Morgunblaðið - 16.09.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1975
r.
i-
Þríeykið í
höfuðstað
Norðurlands
Málgagn SjálfstæSis-
flokksins á Akureyri, fs-
lendingur, er vikublaS.
sem er athyglisvert fyrir
margra hluta sakir. ÞaS er
nú á 60. aldursári, sem er
hár aldur landsbyggSar-
blaSs, og er hiS vandaS-
asta aS öllum frágangi.
ÞaS sem einkum vekur þó
athygli, ekki slzt á
kvennaári, er þríeyki þaS,
sem gengur fyrir blaðinu.
ÞaS eru engin dæmi hér-
lend önnur, og naumast
erlend heldur, um algjör
kvennaráð á pólitlsku
blaSi. Ritstjóri blaðsins er
Sigrún Stefánsdóttir,
auglýsingastjóri Val-
gerSur Benediktsdóttir og
dreif ingarstjóri Drlfa
Gunnarsdóttir.
Virkjunar-
mál á Norður-
landi
í leiSara síðasta fslend-
ings er fjallaS um orkumál
I landsfjórSungunum. Þar
segir ma:
„Virkjunarmál á
Norðurlandi hafa verið I
brennipunkti á undan-
fömum árum. Þegar fyrir-
séð var að ekki yrSi um
frekari virkjanir I Laxá aS
ræSa, var tekin sú afdrifa-
rlka ákvörðun I ráSherra-
tlð Magnusar Kjartans-
Otgefandi: Islendingur hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaSur: Sigrún Stef&nsdóltir.
Auglýsingastfóri: Valgerður Benediktsdóttir
Dreifingarstfóri: Drífa Gunnarsdóttir.
Ritstjórn og afgreiðsla: Kaupvangsstræti 4, sími 21500.
Prentun: Prentsmiðja Bjöms jónssonar.
„Blaðhaus" íslendings á' Akureyri.
sonar, aS einvörSungu
skyldi leysa orkuvanda
Norðlendinga með þvl aS
tengja fjórSunginn við
orkukerfi Landsvirkjunar
á SV-landi. Fyrst skyldi sú
llna liggja yfir hálendið,
en slðar var ákveðið að
leggja hana yfir Holta-
vörSuheiði og um byggSir.
Samtlmis þessari ákvörS-
un var frestað rannsókn-
um á öSrum álitlegum
lausnum á orkuvandan-
um, m.a. var frestaS aS
rannsaka Kröflusvæðið
bæSi árin 1972 og 1973.
Nú er unnið að þvl aS
leysa þetta mál. Kröflu-
virkjun er hraðaS eins og
unnt er og gengur það
verk ennjtá eftir áætlun.
Þar er ekki slzt aS jiakka
ötulu starfi Kröflunefndar
undir forystu formanns
hennar, Jóns G. Sólnes,
alþingismanns."
Leiðarinn fjallar jafn-
framt um hugsanlega
stofnun Norðurlandsvirkj-
unar, sem hafi forgöngu
um virkjanir og dreifingu I
fjórðungnum, og tryggi
heimamönnum eignar-
aðild og stjórnun virkjana
og dreifikerfa I landsfjórð-
ungnum.
Sjúkradeild
fyrir örvita
og ósjálfbjarga
Auk orkumála fjallar
blaðið (I frétt) um heil-
brigðismál. Þar kemur
fram, að hafnar eru fram-
kvæmdir við sérstaka
sjúkradeild fyrir örvita og
ósjálfbjarga hjúkrunar-
sjúklinga, við vistheimilið
Sólborg á Akureyri.
Sjúkradeildin verður um
450—500 fermetrar á
einni hæð og er ætluð
fyrir 24 sjúklinga.
Nýbyggingin verður tengd
eldri byggingum á Sól-
borg með gangi og ver-
önd. Á yfirstandandi ári
vóru veittar 20 m.kr. úr
Styrktarsjóði vangefinna
til þessara framkvæmda
og I sl. mánuði hófst
vinna við jarðgröft vegna
sjúkradeildarinnar og er
það verkefni vel á veg
komið.
í blaðinu kemur fram,
að I dag er heimilið
ofsetið sem svarar 90%,
miðað við kennslu og
þjónusturými, en 40%
miðað við svefnpláss. Við
núverandi aðstæður sé
ekki hægt að veita vist-
mönnum þá þjónustu,
sem nauðsynlega verður
að telja. Með því að hópa
saman vangefnu fólki á
öllum meðferðarstigum í
yfirfullt húsnæði, án
möguleika á deildarskipt-
ingu. eru öll fræðileg lög-
mál um uppeldi og þjálfun
þessa öryrkjahóps fótum
troðin, segir f blaðinu.
Þeim, sem lesa vilja
blað. er flytur stað-
bundnar fréttir og hug-
leiðingar um norðlenzk
málefni, er sérstaklega
bent á vikublaðið íslend-
ing á Akureyri.
( 'v
Hringið í síma 10100
milli kl. 10.30 og 11.30
frá mánudegi til föstu-
dags og spyrjið um
Lesendaþjónustu
Morgunblaðsins.
V_____________________
LÁGMARKSÞYNGD
Á LIFUR?
Sigrfður Jóhannsdóttir, Álfa-
skeiði 126, Hafnarfirði, spyi:
„1 fyrra keypti ég 10 slátur en
lifrin, sem ég fékk með þessum
10 slátrum, reyndist ekki vera
nema 3 kiló samanlagt. Nú er í
öllum uppskriftum gert ráð fyr-
ir að í hverju slátri sé lifrin 450
grömm. Ég vil því spyrja: Eru
engin tákmörk fyrir lágmarks-
þyngd á hverri lifur?“
Jónmundur Ólafsson, kjöt-
matsformaður hjá Framleiðslu-
rðði landbúnaðarins, svarar:
„Það gilda engar ákveðnar
reglur um þyngd hverrar lifrar.
Innmatur er seldur í heild sinni
og fylgir þá lifrin án tillits til
þyngdar. Samkvæmt meðaltals-
vigt er lifur í 15 kg lambs-
skrokk 388 grömm og nýru 81
gramm og hjörtu 130 grömm.“
FRJÁLSLYNDUR
PRESTUR?
Susie Bachman, Langholts-
vegi 80, Reykjavlk, spyr:
„Er hugtakið að vera frjáls-
lyndur prestur það sama og
vera frjálslyndur í ástum? Það
er að segja, fylgja engri ákveð-
inni trúarstefnu eða vera ekki
við eina fjölina felldur?“
Sr. Jón Auðuns fyrrv. dóm-
prófastur, svarar:
„Hvað er „frjálslyndi í ásta-
málum“? Því svara ég aðeins
þessu: Troði það í miskunnar-
og tillitsleysi niður lífsgæfu
annarra, er það engum gæfu-
vegur. Einar Jónsson var ekki
listmálari á heimsmælikvarða
eins og hann var vissulega sem
myndhöggvari. En við frúna,
sem spyr um þetta „frjálslyndi
í ástamálum", vil ég samt segja
þetta: Leggið leið yðar í Lista-
safn E.J. á Skólavörðuhæð,
spyrjið um sérkennilegt mál-
verk, sem heitir Hrosshófurinn,
og þar lesið þér svar mitt.
Hvað er frjálslyndi í trúmál-
um? Látum kirkjusöguna
svara, hún gefur oft bein svör
við beinni spurn. Trúhroka
gagnvart trúbræðrum, sem öðr-
um augum líta á kenninguna,
og umburðarleysi gagnvart öðr-
um trúarbrögðum, þennan
óheillaarf fékk kristindómur-
inn frá Gyðingatrúnni, og þenn-
an straum má óslitinn rekja í
sögu kristninnar, blóðferil
bræðravíga eins og auðsær er
nú á Irlandi, þótt einnig séu þar
að verki önnur öfl en trúarleg.
En guðspjöllin gátu ekki
gleymzt, ekki Fjallræðan, ekki
Kristur, og þessvegna má ann-
an óslitinn straum rekja í sögu
kristninnar fram á þennan dag:
straum hins frjálslynda hugar-
fars, vfðsýnis og umburðarlynd-
is gagnvart þeim, sem öðruvísi
trúa. Þó standa hvergi yfir
kristnum kirkjudyrum orðin,
sem letruð eru yfir anddyri á
ættarsetri hinnar göfugu Tag-
oreættar á Indlandi: Hér eru
engin trúarbrögð fyrirlitin.
Virðing fyrir annarra manna
trúarhugmyndum er aðal hins
sannfrjálslynda kristindóms, og
það víðsýni er rótfest í þeirri
meðvitund, að frammi fyrir
hinum æðsta leyndardómi og
æðstum rökum stöndum vér öll
eins og börn, sem eru að stafa
sig fram úr fyrsta kapítulanum
f þeirri miklu bók, sem eilífðin
ein endist til að lesa til loka-
blaðsíðunnar.
Frjálslyndur kristinn maður
veit að svo er fjölbreytni mikil í
mannlífinu, að eitt og hið sama
getur ekki öllum hæft, og að
þessvegna þjónar þjóðkirkja
börnum sínum með því bezt að í
prédikunarstólum hennar sé
fjölbreytni i túlkun trúarsann-
indanna. Það eitt getur stöðvað
fráhvarf nútímans frá kirkj-
unni og þverrandi kirkjusókn."
Þórir Kr. Þórðarson, próf-
essor svarar:
„Orðið „frjálslyndi“, sem hef-
ur verið notað um presta í trú-
málaumræðum í ár, er líklegt
til að valda misskilningi, og ber
því að varast það. „Frjálslyndi“
í þessu samhengi hefur allt
aðra merkingu en það hefur í
daglegu tali á íslenzku.
í mæltu nútíðarmáli merkir
„frjálslyndi" eiginleika sem við
viljum öll temja okkur, og tákn-
ar nánast víðsýni og umburðar-
lyndi. Andstæða þess er þröng-
sýni og óbilgirni. En orðið
hefur einnig aðra merkingu, og
er hún algerlega bundin við
kirkjusögu álfunnar um síðustu
aldamót. Þá kom fram ný og
gagnmerk stefna í guðfræði á
meginlandinu, vfsindastefna og
raunhyggjustefna. Var hún
kölluð liberalismi, sem þýtt var
á íslenzku „frjálslyndi". And-
stæða þess hugtaks var svo
stefnuheitið „réttrúnaður“.
Hér að landi var prestum á
fyrsta fjórðungi aldarinnar
gjarnan skipt í tvo hópa, og var
annar kallaður „frjálslyndir",
en hinn „gamalguðfræðingar”
eða „rétttrúnaðarmenn".
í dreifibréfi sem dreift var
um mína sókn, Nessókn var tal-
að um „frjálslyndi". Lesandinn
hlýtur að leggja þá merkingu í
orðið sem tíðkast á nútíðarmáli
íslenzku og draga þá ályktun,
að aðeins annar umsækjandinn
hafi til að bera þennan eigin-
leika, frjálslyndið, sem við vilj-
um þó öll ástunda. Hér virðist
mér brotin sú meginregla að
láta alla menn njóta sannmælis.
Hins vegar, ef orðið „frjáls-
lyndi" er tekið í hinni sögulegu
merkingu sem lýst var að ofan,
og umsækjendurnir tveir
greindir skv. prédikúnum sín-
um, þá er hvorugur umsækj-
endanna frjálslyndur."
NU ER m
UTSÖLU
MflRKflÐURIHH
í NÝJU HÚSNÆÐI
AÐ ~
LAUGAVEGI 66
i sama húsivlð
hliðlna a verzlun
okkar
Ótrúlegt
vöruúrval
á frábærlega góðu
verðil!!!
Q Terelyne & ullarbuxur í miklu úrvali
Q Föt með vesti Pils og kjólar
Q Bolir Q Stakir kvenjakkar
Q UFO flauelisbuxur.
Nú er hægt að
gera reyfarakaup
AfSm*. TÍZKUVERZLUN unga fólksins
fe KARNABÆR
■mmJ* Útsölumarkaðurinn,
Laugavegi 66, sími 28155
GLÆSILEG
NORSK FRAMLEIÐSLA.
(YIOBO)
&
í SÉRFLOKKI
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919.
SVEINN EGILSSON H.F.
Árg.Tegund Verð í þús.
74 Cortina 1 600 XL 2jad. 980
74 Cortina 1 300 4d. 860
74 Cortina 1 300 2jad. 890
71 Cortina 1300 400
74 Escort 1 300 4.d. 650
74 Escort 2 d. 640
73 Escort 2 d. 550
73EscortXL 640
7 3 Escort St. sjálfsk. 780
70Cortina 290
74 Fiat 132 1600 950
75 Fiat 1 32 GLS 1.250
73 Fiat 132 1600 725
^ IFORD
FORD HÚSINU
Árg. Tegund Verð í þús.
74 Morris Marina 725
73 Morris Marina Coupe 725
74 Fiat 1 28 640
73 Saab 96 840
73 Volkswagen 1 300 490
7 3 Volkswagen 1 300 . 530
70 Morris 1 800 575
73 Opel Rec. Station 990
74AustinMini 525
7 1 Cougar 1.200
75Moskwitch 620
74 Fiat 128 Station 620
70 Plym. Duster 650
70DodgeDart 780
SVEINN
EGILSSON HF
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
/l'v