Morgunblaðið - 03.12.1974, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974
25
nna ráða og skoraði falleg mörk.
sson fá ekki vörnum við komið.
ráða
ttu
vörnum liðanna fagurt vitni, né
heldur markvörðum. Þó verður að
segjast, að hinn ungi piltur í Gróttu-
liðinu, Guðmundur Ingimundarson,
varði stórvel á köflum og var hann
t.d. inná er Grótta átti sinn bezta
kafla í leiknum og náði forskotinu.
Birgir Finnbogason stóð sig vel I
FH-markinu fyrstu mínútur leiks-
ins, en datt síðan algjörlega niður og
varði ekki skot langtimunum
saman. Hjalti Einarsson lék ekki
þennan leik með FH — mun hafa
æft mjög illa að undanförnu.
Gróttu-liðið verður greinilega
erfitt hvaða liði sem er i vetur.
Meðan leikmennirnir halda bæri-
lega ró sinni, nær liðið þvi út úr
sóknarleik sinum sem unnt er að
ætlast til að komi út úr honum.
Ógnun I sókninni er nokkuð góð, og
fleiri leikmenn geta skotið langskot-
um en maður hafði haidið. Þannig
kom t.d. Magnús Sigurðsson veru-
lega á óvart í þessum leik með
fallegum og föstum langskotum
sinum. Hins vegar virðast Gróttu-
menn eiga töluvert ólært í varnar-
leiknum. Mátti t.d. furðu gegna, að
ekki skyldi reynt að stöðva Geir
Hallsteinsson fyrr og framar en gert
var eftir að hann setti á fulla ferð i
leiknum. Þá var línumanna FH
stundum svo illa gætt, að þeir höfðu
ráðrúm til þess að gera það, sem
þeim sýndist, þegar þeir fengu
knöttinn. Notfærðu FH-ingar sér
þetta nokkrum sinnum laglega. Þeir
Geir og Viðar drógu varnarleik-
mennina nokkuð út og gáfu síðan
inn á linumennina.
Leikur þessi var enn ein staðfest-
ingin á því, að mótið getur orðið
mjög jafnt og tvísýnt í vetur. En
óneitanlega hafa FH-ingarnir
byrjað vel, og þegar litið er yfir lið
þeirra, er ótrúlegt annað en að það
nái sér betur á strik í komandi
leikjum en verið hefur til þessa. En
hitt er svo augljóst, að það rýrir
verulega möguleika FH til sigurs i
þessu móti að vera þátttakandi í
Evrópubikarkeppninni og þurfa að
leika þar mjög erfiða leiki og leggja
í mikil ferðalög. Má vera, að þar fari
neistinn, sem á að geta gert þetta lið
að báli.
— stjl.
Valsmenn heillum horfnir
Töpuðu nií fyrir Fram 11—14
BIKARMEISTARAR Vals f handknattleik virðast
heillum horfnir. A sunnudaginn varð liðið að sætta sig
við þriðja tapið í röð f 1. deildar keppni íslandsmóts-
ins, en þá mætti það Fram. Hafa Valsmenn — liðið,
sem flestir spáðu sigri í mótinu að þessu sinni, þvf
ekki hlotið stig í keppninni til þessa og þau sex stig,
sem liðið hefur þegar tapað, gerir vonir þess um að
vera f baráttunni á toppnum f vetur næsta litlar.
Ólfklegt verður að teljast, að Valsmenn vinni þá leiki,
sem þeir eiga eftir í mótinu, en hins vegar lfklegt, að
þeir þurfi þess til þess að hreppa titilinn. En umfram
allt verður þó leikur Valsmanna að breytast mjög til
batnaðar, ef liðið á að geta gert sér minnstu vonir um
að verða í hópi efri liðanna í mótinu f vetur.
Þegar á leik Vals og Fram á
sunnudaginn er litið verður ekki
annað sagt, en að hann hafi ein-
kennzt af einu: Mjög góðum
varnarleik beggja aðila jafnframt
mikilli hörku á báða bóga. Oft var
nánast um áflog að ræða og þó að
leikmenn væru hvildir i samtals
21 mínútu í leiknum, var ekki nóg
að gert af slökum dómurum leiks-
ins, þeim Sigurði Hannessyni og
Gunnari Gunnarssyni.
Formaður dómaranefndar HSI,
Jón Erlendsson, sagði í útvarps-
þætti fyrir nokkru, að vert væri
að þeir „sérfræðingar“ sem sætu
á stólum blaðamanna eða væru á
áhorfendapöllum leikjanna, —
þeir, sem settust ætið í dómara-
sæti yfir dómurum í leikjum og að
þeim loknum, fengju að spreyta
sig á gólfinu. Hvað sem alvöru
þessara ummæla viðkemur, er
óhætt að segja, að það þarf ekki
alltaf sérfræðinga til þess að sjá
mistök dómara. Oft er það einung-
is nóg að hafa augun opin. Þannig
var það t.d. í þessum leik. Þeir
Sigurður og Gunnar misstu tökin
á leiknum þegar í upphafi og
gerðu hver mistökin af öðrum
leikinn út. Verður varla sagt að
þau hafi ráðið úrslitum leiksins,
en átök þau, sem oft sáust í leikn-
um, og bol áttu fátt eitt skylt við
þá iþrótt, sem nefnist handknatt-
leikur. Ef svona á að ganga stefn-
ir i óefni.
Staðan í leikhléi i viðureign
þessari var 4:2 fyrir Fram, og
mun það heyra til undantekninga
að svo fá mörk séu skoruð á 30
minútum i keppni 1. deildar liða.
Varnir beggja liða voru sem vegg-
ur i hálfleiknum, og markvarzla
þeirra Ölafs Benediktssonar í
Valsmarkinu og Guðjóns Erlends-
sonar í Fram-markinu oft með
ágætum. Skýringarinnar á svo
fáum mörkum er einnig að leita
til þess hvernig liðin léku sóknar-
leik sinn. Þar var hnoð inn i
varnirnar allsráðandi, og mjög
mikið leikið upp á miðjuna hjá
báðum aðilum, þar sem oft var
tekizt hraustlega á. Einkum var
þetta áberandi hjá Valsliðinu, en
ógnunin i leik liðsins var lítil
lengst af og enginn leikmaður
liðsins virtist treysta sér til þess
að binda endahnútinn á sóknar-
loturnar. Fram gekk hins vegar
betur, þar sem liðið hafði yfir
meiri skyttum að ráða. Héldu
Framarar knettinum oft I lengstu
lög og fóru inn í Valsvörnina til
þess að krækja sér i aukaköst,
þegar leiktöfin var að nálgast.
1 seinni hálfleiknum losnaði
nokkuð um leikinn. Enn sem fyrr
virtist Valsmönnum fyrirmunað
að skora, og Fram náði fimm
marka forystu þegar hálfleikur-
inn var um það bil hálfnaður, 9:4,
og síðan 10:5. Þá var þaó, að Olaf-
ur H. Jónsson, sem meiðzt hafði í
fyrri hálfleik, og lítið verið með,
fór að láta til sín taka. Skoraði
hann næstu fjögur mörk í röð og
staðan var 10:9 fyrir Fram og
skyndilega komin mikil spenna i
leikinn. Fengu Valsmenn tæki-
færi til þess að jafna, en misstu
knöttinn til Björgvins Björgvins-
sonar, sem brunaði upp völlinn.
Fylgdi Jón P. Jónsson honum eft-
ir og braut á honum um leið og
Björgvin ætlaði að skjóta. Var
brot Jóns slzt alvarlegra en gerzt
hafði hjá flestum leikmönnunum
lengst af í leiknum, en nú loks
tóku dómararnir á sig rögg, og
ráku Jón af velli í 5 mínútur og
dæmdu að auki vitakast á Val. Ur
því skoraði Guðmundur Sveins-
son af öryggi og þar með voru
úrslit leiksins ráðin. Lokamínút-
urnar voru svo hrein leikleysa,
enda áhugi leikmanna greinilega
þorrinn. Valsmenn reyndu t.d. að
leika „maður á mann“, en slíkt
verður þó að teljast mjög vafa-
samt, þegar lið er með einum
manni færra inná. I öllum hama-
gangnum varð Guðjóni Erlends-
syni, Frammarkverði, það á að
fara fram fyrir miðju, sem nú er
bannað. Dómararnir tóku ekki
eftir því, og þegar Valsmenn
fundu að þessu eftir leikinn var
þeim gefinn áminning. Hvort hún
gildir í næsta leik, skal 'látið
ósagt!
Eins og málin standa nú er eng-
um blöðum um það að fletta að
Framliðið er sterkara en Valslið-
ið, og sennilega leikur Fram betri
vörn en önnur íslenzk lið, ef Ár-
mannsliðið er undanskilið. Leik-
mennirnir eru feiknalega dugleg-
ir í vörninni og vinna þar saman
sem einn maður. I sóknarleiknum
gengur hins vegar verr hjá Fram.
Liðið hefur þó á að skipa ágæt-
um skyttum, eins og þeim
Guðmundi Sveinssyni og Hannesi
Leifssyni, og hefur það fram yfir
mörg önnur lið að það notar
breidd vallarins ágætlega.
Valsliðið virðist vera í miklum
molum. Ungu leikmennirnir sem
nú eru að koma inn í það standa
ekki undir þeim vonum sem við
þá voru bundnar. Kemur þetta
einkum og sér í lagi fram í
sóknarleiknum. Skörð þeirra
Gisla Blöndals og Bergs Guðna-
sonar i Valsliðinu eru enn ófyllt.
Er Ölafur H. Jónsson eini leik-
maðurinn sem er verulega afger-
andi, en hann er líka mjög sterk-
ur og kraftmikill um þessar
mundir. Leikur Vals gengur alltof
mikið upp á miðjuna, og voru
Framarar t.d. farnir að láta Vals-
menn eiga sig i þau fáu skipti sem
þeir léku vel út i hornin. Vissu að
litlar líkur voru til þess að þeir
gerðu tilraunir til þess að fara þar
inn. Við allt þetta bætist svo að
Valsmenn láta mótlætið greini-
lega f ara afskaplega í taugarnar á
sér, og kemur það m.a. fram í því
að leikmennirnir eru harðhentari
en þörf gerist.
STAÐAN
Staðan I 1. deild er nú þessi:
Haukar 3 3 0 0 60-50 6
FH 3 3 0 0 64-59 6
Fram 3 2 10 49-42 5
Ármann 3 2 0 1 51-49 4
Vlkingur 3 10 2 50-50 2
Grótta 3 0 12 58-64 1
Valur 3 0 0 3 46-53 0
IR 3 0 0 3 54-65 0
Staðan í 2. deild er nú
þessi: KA 4 4 0 0 94-71 8
Þór 2 2 0 0 52-36 4
KR 2 2 0 0 36-26 4
Þróttur 2 10 1 49-41 2
IBK 3 10 2 48-57 2
Stjarnan 2 0 0 2 38-50 0
UBK 2 0 0 2 33-49 0
Fylkir 3 0 0 3 45-65 0
Steindór Gunnarsson er þarna kominn í færi inn á linuna, en mistókst að skora. Arnar, Stefán, Sigurbergur, Pálmi, Þorbjörn Pétur og
Björgvin fylgjast með.