Morgunblaðið - 09.03.1976, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1976
21
Jóhanna H alldórsdóttir
i
oft I leiknum.
Jafntefli dregið í
land á elleftu stundu
ÍSLENZKT kvennalandslið hefur áreiðanlega
aldrei leikið eins sorglega illa og I fyrri
hálfleiknum gegn bandarlska landsliðinu á
sunnudaginn. Bandarlska liðið hefur litlu
bætt við fyrri getu stna og þvt var ömurlegt
að verða vitni að þvl að tslenzka liðið skyldi
vera heilum sjö mörkum undir t leikhléi
Hafa aðeins skorað eitt einasta mark — það
úr vttakasti — en fengið átta mörk á sig. i
seinni hálfleiknum var allt annað að sjá til
tslenzku stúlknanna og þær tóku andstæð-
inginn greinilega alvarlegar en 1 fyrri hálf-
leiknum. Seinni hálfleiknum lauk með sigri
landans. sem skoraði 10 mörk gegn 3 og
leiknum lauk þvi með jafntefli 11:11.
Þó svo að þessi leikur hafi verið skráður
sem a-landsleikur þá tefldi landsliðsnefnd
kvenna að þessu sinni fram unglingalands-
liðinu og hafa fæstar stúlkurnar þar mikla
leikreynslu i stórleikjum. Samt sem áður
hafa þær enga afsökun fyrir frammistöðunni
t fyrri hálfleiknum. Varnarleikurinn var
óákveðinn og ! sókninni var Ittið skipulag
Til að mynda var það illskiljanlegt að fyrir-
liði landsliðsins að þessu sinni, Hrefna
Bjarnadóttir, skyldi leika fyrir utan allan
fyrri hálfleikinn og taka þar með pláss frá
skyttunum, en Hrefna er vön að leíka á
linunni og stóð sig þokkalega á þeim stað i
seinni hálfleiknum. Þá var skotanýting is-
lenzka liðsins, með afbrigðum slæm og Ijós-
myndararnir, sem stóðu metra eða meira frá
markstöngum voru i mestri hættunni þegar
islenzku stúlkurnar skutu „að markinu"
í seinni hálfleiknum var leikur liðsins allur
annar, liðið tók á i vörninni og þegar skotin
fóru að hitta á milli markstanganna var ekki
svo erfitt að koma knettinum framhjá mark-
manninum bandariska. Erla Sverrisdóttir var
i algjörum sérflokki islenzku stúlknanna og
það var fyrst og fremst einstaklingsframtak
hennar sem halaði jafnteflið i land. Einnig
stóð Gyða Úlfarsdóttir sig vel i markinu, en
hún varði markið allan seinni hálfleikinn.
Reyndar má segja að Álfheiður Emilsdóttir
hafi ekki staðið sig illa I fyrri hálfleiknum,
en hún átti ekki mikla möguleika á að verja
þau skot sem framhjá henni fóru. skoruð
ýmist úr vitaköstum eða úr þægilegum
færum úr hornunum. í leiknum vörðu mark-
verðirnir islenzku þrjú vitaköst.
Óþarft er að rekja gang þessa leiða leiks
öllu nánar. Auk þeirra stúlkna sem fyrr eru
nefndar stóð Harpa Guðmundsdóttir sig
þokkalega, en Jóhanna Halldórsdóttir. sem
gerði margt vel, var mað fádæmum óheppin
I leiknum og fjórum sinnum missti hún
mark, vegna þess að hún steig á linu Mörk
íslenzka liðsins gerðu: Erla Sverrisdóttir 6,
Harpa Guðmundsdóttir 2, Jóhan>-a 2, Mar-
grét Brandsdóttir 1.
Glanton, Lillis og Leight skoruðu flest
mörk Bandarikjastúlknanna, sem islenzkt
kvennalandslið á að geta unnið. þó ekki sé
nema með þokkalegum leik.
Dómarar voru Karl Jóhannsson og
Hannes Þ. Sigurðsson og dæmdu vel. -áij.
Fimm bregtingar
á kvennalandsliðinu
FIMM breytingar hafa verið gerðar á
kvennalandsliðinu, sem á föstudaginn leikur
aftur gegn Bandarikjastúlkunum — að
þessu sinni i Hafnarfirði. Er liðið sem leikur
á föstudaginn mun leikreyndara en tiðið
sem lék á laugardaginn, enda var þar um
unglingalandslið kvenna að ræða
Landsliðið á föstudaginn skipa eftirtaldar
stúlkur:
Magnea Magnúsdóttir Ármanni
(5 landsleikir)
Gyða Úlfarsdóttir Ármanni (7)
Hansina Melsted KR (18)
Hjördis Sigurjónsdóttir KR (4)
Guðrún Sigurþórsdóttir Ármanni (11)
Erla Sverrisdóttir Ármanni (11)
Harpa Guðmundsdóttir Val (2)
Hrefna Bjarnadóttir Val (6)
Oddný Sigsteinsdóttir Fram (10)
Jóhanna Halldórsdóttir Fram (2)
Margrét Brandsdóttir FH (1)
Kristin Jónsdóttir UBK (0)
Á fundi með fréttamónnum á sunnudag-
inn var rætt vitt og breitt um málefni
kvennahandknattleiksins. Kom þar m.a.
fram að stjórn HSÍ hefur mikinn áhuga á að
gera hlut stúlknanna stærri en verið hefur
undanfarin ár og fjölga verkefnum landsliðs
kvenna. Hafði stjórnin ráðgert að í vor yrði
farin keppnisferð til Hollands, V-Þýzkalands
og Danmerkur og yrði sú ferð æfingaferð
fyrir Norðurlandamót kvenna. Þar sem
nokkrar af sterkustu handknattleikskonun
um sáu sér ekki fært að fara i þessa ferð, var
ákveðið að hætta við hana
Það hefðu verið mikil vonbirgði fyrir HSÍ
hversu margar þeirra, sem leitað var til um
æfingar með landsliði síðastliðið haust, gáfu
neikvæð svör. Væri það vilji stjórnarinnar að
byggja því upp nýtt ungt lið, en það tæki
tima og ekki'væri ráðlegt að byrja slikt
uppbyggingarstarf á keppni gegn sterkum
andstæðingum. Það væri hæpinn ávinning
ur fyrir stúlkurnar sjálfar og islenzkan
kvennahandknattleik að fara í leiki t.d. gegn
Hollandi eða V-Þýzkalandi og tapa stórt. Til
að mynda fengi liðið á sig lélegan gæða
stimpil, sem siðan gerði það að verkum að
erfitt yrði að fá landsleiki, jafnvel þótt um
verulegar framfarir hefði verið að ræða.
Á fundinum kom fram að skoðanir eru
mjög skiptar milli blaðamanna annars vegar
og stjórnarmanna i HSl hins vegar, en það
verður ekki nánar rakið hér. __ áij
Kanadamenn vilja landsleiki
Kanadamenn sendu Uand-
knattleikssambandi Islands ný-
lega skeyti þar sem þeir segjast
hafa áhuga á að leika tvo lands-
ieiki karla hér á landi i iok
næsta mánaðar. Kanadamenn
hafa sýnt umtalsverðar framfar-
ir í handknattieik að undan-
förnu og m.a. unnið Kandaríkja-
menn örugglega. Kanadamenn-
irnir munu fara i kappnisferð til
Evrðpu í b.vrjun maí og yrðu
leikirnir hér fyrstu leikirnir í
ferðinni ef af verður. Einnig
munu Kanadamenn vilja leika
kvennalandsleiki.
Júgóslavar imnn heppnissignr eftir að Is-
lendingar höfðn haft forystn nær allan leikinn
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaðsins á landsleik Júgóslaviu og
Islands i undankeppni Ólympiuleikanna:
Mikið má vera ef íslenzka handknattleiksliðið hefur ekki náð þeim bezta leik sem það
hefur nokkru sinni náð á útivelli á sunnudaginn er það keppti við Júgóslava i undankeppni
Ólympíuleikanna á sunnudaginn. Að vísu tapaðist leikurinn með einu marki 22—23, en það
er líka nokkuð sem mjög sjaldan skeður að Ólympiumeistararnir og bronsverðlaunahafarnir
frá siðustu heimsmeistarakeppni lendi í erfiðleikum i landsleikjum i heimalandi sinu. Eina
landsliðið sem virðist hafa eitthvað i þá að gera þar er lið Sovétmanna sem að undanförnu
hefur haft góð tök á leikjum sinum við Júgóslava. Með tilliti til leiksins i Reykjavik 18.
desember s.l. er tapaðist með 6 marka mun verður ekki annað sagt en að leikurinn á
sunnudaginn hafi verið sigur fyrir íslenzka landsliðið og islenzkan handknattleik i heild. Að
visu verður ekki um neina Ólympíuferð að ræða að þessu sinni, en á þvi átti heldur enginn
von eftir að fyrri leikurinn hafði tapast.
Páll Björgvinsson í landsleiknum við Júgóslava f desember. Hann átti
mjög góðan leik I Júgóslaviu og varð skarð fyrir skildi er hann
fótbrotnaði í upphafi seinni hálfleiksins.
Það gekk mikið á hér í Júgóslaviu
áður en leikurinn hófst á sunnudaginn
Þá fyrr um daginn hafði verið blaða-
mannafundur þar sem forráðamenn og
þjálfarar íslenzka og júgóslavneska
landsliðsins sátu fyrir svörum Eins og
eðlilegt má teljast höfðu blaðamennirn-
ir mestan áhuga á að frétta af júgóslav-
neska liðinu og var þjálfarinn m.a
spurður um áframhaldandi undirbún-
ing liðsins fyrir lokakeppnina í Mon-
treal og skýrði hann frá honum i stór-
um dráttum. Bergur Guðnason, farar-
stjóri islenzka liðsins, var hins vegar
ekkert banginn þegar spurningum bar
beint til hans og benti á að Júgóslav-
arnir væru nú ekki búnir að tryggja sér
þann þátttökurétt íslendingar ættu leik
sinn við þá eftir og þeir ætluðu sér
ekkert minna en sigur Hefur blaða-
mönnunum eflaust þótt þetta nokkur
kokhreysti, þar sem allir áttu von á
stórsigri heimamanna i leiknum
Síðan hófst leikurinn Fyrir hann
hafði verið mikið fjallað um vörn júgó-
slavneska liðsins og hvernig mætti
snúa á hana. Áttum við von á því að
Júgóslavarnir myndu leika 2 — 4 vörn
á islenzka liðið og var ákveðið að haga
sóknarleiknum eftir því Þetta kom lika
á daginn, og það að þessi undirbún-
ingur hafði gefið góða raun. Á fyrstu
1 3 mínútum leiksins átti íslenzka liðið
alls átta sóknir í leiknum og þær gáfu
átta mörk! Slík nýting verður að teljast
með ólikindum á móti jafnsterku liði og
Júgóslavarnir eru. Má segja að á þess-
um minútum hafi þeir bókstaflega ver-
ið leiknir sundur og saman og mark-
verðir þeirra, sem þykja þó meðal
beztu markvarða i heimi, vissu tæpast
sitt rjúkandi ráð
Og eftir þessar 1 3 mínútur var stað-
an 8—4 fyrir ísland, og hefur blaða-
mönnunum sem sátu fundinn fyrr um
daginn eflaust verið hugsað til orða
Bergs Guðnasonar Þessi leikkafli ís-
lenzka liðsins var hreint út sagt frá-
bær Vörnin var mjög þétt og ákveðin
og f sóknarleiknum var boðið upp á
margt það bezta sem sjá má í hand-
knattleiknum um þessar mundir
En þegar hér var komið sögu breyttu
Júgóslavarnir um vörn og fóru að leika
flata vörn Var íslenzka liðið nokkra
stund að finna svar við þeirri breyt-
ingu og á meðan tókst Júgóslövunum
að jafna 8—8 Voru þá liðnar 18
mínútur af leiknum. Og það sem eftir
var hálfleiksins var leikurinn i allgóðu
jafnvægi íslendingarnir þó greinilega
betri aðilinn, enda höfðu þeir tveggja
marka forystu í leikhléi 1 3— 1 1
I byrjun seinni hálfleiksins þegar
Islendingar voru einum færri á vellin-
um tókst Júgóslövum að jafna
13— 13, en Gunnar Einarsson náði
svo aftur forystu fyrir íslenzka liðið
með marki úr viiakasti í næstu sókn
liðsins kom fyrir afdrifarikur atburður
og má vera að hann hafi ráðið úrslitum
i leiknum. Páll Björgvinsson, sem verið
hafði einn bezti leikmaður islenzka
landsliðsins og i sannkölluðu ,,bana-
stuði ', fótbrotnaði og varð að bera
hann af vellinum og siðan flytja hann i
sjúkrahús
Júgóslavarnir náðu að jafna
14— 14, en næsta mark var sannar-
lega mark leiksins ef eitthvert eitt getur
kallast slíkt. Eftir uppstökk átti Jón
Hjaltalín skot á mark Júgóslavanna
sem fór í vinkilinn uppi af slíku heljar-
afli að allt nötraði og skalf Leið undr-
unarstuna frá áhorfendum og mark-
vörðurinn fórnaði höndum, sýnilega
feginn að verða ekki á vegi knattarins
að þessu sinni Aftur náðu Júgóslavar
að jafna 15—15, en I næstu sókn
skoraði Ólafur H Jónsson glæsilegt
mark með einu af sínum frægu undir-
skotum, þar sem knötturinn straukst
við andlit markvarðarins á leiðinni í
markið Var greinilegt að eftir þessi tvö
mörk þótti Jógóslövunum nóg um
En þeir eru hins vegar frægir fyrir
að gefast ekki upp og á 20 minútu
hálfleiksins náðu þeir forystu í leiknum
f fyrsta sinn er staðan var 20—19
Tvívegis eftir það var staðan jöfn,
20—20 og 21—21, en þá skoraði
hinn leikreyndi fyrirliði þeirra Horvant
22 mark þeirra. íslendingar fengu svo
gott færi á að jafna er dæmt var
vítakast á Júgóslavíu, en þá kom loks
að þvi að hinn frægi markvörður þeirra
varði frá Gunnari Einarssyni Júgóslav-
arnir náðu knettinum, brunuðu upp og
skoruðu sitt 23. mark og þar með voru
úrslit leiksins ráðin Árni Indriðason
átti hins vegar lokaorðið í leiknum og
minnkaði muninn niður í eitt mark
Sem fyrr segir er óhætt að slá því
föstu að þarna var um að ræða einn
bezta, ef ekki bezta leik sem íslenzka
liðið hefur nokkru sinni leikið á útivelli,
og þegar á heild leiksins er litið verður
ekki annað sagt en að hann hafi boðið
upp á það bezta sem handknattleikur
getur boðið upp á Varnir beggja lið
anna voru góðar, og sóknarleikurinn
mjög fjölbreyttur, ógnandi og
skemmtilegur Að vísu var tvívegis
dæmd töf á islenzka liðið, en I annað
skiptið var um hreina óheppni að
ræða Ólafur Einarsson var þá í upp-
stökki er dómarinn flautaði og skot
hans hafnaði í markinu Og svo mikið
fannst Júgóslövum um leikinn, að þeir
ákváðu að sjónvarpa völdum köflum úr
honum aftur þrátt fyrir að hann hefði
allur verið sýndur beint.
í islenzka liðinu var þar einkum einn
leikmaður sem átti öðrum fremur góð-
an leik Sá var Ólafur H Jónsson, sem
lék þarna sinn 93. landsleik Ólafur var
hreint út sagt stórkostlegur í leiknum,
enda var hann inná allan leikinn. Páll
Björgvinsson átti einnig stórgóðan leik,
og var skarð fyrir skildi þegar hann
meiddist og varð að fara útaf Jón
Hjaltalín komst einnig mjög vel frá
leiknum og var gifurleg ógnun í leik
hans og þurftu Júgóslavarnir ævinlega
að vera á verði gagnvart honum og
stöðva hann framarlega ef ekki átti illa
að fara Ástæða er einnig til þess að
nefna Bjarna Jónsson, sem að venju
var mikill baráttuhestur i vörninni, en
aðall íslenzka liðsins i þessum leik var
þó öðrum fremur sá, að liðið vann allt
saman sem ein heild og það var fyrst
og fremst það sem skapaði þennan
góða árangur
Mörk íslands í leiknum skoruðu
Ólafur H Jónsson 6, Gunnar Einars-
son 5, Páll Björgvinsson 4, Jón Hjalta-
lín Magnússon 3, Bjarni Jónsson 1,
Árni Indriðason 1, Jón Karlsson 1,
Ólafur Einarsson 1
Fyrirliði Júgóslavneska landsliðsins, Horvant, reynir að stöðva
Sigurberg Sigsteinsson í fyrri landsleiknum við Júgóslava. Horvant
átti góðan leik á sunnudaginn og var maðurinn á bak við sigur liðs síns.
Bauð upp á allt það fallegasta sem
handknattleikur hefurupp á að bjóða
Ölafur H. Jónsson, fyrirliði fslenzka landsliðsins, átti frábæran leik
í Júgóslavfu og skoraði 6 mörk.
— AÐ MÍNU áliti bauö
þessi leikur upp á allt það
fallegasta sem handknatt-
leikur getur boðið upp á,
sagði Birgir Björnsson,
annar af fararstjórum ís-
lenzka liðsins við blaða-
mann Morgunblaðsins að
loknum leiknum í Júgó-
slavíu á sunnudaginn.
Þarna var um fjölbreyttan
leik að ræða, góð vörn, góð
markvarzla, skemmtilegt
línuspil og stórkostlega
fallegskot.
— Islendingar geta sannarlega
verið stoltir af liði sínu eftir
þennan leik. Það eru ekki mörg
lið sem náð hafa svo góðum
árangri gegn Júgóslövum á
heimaveili. Nú þarf að fara að
vinna að undirbúningi liðsins
fyrir heimsmeistarakeppnina,
sem hefst eftir 12 mánuði, og
þessi lcikur fyllir mann bjartsýni
að þar megi takast að ná langt —
helzt vinna sigur í B-riðlinum.
Ölafur H. Jónsson, fyrirliði ís-
lenzka liðsins í leiknum, sagði: —
Þessi úrslit færa okkur heim
sanninn um það hvað leik urinn
heima i Reykjavík i desember var
lélegur af okkar hálfu. Með sæmi-
lega góðum leik þar, væri ekki
víst að það hefðu verið Júgóslavar
sem hefðu fengið farseðlana á
Olympiuleikana. Það var fyrst og
fremst liðsandinn sem varð þess
valdandi að árangurinn var svo
góður, og liðið lék að minum dómi
einn sinn allra bezta leik. Þessi
úrslit verða sjálfsagt vonbrigði
fyrir þá sem verið hafa að krafsa i
bakið á okkur að undanförnu, en
til gleði fyrir þá sem staðið hafa
með okkur.
Rúmensku dómararnir sem
dæmdu leikinn í Júgóslavíu hafa
oft áður dæmt landsleiki Is-
lendinga erlendis. Þeir sögðu að
íslenzka liðið hefði komið þeim
mjög á óvart í leiknum með frá-
bærum handknattleik sínum. —
Þeir voru jafngóðir eða betri en
Júgóslavarnir og hefðu verð-
skuldað að vinna þennan leik,
sögðu þeir, og bætti því við að
Islendingar ættu sannarlega
möguleika á að gera stóra hluti í
næstu heimsmeistarakeppni ef
þeir byggju sig vel undir hana.
Beztu menn Islands í leiknum
sögðu þeir að hefðu verið Ölafur
H. Jónsson, Olafur Benediktssonf
Gunnar Einarsson og Jón Hjalta-
lín.
Júgóslavneski landsliðsþjálf-
arinn sagði eftir leikinn, að það
væri erfitt fyrir sig að tjá sig um
leikinn, svo undrandi hefði hann
verið á frammistöðu íslenzka
landsliðsins og þeim handknatt-
leik sem það hefði sýnt í leiknum.
Slíkan handknattleik sýna ekki
nema afburðalið, sagði hann, og
bætti því við að Júgóslavar hefðu
mátt teljast heppnir í fyrsta lagi
með að vinna sigur í leiknum á
sunnudaginn, og i öðru lagi með
að slíkur hamur skyldi ekki vera
á islenzka liðinu þegar leikið var í
Reykjavík. — Það er hreint ótrú-
legt hvað liðið var gott í dag, sagði
þjálfarinn, — og nú á maður auð-
veldara með að skilja hvernig það
mátti vera að Sovétmenn töldust
góðir að ná jafntefli við ykkur í
Reykjavík um áramótin.
Vilhjálmur Sigurgeirsson dregur ekki af sér og f markinu hjá DBK hafnaði kmmurinn.
Áhugaleysi allra er
ALGJÖRT áhugaleysi virtist vera á leik ÍR og Breiða
bliks I 2. deildar keppni íslandsmótsins i handknattleik
sem fram fór ? Ásgarði í Görðum á sunnudajinn.
Leikurinn gat ekki hafist fyrr en hálfri klukkustundu
eftir auglýstan tíma, þar sem annar dómarinn sem átti
að dæma hann, Olfert Naabye, lét ekki sjá sig og
Breiðabliksliðið mætti aðeins með einn skiptimann til
leiks.
Handknattleikurinn sem boðið var uppá í leiknum var
svo í fullkomnu samræmi við þetta og þann mikla
styrkleikamismun sem á þessum liðum er. ÍR-ingarvoru
næstum helmingi betri I flestu sem þeir gerðu en
Breiðabliksmenn enda urðu úrslitin þau að ÍR sigraði
26—1 5 eftir að staðan hafði verið 13 — 7 í hálfleik. Má
samt mikið vera ef ÍR-liðið hefur i annan tima leikið öllu
slakari leik, og þótt segja megi að leikur sem þessi gefi
ekki tilefni til mikils þá má vist vera að ÍR-ingarnir þurfa
að taka sig til í andlitinu ef þeir ætla sér upp i 1.
deildina.
Varla var á öðru von hjá Breiðabliki en að þessi vetur
yrði liðinu mjög erfiður. Æfingaaðstaða liðsins hefur
engin verið meginhluta vetrarins og skiljanlegt að ekki
sé áhugavert að taka þátt í mótum við slikar aðstæður.
Liðið hefur þó átt sæmilega leiki af og til i vetur, en á
ÍR vann IIBK 26:15
sunnudaginn var það greinilega eingöngu skylduverk
að mæta til leiksins. í þessu liði eru þó nokkrir
einstaklingar sem geta örugglega látið að sér kveða i
framtíðinni og skal þar fyrst og fremst tilnefna ungu
mennina Jón Karlsson markvörð, Ólaf Björnsson og
Kristján Gunnarsson sem báru af öðrum Blikum í
þessum leik. í ÍR-liðinu var það helzt Gunnlaugur
Hjálmarsson sem var hróss verður, en ákaflega er
leiðinlegt að heyra stöðugar glósur um dómara og and-
stæðinga eins og Gunnlaugur lét sér sæma að viðhafa í
þessúm leik. Þá er einnig ástæða til að hrósa markverði
ÍR-liðsins, Erni Guðmundssyni fyrir þátt hans i leiknum
sem var góður.
MÖRK Breiðabliks: Kristján Gunnarsson 8 (1 v), Ólafur
Björnsson 3, Daniel Þórisson 2 og Magnús Steinþórs-
son 2 (2 v).
MÖRK ÍR: Brynjólfur Markússon 7 (1 v), Vilhjálmur
Sigurgeirsson 5 (1 v), Gunnlaugur Hjálmarsson 4 (1 v),
Sigurður Á. Sigurðsson 3 (1 v), Hörður Hákonarson 2,
Bjarni Hákonarson 2 (1 v), Bjarni Bessason 2, Úlfar
Samúelsson 1.
Dómarar voru Ólafur Steingrimsson og Gunnar
Kjartansson og dæmdu allsæmilega. — stjl.
KR burstaði daufa Keflvíkinga
KEFLVlKINGAR voru auðveld
bráð fvrir KR-inga í leik liðanna f
2. deildar keppni lslandsinótsins
í handknattleik sem fram fór í
Njarðvíkum á laugardaginn.
Úrslit leiksins urðu 29—16 fvrir
KR-inga eftir að staðan hafði ver-
ið 15—7 f hálfleik. Tóku KR-ingar
forvstuna þegar í upphafi
leiksins og tókst Keflvfkingum
aldrei að ógna þeim. Var þessi
sigur sennilega sætur fvrir KR-
inga sem töpuðu fvrri leiknum
við Keflavfk, og má segja að sá
ósigur hafi orðið til þess að binda
enda á vonir KR-inga um sigur í
deildinni.
Hilmar Björnsson, sem verið
hefur aðalmarkaskorari KR-inga
í vetur, lék ekki þennan leik með
liði sínu — var erlendis, en Hauk-
ur Ottesen, sem lítið hefur verið
með KR í vetur, kom í hans stað
og átti þarna ágætan leik. Skoraði
Haukur 10 mörk og átti auk þess
margar góðar línusendingar sem
gáfu mörk. Atti Haukur einna
beztan leik KR-inga.
I Keflavíkurliðinu var Þor-
steinn Olafsson atkvæðamestur
eins og oft áður, en í heild átti
Keflavíkurliðið ekki góðan leik
og voru leikmennirnir flestir
dauflegir og áhugalitlir.
MÖRK IBK SKORUÐÖ: Þor-
steinn 7, Sævar 4, Guðmundur 3,
Jón 1 ogSigurbjörn 1.
MÖRK KR: Haukur 10, Simon
5, Ingi Steinn 4, Olafur 2, Þor-
varður 2, Kristinn 2, Sigurður 2,
Friðrik 1, Asgeir 1.
Vítaskytta brást á örlagastundu
og A-Þjóðverjar sitja heima
Hoffmann, markvörður vestur-
þýzka handknattleikslandsliðs-
ins, var hetja liðs síns á leik þess
við Austur-Þjóðverja í undan-
keppni Olvmpíuleikanna í hand-
knattleik sem fram fór í Karl-
Marx Stadt á laugardaginn. Þegar
leiktiminn var liðinn var staðan
11—8 fvrir Austur-Þjóðverja og
dæmt hafði verið vitakast á Vest-
ur-Þjóðverja. Ef skorað var úr því
höfðu Austur-Þjóðverjar unnið
leikinn með 4 mörkum, og voru
þar moð komnir áfram i keppn-
inni.en efekki þá komust Vestur-
Þjóðverjar áfram, þar sem þeir
höfðu unnið fvrri leikinn 17 —14.
Engel, sem tekið hafði vítaköst
Austur-Þjóðverja fvrr í leiknuni
án þess að mistakast lét Hoff-
mann verja þetta örlaga vítakast
frá sér, og silfurverðlaunahafar
síðustu heimsmeistarakeppni
mega því sitja heima þegar loka-
keppni leikanna fer fram i Mon-
treal.
Gifurleg barátta var i leiknum í
Karl-Marx Stadt, og varnir beggja
liðanna og markvarzla var stór-
kostleg. Þegar 2 minútur voru til
leiksloka var staðan 9—8 fyrir
Austur-Þjóðverja en á lokaminút-
unni voru dæmd tvö vítaköst á
Vestur-Þjóðverja og skoraði En-
gel úr þeim báðum, en brást svo
bogalistin í þvi þriðja, sem fyrr
greinir.
Lokastaðan i fimmta riðlinum i
undankeppninni varð þessi:
Vestur-
Þýzkaland 4 3 0 1 80—41 6
Austur-
Þýzkaland 4 3 0 1 87—54 6
Belgia 4 0 0 4 45—117 0
Pólverjar unnu Norðmenn 25:17
PÖLVERJAR hafa tryggt sér þátttökurétt í loka-
keppni Olvmpiuleikanna í handknattleik. Sigruðu
þeir Norðmenn í seinni leik liðanna sem fram fór í
Varsjá á laugardaginn með 25 mörkum gegn 17
eftir að staðan hafði verið 13—9 i hálfleik.
Sigruðu
Pólverjar þvi i öllum leikjum sínum í riðlinum, en
Norðmenn hlutu 4 stig, sigruðu Breta tvívegis.
I leiknum á laugardaginn tóku Pólverjar þegar
forystuna og héldu henni til leiksloka. Leikurinn
var þó nokkuð jafn lengst af í fvrri hálfleiknum.
Mörk Póllands skoruðu: Jerzy Klempel 8,
Kaluzinski 5, Brozozowski 4, Gmyrek 2, Melcer 2,
Dvol 2 og Przvsbvsz 2.
Mörk Noregs skoruðu: Erik Nessem 4, Rune
Sterner 3, Allan Gjerde 3, Einar Ilunsager 3,
Kristen Grislingaas 2, Rolf Lundberg 1 og Jon
Reinertsen 1.