Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1976 27 — Hversu glæsileg og fullkomin sem þessi bygging verður, verður hún aldrei að leikhúsi, lifandi leikhúsi, nema fyrir það starf og þau listrænu afrek, sem þar verða unnin, sagði Steindór Hjörleifsson, formaður Leikfélags Reykjavíkur, með:l annars eftir að fyrsta skóflustungan hafði verið tekin að Borgarleik- húsi ( Reykjavík í fyrradag. Fyrsta skóflustungan var reyndar ekki tekin eins og venjulegast þegar merkilegar fram- kvæmdir fara af stað. Vélskófla var notuð við þennan merka atburð og það var borgarstjórinn í Reykjavík, Birgir ísleifur Gunnarsson, sem það gerði. Mælti hann nokkur orð við þessa athöfn, sömuleiðis Steindór Hjörleifsson, for- maður LR, og í hófi að þessari athöfn í Kringlu- mýrinni lokinni flutti Vigdís Finnbogadóttir, leikhússtjóri, stutt ávarp. í hófi a8 athöfninni lokinni, hægra megin vi8 borðið sitja Steindór Hjörleifsson, formaSur Leikfélags Reykjavikur, og Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri. Ljósmynd öl.K.M. Birgir ísleifur Gunnarsson tekur fyrstu skóflustunguna a8 borgarleikhúsinu. Steindór Hjörleifsson sagði í sínu ávarpi að . viðstaddir skyldu minnast þeirra sem hefðu átt þann draum með þeim að Borgarleikhús risi f Reykjavik, en væru ekki lengur með þeim. Sagði Steindór Hjörleifsson í viðtali við Morgunblaðið í gær, að honum fyndist þessi áfangi að sjálfsögðu mjög merkur og tími til kominn að hann næðist. — Við höldum áfram ótrauð fram veginn og þetta gengur örugglega allt vel ef guð og gæfan verða okkur hliðholl, sagði Stein- dór. Eignaraðildeftirframlögum Leikfélag Reykjavikur og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samning þess efnis, að lokinni byggingu leik- hússins verði eignaraðild hvors aðila metin eftir fram- lögum. Byggingasjóðir Leik- félagsins hafa nú verið af- hentir Reykjavikurborg sem sjá mun um byggingu húss- ins. Leikfélagið mun halda áfram að efna til skemmtana og verður ágóðanum sem fyrr varið til byggingar Borgarleikhússins. í þessum mánuði er einmitt áætlað að frumsýna í Austurbæjarbfói „Kjarnorku og kvenhylli". Borgarleikhúsið á sem kunnugt er að standa í nýja miðbænum austan við Kringlumýrarbraut, sunnan Miklubrautar. Fyrsti áfangi verksins hefur verið boðinn út og er þar um að ræða gröft fyrir grunni go botnplötu. Á þeim áfanga að vera lokið fyrir 1. mai næsta ár og var útboðsverðið 54 milljónir króna. Áætlaður bygginga- kostnaður Borgarleikhússins alls er 940 milljónir króna. Aðspurður sagði Birgir ís- leifur Gunnarsson í gær, að hann gæti ekki sagt um það á þessu stigi málsins hve miklu fé yrði veitt til bygging- ar hússins árlega. Það færi eftir fjárhagsáætlun borgar- innar hverju sinni. í bygging- arnefnd hússins eiga sæti Gústaf A. Pálsson, fyrrum borgarverkfræðingur, Ólafur B. Thors af hálfu Reykjavik- urborgar og Guðmundur Pálsson fyrir hönd Leikfélags Reykjavikur. Arkitektar að húsinu eru þeir Guðmundur Kr. Guðmundsson, Ólafur Sigurðsson og Þorsteinn Gunnarsson leikari. BRYNJÓLFUR BYRJAÐI í ávarði sinu á sunnudag- inn rakti Vigdís Finnboga- dóttir leikhússtjóri þátt Leik- félags Reykjavíkur í þeim áfanga, sem hefði náðst með því að fyrsta skólfustungan að Borgarleikhús hefði nú verið tekin Sagði Vigdís m .a ., að vorið 1953 hefði Brynjólfur Jóhannesson lagt til að 25 þúsund krónur af ágóða LR leikárið 1 952—53 yrði varið til stofnunar húsbygginga- sjóðs LR, sem með tíð og tíma yrði varið til byggingar leikhúss fyrir Leikfélagið. Húsbygginganefnd hefði ver- ið skipuð ög samstarfs hefði siðar meir verið leitað hjá Reykjavíkurborg, sem sýnt hefði þessu máli mikinn áhuga og skilning allan tím- ann. Fé hefði nú verið safnað I þessu augnamiði í 23 ár og áfram yrði haldið þar til byggingin yrði komin upp og Leikfélag Reykjavíkur komið þangað með starfsemi sína. Ólafur B. Thors, sem sæti á í byggingarnefnd borgarleikhússins af hálfu Reykjavikur- borgar, Guðmundur Kr. GuSmundsson arkitekt, Guðmundur Pálsson í byggingarnefnd af hálfu LR, DavíS Oddsson borgarfulltrúi og Sonja Bachmann borgarstjórafrú voru meðal viSstaddra er fysta skóflustungan var tekin að borgarleikhúsinu. „ALDREI LIFANDI LEIKHÚS NEMA FYRIR ÞAÐ STARF OG ÞAU LISTRÆNU AFREK. SEM ÞAR VERÐA UNNIN..."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.