Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÖVEMBER 1976 47 — Sigurður K. Waage... Framhald af bls. 2 og var einkaeigandi verk- smiðjunnar þar til 1939 er fyrir- tækið var gert að hlutafélagi. Sig- urður starfaði lengi að margs kon- ar félagsmálum. Hann var einn af stofnendum Félags islenzkra iðn- rekenda og í stjórn þeirra um árabil. Hann söng lengi með karlakór KFUM og sfðar í Fóst- bræðrum. Einnig söng hann með Dómkirkjukórnum. A yngri árum var hann með dugmestu íþrótta- mönnum Vikings í knatt- spyrnunni. Sigurður var þríkvæntur. Fyrsta kona hans, Kristín Helga, lézt 1938, önnur kona hans, Stein- unn, lézt 1962, en eftirlifandi kona hans er Lára Ágústsdóttir. — Krafla Framhald af bls. 48 hafa gengið saman um 8 milli- metra. Þá mun stöðvarhúsið við Kröflu hafa sigið um 10 milli- metra meira að norðan en sunn- an. 1 raun er ekki ljóst, hve mikið húsið allt hefur sigið. Mælingin er afstæð við suður- eða norðurgafl þess, þ.e. norðurendinn hefur sig- ið meir en suðurendinn. Þær hræringar, sem átt hafa sér stað nú síðustu daga, virðast eiga upptök sín við Gjástykki. Tilgáta jarðvlsindamannanna er sú, að hraunkvika sé að brjóta sér leið norður að Gjástykki neðanjarðar og valdi það jarðhræringunum. — Meira aðhald Framhald af bls. 48 burðar ber þess að geta, að við könnun hinn 19. marz s.l. komu fram 842 tékkar að fjár- hæð 12.2 millj. kr. sem ónóg innstæða var fyrir og námu þeir sem næst sama hlutfalli af veltu dagsins Reiknistofa bankanna vinnur nú sem næst alla tékka sem berast bönkum á Reykja- víkursvæðinu og næsta nágrenni, og er fjöldi tékka- reikninga, sem Reiknistofan annast vinnslu á nú, um 80 þús. Voru hreyfingar hjá henni aðfararnótt s.l. laugar- dags um 65.000, þar af tékkar um 46.500 talsins, og nam heildarfjárhæð útborgana 6.070 millj. kr. — Mótmæla Framhald af bls. 2 — Við viljum að það komi skýrt fram að þessum verkfallsaðgerð- um okkar er ekki beint gegn Guð- mundi Einarssyni persónulega, sagði Agnar Jónsson i gær. — Við kunnum hins vegar ekki við það, að í hálft ár áður en þessi staða var auglýst hefur það verið opinbert leyndarmál að hann fengi stöðuna. Auk hans sóttu tveir mjög reyndir starfsmenn fyrirtækisins um forstjórastöð- una, en hvorugur fékk. Þeir voru Hallur Hermannsson skrifstofu- stjóri, sem starfað hefur hjá fyrir- tækinu f rúm 30 ár, og Kristinn Helgason innkaupastjóri, sem verið hefur hjá fyrirtækinu í rúm 20 ár. Ef allt hefði verið með felldu hefði annar hvor þeirra átt að fá starfið, sagði Agnar Jóns- son. Fréttir aðeins úr f jölmiðlum Guðmundur Einarsson, hinn nýráðni forstjóri Skipaútgerðar- innar, sagði f viðtali við Morgun- blaðið í gær, að hann hefði ekki neinar fréttir af þessum verk- fallsaðgerðum, nema úr fjölmiðl- um í gærdag. — Þetta var fyrsti vinnudagur minn hjá Skipaút- gerðinni og ég vissi ekkert um þessar verkfallsaðgerðir þgar ég mætti til vinnu minnar, sagði Guðmundur. — Guðjón Teitsson, sem nú lætur af störfum sem for- stjóri, setti mig inn f starfið í gær, en af þvf gat ekki orðið að hann kynnti mig fyrir skrifstofufólk- inu, eins og áformað hafði verið. Aðspurður sagði Guðmundur, að honum hefði verið veitt staðan f september, en hvenær ráðherra hefði tekið ákvörðun um að veita honum stöðuna vissi hann ekki. Forstjóraskiptin Guðmundur Einarsson er fædd- ur í Reykholti 25. júnf 1943. Hann lauk prófi frá viðskiptadeild Ha- skóla tslands 1968. Hóf hann að námi loknu störf við Efnahags- stofnun rfkisins og starfaði þar m.a. að rannsóknum og áætlana- gerð f samgöngu- og byggðamál- um. Guðmundur var deildarstjóri launadeildar fjármálaráðuneytis- ins frá árinu 1974. Guðmundur er kvæntur Dóru Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn. Guðjón F. Teitsson, sem nú læt- ur af störfum sem forstjóri Skipa- útgerðarinnar fyrir aldurs sakir, hefur starfað við Skipaútgerð rfk- isins frá stofnun hennar 1929. Fyrstu árin sem skrifstofustjóri, undir stjórn Pálma heitins Lofts- sonar, en tók síðan við forstjóra- starfinu árið 1953. Guðjón hefur jafnframt því að vera forstjóri fyrirtækisins gegnt formanns- starfi í Stjórnarnefnd Skipaút- gerðar rfkisins og mun hann gegna þvf starfi áfram um sinn. — Barnakenn- arar... Framhald af bls. 48 prófið er virt á 90 stig, en það nýja á 140 stig meiðað við launa- greiðslur. Kennarar með gamla kennaraprófið fá nú 4 stig á ári f viðbót, en það sama fá kennarar með Kennaraháskólapróf. Kennari með gamla prófið þarf þvf að hafa 13 ára kennslu að baki til þess að hljóta sömu laun og byrjandi frá Kennaraháskólan- um. Kennaraháskólanemi á að koma einn dag i viku á öðru ári f barna- skólana og starfa með einum bekk, njóta handleiðslu kennarans og kenna bekknum. Enginn kennari er skyldugur til þess að sinna þessari æfinga- kennslu, en hins vegar ber skóla- stjóranum að taka við kennara- nemunum. Kennarafélag Hvassaleitisskóla samþykkti að sinna ekki lengur æfingakennslunni á þeirri for- sendu, að það væri óeðlilegt að minna metnnir kennarar í laun- um leiðbeindu þeim sem hærra væru metnir sökum menntunar einnar. — Vængir Framhald af bls. 29 um leyfum mannsins, en venjan mun vera að leita álits stéttar- félagsins hér innanlands. Hérlendis munu starfa flug- virkjar hjá Flugfélagi Norður- lands, sem hafa svipuð réttindi á Twin Otter og Erling Jóhannsson hafði, sem var hjá Vængjum. Valdimar sagði, að ef til vill væri unnt að veita undanþágu frá því að maðurinn hefði sveinsbréf í flugvirkjun, en hin skilyrðin tvö yrði maðurinn að uppfylla, annað væri ekki forsvaranlegt frá öryggissjónarmiði. Það væri vissulega hagsmunir flugvirkja að Vængir stæðu sig, en allra öryggiskrafna yrði að gæta til hins ftrasta. — Megn óánægja Framhald af bls. 5 laga varðandi Bifreiðaeftirfit rfkisins og breytingu á skrán- ingu bifreiða algjörlega óbrgytt frá fyrra þingi. Upphaflegt frumvarp var samið með tilliti til meintra hagsmuna Bifreiðaeftirlits rfkisins, og lagt fram á sfðasta Alþingi, án þess að Umferðar- laganefnd leitaði umsagnar ýmissa aðila sem málið varðar. I meðförum Alþingis var leitað umsagna um frumvarpið, og að þeim fengnum taldi Allsherjar- néfnd Alþingis ýmsa meinbugi á frumvarpinu auk þess sem ýmsar athugasemdir komu fram á Alþingi, sem treysti sér því ekki til að samþykkja frum- varpið. Þegar þetta frumvarp er nú endurflutt, þá er ekki tekið tillit til neinna þeirra athugasemda eða breytinga sem komið höfðu fram, og verður að átelja þá þvingun sem sýnd er með endurflutn- ingi á frumvarpinu óbreyttu." Og f lok ályktunarinnar segir: „Landsþing F.l.B. 1976 bend- ir á, að samkvæmt/frumvarpinu er gert ráð fyrir að Bifreiða- eftirlit ríkisins verði gert að sjálfstæðri stofnun með yfir- töku verkefna frá lögreglu- stjórum, og er þvf á þessu sviði sem öðrum stefnt að frekari miðstýringu valds f stað yfirlýs- inga um hið gagnstæða. Þingið leyfir sér að vara við þessari þróun, og bendir á, að mun eðlilegra sé að þessi verk- efni verði áfram í höndum lögreglustjóraembættanna, og bifreiðaeftirlitsmenn verði starfsmenn viðkomandi embætta og starfi á ábyrgð þeira, en sé ekki fjarstýrt frá Reykjavfk eins og nú á sér stað.“ — Afþreyingar- heimili... Framhald af bls. 2 ólíks aldurs vistmanna, sem eru allt frá 2 ára upp f 37 ára. Hins vegar þykir núorðið rétt að greina vistmenn nokkuð að eft- ir aldri og getu og álitið að með því móti geti þeir fengið meiri og betri þjálfun við sitt hæfi. t stuttu máli má því segja að þarna sé um að ræða heimili fyrir þá, sem hafa fremur litla getu til náms og starfs. Með byggingu þessa heimilis vinnst tvennt einkanlega, annars veg- ar að nokkrir vistmenn sem dvelja nú á dagvistunarheimil- um geta farið á þetta heimili og um leið opnast sá möguleiki að taka fleiri vistmenn á þær stofnanir sem fyrir eru. í öðru lagi getur félagið aukið starf- semi sína og veitt skjólstæðing- um sinum betri þjónustu. Hvar er ráðgert að þetta heimili verði? Fyrirhugað er að reisa þessa byggingu á lóð þeirri sem Styrktarfélag vangefinna á við Stjörnugróf sunnan við Bjarkarásheimilið sem þar er nú. Húsið er nú á teikniborðinu og er gert ráð fyrir um 400 fm. húsi. Við fyrstu hentugleika verður síðan hafizt handa um bygginguna og þess má geta að forstöðukona Bjarkaráss, Gréta Bachmann, er nú í Noregi til að kynna sér rekstur slíks heimil- is. Þá sagði Guðmundur Einars- son að forráðamenn Styrktar- félags vangefinna hefðu rætt við borgarstjóra um þessa fyrir- huguðu byggingu og hefði hann tekið mjög jákvæða afstöðu til málsins. Þórður Þorbjarnarson, borgarverkfræðingur, kannaði þetta mál nú frá skipulagslegu sjónarmiði. Hann sagði að Hjálparstofnunin vildi með þessu átaki stuðla að því að þessi draumur um bætta að- stöðu vangefinna og ætti Hjálparstofnunin þar allt undir skilningi gefenda. Hvernig hefur undirbúningi herferðarinnar verið háttað? Við reynum að sjálfsögðu jafnframt söfnuninni sjálfri að koma upplýsingum til almenn- ings um aðstöðu eða öllu heldur aðstöðuleysi vangefinna á sem víðtækastan hátt. Það er undir- staða þess að fólk geri sér grein fyrir þeirri aðstöðu sem þetta fólk býr við. 1 því skyni höfum við gefið út 3 blöð i dagblaðs- formi og nú síðast blað sem er dreift í 12 þúsund eintökum ásamt veggspjaldi, sem verður sett víða upp. I útvarpsþáttum, sem gerðir eru í sama augna- miði og sendir verða út í vik- unni, verður einnig fræðsla um þessi málefni. Ertu bjartsýnn á að takast muni að ná því fé sem þarf til byggingarinnar? Með hliðsjón af þeim já- kvæðu undirtektum sem við fengum á síðustu fórnarviku þegar ekki var um eiginlega söfnun að ræða heldur frekar kynningu á málefnum þroska- heftra barna þá er óhætt að segja að almenningur hafi vakriað til vitundar um það að- stöðuleysi sem þessi minni máttar þjóðfélagshópur býr við og ekki getur barizt fyrir mál- um sfnum sjálfur. Ég hlýt því að vera bjartsýnn á að fólk liggi ekki á liði sínu og hver og einn leggi sitt af mörkum til að ná þessu takmarki. Fólkið í land- inu hefur áður sýnt samstöðu þegar koma þarf til hjálpar þeim sem minna mega sín á erlendri grund, en hér er um að ræða verkefni við okkar bæjar- dyr þar sem engin hætta er á að milliliðir taki eitthvað af því fé sem safnast, heldur gengur það óskert til þessa verkefnis. Að lokum var Guðmundur inntur eftir því af hverju Hjálparstofnunin tæki nú að sér innlent verkefni, oftast hefðu slík söfnunarverkefni verið erlend. — Já, það er rétt að Hjálpar- stofnunin hefur einkanlega á undanförnum árum barizt fyrir málefnum sém eru utan okkar lands. Hins vegar er einföld ástæða fyrir því að við tökum nú þetta innlenda verkefni. Hjálparstofnunin hefur allt frá upphafi hjálpað einstaklingum hér heima sem átt hafa í erfið- leikum, þótt hljótt hafi farið um þá starfsemi. Hefur mest verið farið eftir ábendingum presta í þessu efni. Gegnum það starf hefur okkur orðið ljóst það alvarlega aðstöðuleysi sem þessi þjóðfélagshópur býr við og hve lítið stjórnvöld hafa getað sinnt þessum málaflokki. Það er ljóst að ef bíða hefði átt eftir aðgerðum hins opinbera hefði sú bið getað orðið löng svo þarna þurfti að koma til myndarlegt átak fra almenn- ingi sem þá jafnframt ýtti við stjórnvöldum til aðgerða, sagði Guðmundur Einarsson að lok- um. — Ekkert hægt að spá... Framhald af bls. 1. Pennsylvaníu, Michigan, Illinois og Ohio þrátt fyrir mikla herferð demókrata til að smala kjósend- um á kjörstað. Talsmenn Fords forseta sögðu að ef kosningaþátttaka i þessum fylkjum yrði um 50% myndi Ford sigra en ef hún færi mikið yfir 55% myndi Carter hafa það. Stjórnmálafréttaritarar eru yfir- leitt sammála um að hin mikla fylgisaukning forsetans á síðustu dögum eigi rætur sínar að rekja til þess að óháðir kjósendur hafa fylkt sér um hann fremur en Carter. Þessir kjósendur hafa ekki látið álit sitt I ljós fyrr en nú, því að í skoðanakönnunum hefur yfirleitt alltaf verið spurt um stuðning við Ford og Carter eftir flokkslínum. Þeir benda á að þótt Harry Truman 1948 og Hubert Humphrey 1968 hafi sótt mikið I sig veðrið síðustu daga kosninga- baráttunnar hafi þeir aldrei verið eins langt á eftir eins og Ford var 1 ár, en um tíma hafði Carter 33% meira fylgi en hann og slðast I ágúst var mundurinn 18. Skoðanakönnun New York Times og CBS sem kunngerð var i morgun segir að það hafi verið afstaða forsetans til helztu mál- efna kosningabaráttunnar, m.a. heit um að berjast gegn verðbólg- unni, reynsla hans og sú stað- reynd, að hann er forseti lands- ins, sem hafi verið helzta ástæðan fyrir þvl, að óháðir kjósendur fylgtu sér um hann. Skv. þessari könnun er allt talið benda til, að kosningarnar verði einhverjar þær tvfsýnustu sem fram hafi far- ið og er líkt við kosningarnar 1960 er Kennedy sigraði Nixon með 120 þúsund atkvæða mun. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Jack Ford, son forsetans, að- eins að máli á New York flugvelli slðdegis I gær, er hann kom þang- að með einkaflugvél til að sækja kosningafundi I New York, og spurði hann hvað hann teldi um úrslitin. Hann svaraði því til, að það væri ekki minnsti vafi á að faðir sinn myndi sigra með tölu- verðum mun, ekkert gæti stöðvað sókn hans úr þessu. Aðspurður hverjar hann teldi aðstæðurnar fyrir þvi, að faðir hans hefði sótt svo I sig verðrið, sagði Ford: „Við höfum alltaf vitað að meirihluta kjósenda styddi forsetann, það tók hann aðeins lengri tíma en við áttum von á að sýna það." Ford og Carter hafa undan- farna daga farið sem eldibrandar um helztu baráttufylkin I Mið- vesturríkjunum og á austur- ströndinni og I dag verða báðir á sömu slóðum I Ohio og Penn- sylvaníu og hugsanlega verður ákveðið á slðustu stundu að koma vfðar við. Á morgun verða báðir komnirtil heimastöðva sinna.Cart- er til Plains I Georglu og Ford I Michigan þar sem greiðir atkvæði áður en hann heldur til Washington til að fylgjast með úrslitunum. Báðir menn eru orðn- ir mjög þreytulegir að sjá, þóti þeir beri sig vel enda hefur álagið á þá verið gífurlegt og alls ekki mannlegt, eins og einn stjórnmálafréttaritari CBS- fréttastofunnar sagði. Hann sagði, að það eitt að þeir hafi lifað þessa kosningabaráttu af réttlæti kosningu hvors sem væri, þeir hefðu sýnt það svo ekki væri um að villast, að þeir þyldu ofur- mannlegt álag. Eina spurningin væri hvort bandarískir kjósendur hefðu þolað álag baráttunnar þannig að þeir gætu valið rétt. — 0 — Frá Reuter-fréttastofunni. JIMMY Carter sagði I dag, að til- raun svertingjaprests til að fá að prédika I baptistakirkju I Plains, heimabæ Carters, en Carter til- heyrir þeirri kirkju, hefði átt póli- tfskar rætur. Carter sagði á blaða- mannafundi, sem kallaður var óvænt saman, að deilurnar um ákvörðun stjórnar kirkjunnar um að hafa enga messu sfðasta sunnu- dag frekar en að láta svertingjann prédika yllu sér miklum leiða. Kvaðst hann ekki vera sáttur við þessa ákvörðun en að hann teldi ekki ástæðu fyrir sig að segja sig úr söfnuðinum vegna hennar. Carter á allt sitt undir atkvæðum svertingja I kosningunum á þriðjudag. „Ég get ekki sagt mig úr mann- legu samfélagi vegna þess að þar er misrétti,“ sagði Carter. „Ég ætla ekki að segja mig úr kirkju minni. Þetta er ekki mfn kirkja, þetta er guðs kirkja." Á meðan Carter talaði á blaða- mannafundinum reyndu blökku- mannaleiðtogar, sem styðja hann, að bera I bætifláka fyrir hann og prestur kirkjunnar skýrði frá þvf, að stjórn hennar hefði beðið hann um að segja af sér. Carter sagði á blaðamannafund- inum að tilraun svarts prests, Clennon Kings, til að fá inngöngu f kirkju baptista í Plains, en allur söfnuður hennar er hvftur, hefði verið pólitfsk. Væri presturinn f nánu sambandi við blaðaútgef- andann Jim Gray, sem hefði lengi verið hatrammur andstæðingur Carters. Éngu að sfður kvaðst hann harma að þetta hefði gerzt og sagði að kirkjan hefði átt að vera manninum opin. Margir helztu leiðtogar blökku- manna, þar á meðal séra Martin Luther King og Coretta King, fað- ir og ekkja hins látna Martins Luthers King, og Adrew Young, þingmaður frá Georgfu, ítrekuðu stuðning sinn við Carter f dag. Bruce Edwards, prestur baptistakirkjunnar, sagði í dag að hann væri á móti þvf að aðeins hvítir menn fengju að vera í söfn- uða kirkjunnar og því hefðu allir stjórnarmenn hennar, nema Jimmy Carter, samþykkt að mæla með því við hann að hann segði af sér. Gerald Ford, forseti, fór f dag um Ohio, sem er eitt af 8 mikil- vægustu fylkjunum í kosningun- um, og bað hann fólk um að styðja sig með bænum og atkvæðum. Er hann og aðstoðarfólk hans orðið mjög vongott um að hann muni bera sigur úr býtum á morgun. Á hverjum viðkomustað f fylk- inu sagði Ford við áheyrendur sfna: „Fyrir tveimur árum bað ég ykkur að styðja mig með bænum. A morgun bið ég ykkur að styðja mig með bænum, en einnig með atkvæðum." Forsetinn fór einnig um heima- fylki sitt, Michigan, og gerði sið- ustu tilraun til að tryggja sér sig- ur þar. Þessi tvö fylki hafa saman- lagt 46 kjörmenn og eru mjög mikilvæg. Allt frá árinu 1932 hef- ur sá forsetaframbjóðandi, sem sigrað hefur f þessum fylkjum, sigrað kosningarnar. Tap í Michigan yrði mikið áfall fyrir Ford, en hann var skipaður for- seti eftir að Nixon sagði af sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.