Morgunblaðið - 16.09.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1975
5
Leifur Sveinsson lögfræðingur:
Þarf ríkisskattanefnd
ekki að fara að lögum?
ÞANN 19. nóvember 1973 sendi
endurskoðandi minn kæru til
ríkisskattanefndar vegna gjalda,
er ég taldi ranglega á mig lögö
árið 1973.
í 5. mgr. 41. gr. laga nr.
68/1971, sbr. og 15. gr. laga nr.
7/1972, segir svo: „Rikisskatta-
nefnd skal hafa lagt úrskurði á
allar kærur sex mánuðum eftir að
þær bárust nefndinni...“
Þannig rann út frestur nefndar-
innar til að leggja úrskurð á kæru
mína þann 19. maf 1974. Siðan eru
liðnir um sextán mánuðir, en ekly
bólar á neinu svari frá nefndinni,
þrátt fyrir fjölda fyrirspurna frá
endurskoðanda minum.
Einnig sendi ég 6. janúar s.l.
skeyti til fjármálaráðuneytisins
svo hljóðandi: „Rikisskattanefnd
hefur eigi úrskurðað kæru mina
frá 1973 ennþá Stop Nauðsynlegt
að vekja nefndina af Þyrnirósa-
svefni“.
En. allt kom fyrir ekki.
Margir kvarta undan „kerfinu",
en hvergi er veggur „kerfisins"
jafnþykkur og hjá ríkisskatta-
nefnd.
Til þess að réttur skatt-
þegnanna sé tryggður,' verður að
setja nýtt ákvæði í skattalög, þess
efnis að séu gjöld hækkuð af
skattstjóra sem skattþegn kærir
síðan til ríkisskattanefndar, og
svari hún ekki innan lögákveðins
frests, þá falli hækkun skattstjóra
sjálfkrafa niður.
Eins og nú er háttað fram-
kvæmd skattalaga, er skattþegn
algerlega réttlaus, ríkisskatta-
nefnd kemst upp með að draga
úrskurði árum saman, og loks þá
úrskurður kemur og væri skatt-
þegni I vil, þá fær hann endur-
greitt frá Gjaldheimtunni með
peningum, sem verðbólgan hefir
þá stórlega rýrt, svo ekki sé talað
um vaxtatap.
Annað hvort eru starfsmenn
ríkisskattanefndar alltof fáir, eða
þeir eru þar ekki í fullu starfi.
Augljóst er, að við þetta ástand
verður ekki búið lengur, hér
verður gagnger breyting að koma
til. Það er lágmarkskrafa skatt-
þegnanna, að rikisskattanefnd sé
skipuð mönnum, sem lagt geta
úrskurði á kærur innan þeirra
tímamarka, sem ljögjafinn setur
þeim.
Reykjavík, 15. septamber 1975.
Leifur Sveinsson.
Fjölmenni við útför
Steinbjörns Jónssonar
Mælifelli 15. september
UTFÖR Steinbjörns Jónssonar á
Hafsteinsstöðum var gerð í
Glaumbæ s.I. laugardag að við-
stöddu svo miklu fjölmenni, að
aðeins tæpur þriðjungur fólksins
komst f kirkju. Séra Gunnar
Gfslason flutti minningarræðu og
jarðsöng. Jón Björnsson tónskáld
lék á orgelið og stýrði söng af
sinni alkunnu snilld, en Stein-
björn var einkasonur hans. Lions-
menn og fulltrúar hcstamanna-
félaga stóðu heiðursvörð við kist-
una.
Steinbjörn var í beztu bænda-
röð og við brugðið alúð hans í
búnaði og snyrtimennsku. Auk
þess starfaði hann mjög að félags-
málum hestamanna og að sönglífi
í héraðinu, en hann var lands-
kunnur hestamaður og þekktur
söngvari og fágætlega vinsæll
hvar sem hann kom. Ekkja hans
er Ester Skaftadóttir frá
Kjartansstaðakoti og eru börn
þeirra fjögur. Með Steinbirni á
Hafsteinsstöðum, sem var aðeins
49 ára er hann varð bráðkvaddur
á ferðalagi hinn 7. þ.m., er geng-
inn góður drengur og félagi og er
að honum mikill sjónarsviptir I
Skagafirði.
Séra Ágúst.
Lýsa trausti á Albert
MORGUNBLAÐINU hefur borizt Guðmundssyni ómetanlegt fram-
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Málfundafélaginu Óðni:
Á fundi fullskipaðrar stjórnar
Málfundafélagsins Óðins, sem
haldinn var í nýja Sjálfstæðishús-
inu 14. sept. 1975 kl. 10.30, var
einróma samþykkt eftirfarandi
ályktun:
Vegna blaðaskrifa og persónu-
legra árása á Albert Guðmunds-
son alþingismann og borgarfull-
trúa ályktar stjórn Óðins að senda
honum eindregna trausts- og
stuðningsyfirlýsingu.
Stjórn Óðins þakkar Albert
lag og forustu við byggingu nýja
Sjálfstæðishússins og telur fyrst
og fremst hans verk hvað smíði
þess hefur miðað áfram.
Jafnframt treystir fundurinn á
Albert Guðmundsson til áfram-
haldandi forustu við húsbyggingu
Sjálfstæðisflokksins sem og
önnur störf í þágu lands og lýðs.
Fundurinn sendir Albert
Guðmundssyni persónulega sýnar
beztu kveðjur og árnaðaróskir og
þakkar samstarfið á liðnum árum.
Málfundafélagið Óðinn
Pétur Hannesson
formaður.
I DAG er sfðasti dagur Ijósmyndasýningarinnar Ljós 75 en sýningin
hefur verið opin sfðan 3. september. Á sunnudagskvöldið höfðu um
3000 manns séð sýninguna. Þetta er eitt af fáum tækifærum til að sjá
Ijósmyndasýningu hérlendis. Sýnendur eru 4 menn, þeir Gunnar S.
Guðmundsson, Kjartan B. Kristjánsson og Pjetur Þ. Maack, sem sýna
svart-hvftar myndir en Mats Wibe Lund er gestur sýningarinnar og
sýnir stækkaðar litmyndir. Sýningin er á Kjarvalsstöðum og er opin f
dag kl. 16—22.
Buckminster Fuller
Buckminster Fuller
heldur fyrirlestra
BANDARlSKI stærðfræðingur-
inn, uppfinningamaðurinn og
hugsuðurinn Buckminster
Fuller er staddur hér á landi.
Hann hélt fyrirlestur í Háskóla
Islands um helgina, og n.k.
fimmtudag mun hann tala á
fundi Islenzk-ameríska félags-
ins. Fuller er sjálfmenntaður
maður og hefur framlag hans
til ýmissa þjóðþrifamála jafnan
vakið mikla athygli.
Fréttamenn hittu Fuller að
máli og gerði hann þar grein
fyrir hugmyndum sfnum i
stuttu máli. Hann sagði m.a.:
„Ég gerði það upp við mig á
unga aldri, að ég væri einstakl-
ingur og ég vildi sýna fram á
hvers einstaklingurinn væri
megnugur án þess að hafa
hégómagirnd eða fégræðgi til
viðmiðunar. Ég ákvað að nota
sjálfan mig sem „tilraunadýr“.
Ég gerði mér grein fyrir því, að
náttúran er ein samfelld heild
og við verðum að notfæra
okkur tæknilegar framfarir til
að bæta umhverfið og læra að
vera hlekkur í þessari heild.
Einstaklingshyggjan á ekki að
miðast að þvi að þjóna eigin-
girninni, heldur með hagsmuni
heildarinnar fyrir augum og þá
að sjálfsögðu um leið hagsmuni
einstaklingsins. Aðeins þannfg
getur hann búið í haginn fyrir
sjálfan sig."
Fuller hefur m.a. hannað
hvolfþak, sem hefur þá aðal-
kosti, að það stenzt mikið álag
og i það þarf lítið byggingar-
efni. Þá hefur alheimskort
hans verið mikið notað, en það
birtist fyrst árið 1943 i Life
Magasine. Þegar það birtist
vakti það mikla athygli og var
talið stærðfræðilegt afrek.
Fuiler stendur nú á áttræðu.
Hann ver miklu af tíma sinum
til fyrirlestrahalds, og þess má
geta, að hann hefur haldið
fyrirlestra í yfir 400 háskólum
víðsvegar um heim.
\