Morgunblaðið - 18.12.1975, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1975
Fjárveitingar til einstakra
stofnana og málaflokka
Ég mun þð vtkja me8 nokkrum
orðum að þeim breytingartillögum
sem fjárveitinganefnd flytur á þing-
skjali nr. 169.
Kemur þar fyrst breytingartillaga við
Raunvísindastofnun Háskólans, þar
sem laun hækka vegna sérfræðings í
reiknistofu um 665.000 - kr . sem eru
hálf laun sérfræðings Og b-liðurinn
við (100) tekjur lækkar um 7 millj
króna, en það er vegna þess að tekjur
voru upphaflega áætlaðar i frumvarp-
inu með tilliti til að keypt yrði ný tölva,
frá því var hins vegar fallið og af því
leiðir umrædd tekjulækkun
Við stofnun Árna Magnússonar eru
tvær breytingartillögur sem fela I sér
að laun hækka um 500 000 - og liður-
inn gjaldfærður stofnkostnaður lækkar
um sömu upphæð Hér er gert ráð fyrir
því að ráðinn verði að stofnuninni
Ijósmyndari, ungur maður, sem numið
hefur sérstaklega Ijósmyndun handrita
Það er talin skylda islendinga að geta
látið fræðimönnum og visindastofnun-
um í té Ijósmyndir af handritum þeim,
sem við fáum frá Danmörku að sjálf-
sögðu gegn hæfilegri þóknun Slík
þjónusta er nú veitt af sambærilegum
stofnunum vlðs vegar um heim
Þá er næst breytingartillaga við
Rannsóknaráð rikisins þar sem lagt er
til að inn sé tekinn nýr liður ylræktar-
verkefni i Hveragerði að upphæð 3
millj króna Rannsóknaráð ríkisins
gerði fyrir tveimur árum frumathugun
á hagkvæmni ylræktar, sem er um-
fangsmikil ræktun I gróðurhúsasam-
stæðu með fyllstu nýtingu jarðhitans
og raflýsingu. Slíkur atvinnurekstur
virðist mjög álitlegur Var þvl ákveðið
að ráðast I sérstaka rannsókn á þeim
þáttum sem óvissastir eru, hagkvæmni
hámarks lýsingar og markaðsmálin
Leitað var til Sameinuðu þjóðanna um
tækniaðstoð og fékkst aðstoð samtals
að upphæð Islenzkar krónur 8,1
milljón Mótframlag fslands var áætlað
samtals 14,774 millj. króna Það er
með tilliti til þessa að lagt er til að tekin
sé upp nýr liður að upphæð 3 millj.
króna
Næst er breytingartillaga við Bygg-
ingarsjóð rannsókna i þágu atvinnu-
veganna, liðurinn hækkar um 3,862
þús kr , en það er vegna vanáætl-
unar á vöxtum.
SKÓLAMÁL
Til námskrárgerðar á verknámsstigi,
hækkar fjárveiting um 3 millj kr. og
verður samtals 1 4,820 þús kr.
Til Tækniskóla íslands hækkar gjald-
færður stofnkostnaður um 7,5 millj.
kr. og verður þá samtals 36 millj. kr.
Næst er tillaga nefndarinnar varð-
andi iðnskóla, að liðurinn gjaldfærður
stofnkostnaður að upphæð 32,3 millj
kr. verði skipt á milli hinna ýmsu
iðnskóla I landinu, samkvæmt yfirliti á
þingskjali nr. 1 69
Til Fiskvinnsluskólans hækkar liður-
inn gjaldfærður stofnkostnaður um 2
millj.r kr. og verður þá samtals 5,8
millj kr en upphæð sú er sérstaklega
ætluð til tækjakaupa fyrir skólann
Lagt er til að liðurinn hússtjórnar-
skólar gjaldfærður stofnkostnaður,
sem er I frumvarpinu að upphæð 5,7
millj. kr skiptist á milli tveggja hús-
stjórnarskóla, þannig að Laugarvatn fái
4,7 millj. kr. og Laugar 1 millj kr.
Til Myndlista- og Handfðaskólans
hækkar fjárveiting um 500 þús kr og
verður samtal 1,327 þús kr., sem
sérstaklega er ætlað til áhaldakaupa
fyrir textideild skólans, sem að mikil
nauðsyn er á að endurbæta
Þá er næst lagt til að liðurinn viðhald
við Sjómannaskólahúsið hækki um
6,4 millj. kr og verði samtals að
upphæð 14 millj kr Hér er mikið verk
að vinna við að koma þessu stóra
skólahúsi I viðunandi ástand þar sem
viðhald skólans hefur allt um of verið
vanrækt á undanförnum árum Með
þessari upphæð ætti að vera unnt að
taka fyrir vissan þátt I viðhaldi skóla-
hússins.
Næst koma tillögur nefndarinnar um
skiptingu á fjárveitingu til héraðsskóla,
samtals að upphæð 120,65 millj kr ,
en það er óbreitt fjárupphæð frá þvl
sem er I fjárlagafrumvarpinu Um
skiptingu á milli hinna einstöku
héraðsskóla visast til þess sem fram
kemur á þingskjali nr. 169
Þá er næst lagt til að inn sé tekinn
nýr liður, Skálholtsskóli, fjárveiting að
upphæð 5 millj kr , sem er framlag
vegna stofnkostnaðar skólans.
Þá koma næst tillögur um framlög til
byggingar grunnskóla og Ibúða fyrir
skólastjóra Er þar lagt til að heildar-
fjárveiting hækki um 3,072 þús kr.
og verður því samtals 1,022,236 þús.
kr Um skiptingu milli einstakra fram-
kvæmda visast til þess sem fram kem-
ur I yfirliti á þingskjali nr 1 69
Til Myndlistaskólans í Reykjavik, er
lagt til að fjárveiting hækki um 360
þús. kr. og verður samtals 1,200 þús.
kr.
Næst eru tillögur um hækkun fjár-
veitinga til leiklistastarfssemi Lagt er
til að styrkur til Leikfélags Reykjavikur
hækki um 800 þús kr og til leiklistar-
starfsemi undir liðnum 982—-08
hækki um 1 millj kr og að hlutur
Leikfélags Akureyrar úr þeirri upphæð
verði hlutfallslega hinn sami og var af
þessum fjárlagalið á yfirstandandi ári
Til Tónlistaskóla Garðakaupstaðar er
tillaga um 500 þús kr byggingar-
styrk
ÍÞRÓTTA OG
ÆSKULÝÐSMÁL
Þá er næst tillaga um hækkun fjár-
veitinga til íþróttasjóðs vegna rekstra-
styrkja að upphæð 1,950 þús. kr. og
til bygginga Iþróttamannvirkja, hækkar
liðurinn um 292 þús kr og verða þvi
gjöld samtals vegna þess 94,842 þús
kr
Um skiptingu milli einstakra fram-
kvæmda og styrkveitinga vlsast til þess
sem fram kemur á þingskjali nr 1 69
Þá kemur liður um æskulýðsmál
Lagt er til að fjárveiting til Æskulýðs-
ráðs lækki um 400 þús kr., en inni
komi nýr liður með sömu upphæð til
Æskulýðssambands fslands Er þessi
breyting gerð að höfðu samráði við
báða aðila sem óskuðu eftir þeirri
breytingu sem hér er lagt til
Til Olympiunefndar hækkar fjárveit-
ing um 1 millj. kr. og verður samtals
2,5 millj kr.
Til sumarnámskeiða I Leirárskóla
hækkar fjárveiting um 500 þús. kr
Til Sædýrasafnsins i Hafnarfirði
vegna stofnkostnáðar er tillaga um
400 þús. kr hækkun, en fjárveiting
verður þá til Sædýrasafnsins samtals
2 millj kr.
LANDBÚNAÐUR
Þá er lagt til að fjárveiting til Rann-
sóknastofnunar Landbúnaðarins
hækki um 1 millj kr , en það er vegna
verðtryggingar Landgræðsluáætlunar.
Skógrækt rlkisins hækkar af sömu
ástæðum fjárveiting um 7,300 þús
kr
Til Landgræðslu ríkisins hækkar
framlag um 15,900 þús kr. sem
greinist þannig að liðurinn 'önnur
rekstrargjöld hækkar um 2,500 þús
kr og gjaldfærður stofnkostnaður um
13,400 þús kr Þar af vegna verð-
tryggingar ákvæða landgræðslu og
gróðurverndaráætlunar um 10,900
þús kr
Til Landnáms rlkisins er lagt til að
liðurinn til byggingar Ibúðarhúsa
hækki um 3 millj kr Hérertaliðaðsé
um verulegan skuldahala að ræða mið-
að við þær reglur sem landnámsstjórn-
in hefur sett.
Við embætti yfirdýralæknis er lagt til
að inn sé tekinn nýr liður Dýraiækna-
bústaðir: Viðhald, að upphæð 2 millj
kr.
Þá er á þingskjali nr 169 tillögur
fjárveitinganefndar um skiptingu á fé
til fyrirhleðsla, samtals að upphæð
23,944 þús kr
Um skiptingu á milli einstakra verk-
efna vlsast til þess sem fram kemur á
þingskjalinu Hér er um óbreytta
heildarupphæð að ræða.
Sama máli gegnir um skiptingu á fé
til Landþurrkunar
Þá er lagt til að liðurinn jarðræktar-
og húsagerðarsamþykktir hækki um
675 þús kr
Og lagt er til að inn sé tekinn nýr
liður til heykökuverksmiðju á Sval-
barðsströnd að upphæð 650 þús kr.
Til Bændaskólans á Hvanneyri
hækkar fjárveiting um 3 millj kr sem
er vegna byggingar skólastjóralbúðar.
Þá er tillaga um að launaliður við
Bændaskólann á Hólum hækki um
1,020 þús. kr., en það er vegna
ráðingar á einum nýjum kennara, sem
skólinn á rétt á, samkvæmt lögum um
skólann
Síðari
hluti
SJÁVARÚTVEGUR
Þá er lagt til að inn sé tekinn ný
liður til sjóvinnunámskeiða að upphæð
2,5 millj. kr. Á undanförnum árum
hefur á vegum Fiskifélags íslands verið
efnt til sjóvinnunámskeiða út um land,
en nú er hins vegar gert ráð fyrir að
sjóvinnukennsla verði I rlkari mæli tek-
in upp I gagnfræðaskólakerfínu Samt
sem áður eru ný lög um Sjóvinnuskóla
fslands frá 23 mai 1975, þar sem
heimilt er að stofna farskóla I sjó-
mennsku og skal Menntamálaráðu-
neytið sitja reglugerð um námskeið og
, —
AIÞinGI
kennslutima, en Fiskifélag (slands
annast rekstur skólans. Það er talið
nauðsynlegt að þessu sinni að verja
þeirri fjárupphæð sem hér um ræðir til
þessa námskeiðahalds.
Þá er breytingatillaga um að liður-
inn önnur rekstrargjöld á skrifstofu
Rannsóknastofnana atvinnuveganna
hækki um 1,929. þús kr., en þar var
um augljósa vanáætlun að ræða
DÓMSMÁL
Vegna fangelsis í Síðumúla er lagt til
að liðurinn önnur rekstrargjöld hækki
um 1 millj kr., sem einnig er vegna
vanáætlunar
Næst er breytingatillaga um
hækkun fjárveitinga til Bifreiðaeftirlits
rikisins. það er að liðurinn önnur
rekstrargjöld hækki um 3,6 millj. kr.,
er það vegna hækkunar á kostnaði
vegna húsnæðis, Ijóss og hita En
stofnun þessi hefur nú tekið á leigu
allstórt húsnæði að Bildshöfða 8 hér i
bæ
FÉLAGSMÁ4.
Lagt er til að styrkur til Slysavarnar-
félags íslands hækki um 1 millj kr., en
það er vegna aukins kostnaðar við
tilkynningarskildu fiskiskipa.
HEILBRIGÐISMÁL
Þá er næst tillögur nefndarinnar um
skiptingu á fjárveitingu til bygginga
sjúkrahúsa, sjúkraskýla, læknamið-
stöðva og læknabústaða, annarra en
rlkissjúkrahúsa, samtals að upphæð
795,625 þús. kr. og visast til þess
sem fram kemur á þingskjali nr. 1 69
um skiptingu fjárveitinga á milli ein-
stakra framkvæmda Inn I þessari upp-
hæð er liðurinn elliheimili að upphæð
50,790 þús. kr en ákvörðun um
hvernig farið verður með þann lið
blður 3 umræðu eins og ég hef áður
að vikið.
Þessu næst eru tillögur nefndarinnar
um styrktarfé og ýms eftirlaun,
embættismenn, þar sem upphæðin
lækkar um 1.161 þús kr Að öðru
leyti vlsast til þess sem fram kemur á
þingskjali nr 169 um þá sem falla
niður af styrktarfjárskrá og hina sem
viðbætast.
SAMGONGUMÁL
Til hafnarmála leggur nefndin til að
liðurinn hafnarmannvirki og lendingar-
bætur verði 675 millj kr. og skiptist
sú upphæð til einstakra hafnarmann-
virkja eins og fram kemur á sérstökum
lista á þingskjali nr. 169. Hér er um
9,6 millj. kr. lækkun frá þvl sem er I
frumvarpinu, en við 3. umræðu er gert
ráð fyrir að fjárveitingar til ferjubryggja
verði afgreiddar og mun þá þessi upp-
hæð væntanlega verða fullnýtt.
Við liðinn flugmálastjórn, hækkar
liðurinn I a-hluta fjárlagafrumvarpsins
um 5,139 þús. kr og verður þá
621.268 þús. kr, samtals. í b-hluta
hækkar hins vegar liðurinn alþjóðlegt
flugsamstarf um 15 139 þús. kr. og
liðurinn seldar vörur og þjónusta
hækkar þar á móti um 10 millj kr.
Þegar gengið var frá fjárlagafrumvarp-
inu lágu ekki fyrir endanlegar tölur um
greiðsluskyldu islendinga hjá Alþjóða-
flugmálastofnuninni, var þá byggt á
bráðabyrgða áætlun, en endanlegar
tölur liggja nú fyrir Það er með tilliti til
þessa að talið er nauðsynlegt að gera
þá breytingu sem hér er lagt til
ATHUGUNARSTÖO
Þá kemur næst tillaga um 280 þús.
kr. fjárveitingu til reksturs athugunar-
stöðvar á Rjúpnahæð við Reykjavlk til
að fylgjast með brennisteins- og sýru-
magni I lofti og úrkomu Gert er ráð
fyrir að þessi rannsókn fari fram á
vegum Veðurstofunnar. Hér er ekki um
nýja starfsemi eða rannsókn að ræða
frá byrjun, þar sem sllk rannsókn hefur
áður átt sér stað á byrjunarstigi En
undir þeim kostnaði hefur Rannsóknar-
ráð rlkisins staðið, það sér sér hins-
vegar ekki fært að standa undir þess-
um kostnaði lengur. Er þv! talið rétt að
verða við þeirri beiðni sem hér er farið
fram á
IÐNAÐUR
Þessu næst leggur fjárveitinganefnd
til að orðalagsbreyting eigi sér stað,
það er að liðurinn 1 1207 verði til
þjálfunar og eftirmenntunar I rafiðnaði
Svo sem kunnugt er, er fjárlagaliður
með þessu sama nafni I fjárlögum
yfirstandandi árs að upphæð 3,5 millj.
kr Þeirri fjárveitingu hefur verið ráð-
stafað til námskeiðahalds viðs vegar
um landið, en námskeið þessi eru
árangur af samstarfi rafiðnaðarmanna I
Danmörku, byggð á rannsóknum og
reynslu aðila vinnumarkaðarins. Alls
hafa verið haldin hér á landi 14 nám-
skeið sem rúmlega 190 manns hafa
sótt, en til viðbótar er búið að ákveða 4
námskeið á Akureyri, Selfossi, Keflavlk
og Reykjavik, þannig að heildartala
þátttakenda verður um 240 manns.
Þessi eftirmenntun rafiðnaðarmanna
verður að teljast mjög nauðsynleg og
þá sérstaklega með tilliti til nauðsyn-
legrar þjónustu við fiskiskipaflotann I
sambandi við hin margbrotnu sigl-
ingar- og fiskileitartæki sem sjávarút-
vegurinn hefurtekið I þjónustu sina.
Þá er næst tillaga um að framlag til
Iðnlánasjóðs hækki um 2,5 millj. kr
og sömuleiðis er lagt til að framlag til
Iðnrekstrarsjóðs hækki um sömu upp-
hæð, þannig að heildarfjárveiting til
sjóðanna verður þá 50 millj. kr. til
hvors.
Til kaupa á hlutafé I Iðnaðarbanka
(slands er lagt til að fjárveiting hækki
um 800 þús. kr., en það er til þess að
Rlkissjóður kaupi sinn hluta af hluta-
fjáraukningu bankans.
Næst er breytingartillaga nefnd-
arinnar um að inn verði tekinn nýr
liður, hagræðingarverkefni skipa-
smlðastöðva að upphæð 6 millj. kr.
Hér er um að ræða framhald tækniað-
stoðar sem hófst I október 1974 og
miðar að þvt að auka samkeppnishæfni
skipasmlðaiðnaðarins með nýjum
vinnuaðferðum. Talið er að nú þegar
hafi náðst verulegur árangur I þessum
efnum og að náðst hafi allt að
15—20% framleiðniaukning við
byggingu skipsskrokka með nýjum
vinnuaðferðum Þá er einnig gert ráð
fyrir þvl að I þessu sambandi fari fram
sérstök athugun á þvi hvernig gera
megi skipaviðgerðarstöðvar hér á landi
betur undir það búnar að sinna við-
gerðarverkefnum fyrir togaraflota
landsmanna, sem vaxið hefur verulega
á undanförnum árum svo sem kunnugt
er.
Næst er lagt til að inn sé tekinn nýr
liður undir nafninu iðnkynning að
upphæð 2,5 millj kr.
Og að lokum leggur nefndin til að
fjárveiting til Hagstofu íslands undir
liðnum þjóðskráin, laun, hækki um
250 þús kr en þar er talið að hafi
verið um vanáætlun að ræða á þessum
lið
Ræða Jóns Árnasonar formanns fjárveitinga-
nefndar við aðra umræðu fjárframlaga á Alþingi