Morgunblaðið - 03.12.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974
23
Öflugt starf við
erfiðar aðstæður
Guðmundur Ingvason, formaður knattspyrnudeildar, Ingvi Guð-
mundsson, formaður Stjörnunnar og Þórarinn Sigurðsson, for-
maður handknattleiksdeildar.
John Boyle
HANN var einn þeirra ungu
knattspyrnumanna hjá
Chelsea, sem miklar vonir voru
bundnar við. En hann uppfyllti
aldrei þær vonir.
John Boyle viðurkennir hik-
laust, að hann geti sjálfum sér
um kennt og engum öðrum.
Nú hefir knattspyrnu-
maðurinn John Boyle tekið upp
þráðinn að nýju, og segist ekki
munu falla aftur I þá Ijóna-
gryfju, sem hafði nær kippt
stoðunum undan knattspyrnu-
ferli hans og lífshlaupi.
Þvf miður fá margir ungir
menn, sem öðlast frægð á
skömmum tfma, oftrú á
sjálfum sér. Sjálfsagt þekkja
allir einhver dæmi slíks.
Þegar John Boyle var sautján
ára að aldri lék hann sinn
fyrsta deildarleik með Chelsea.
Það var gegn Aston Villa, árið
1965. Þá var hinn víðfrægi
Tommy Dochetry fram-
kvæmdastjóri Chelsea, og var
Boyle einn hans uppáhaldsleik-
manna. Hann varð brátt stjarna
áhangenda Chelsea, og menn
gerðu því skóna, að ekki mundi
líða á Iöngu áður en hann tæki
sæti í skozka landsliðinu, en
Boyle er skozk-ættaður.
Þegar Boyie lítur til baka og
minnist þessara tfma fyllist
hann stolti.
,,Lg fyllist stolti vegna þess,
að á þessum tíma var Chelsea
með eitt allra sterkasta knatt-
spyrnulið á Englandi, og því
ekki Iftill heiður að vinna sér
sæti I liðinu. Og ég hafði lagt
hart að mér til að ná þessum
áfanga. Tommy Dochetry var
mér mikill stuðningur. Hann
gerði sér grein fyrir tak-
mörkunum mlnum og getu.
Þess vegna á hann miklar þakk-
ir skildar."
En, hvað fór úrskeiðis hjá
John Boyle?
„Aðalmistök mín voru, að ég
ánetjaðist fólki, sem ég hafði
ekki gott af samskiptum við.
Þetta fólk ætlaði alls ekki að
gera mér neitt illt, en ég var
svo ungur og óreyndur, að ég
gerði mér ekki grein fyrir hætt-
unni.“
Eins og mörgum atvinnu-
knattspyrnumönnum og öðru
áberandi fólki, reyndist Boyle
erfitt að axla þær byrðar, sem
skyndileg frægð er. Hann tók
að stunda æfingar illa, eyða
tfmanum við skemmtanir og
>að, sem þvf fylgir. Þvl fór sem
'ór, Boyle missti sæti sitt hjá
Chelsea og reyndist erfitt að
taka upp þráðinn að nýju.
„Auðvítað cyddi ég miklum
tfma f hvers kyns vitleysu.
Drykkjuskapurinn var þó
aldrei svo mikill. Það var aðal-
atriðið, að ég var hættur að
stjórna Iffi mínu og tfma sjálf-
ur. Vinir mfnir, sem voru
margir, voru sffellt að biðja
mig einhvers og bjóða mér eitt-
hvað, og fstöðuleysi mitt var
mikið.“
Þegar Boyle loks sá, að í
Framhald á bls. 27.
Rætt við
forystumenn
Stjörnunnar
UNGMENNAFÉLAGIÐ Stjarnan
er fþróttafélag, sem hefir haslað
sér völl á allra síðustu árum. Árið
1960 var stofnað f Garðahreppi
kristilegt æskulýðsfélag, sem
nefnt var Stjarnan. Félagið
byggði að miklu leyti starfsemi
sfna á fþróttum unglinganna.
Einnig þjónaði félagið sem skáta
félag. Árið 1964 breyttist félags-
formið, og var Stjarnan gerð að
ungmennafélagi, og hefir starfað
sem slfkt sfðan.
Blaðamaður Morgunblaðsins
fór á stúfana á dögunum til að
leita upplýsinga um Ungmenna-
félagið Stjörnuna. Fyrir svörum
urðu Ingvi Guðmundsson, for-
maður félagsins, Þórarinn Sig-
urðsson, form. handknattleiksd.,
og Guðmundur Ingvason, form.
knattspyrnud.
Stjarnan er til þess að gera ungt
íþróttafélag. Félaginu ef skipt i
þrjár deildir, knattspyrnudeild,
handknattleiksdeild og frjáls-
íþróttadeild. Félagar eru á sjötta
hundrað, og er mikil gróska í
starfinu, einkum í yngri flokk-
unum. Þó er sá hængur á, að
engin aðstaða er til iþróttaiðkana
í Garðahreppi, en það er mál, sem
bráðlega mun leyst.
Ingvi: „Já, aðstöðuleysið gerir
okkur mikinn óleik. Á s.l. vetri
unnum við aftur sæti það í 2.
deild í handknattleik, sem við
misstum árið áður. Nú búum við
aftur á móti við það ástand að fá
hvergi inni fyrir æfingar, og
æfum því á malbikuðu svæði úti
fyrir skólanum. Það er raunar
furðulegt hvað strákarnir leggja
hart að sér við þessar slæmu að-
stæður."
Guðmundur: „Auk þess hefir
gamli knattspyrnuvöllurinn verið
lagður undir byggingalóðir, en
annar er i byggingu, og verður til
að vori ef áætlanir standast.
Iþróttahús er í byggingu, og átti
raunar að vera tilbúið, en það
stóðst ekki. Þó bendir allt til að
um áramótin verði hægt að vyrja
æfingar og keppni i húsinu, og
vissulega verður það félaginu
mikillléttir."
Þórarinn: „Raunar má segja, að
alla félagslega aðstöðu vanti í
Garðahreppinn enn sem komið er.
Þó höfum við fengið inni i skól-
anum fyrir starfsemina og hefir
það eðlilega verið mikill léttir.
Þess má t.d. geta, að í fyrra var
handboltinn æfður í tveimur sam-
liggjandi skólastofum, og menn
geta gert sér i hugarlund hvernig
árangur slíkt gefur. Að vísu skal
tekið tillit til, að sveitarfélagið er
og hefir verið i örum vexti, senni-
lega meiri vexti heldur en
nokkurt annað sveitarfélag á ts-
landi. Þess vegna er ekkert
skrítið þó hin félagslega aðstaða
hafi að nokkru setið á hakanum."
Þrátt fyrir erfiða aðstöðu þeirra
Stjörnumanna hefir vöxtur fé-
lagsins verið jafn og þéttur. Þó
reikna þeir með, að umsvif félags-
ins muni aukast að mun, þegar
hin nýju íþróttamannvirki
komast i notkun. Eins og hjá
flestum öðrúm íþróttafélögum
eru fjármálin einn helzti höfuó-
verkur Stjörnumanna. Tekjur
félagsins eru byggðar á sama
grunni og annarra iþróttafélaga,
það er að segja með félags- og
æfingagjöldum, styrkjum frá
sveitarfélagi og frjáisum fram-
lögum.
Ingvi: „Þegar nýju mannvirkin
komast í gagnið aukast útgjöldin
eðlilega að miklum mun. Þá
þurfum við að fara að greiða
húsaleigu, sem er ekki lítill pen-
ingur í dag. Þessi útgjaldaliður
hefir eðlilega aldrei verið til-
takanlega hár, þar sem ekkert hús
hefir verið fyrir. Það má ekki
vikja svo frá umræðu um fjár-
málin, að ekki sé getið ýmissa
vildarvina félagsins. Kristján Vil-
helmsson kaupmaður í Goðaborg
færði okkur t.d. að gjöf búninga á
sex handknattleiksflokka. Einnig
hafa fyrirtækin, Frigg, Garða-
Héðinn og Loftleiðir verið okkur
mjög innan handar. Þessir aðilar
eiga allir miklar þakkir skildar,
auk fjölda einstaklinga, sem stutt
hafa félagið með ráð og dáð.“
Stjarnan hefir átt nokkur sam
skipti við erlend iþróttafélög.
Knattspyrnumenn félagsins hafa
átt í skiptum við skozk félög, og
eiga þeir von á heimsókn þeirra
n.k. sumar. Handknattleiksmenn
hafa farið til Þýzkalands og ætla
Þjóðverjarnir að endurgjalda
heimsóknina nú í sumar.
Þórarinn: „Yngri flokkar hand-
knattleiksmanna og kvenna hafa
tekið þátt í samnorrænum mótum
tvö undanfarin ár. Arangur orðið
eftir fremstu vonum, og munum
vió af fremsta megni reyna að
halda þessum samskiptum áfram
í náinni framtið. Bæði ér, að
slikar ferðir vekja mikinn áhuga
þeirra yngri, og þjappa félög-
unum betur saman, þannig að
heildin verður mun sterkari.“
Guðmundur: „S.l. sumar lenti
m.fl. okkar í knattspyrnunni i úr-
slitakeppninni í þriðju deild. Það
hafðist ekki þá að sigra, en við
erum staðráðnir í að gera betur
næst. Við höfum verið mjög
heppnir með þjálfara i m.fl.
Síðast var Arni Njálsson með
okkur, þar á undan Hreiðar
Ársælsson, og vonandi tekst
okkur að ná í þjálfara næsta
sumar jafn ágætan þessum
mönnum. Þá má ekki gleyma
frjálsíþróttafólki okkar. Þar hafa
verið í fararbroddi Ragnhildur
Pálsdóttir, sú kunna hlaupakona,
og Erlingur Þorsteinsson. Einnig
er margt af ungu fólki, sem
stefnir að þvi að gera garðinn
frægan á frjálsíþróttasviðinu."
Á sl. sumri bryddaði Stjarnan
i nánum tengslum við sveitar-
félagið upp á þeirri nýbreytni, að
efna til íþróttanámskeiða fyrir
yngri borgarana. Hreppurinn sá
um kostnaðarhliðina, en Stjarnan
um framkvæmdina. Um þessi mál
sagði Ingvi: „Þetta námskeið var
nýmæli hjá félaginu. Ég held, að
framkvæmdin hafi tekizt eins og
framast var kostur, og almenn
ánægja hafi rikt meðal ibúanna.
Með þessum námskeiðum náum
við til fleira fólks, og þjónum íbú-
unum, en það er einmitt eitt
helzta markmið okkar. Ég reikna
meó að slíkt námskeið muni
örugglega verða fastur liður hjá
félaginu á komandi árum.“
Að lokum sagði Ingvi Guð-
mundsson formaður Stjörnunnar:
„Það, sem er brýnast verkefna
félagsins er, að ná betur til fólks-
ins, kynna þvi starfsemina. Þvi
miður hefir þetta atriði ekki verið
rækt nægjanlega. Einkum hefir
hið margnefnda aðstöuleysi staðið
i vegi fyrir að svo hafi verið. Ég er
mjög bjartsýnn á að Ungmennafé-
lagið Stjarnan verði með tíð og
tíma öflugt félag, nóg er af ungu
og efnilegu fólki í Garðahreppi til
að svo geti orðió."
Brynjólfur
Markússon
ÞAÐ ERU EKKI MÁRGIR ls-
lendingar sem hafa verið valdir
í landslið f tveimur greinum
fþrótta. Einn þeirra er
Brynjólfur Markússon, sem nú
leikur með I.R. f handknattleik
og hefir gert um nokkurra ára
skeið að einu ári undanteknu,
þegar hann var þjálfari K.Á. á
Akureyri og leikmaður jafn-
framt. Brynjólfur lék einnig
um þriggja ára skeið með K.R. í
körfuknattleik. Þá er og að geta
þess, að eitt sumar dvaldist
hann á Neskaupstað sem þjálf-
ari og leikmaður með knatt-
spyrnumönnum Þróttar,
Neskaupstað. Það eru fleiri f
fjölskyldunni en Brynjóifur
sem afskipti hafa af fþróttum.
Kona hans, Guðrún Sverris-
dóttir, spilar með Fram í hand-
knattleik, og hefir gert um
nokkurra ára skeið. Einnig
hefir hún leikið með landsliði.
Því má með sanni segja, að
fjölskyldan komi vfða við á
sviði íþrótta.
Brynjólfur var upphaflega f
Fram. Þar var þröngt setin
bekkurinn, og því fluttu þeir
sig nokkrir yfir i l.R. Meðal
þeirra voru þeir, Ásgeir Elfas-
son, Vilhjálmur Sigurgeirsson
og Ágúst Svavarsson, sem allir
leika nú með 1. deildar liði t.R.
í handknattleik.
Með I.R. hefir Brynjólfur
leikið sfðan, að einu ári undan-
teknu, sem fyrr getur.
Brynjólfur hefir þegar leikið
þrjá leiki með fsl. landsliðinu.
Sá fyrsti var gegn Bandarfkja-
mönnum hér heima. Þá skoraði
hann fimm mörk og fékk ágæta
dóma fyrir frammistöðuna. Sá
sfðasti var gegn Færeyingum
nú f haust.
Sem fyrr getur lék Brynjólf-
ur um þriggja ára skeið með
K.R. f körfuknattleik. Hann var
átján ára þegar hann komst f
meistaraflokksliðið, og nftján
ára var hann fyrst valinn til að
leika f landsliði f körfuknatt-
leik. Það sem af er vetrar
kveðst Brynjólfur ekkert hafa
snert körfubolta og ekki reikna
með að svo verði f vetur. Hann
segir að eins og kröfurnar til
íþróttamanna séu orðnar, sé
útilokað að stunda nema eina
grein fþrótta ef vel eigi að vera.
Auk þess verður að taka tillit
til kvenréttinda, en Guðrún
kona hans þarf lfka að sinna
sfnum áhugamálum, hand-
knattleiknum.
Þegar þetta er skrifað, hefir
t.R. leikið tvo leiki f 1. deild-
inni. Tapaði naumlega fyrir
F.H. en ilia fyrir Ármanni.
Þessi úrslit hafa komið
mönnum mjög á óvart, einkum
úrslit leiksins gegn Ármanni,
þvf margir höfðu reiknað með,
að l.R. mundi blanda sér f topp-
baráttuna.
Brynjólfur sagði að erfitt
væri að spá nokkru eftir tvo
leiki, en liðið hefði enn ekki
fundið sig. „En ég held að þetta
fari að lagast hjá okkur mjög
fljótiega. Kaunar höfum við
spilað nokkra æfingaleiki þar
sem hlutirnir hafa gengið eins
og bezt verður á kosið. Og allir
vita hvað við getum verið
hættulegir þegar okkar bezta
kemur fram.“
Sjötti flokkur knattspyrnumanna Stjörnunnar ásamt þjálfara
sinum, Guðmundi Ingvasyni. Á s.l. sumri stóðu þessir drengir sig
með afbrigðum vel.