Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1976 JAFNTEFLI í BARÁTTULEIK KAOGKR ÞAÐ var gífurleg stemmning i Skemmunni á Akureyri á laugar day þegar KA og KR mættust í 2. deildinni i handbolta Fyrirfram var leikurinn talinn einn af úrslitaleikjum deildarinnar og vi að var að geta liðanna væri mjög ámóta. Það gekk og eftir, leikurinn var yfirleitt mjög jafn, þó svo KR hefði oftast frumkvæðið, en þegar upp var staðið var jafntefli staðreynd. 21 mark gegn 21. Nokkurs taugaóstyrks gætti hjá leikmönnum beggja liða i byrjun og voru heimamenn þó öllu óoruggari. Enda fór svo að KR skoraði þrjú fyrstu mörkin og það var ekki fyrr en um ntu mín. voru af leik sem KA komst á blað. KR leiddi síðan framan af með þetta tveimur til þremur mörkum, en þegar um 25 mfn. voru af leik jafnaði Hörður Hilmarsson, 8 gegn 8, fyrir KA, og á síðustu minútum hálfleiksins sigu KA menn fram úr og höfðu einu marki betur i hléi, 11 gegn 10. Snemma i sfðari hálfleik tókst KR að jafna metin, 1 3 gegn 1 3 og gerði betur komst i 1 6 gegn 13, siðan 18 gegn 14 og lifðu þá um 14 mínútur af leiknum. KA rétti örlitið úr kútnum náði að minnka muninn í tvö mörk, 19—17, einmitt þá var Sigurði Páli i KR visað af velli fyrir afar vanhugsað brot og KA náði þá að jafna metin, 1 9 gegn 19, og sjö mín. eftir. Ingi Steinn náði forystu fyrir KR, en Jóhann jafnaði, þá skoraði Simon og staðan 21 gegn 20, og stemmningin í hámarki. KA — sókn rann út f sandinn og KR fékk vítakst, en Magnús Gauti varði frá Hauki Ottesen og KA hafði boltann og Jóhann Einarsson jafnaði enn, 21 gegn 21, og leiktfminn rann út án þess að liðin skoruðu frekar Eins og að framan greinir var leikur þessara liða, sem eru álitin hvað sigurstranglegust i deildinni ásamt Armanni afar jafn. KR ingar höfðu þó oftast frumkvæðið og höfðu þó oftast frumkvæðið og hefðu, ef skynsemin hefði setið i fyrirrúmi, átt að sigra, þegar til þess er litið að þeir höfðu fjögurra marka forystu um miðbik siðari hálfleiks. En æsingur og rangt stöðu mat ýmissa leikmanna KR kom sem sé í veg fyrir sigur i þessum mikilvæga leik. Staða KR-inga eftir þennan leik er þó ákaflega góð. KA-liðið hefir ætíð reynst KR erfiður Ijár í þúfu fyrir norðan, alla vega hin sfðari ár, svo að stigið sem KR krækti i fyrir norðan getur reynst þeim dýrmætt þegar fram i sækir. Að minnsta kosti er KR-liðið afar Ifklegt til að vinna sér sæti að nýju f 1. deild, en skammt er á mótið liðið og þvi auðvitað erfitt að spá um úrslit. Hjá KA-liðinu komu fram nokkrir veikleikar í þessum leik. Ýmsum leikmanna liðsins hættir til að velja óheppileg augnablik til aðgerða, hafa rangt stöðumat. Menn verða að kunna að vega og meta stöðuna, þ.e.a.s. hvort vert sé að taka talsverða áhættu i aðgerðum við vissar aðstæður. í sumum tilvikum er ekkert við það að athuga að áhættan sé tekin, i öðrum er hins vegar fáránlegt að taka mikla áhættu og getur hreinlega ráðið úrslitum í leik. Hitt má svo til sanns vegar færa að ef til vill eru allar eða flestar sóknaraðgerðir f handknattleik áhættusamar, en þó misjafnlega. Ég hygg að helsta meinsemdin i KA-liðinu sé i þvi fólgin að sumir leikmanna ,,lesa" leikinn ekki nægjanlega vel, sem ef til vill má rekja til skorts á reynslu. Maður leiksins: Það er erfitt að gera upp á milli þeirra Harðar Hilmarssonar i KA og Inga Steins Björgvinssonar i KR, svo það skal ógert látið að þessu sinni. Dómarar leiksins voru Björn Kristjánsson og Kjartan Stein bach og komust þeir með prýði frá erfiðu hlutverki. Mörk KA: Ármann Sverrisson, Jóhann Einarsson og Þorleifur Ananíasson 4 hver, Halldór Rafnsson, Hörður Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson 3 mörk hver. Mörk KR: Sfmon Unndórsson 6, Haukur Ottesen 5, Hilmar Björnsson og Ingi Steinn Björgvinsson 4 hvor, Kristján Ingason og Þorvarður Guðmundsson sitt markið hvor. Sigb. G. Á mvndinni til vinstri stekkur Gunnar Björnsson upp og skorar fyrir Stjörnuna, en myndin til hægri sýnir Eyjólf Bragason, markhæsta leikmann Stjörnunnar brjóta sér leið gegnum Leiknisvörnina. ■ ■ VARIÐ VITAKAST SKIPTISKOPUM OG STJARNAN SIGRAÐ119-17 STJAHNAN baMli tveimur dýrmætum stigum í safn sitt í 2. deildar keppninni í handknattleik á sunnudaginn, er lióið bar sigurorð af I.eikni f sögulegum leik sem fram fór f Asgarði í Garðabæ. íirslit leiksins urðu 19:17 fyrir Stjörnuna, eftir að I.eiknir hafði hafl forystuna lengst af í leiknum. Var ekki nema rúm mínúta til leiksloka er Stjarnan náði loks forystunni 18:17, en upp úr þvf var einum leikmanna Stjörnunnar vfsað af velli. I næstu sókn Leiknismanna fékk Jón Ólafsson gott færi að fara inn úr horninu, hvað hann og gerði. En Jón var óheppinn og missti knöttinn. Dómararnir virtust hins vegar ekki vel með á þvf hvað gerðist og dæmdu vítakast á Stjörnuna. Markvörður liðsins, Brynjar Kvaran, mótmælti dómi þess- um og var rekinn af velli, þannig að Stjörnumenn voru orðnir tveimur færri. En Kristinn Rafnsson sem kom f markið í stað Brynjars gerði sér lítið fyrir og varði vftakast Hafliða Péturssonar, Stjarnan náði hraðaupphlaupi og Guðmundur Ingvason innsiglaði sigur liðs síns með 19. marki þess. Leikurinn á sunnudaginn var heldur slakur, en hins vegar oftast mjög jafn og spennandi. Mótaðist hann tölu- vert af því hversu slælegur dómararnir tveir, Helgi Þor- valdsson og Eysteinn Guómundsson, stóðu sig, en þeim urðu á hver mistökin af öðrum og eru sýnlega algjörlega æfingalausir. Það eina sem þeir gerðu verulega vel í þessum leik var að stöðva hann, og hóta að hefja hann ekki aftur fyrr en áhorfendur væru farnir úr húsinu, ef ekki linnti kasti smápeninga og dóts inn á völlinn. Slík fra'm- koma áhorfenda er með öllu óþolandí, en rétt er að taka fram að börn og unglingar áttu þarna hlut að máli. Þrátt fyrir að Stjarnan væri lengst af undir í mörkum, virkaði lið þeirra mun heilsteyptara og betra en Leiknislið- ið. Aðalgalli Stjörnuliðsins í leiknum var hversu leikmenn- irnir fóru herfilega með fjölmörg uppljögð marktækifæri. Virtist á stundum sem þeim væri með öllu fyrirmunað að skora. Vörn liðsins er hins vegar mjög hreyfanleg og sterk — má greinilega þekkja yfirbragð þjálfarans, Sigurðar Einarssonar á leik hennar. Þegar Stjarnan nær að bæta sóknarleik sinn og fá í hann meiri ró og festu, verður þetta tvímælalaust hið ágætasta lið. Leiknisliðíð sýndi oft allgóð tilþrif í leik þessum, og baráttan í liðinu var betri en oftast áður. Bezti leikmaður liðsins var tvímælalaust þjálfari þess, Ásgeir Elíasson, sem var jafnan mjög ógnandi og opnaði fyrir félaga sína, auk þess sem hann sýndi góðan leik í vörninni. Maður leiksins: Ásgeir Elíasson, Leikni. Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur Bragason 9 (3 vítaköst), Gunnar Björnsson 3, Guðmundur Ingvason 3, Magnús Teitsson 2, Magnús Andrésson 1, Viðar Halldórsson 1. Mörk Leiknis: Hafliði Pétursson 9 (3 vítaköst), Ásgeir Elíasson 4, Jón Olafsson 2, Guðmann Elíasson 1, Finnbjörn Finnbjörnsson 1. — sljl. laÐ1Ð pRIDJUDAGUR 2. NOVEMBER 1976_25 VÍKINGAR FENGU FYRSTU STIGIN EKKIÁTAKALAUST Konráó Jónsson átti góðan leik gegn tR og skoraði 9 mörk. Hér hefur hann fundið smugu á lK-vórninni og sKorar. VÍTAKAST MISTÓKST Á LOKASEKÚNDUNUM VÍKINGAR kræktu sér í fyrstu stigin f Islandsmótinu á sunnu- dagskvöldið er þeir sigruðu Gróttu 26:21. Ekki var leikurinn auðunninn fyrir Vfkinga, þvert á móti áttu þeir f miklu basli með Gróttu og það var ekki fyrr en á sfðustu mfnútunum að Vfk- ingarnir gerðu út um leikinn. Fram að þvf hafði leikurinn verið jafn lengst af og Gróttumenn komust jafnvel f tveggja marka forystu um tíma í seinni hálfleik. Handknattleikur var ákaflega slakur, mikið um mistök á báða bóga og Iftil stemmning meðal þeirra fáu áhorfenda, sem höfðu lagt leið sfna f Laugardalshöll þettakvöld. Víkingarnir byrjuðu leikinn betur og.um miðjan fyrri hálfleik- inn höfðu þeir náð góðri forystu, fyrst 6:2 og síðan 7:3. Síðan var forysta Víkinganna þetta 3—4 mörk allt fram undir hálfleikinn að Viggó Sigurðssyni var visað af velli í 5 minútur og Víkingarnir voru þann tíma einum færri. Náði Grótta þá að minnka muninn nið- ur i eitt mark, en*í hálfleik var staðan 13:11, tveggja marka munur Víkingum i hag. í byrjun seinni hálfleiksins náðu Gróttumenn fljótlega að jafna og á 8. mínútu seinni hálf- leiksins komust þeir í fyrsta skapti yfir i leíknum, 15:14. Grótta komst siðan á 16:14 og 17:15 þegar 11 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. En þá tóku Víkingarnir á sig rögg, skoruðu þrjú mörk i röð, Grótta átti næstu tvö, Víkingar þar næstu þrjú, Grótta skaut inn einu marki en síðan gerðu Vík- ingarnir enn þrjú mörk i röð og tryggðu sér þar með fyrsta sigur- inn í Islandsmótinu i ár. Lokatöl- urnar urðu 26:21. Víkingsliðið hefur átt mjög erfitt uppdráttar í haust og árangurinn ekki verið í neinu samræmi við þann mannskaða sem i liðinu er. Þessi leikur var sá skásti hjá liðinu það sem af er mótinu, en hann var þó langt frá því að vera góður. Hefði Víkingur mætt öðru 1. deildar liði en Gróttu þetta kvöld, hefði liðið vafalaust tapað honum. Sóknar- leikurinn var lengst af fálm- kenndur og vörnin opin. Aftur á móti lofar ungur markvörður í liðinu, Grétar Leifsson, góðu. Fjögur vítaköst fóru í súginn hjá Víkingunum i þessum leik og sex I næsta leik á undan. Þarna er eitt þeirra mörgu atriða, sem Vík- ingarnir verða að kippa í liðinn á næstunni, ef þeir ætla að fikra sig upp stigatöfluna. Víkingana skortir ekki mannskap heldur betri liðsanda og betra skipulag á hlutina. Gróttuliðið var einnig mjög slakt i þessum leik. Það er fremur lítið um skyttur í liðinu og þvi var það áfall fyrir Gróttu að missa sina helztu skyttu, Björn Péturs- son, útaf í fyrri hálfleik vegna meaðsla. Beztu menn Gróttu i leiknum voru þeir Grétar Vil- mundarson og Árni Indriðason. Grétar kom mjög á óvart i þessum leik, skoraði 7 mörk, en fremur litið hefur borið á honum I liði Gróttu fram til þessa. Árni var mjög öruggur í vítaköstum og að vanda mjög drjúgur í vörninni. Hann er sem fyrr kjölfesta Iiðs- ins. Ef svo fer sem horfir, verður róðurinn vafalaust þungur hjá Gróttumönnum i deildarkeppn- inni i vetur. Dómarar voru Hannes Þ. Sig- urðsson og Karl Jóhannsson. Þeim hefur oft tekizt betur upp, sérstaklega þó Hannesi. Vítaköst voru með alflesta móti hjá þeim félögum eða 17 talsins í öllum l'eiknum. — SS. ÞAÐ RfKTI gifurleg spenna 1 Laugardalshöllinni f lok leiks IR og Þróttar á sunnudagskvöldið. Þegar venjulegum leiktfma var lokið var staðan 25:25 og Þróttar- ar áttu eftir að taka vftakast, þannig að þeir áttu möguleikan á þvf að sigra f þessum mjög svo spennandi leik. Halldór Bragason tók vftakastið, skaut f gólfið, það- an fór boltinn f þverslá og hrökk af henni út á völlinn. fR-ingar fögnuðu ákaft en Þróttarar voru óánægðir með að sigra ekki fyrst sigurinn var f seilingarfjarlægð. Annars má segja að jafntefli hafi verið réttlátust úrslit þessa deild- arleiks f Islandsmótinu f hand- knattleik. Leikurinn var skemmtilegur og spennandi og í allt öðrum og betri gæðaflokki en fyrri leikur kvölds- ins, milli Vikings og Gróttu. Agúst Svavarsson skoraði þrjú fyrstu mörkin fyrir IR og korn- ungur og stórefnilegur leikmað- ur, Sigurður Sveinsson, skoraði tvö fyrstu mörkin fyrir Þrótt. IR- ingar höfðu yfirleitt frumkvæðið i leiknum í fyrri hálfleik og höfðu yfir þetta 1—2 mörk, en lengra framúr hleyptu Þróttarar þeim ekki. Staðan í hálfleik var 12:11 iR-ingum í vil. Framan af seinni hálfleik höfðu iR-ingar frum- kvæðið í leiknum alveg eins og í fyrri hálfleik. Náði iR-ingar nokkrum sinnum að auka muninn í þrjú mörk og þegar 11 mínútur voru til leiksloka hafði IR yfir 22:19. En á þessum punkti snerist dæmið við. Þróttarar gripu til þess ráðs að elta Ágúst Svavars- son, sem hafði verið iðinn við skorunina og einnig þéttu þeir smugu í öðru horninu, sem Bryn- jólfur Markússon hafði notfært sér með góðum árangri. Og mörk- in létu ekki á sér standa hjá Þrótt- urum, þeir skoruðu þrjú í röð og jöfnuðu 22:22, IR breytti stöðunni I 23:22 sér í vil en næstu þrjú mörk gerði Þróttur og allt í einu var staðan orðin 25:23 Þrótti í hag og þrjár mínútur til leiksloka. Á þessu tímabili voru þeir Konráð Jónsson og Sigurður Sveinsson aðalmennirnir í sókninni hjá Þrótti. Tvö síðustu mörkin gerði Hörður Hákonarson fyrir iR-inga en 10 sekúndum fyrir leikslok var dæmt vítakast á iR-inga og Þrótt- ur gat þar með tryggt sér sigur- inn, en Halldóri Bragasyni brást bogalistin og iR-ingar sluppu með skrekkinn. Var Halldór ekki of sæll af hlutverki sínu sem vlta- skytta. Miðað við gang leiksins hefði það verið ósanngjarnt að Þróttarar hefðu fengið bæði stig- in út úr viðureagninni svo að segja má að jafntefli hafi verið réttlátustu úrslitin. Lið IR hefur komið sterkar út úr byrjun Islandsmótsins en menn áttu von á, en liðið kemur sem kunnugt er upp úr 2. deild. I liðinu eru margir góðir einstak- lingar sem mynda sterka heild. Á síðari árum hefur IR aldrei náð verulegum árangri i 1. deild þrátt fyrir að liðið hafi lofað góðu, en kannski verður þetta keppnis- tfmabil iR-inga? Félagið hefur endurheimt Ágúst Svavarsson frá Svíþjóð, og virðist hann vera í góðu formi þessa stundina. Hann skoraði 6 glæsileg mörk og hefði vafalaust bætt við fleiri mörkum, ef hann hefði ekki verið í strangri gæzlu mestan hluta seinni hálf- leiks. Brynjólfur Markússon tók lifinu með ró framan af leiknum en í seinni hálfleik tók hann sig á og var um tíma hreint óstöðvandi. Það er gaman að sjá til Brynjólfs þegar hann er i slíkum ham. Örn Guðmundsson stóð sig vel i mark- inu, eins og hann hefur reyndar gert í öllum leikjum ÍR i Islands- mótinu til þessa. I vörninni átti Sigurður Gislason skínandi leak. Þar er á ferðinni geysisterkur varnarmaður en hann átti það til að brjóta klaufalega af sér og var af þeim sökum dæmdur í 7 min- útna „kælingu" utan vallar. Þess- ir menn voru beztir í liði lR í leiknum, en i heild átti liðið góð- an dag. Þróttur hefur einnig staðið sig með ágætum í haust og er það merkilegast fyrir þá sök, að markakóngurinn frá í fyrra, Frið- rik Friðriksson, hefur enn ekki getað hafið keppni með liðinu vegna veikinda. Við hlutverki Friðriks hefur tekið Konráð Jóns- son, fjölhæfur og útsjónarsamur sóknarleikmaður. Konráð lék bæði fyrir utan vörnina og inni á linu i þessum leik og skilaði báð- um stöðunum mjög vel, var reyndar markhæsti maður leiks- ins með 9 mörk, og var bezti mað- urinn á vellinum. Annar leikmað- ur vakti einnig mikla athygli í Þróttarliðinu, Sigurður Sveins- son. Sigurður er kornungur, lék með 3. aldursflokki i fyrra. Hann er vinstrihandar skytta, óragur og hittinn og mörg marka hans voru glæsileg. Sigurður er bróðir kunnra handknattleikskappa úr Fram, Sveins og Guðmundar Sveinssona, og þótt þeir séu báðir sterkir handknattleiksmenn, sýn- ist manni að „litli“ bróðir ætli alveg að skáka þeim. Þá er ástæða til að nefna Sveinlaug Kristjáns- son, sem var mjög harður í horn að taka á linunni. Það sama má segja um lið Þróttar og iR-liðið, það átti i heild góðan dag. Dómarar voru Gunnar Kjart- ansson og Ólafur Steingrimsson. Þeir dæmdu vel en Ölafur mætti temja sér meiri ákveðni við dóm- gæzluna. — SS. Vltakastnýtingin hefur verið ákaflega slæm hjá Víkingi f leikjum liðsins I Islandsmotinu. A njóti tR-ingum misnotuðu Vfkingarnir 6 vftaköst og 4 á móti Gróttu. Á móti Gróttu var það Vfkingsfyrir- liðinn Björgvin Björgvinsson, sem tók til sinna ráða I seinni hálfleik, fór I hlutverk vftaskyttu og skoraði úr öllum vítaköstunum sem hann tók. Hér skorar hann úr einu þeirra. Ljósm. Rax. Elnkunnagiðfln VtKINGUR: Rósmundur Jónsson 1, Grétar Leifsson 3. Björgvin Björgvinsson 2 Ólafur Einarsson 2, Erlendur Hermannsson 1, Ólafur Jónsson 2, Viggó Sigurðsson 2, Jón Sigurðsson 2, Magnús Guðmundsson 2, Þorbergur Aðalsteinsson 2, Einar Jóhannsson 1, GRÓTTA: Guðmundur Ingimundarson 2, Friðrik Friðriksson 1, Magnús Margeirsson 1, Björn Pétursson 1, Þór Ottesen 1, Gretar Vilmundarson 3, Árni Indriðason 3, Magnús Sigurðsson 2, Halldór Kristjánsson 1, Axel Friðriksson 1, Örn Stefánsson 1, Gunnar Lúðvfksson 2. ÞRÓTTUR: Kristján Sigmundsson 3, Sigurður Ragnarsson 2, Sveinlaugur Kristjánsson 3, Trausti Þorgrfmsson 2, Gunnar Gunnarsson 1, Halldór Bragason 2, Jóhann Frfmannsson 1, Konráð Jónsson 4, Gunnar Árnason 2, Sævar Ragnarsson 1, Sigurður Sveinsson 3, Bjarni Jónsson 2. IR: Örn Guðmundsson 3, Guðmundur Gunnarsson 1, Bjarni Ilákonarson 2, Hörður Arnason 1, Sigurður Svavarsson 2, Sig- urður Sigurðsson 1, Agúst Svavarsson 3, Bjarni Bessason 2, Vilhjálmur Sigurgeirsson 2, Brynjólfur Markússon 3, Sigurður Gfslason 3, Ilörður Hákonarson 2. í STUHU MÁLI r r 36. Þorbergur 37. 38. 14:13 VIKINGUR - GROTTA 14:14 Magnús Sig. 14:15 Magnús Sig. 39. 14:16 (irótar IVIfn. Víkingur Mörk órótta 40. Björgvin (v) 15:16 5. VÍRRÓ (víti) 1:0 41. 15:17 Arni (v) 6. 1:1 Magnús Sig. 42. ÓlafurJ. 16:17 7. Þorbergur 2:1 43. ólafur E. 17:17 8. 2:2 Björn (v) 44. Björgvin 18:17 9. Björgvin 3:2 45. 18:18 (irétar 10. Jón 4:2 47. 18:19 Magnús M. 12. Viggó (V) 5:2 49. Viggó 19:19 14. ÓlafurE. 6:2 50. Þorbergur 20:19 15. 6:3 Arni (v) 53. Björgvin (v) 21:19 16. OlafurE. 7:3 53. 21:20 Halldór 17. 7:4 (irétar 55. Viggó 22:20 18. 7:5 (iunnar 56. Björgvin 23:20 19. Jón 8:5 57. Þorbergur 24:20 20. 8:6 Arni (v) 58. 24:21 Axel 21. VÍRRÓ (V) 9:6 59. Jón (v) 25:21 22. 9:7 (irótar 60. Jón 26:21 23. Ólafur J. 10:7 MÓRK VÍKINÍiS : Björgvin Björgvinsson 24. ólafur J. 11:7 5. Þorbergur Aóalsteinsson 5, Viggó Sig- 25. 11:8 Arni (v) urósson 5. Jón Sigurósson 4. Ólafur 26. 11:9 Arni (v) Einarsson 4, ólafur Jónsson 3. 28. Þorbergur 12:9 MÖRK (ÍRÓTTII: (irétar Vilmundarson 7. 28. 12:10 (irótar Arni Indrióason ! >. Magnús Sigurósson 3, 29. 12:11 (irótar (iunnar Lúóvíksson 2. Björn Pótursson 1. 30. Ólafur E. (v) 13:11 Ilalldór Kristjánsson 1. Axel Frióriksson llálfleikur ' 1. Magnús Margeirsson 1. 31. 13:12 (iunnar MISNOTLIÐ VlTAKÖST: (iuóinundur 35. 13:13 (irétar Ingimundarson. (iróttu varói vítaköst Viggós Siguróssonar á 33. og 40. mfnútu 36. 14:13 Konráó og Ólafs Einarssonar á 4. mfnútu. Þá átti 36. Brynjólfur 15:13 Ólafur Jónsson Vfkingi skot f stöng úr 37. Brynjólfur 16:13 \ ftakasti á 38. nifnútu. 38. 16:14 Konráó BROTTVlSANIR ! AF VKl.I.I: Vírró Sír. 39. Agúst 17:14 urósson Vfkingi útaf í 7 mfnútur og Jón 40. 17:15 Halldór Sigurósson. Vfkingi og (irótar Vilmundar- 40. Bjarni B. 18:15 son útaf í 2 mfnútur h vor. 41. 18:16 Sveinlaugur 42. Brynjólfur 19:16 ÞRÚTTUR — ÍR 43. 44. Brynjólfur 47. 19:17 Sveinlaugur 20:18 Konráó 20:19 (iunnar Mfn. 1R Mörk Þróttur 48. Bryn jólfur 21:19 3. 0:1 Siguróur 49. Höróur H. 22:19 3. Agúst 1:1 49. 22:20 Konráó 6. 1:2 Siguróur 51. 22:21 Sveinlaugur 7. Agúst 2:2 54. 22:22 Konráó 9. 2:3 Bjarni 55. Villijálmur 23:22 9. Agúst 3:3 56. 23:23 Siguróur 10. 3:4 llalldór 57. 23:24 Siguróur 12. Ilöróur H. 4:4 57. 23:25 Konráó 12. 4:5 Konráó 58. Höróur 24:25 13. Vilhjálmur (v) 5:5 59. Höróur H. 25:25 13. Bjarni B. 6:5 16. Bjarni II. 7:5 MÖRK IR: Brynjólfur Markússon 7. 17. 7:6 Sveinlaugur Agúst Svavarsson 6. Höróur llákonarson 18. Vilhjálmur (v) 8:6 4. Vilhjálmur Sigurgeirsson 4. Rjarni 19. 8:7 Konráó Bessason 2. Rjarni Hákonarson 2. 20. 8:8 Siguróur MÖRK ÞRÖTTAR: Konráó Jónsson 9. 23. Brynjólfur 9:8 Siguróur Sveinsson 7. Sveinlaugur 24. Bjarni H. 10:8 Kristjánsson 4, Halldór Bragason 3. 26. 10:9 Halldór <v) Bjarni Jónsson 1. (iunnar Arnason 1. 27. Vilhjálmur 11:9 MISNOTl’Ð VlTAKÖST: Örn 28. 11:10 (iunnar (iuómundsson IR varói \ftakast Konráós 28. Agúst 12:10 Jónssonar á 8. mfnútu. Halldór Bragason 29. 12:11 Konráó skaut í þverslá á 60. mín. Hálfleikur BROTTVlSANIR AF LEIKVELLI: Sig- 32. Brynjólfur 13:11 uróur (ifslason IR útaf í 7 mfnútur. Bjarni 33. 13:12 Siguróur Hákonarson IR í 4 mfnútur og Siguróur 34. Agúst 14:12 Svavarsson iR útaf f 2 mfnútur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.