Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 48
Vimmslys
við Kröflu
Björk, Mývatnssveft, 1. nóvember —
I MORGUN varð vinnuslys norð-
ur í Kröflu, er verið var að hí fa
með krana. Skyndilega varð bilun
í bómu kranans með þeim af-
leiðingum að hún féll niður og
slóst í höfuð á manni, sem þar var
að vinna. Mun maðurinn hafa
slasazt mikið. Var hann þegar
fluttur í sjúkrabfl á Aðaldalsflug-
völl og þaðan með flugvél til
Reykjavfkur á Borgarsjúkrahús-
ið.
Maðurinn mun hafa höfuð-
kúpubrotnað. Kristján
VÉLSKÓFLUSTUNGA — Borgarstjórinn í Reykjavík, Birgir ísleif-
ur Gunnarsson, tók á sunnudaginn fyrstu skóflustunguna að borgar-
leikhúsi í Reykjavík og notaði reyndar til þess vélskóflu. Viðstaddir
fagna þessum áfanga innilega og eru þær Vigdís Finnborgadóttir
leikhússtjóri og Emilía Waage fyrir miðri mynd. Sjá miðopnu.
„Verður á hreinu um ára-
mótin hvort Fischer og
Karpov mætast í einvígi”
segir Campomanes í einkasamtali við Mbl.
Ólympluskðkmðtið — Sjá bls 22
□-------------------------□
Einkaskeyti tii Mbl. frá
Einari S. Einarssyni, Haifa,
tsrael:
— UM ARAMÖTIN ætti það að
vera komið á hreint hvort eitt-
hvað verður úr einvfgí Fischers
og Karpovs, sagði
Campomanes, einn varaforseta
Alþjóðaskáksambandsins og
einkavinur Bobby Fischers, f
samtali við ofanritaðan um
helgina. Campomanes hefur
staðið f tfmafrekum samninga-
viðræðum um að koma slfku
einvfgi á, en hann er helzti
hvatamaðurinn að þvf að ein-
vfgið fari fram. Campomanes
veit það, að ef Fischer teflir
aftur opinberlega verður það
einvfgi við heimsmeistarann,
að öðrum kosti mun hann ekki
tefla. — Það er af og frá að
Fischer taki þátt f áskorenda-
keppni, segir Campomanes um
þennan sérvitra vin sinn, sem
ekkert hefur teflt opinberlega
síðan f Reykjavfk 1972.
t setustofu Dan Carmel
hótelsins er þröngt á þingi.
Einn er hér maður mjög
brúnleitur, með yfirvaraskegg
fagurklippt, breiðleitur, hárið
tinnusvart, brúneygður og
þybbinn nokkuð. Þetta er
Campomanes, forseti skáksam-
bands Filippseyja og einn af
þrem varaforsetum FIDE,
alþjóðaskáksambandsins en
það riðar nú til falls á 52.
aldursári sínu.
Að undanförnu hefur Robert
James Fischer, fyrrverandi
heimsmeistari f skák, dvalist í
heimsókn hjá honum í Manilla.
Robert Fischer
Við tókum Campomanes tali
yfir kaffibolla.
Campomanes kveðst hafa feng-
ið dularfulla upphringingu frá
Islandi um daginn. Fyrst hafi
verið hringt og spurt um hann
en hann þá ekki verið við. Því
Framhald á bls. 29
Barnaskólakennarar í Reykjavík:
Ljósmynd Ól.K.M.
Ætla ekki að mæta til
kennslu n.k. mánudag
Vísa kennaranemum úr æíingakennslu vegna launamis-
munar—Kennaranemar lýsa yfir stuðningi við kennarana
ALLIR kennarar við barna-
skólana f Reykjavfk, sem eru
félagar f Sambandi fslenzkra
barnakennara (StB), hafa ákveð-
ið að mæta ekki til kennslu f
skólunum n.k. mánudag 8. nóv. f
mótmælaskyni við það ástand,
sem rfkir f launa- og réttindamál-
um stéttarinnar, segir f fréttatil-
kynningu f gær frá Stéttarfélagi
barnakennara f Reykjavfk. Þess f
stað munu þeir mæta til fundar-
halda á vinnutfma sfnum og ræða
um stöðu málanna eins og þau
blasa við nú og hvaða aðgerðum
skuli beitt til að ná settu marki.
Þá hafa kennarafélög margra
barnaskólanna f Reykjavfk ákveð-
ið að vfsa frá æfingakennslu
nemendum úr Kennaraháskóla
lslands á meðan kennarar með
réttindi frá gamla Kennara-
skólanum njóta ekki sömu
réttinda f launum og þeir sem
útskrifast frá Kennaraháskólan-
um, en kennari með gamla prófið
þarf að hafa verið 13 ár f starfi til
að fá sömu laun og byrjendur úr
Kennaraháskólanum.
Þau kennarafélög sem ekki
hafa ákveðið að vísa
Kennaraháskólanemum nú þegar
frá æfingakennslu hafa tilkynnt
að engin slík kennsla fari fram
eftir áramót að óbreyttu ástandi.
Meirihluti almenns fundar
neménda í Kennaraháskóla
Islands samþykkti f gær
stuðningsyfirlýsingu við aðgerðir
barnakennara, en ekki er hægt að
útskrifa kennara úr
Kennaraháskóla Islands nema
þeir hafi ákveðna æfingakennslu.
Kennarafélag Hvassaleitisskóla
reið á vaðið varðandi aðgerðir
gegn æfingakennslunni og vísuðu
þeir kennaranemum frá f sfðustu
viku. Astæðan fyrir ákvörðun
kennarafélagsins var sú. að
kennurum finnst mismunurinn
sem er á stigagjöf fyrir nýja og
gamla kennaraprófið mjög
óréttlátur en laun eru reiknuð út
eftir stigafjölda. Gamla kennara-
Framhald á bls. 47.
Enn einn í
gæzlu í gær
ENN einum manni var f gær
stungið inn vegna ffkniefnamáls-
ins mikla, sem nú er f rannsókn
Er þetta 21 árs gamall maður, og
Banaslys í
Þorlákshöfn
Þrjátfu og þriggja ára gamall
maður, Hrafn Guðlaugsson,
sprengingasérfræðingur Istaks
h.f., til heimilis að Möðrufelli 9 f
Reykjavfk, beið bana f Þorláks-
höfn aðfararnótt sunnudags, er
hann varð á milli borvagns og
vatnsgeymis um borð f bát f höfn-
inni. Hrafn var kvæntur og
tveggja barna faðir.
Tildrög slyssins voru þau, að
bora átti í klöpp í höfninni, sem
átti að sprengja. Verið var að
setja borvagninn út í bát í höfn-
inni og hafði tekizt að koma
honum um borð. Rann þá pallur-
inn skyndilega til á dekkinu og
lenti á Hrafni, sem varð milli
pallsins og vatnsgeymis. Mun
Hrafn heitinn hafa látizt sam-
stundis.
Atburður þessi gerðist um
klukkan 02 aðfararnótt sunnu-
dags, en aðeins var unnt að flytja
borpallinn um borð i bátinn á
ákveðinni sjávarhæð. Þetta er
fyrsta slysið, sem verður við
hafnargerðina i Þorlákshöfn sem
svo alvarlegt er, en áður hafði
maður slasazt á fæti.
Enn gengur
jörðin til
við Kröflu
EITTHVAÐ eru hræringar hér
minni en þær voru I gærmorgun,
sagði Þorkell Erlingsson, verk-
fræðingur við Kröflu, er Mbl.
ræddi víð hann I gær. Þorkell
kvað framkvæmdir við Kröflu
ganga vel enda hefðu menn verið
heppnir með veðurfar og snjór
hefði enn ekki komið á virkjunar-
svæðið, þótt kominn væri nóvem-
ber.
Orkustofnun vann i gær að
mælingum á svæðinu og vestan
við Leirhnúk munu sprungur
Framhald á bls. 47.
var hann úrskurðaður f allt að 30
daga gæzluvarðhald.
Nú sitja í gæzluvarðhaldi 6
ungir menn vegna þessa máls og
sjöundi maðurinn situr inni
vegna sölu á amfetamfni á Kefla-
vikurflugvelli I síðustu viku. Sá
maður var sá fyrstí, sem handtek-
inn var vegna stóra fíkniefna-
málsins, en það var í júlí s.l.
Honum var sleppt, en nú er hann
kominn inn á nýjan leik og er
verið að kanna hvort þetta mál
kann að tengjast stóra málinu á
einhvern hátt. Sá maður er einnig
21 árs gamall.
Skyndikönnun:
Meira aðhald
í meðferð á-
vísanamála
AÐ KVÖLDI s.l. föstudags fór
fram skyndikönnun innstæðu-
lausra ávfsana á vegum Seðla-
bankans. Könnunin náði m.a.
til innlánsstofnana f Reykja-
vfk, Kópavogi, Hafnarfirði,
Keflavfk og Selfossi. Fram
komu 403 innstæðulausar ávfs-
anir að f járhæð 18,8 milljónir.
Þar af voru 43 ávfsanir útgefn-
ar af 19 aðilum, að fjárhæð
samtals 12,765.000- krónur en
hinar 306 ávísanirnar voru
samtals að fjárhæð um 6
milljónir króna. Björn
Tryggvason, aðstoðarseðla-
bankastjóri, sagði f samtali við
Mbl. f gærkvöldi, að þessir 19
fyrrnefndu aðilar væru lang-
flestir fyrirtæki. Sagði Björn,
að þeir hjá Seðlabankanum
væru ánægðir með útkomuna
úr könnuninni, hún væri
heldur betri en hefði verið að
jafnaði undanfarin 10 ár og
greinilega hefði gætt meira að-
halds f meðferð ávfsanamála
gagnvart reikningshöfum.
I könnuninni komu fram alls
403 tékkar án fullnægjandi
innstæðu eins og fyrr segir að
fjárhæð samtals kr. 18,8 millj.,
sem reyndist vera 0.369% af
veltu föstudagsins f ávisana-
skiptum við Reiknistofu bank-
anna og Seðlabankann, sem
nam 5.103 millj. kr. Til saman-
Framhald á bls. 47.