Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 15

Morgunblaðið - 28.10.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKT0BER 1975 15 Flensborgardeilan — Svar „úr héraði” MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi greinargerð: Þess hefur nokkuð gætt, að fólk geri sér ekki fulla grein fyrir þvf um hvað „Flensborgardeilan" svonefnda stóð — né heldur hver hafi um sinn orðið Iok þeirrar deilu. Því þykir okkur kennurum við Flensborgarskóla rétt að taka fram eftirfarandi. Deilan stendur framar öllu um viðurkenningu á „fjölbrauta- skólanum". I mjög stórum drátt- um má segja, að fjölbrautaskóli starfi á sama grundvelli og menntaskóli, þó með þeirri breyt- ingu, að í fjölbrautaskóla geta nemendur valið sér ákveðnar verklegar greinar auk bóklegra. Auk stúdentsprófs geta nemend- ur brautskráðst eftir skemmri námsbraut. Fyrr á þessu ári var Flens- borgarskóla formlega breytt I fjölbrautaskóla. I slðari hluta júlí- mánaðar voru fyrstu fjölbrauta- skólakennararnir settir í stöður við Flensborgarskóla frá og með 1. sept. Gerðar voru sömu kröfur til menntunar og gerðar eru til menntaskólakennara. Endursendir útreikningar Nú gerist það, þegar skipta á þessum kennurum í launaflokka, að ágreiningur rís. Menntamála- ráðuneytið hafði fyrir sfna parta þegar skipað þessum kennurum f launaflokka samkvæmt samningi FM, Félags menntaskólakennara. Fjarmálaráðuneytið neitaði hins vegar að viðurkenna þá niðurröð- un, sendi alla þessa útreikninga til baka og krafðist þess, að þessir kennarar fengju laun samkvæmt samningi LSFK og FHK, þ.e. Landssambands framhaldsskóla- kennara og Félags háskóla- menntaðra kennara. Og hvað gerist? Menntamálaráðuneytið Iætur sig hafa það að éta ofan í sig sinn eigin úrskurð og reikna út upp á nýtt launin samkvæmt kokkabókum Fjármálaráðuneyt- isins.^ Fjármálaráðuneytinu hafði þannig tekizt að hunza yfirlýstan vilja þriggja stéttarfélaga: Á fundi um þetta mál 13. ágúst stóð fulltrúi Fjármálaráðuneytisins einn uppi gegn deildarstjóra Menntamálaráðuneytisins, for- stöðumönnum fjölbrautaskólanna beggja og fulltrúum LSFK, FHK og FM. Menntamálaráðherra hlýt- ur þvf að hafa verið fullkunnugt um þann ágreining, sem upp var kominn, enda reit hann Fjármála- ráðuneytinu bréf og ftrekaði af- stöðu ráðuneytis síns, — enda þótt hann virðist, samkvæmt við- tali við Morgunblaðið, telja það eðlilegt og sjálfsagt, að hann sé ekki virtur svars í tvo mánuði. Reynt að múta kennurum Eftir þennan umrædda fund taldi skólameistari Flensborgar, að málið væri úr sögunni. En á kennarafundi f byrjun skólaárs kom í ljós, að Fjármálaráðuneytið hafði ekki greitt laun samkvæmt samningi sfnum við FM. Kom þá sterklega til álita, hvort grfpa ætti til aðgerða af hálfu kennara. Skólameistari fór hins vegar fram á það, að ekki kæmi til vinnu- stöðvunar, heldur yrði sér gefinn tími til mánaðamóta sept. okt. að leysa þetta mál eftir eigin leiðum. Þegar sýnt var, að tilraunir skóla- meistara höfðu ekki borið árang- ur og Fjármálaráðuneytið sat fast við sinn keip, töldu kennarar sig nauðbeygða til að taka til sinna ráða og lögðu niður vinnu 7. október. Þann sama dag átti skóla- meistari fund með fjármálaráð- herra og menntamálaráðherra. Síðar um daginn flutti skóla- meistari kennurum þau boð fjár- málaráðherra, að hann æskti þess, að kennsla hæfist á ný og skyldi hann þá sjá til þess, „að málið kæmist á skrið“. Ennfremur benti hann kennurum Flensborgar á það, að þar sem þeir væru allir bóknámskennarar, gætu þeir vænzt þess að fá leiðrétting sinna mála. Þetta gátu téðir kennarar ekki skilið nema á einr. veg: Ætlunin var að múta þeim til þess að svfkja verknámskennara f Flensborg og Breiðholti — og láta þannig fyrir róða grundvallarhug- mynd fjölbrautaskólans um jafn- gildi bóknáms og verknáms. Verkfallsréttur viðurkenndur Næst gerist það, að fulltrúi Fjármálaráðuneytisins æskir eft- ir fundi um þessi mál við stjórn FM. Formaður félagsins neitaði hins vegar þeim fundi nema full- trúar Flensborgarkennara sætu hann lfka, og féllst Fjármálaráðu- neytið á það. Rætt var almennt um stöðu verknámskennara við fjölbrautaskóla. Með öfgafullum dæmum sýndu fulltrúar Fjár- málaráðuneytisins verknáms- kennurum örgustu fyrirlitningu og ftrekuðu þá afstöðu sfna, að ekki kæmi til nokkurra mála að greiða þeim laun samkvæmt samningi FM. Jafnframt þessu var endurtekið fyrra mútutilboð til handa bóknámskennurum. Fjármálaráðuneytið lagði síðan fram drög að yfirlýsingu. Bersýni- legur var sá vilji ráðuneytis- manna að stefna málinu til kjara- nefndar, en áður skyldi FM freista þess að semja. Jafnframt skyldu verkfallskennarar undir- gangast það að láta hýrudraga sig þá þrjá daga, sem verkfallið hafði staðið. Fáum við ekki annað séð, en ráðuneytið hafi með þeirri kröfu viðurkennt verkfallsrétt opinberra starfsmanna f reynd. Um hvað var samið? Þessu vildu kennarar ekki una af eftirgreindum ástæðum: I ljósi reynslunnar má það fullvfst telja, að kjaranefnd tæki eitthvað af fjölbrautaskólakennurum f þess- ari deilu. En hvað gæti hún af þeim tekið? Fjármálaráðuneytið býðst til að borga bóknáms- kennurum samkvæmt samningi FM. Þá stæði það eitt eftir að fórna verknámskennurunum, en einmitt um það atriði snýst málið allt. Með því að undirrita slfka yfirlýsingu væru kennarar að undirrita dauðadóminn yfir fjöl- brautaskólahugmyndinni og selja frumburðarrétt sinn fyrir bauna- disk. Til samkomulags féllust kenn- arar á eftirfarandi: Að láta hýru- draga sig umrædda þrjá daga gegn þvf að allir fjölbrautaskðla- kennarar taki laun frá 1. sept. samkvæmt samningi FM og' þangað til samið hefur verið um þessi mál. Felld var niður tilvitn- un um að málið væri leyst á grundvelli tiltekinnar lagagrein- ar þar sem sagði, að málinu skyldi skotið til kjaranefndar ef ekki semdist, — enda telja Flens- borgarkennarar sig ekki bundna af úrskurði hennar, fari svo, að málið hafni hjá henni að lokum. Þess er rétt að geta, að áður en kennarar f Flensborg neituðu þvf að láta bæði hýrudraga sig og fallast á úrskurð kjaranefndar höfðu þeir fullt samráð við fjöl- brautaskólakennara í Breiðholti og nutu drengilegs stuðnings þeirra. Auk þess bárust stuðningsyfirlýsingar hvaðanæva að. Hjálmar Árnason Hallgrfmur Hróðmarsson Tryggvi Jakobsson Jón Thor Haraldsson Bílskurshurðir TOKAMOX Breidd: 240 og 270 cm. Hæð: 210 sm. Aðrar stærðir eftir pöntun. — Sjáum um uppsetningu — Sérlega hagstætt verð V TIMBIIRVERZIUNIN VOIUNDUR hf. Klapparstíg 1. Skeifan 19. Simar 18430 — 85244. 7nœt«r iLONDON og enskur morgunverður! Vegna fjölmargra fyrirspurna höfum viö ákveöiö aö halda áfram aö bjóöa viöskiptavinum okkar hinar vinsælu vikuferöir til London. Brottför alla laugardaga. Flogiö meö Flugleiöum, gist á Hótel Cumberland eöa Regent Palace, fyrsta flokks enskur morgunveröur. Verð frá kr. 38.000 * ÚRVALS FERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI Flugvallarskattur (kr. 2.500.-) ekki innifalinn í verðinu. FERDASKR/FSTOFAN I URVAlÆr EimsWpafétagahúsinu simi 26900 líilíl m Alltaf er hann beztur Blái borðinn ” smjörliki hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.