Morgunblaðið - 16.09.1975, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 16. SEPTEMBER 1975
(vandervell)
'•^Vélalegitf^y
BENSÍNVÉLAR
Austin
Bedford
Vauxhall
Volvo
Volga
Moskvitch
Ford Cortina
Ford Zephyr
Ford Transit
Ford Taunus 12M, 17M,
20M,
Renauít, flestar gerðir
Rover
Singer
Hilman
Simca
Tékkneskar bifreiðar,
flestar gerðir.
Willys
Dodge
Chevrolet
DIESELVÉLAR
Austin Gipsy
Bedford 4—6 cyl.
Leyland 400, 500, 680.
Landrover
Volvo
Perkins 3, 4, 6 cyl.
Trader4, 6 cyl.
Ford D, 800 K. 300
Benz, flestar gerðir
Scania Vabis
Þ. Jónsson & Co.
Skeifan 1 7.
Sími 84515 —16.
HAFSKIF
SKIP VOR MUNU
LESTA ERLENDIS Á
NÆSTUNNI SEM HÉR
SEGIR:
HAMBORG:
Langá 15. september +
Skaftá 26. september +
Langá 6. október +
Skaftá 13. október +
Langá 27. október +
ANTWERP:
Langá 18. september +
Skaftá 24. september +
Langá 9. október +
Skaftá 16. október +
Langá 30. október +
FREDRIKSTAD:
Laxá 3. október
Laxá 1 7. október
Laxá 31. október
GAUTABORG:
Laxá 2. október
Laxá 16. október
Laxá 30. október
KAUPMANNAHÖFN:
Rangá 22. september
Laxá 30. september
Laxá 14. október
Laxá 28. október
HELSINGBORG:
Laxá 1. október
Laxá 1 5. október
Laxá 29. október
HELSINKI:
Rangá 9. október
VENTSPILS:
Rangá 1 1. október
GDYNIA / GDANSK:
Rangá 1 7. september
Rangá 1 3. október
+ = Skip er losa og
lesta á Akureyri og
Húsavík.
1AFSKIP H.f.
hafn^hhusinu reykjavik
sImNCFN: HAFSKIP SIMI 21160
Afmœliskveðja:
Ásgrímur á
Borg áttrœður
SEGJA má um bújörðina Borg í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi
lfkt og Jónas Hallgrímsson kvað
um fjallið Skjaldbreið, að hún
„ber með sóma réttnefnið". Hin
tignarlega hamraborg, sem bær-
inn dregur nafn 'sitt af og bregður
svip á allt umhverfið, er tákn
þess, sem aldrei bifast né bregzt.
í dag er Ásgrímur á Borg átt-
ræður. Saga hans verður ekki rak-
in hér. Ég ætla, að hana þekki
flestir Snæfellingar. Það er löng
og merk saga um mikinn dugnað
og manndóm, frábær handtök og
karlmennsku, sem hvarvetna
sér stað á þeirri jörð. Asgrímur
kom að Borg 19 ára og hefur átt
þar heima síðan. Hann kvæntist
1916 önnu, dóttur Stefáns hrepp-
stjóra á Borg. Hjónaband þeirra
varð langt og gæfuríkt. Anna dó
fyrir 8 árum. Þau eignuðust 7
börn, sem öll eru á lífi: Soffía,
búsett i Noregi, gift norskum
manni. Stefán, bóndi í Stóru-
Þúfu, kvæntur Laufeyju Stefáns-
dóttur. Ósk, búsett I Hvammi,
Garði, gift Ásmundi Böðvarssyni.
Agúst bifreiðastjóri, Rvík.
kvæntur Guðríði Björnsdóttur.
Inga húsfreyja á Borg, gift Páli
Pálssyni hreppstjóra. Halldór
bóndi að Minni-Borg, kvæntur
Ingu Guðjónsdóttur. Karl bif-
reiðarstjóri, Rvík, kvæntur
Sigríði Gústafsdóttur.
Barnabörnin eru orðin 16 og
barnabarnabörnin 6. Þetta er stór
og mannvænlegur hópur.
Ég minnist þess eitt sinn, að
maður einn sagði við mig, er við
ræddum ágreiningsmál nokkurt,
að nú væri útlitið ekki sigurvæn-
legt fyrir mig. Það stæði enginn
með mér f þessu máli sunnan-
fjalls nema Borgarfólkið. Vafa-
laust var þetta ofmælt. En ég hug-
leiddi þessi orð og fann það, sem
ég raunar áður vissi, að enginn
stendur einn, sem nýtur
stuðnings Ásgríms á Borg og hans
fjölskyldu. Þvert á móti má segja,
að þeim manni séu allir vegir
færir.
Ásgrimur ber aldurinn vel.
Hann er enn beinn í baki,
höfðinglegur í fasi og hjartahlýr.
Ég vona, að hinn mikli eljumaður
megi enn njóta þess að söðla hest
sinn og hverfa á vit fjallhagans
eða taka sér laxastöng í hönd við
ár og veiðivötn, þar sem hann
hefur löngum verið hverjum
manni frárri og fiskisælli. Að
hann megi enn eignazt margar
friðsælar ánægjustundir við ræt-
ur Ljósufjalla. Við hjónin sendum
hinum áttræða öðlingsmanni og
allri Borgarættinni innilegar
hamingjuóskir á þessum timamót-
um og þökkum góð kynni og
trausta vináttu.
Friðjón Þórðarson.
Ásgrímur á Borg I Miklaholts-
hreppi er áttræður í dag. Sá mikli
atorkumaður getur nú með gleði
horft til baka og lofað langan og
giftudrjúgan starfsdag. Hann er
holl fyrirmynd okkur öllum um
ræktun hinna beztu eðliskosta.
Á Borg hefur Asgrimur búið
rausnarbúi frá því að hann
kvæntist heimasætunni þar árið
1916 og lifir hann nú I skjóli
tveggja barna sinna sem yrkja
jörðina. Ásgrímur hefur alltaf
verið veitandi og reynt að glæða
áhuga manna á hinum beztu mál-
um. Hann hefur ekki lagt I vana
sinn að mikla fyrir sér hlutina eða
festa augu á því sem illa fer. Að
sama skapi hefur hann glaðst yfir
velgengni annarra og viljað geta
stutt við bak sveitunga sinna. Hið
geislandi, glaða viðmót hans hef-
ur laðað fólk að þessu gestrisna
heimili og þrátt fyrir mikla elju-
semi heima fyrir veitir hann gest-
um alltaf nægan tíma til við-
ræðna.
Eitt hið eftirminnilegasta I fari
Ásgrims á Borg er frásagnarhæfi-
leiki hans. Jafnvel hið hversdags-
legasta atvik verður leiftrandi og
myndríkt í frásögn hans. Tryggð,
drenglyndi og karlmennska eru
þeir eðliskostir sem hann festir
helzt sjónir á og honum fer bezt
að lýsa.
Þessi fátæklegu orð eiga að tjá
innilegt þakklæti mitt og konu
minnar fyrir liðnar stundir
vestra, þar sem við getum ekki
þrýst hönd hans heima á Borg í
dag.
Ég bið Guð að blessa honum
ævikvöldið og óska honum og
fjölskyldu hans allra heilla.
Árni Pálsson.
FORD BRONCO
Þessa dagana erum við að
afgreiða síðustu bílana af
Ford Bronco árgerð 1974.
Verð frá kr. 1530.000.
SVEINN
EGILSSON HF
Skeifunni 17 sími 85100
SAMKEPPNI
UM VEGGSPJALD
Umferðarráð boðar hér með til samkeppni um veggspjald er nota skal i
alþjóðaherferð fyrir auknu öryggi barna í umferðinni. Veggspjaldið skal
skírskota til ökumanna i þéttbýli og vera ábending til þeirra að gæta
ítrustu varkárni gagnvart börnum innan 10 ára aldurs. Keppninni er
hagað eftir samkeppnisreglum F.Í.T.
Tillögum sé skilað i hlutföllunum 1:1 i eftirfarandi stærð: Lengd: 84,1
cm. Breidd: 59,4 cm.
Tillögum ber að skila til skrifstofu Umferðarráðs fyrir 15. desember
1975. Sérhver tillaga verður að vera nafnlaus. Á bakhlið tillögunnar
limist venjulegt lokað hvítt umslag sem í eru fullkomnar upplýsingar
um nafn, heimilisfang og fæðingardag. Þurfi að póstsenda titlögur,
skulu þær settar í sterkan pappastaut og póstlagaðar eigi siðar en 10.
desember, 1975.
Samkeppnin er opin öllum áhugamönnum og atvinnumönnum. Dóm-
nefnd mun Ijúka störfum fyrir 31. desember, 1975 og verða úrslit birt
við opnun sýningar á öllum tillögum i byrjun janúar 1976.
Fyrir bestu verðlaunahæfa tillögu verða veitt verðlaun að upphæð kr.
140.000.00. 3 tillögur geta auk þess fengið viðurkenningar.
Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun teiknara verði tillagan
prentuð.
Dómnefnd skipa: Frá Umferðarráði: Pétur Sveinbjarnarson. Frá Félagi
íslenskra teiknara: Torfi Jónsson. Oddamaður: Árni Reynisson. Ritari
(trúnaðarmaður) nefndarinnar er Árni Þór Eymundsson.
Að fengnu samþykki vinningshafa keppninnar mun Umferðarráð senda
verðlaunatillögur í alþjóðakeppni sem haldin er á vegum ECIVIT og PRI.
Verðlaun i þeirri keppni og greiðslur jyrir notkunarrétt eru sem hér
segir:
1. verðlaun: Frarrskir fr. 1 5.000.00
2. verðlaun: Franskir fr. 10.000.00
3. verðlaun: Franskirfr. 5.000.00
4. verðlaun: Franskir fr. 3.000.00
5. verðlaun: Franskir fr. 2.000.00
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Umferðar-
ráðs, simi 83600.
HMY
sjónvarpstæki
12” 20” 24”
Útsölustaðir víða um land
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
REYKJAVÍK