar komu inn 590 þúsund
krónur, mest á leik ÍBV og ÍA, 109
þúsund, en minnst á leik ÍBV og ÍBA,
40 þúsund krónur.
Ef litiS er á tölur um aSsókn kemur
i Ijós, aS hún var heldur meiri I
sumar en áriS áSur, 59,303 áhorf-
endur í 1. deild á móti 58.841. Eru
þetta 1059 áhorfendur aS leik aS
meSaltali. HafSi áhorfendum fækkaS
i Keflavik og Akureyri, en fjölgaS
töluvert i Reykjavik og á Akranesi,
en i Vestmannaeyjum voru þeir
óvenju fáir, enda aðstæSur óeðli-
legar.
Nýkjörin stjórn og varastjórn KSl. Fremri röð frá vinstri: Jón Magnússon, Ellert B. Schram, formaður
KSl og Friðjón B. Friðjónsson. Aftari röð: Páll Gíslason, Helgi Danlelsson, Árni Þorgrfmsson, Jens
Sumarliðason, Björn Gfslason og Vilberg Skarphéðinsson. Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
ELLERT ENDURKJORINN - EN
BJARM OG AXEL FELLDIR
ELLERT B. Schram alþingis-
maður var endurkjörinn for-
maður Knattspyrnusambands ls-
lands á ársþingi sambandsins,
sem haldið var á Hótel Loft-
leiðum um helgina. Hlaut Ellert
87 atkvæði, en 33 seðlar voru auð-
ir. Þá urðu þær breytingar á
stjórn KSl, að tveir af þeim
þremur stjórnarmönnum, sem
áttu að ganga úr stjórninni, féllu
við kjör, þeir Bjarni Felixson og
Axel Kristjánsson. Friðjón Frið-
jónsson var endurkjörinn, en
nýir menn f stjórninni eru Helgi
Danfelsson og Arni Þorgrímsson.
1 varastjórn hlutu kosnmgu þeir
Vilberg Skarphéðinsson, Har-
aldur Sturlaugsson og Björn
Gfslason.
Þingið hófst kl. 13,30 á laugar-
daginn. Fundarstjóri var að
vanda kjörinn Hermann Guð-
mundsson, og til vara Alfreð Þor-
steinsson. Ellert B. Schram flutti
skýrslu stjórnarinnar, og urðu um
hana töluverðar umræður. Þá
lagði Friðjón Friðjónsson fram
reikninga KSI og skýrði þá. Kosn-
ar voru nefndir þingsins og önnur
venjuleg þingstörf fóru fram. Var
þingstörfum fram haldið til kl.
20,30 um kvöldið. Á sunnudaginn
hófst fundur að nýju kl. 13,30.
Voru fyrst tekin til afgreiðslu
nefndarálit og tillögur. Dróst það
Fjölgun í áföngum
en ekki fyrr en 1976
Akureyri niður í 2. deild
FYRIR ársþingi KSl lá m.a. til-
laga irm breytingar á reglugerð
KSl um knattspyrnumót, flutt af
stjórn sambandsins. Var þar m.a.
fjallað um hlutgengi leikmanna,
kæru- og áfrýjunarfrest svo og
var lagt til, að fjölgað yrði um tvö
lið f deildinni strax næsta ár, og
Akureyri héldi þar sæti sfnu.
Mun stjórnin hafa lofað Akureyr-
ingum og Vfkingi að flytja slfka
tillögu, þegar deilurnar f Elmars-
málinu stóðu sem hæst, og liðin
höfðu neitað að mæta til auka-
leiksins um fallið niður f 2. deild.
Á þinginu kom fram, að fulltrúar
voru almennt sammála um að
fjölga bæri f deildinni, en þá
greindi á um hvernig ætti að
framkvæma það og á hve löngum
tfma. Fram komu tvær aðrar til-
lögur um þetta mál, frá Laga- og
leikreglnanefnd og frá Gunnlaugi
Magnússyni o.fl. Hlaut sú sfðast-
nefnda mest fylgi, var samþykkt
með 63 atkvæðum gegn 43. Þar ei
kveðið svo á um fjölgun liða f 1.
og 2. deild:
„Fjölgun liða f 1. og 2. deild úr
8 f 10 skal vera í áföngum, þannig
að 1975 verða 8 lið í hvorri deild,
1976 9 lið í hvorri deild og 1977 10
lið í hvorri deild. Fjölgunin skal
fara þannig fram, að neðsta lið 1.
deildar og lið f 2. sæti 2. deildar
leiki um lausa sætið f 1. deild. 1 2.
deild fer fjölgunin þannig fram,
að neðsta lið 2. deildar og lið
númer 2. og 3. f 3. deild leiki um
þau 2. sæti, sem laus eru f 2.
deild. Skulu úrslitaleikir þessir
leiknir strax eftir að landsmóti
lýkur hverju sinni.“
Samkvæmt þessu er ljóst, að
fjölgun kemur ekki til fram-
kvæmda fyrr en 1976, og Akur-
eyri mun þvf falla f 2. deild.
„Ég lýsi yfir algerri furðu
minni á þessu,“ sagði Steindór
Gunnarsson formaður knatt-
spyrnuráðs IBA i samtali við blm.
Mbl. stuttu eftir að þessi úrslit
mála voru kunn. „Ég held, að
þingfulltrúar viðurkenni al-
mennt, að við höfum orðið illa úti
í sambandi við þetta Elmarsmál,
og það er skoðun margra, að við
hefðum ekki átt að mæta til leiks-
ins við Víking. Það er hins vegar
mín skoðun, að mál þetta hafi ver-
ið orðið næstum óleysanlegt, og
því hafi verið skynsamlegast að
höggva á hnútinn með þvi að
leika, og leggja það svo i hendur
þinginu hvort það vildi gera eitt-
hvað í staðinn. Það hefur nú tekið
sina ákvörðun, og hana get ég alls
ekki skilið. Ég er mjög ánægður
með hvernig Ellert B. Schram tók
á þessu máli og skýrði frá því á
þinginu, en hins vegar varð ég
hneykslaður á afstöðu formanns
Fram í þessu máli, og er ég víst
ekki sá fyrsti, sem hann hneyksl-
ar. Þá lýsi ég yfir furðu minni á
þvi, að ákveðnir aðilar skyldu
ætla að nota þetta mál til að
klekkja á stjórninni, en okkar
fulltrúar tóku það ekki i mál. Ég
hef þá trú, að Akureyrarliðin
mætist sameinuð til baráttu
næsta sumar, en ekki sitt i hvoru
lagi eins og sumir hafa talað um,
og ég hef þá trú, að við vinnum 2.
deild með glæsibrag næsta sum-
ar.“
Hér fara á eftir reglur þær, sem
samþykktar voru um fjölgun i
deildum, en áður er getið hvernig
hún skal framkvæmd.
1 landsmóti 1. aldursflokks skal
þátttakandi liðum skipt i 3 deild-
ir. 1. deild skal skipuð 10 liðum, 2.
deild 10 liðum og 3. deild skal
skipuð þeim aðilum, sem ekki
eiga lið í 1. og2. deild.
I öllum deildum er leikinn tvö-
föld keppni og leikur hvert lið 2
leiki gegn hverju hinna liðanna
heima og heiman.
Mótanefnd KSl annast niður-
röðun leikja og skal miðað að því,
að hvert lið leiki einn leik í viku.
Þó má raða þéttar niður í fyrri
hluta keppninnar ef nauðsyn þyk-
ir til að mati mótanefndar.
I 3. deild skai skipta liðunum i
riðla eða svæðakeppni viðhöfð ef
þátttaka er mikil. Skal 3. deildar
liðum skipt í 6—8 liða riðla eftir
atvikum.
Framhald á bls. 27.
nokkuð á langinn, enda margt
sem lá fyrir þinginu til afgreiðslu.
Langflestum málum var vísað til
Laga- og leikreglnanefndar, enda
tókst henni ekki að ljúka störfum
fyrr en kl. 15,30 um daginn, og
hafði hún þó hafið störf kl. 9 um
morguninn. Helztu málum þings-
ins verða gerð skil annars staðar.
Þingfulltrúar voru flestir um 130.
Kosningu formanns og stjórnar
var beðið með mikilli eftirvænt-
ingu enda hafði flogið fyrir, að
Hafsteinn Guðmundsson myndi
gefa kost á sér til formannskjörs á
móti Ellert B. Schram. Var talið,
að Hafsteinn yrði formanns-
kandídat landsbyggðarinnar en
Ellert kandídat Reykjavikur-
félaganna, en skörp skil hafa
verið milli þessara aðila á KSI
þingum, og á þessu þingi voru þau
mjög skörp. Þegar beðið var um
uppástungur um formann, stungu
fulltrúar Akurnesinga upp á
Ellert, svo ekki hefur full eining
náðst um Hafstein meðal félaga
úti á landsbyggðinni. Skrifleg til-
laga kom fram um Hafstein, en
hann lýsti þvi yfir, að hann gæfi
ekki kost á sér. Sagðist Hafsteinn
mörg undanfarin ár hafa barizt
fyrir breytingu á stjórn sam-
bandsins, þ.e. skipun þriggja
manna framkvæmdastjórnar, en
án árangurs, og þvi hefði hann
ekki áhuga á að taka að sér for-
mennsku í KSI. Óskað var eftir
skriflegri atkvæðagreiðslu, þótt
Ellert væri einn í kjöri, og eins og
fyrr segir urðu úrslit hennar þau,
að Ellert fékk 87 atkvæói en 33
seðlar voru auðir. Þakkaði Ellert
þingheimi það traust sem honum
hafði verið sýnt.
Því næst var gengið til kjörs
þriggja manna i stjórn. Ur stjórn
áttu að ganga Friðjóil Friðjóns-
son, Bjarni Felixson og Axel
Kristjánsson. Gáfu þeir allir kost
á sér áfram, og auk þess komu
fram uppástungur um tvo til við-
bótar, Helga Daníelsson, Reykja-
vík, og Árna Þorgrímsson, Kefla-
vik. Við talningu kom fljótt í ljós,
að straumur atkvæðanna lá til
þeirra Friðjóns, Helga og Árna.
Urðu úrslit atkvæðagreiðslunnar
þau, að þeir Friðjón, með 105 at-
kvæði, Helgi með 100 atkvæði og
Árni með 80 atkvæði náðu kjöri í
stjórnina, en þeir Bjarni, með 46
atkvæði, og Axel, með 20 atkvæði,
féllu. Auðir seðlar voru tveir.
I varastjórn voru kjörnir 3
menn, en í framboði voru 7. Flest
atkvæói hlutu Vilberg Skarp-
héðinsson, Reykjavík, Haraldur
Sturlaugsson, Akranesi, og Björn
Gíslason, Selfossi, og náðu þeir
kjöri. Færri atkvæði hlutu Har-
aldur Snorrason, Gunnar Sigurðs-
son, Gunnlaugur Magnússon og
Steinn Guðmundsson. I dómstól
KSI voru sömu menn endurkjörn-
ir, Jón G. Tómasson, formaður,
Bjarni Guðnason og Halldór V.
Sigurðsson, og til vara Axel
Einarsson, Helgi V. Jónsson og
Guðmundur Þórðarson.
Þingstörfum var ekki lokið fyrr
en um kl. 22,30, og sleit þá Ellert
B. Schram formaður KSl þinginu.
-SS.
Frá KSl þingi. Gunnar Eggertsson f ræðustól.
JHHHHHHfe
lp§ m m 1 1 I 1 1 B ■ I I o
o o '