Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NOVEMBER 1976
13
„Fiðrildi” í
suðrænni sól
ELDRI bæjarbúar I Kópavogi
hafa um nokkurra ára skeið haft
með sér félagsskap, og ekki alls
fyrir löngu fékk félagsskapurinn
nafn, og nefnist „Fiðrildin".
t október s.l. skriðu 30—40
fiðrildi úr púpunum og flugu til
Mallorca þar sem þau flögruðu
um f sólinni f hálfan mánuð.
Þessi starfsemi er á vegum
Félagsmálastofnunar Kópavogs
Taflfélagid
skuldar tæp-
ar 2,3 millj-
ónir kr.
vegna al-
þjóðamótsins
og hefur Asthildur Pétursdóttir
haft mikið með þessa starfsemi að
gera og var m.a. fararstjóri I
ferðinni til Mallorca.
Asthildur sagði að nafnið hefði
eiginlega komið til af því að hún
hefði farið til Svíþjóðar og Dan-
merkur í sumar til að kynna sé
málefni aldraðra í þessum
löndum og hefði hún tekið eftir
því að þessar þjóðir notuðu mikið
blómanöfn á slík félög. „Svo vild-
um við heldur ekki tengja nafnið
gömlu fólki á nokkurn hátt,“
sagði hún.
„Ferðin til Mallorca heppnaðist
sérlga vel,“ hélt hún áfram. Það
var greinilegt hve fólkið naut
þess að vera frítt og frjálst og það
var eins og margir skildu eftir
ýmsa krankleika þarna fyrir
sunnan. Mér fannst reynslan af
þessu það góð, að ég vil endilega
hvetja til að meira verði gert af
slíku.“
Ljósm. Kristinn Olafsson.
RÚMLEGA sjötug kona varð fyrir bifreið á Hringbraut við Laufásveg síðdegis á föstudag. Konan var á
leið suður yfir götuna og hafði bfll á vesturleið stöðvað fyrir henni. Ónnur bifreið, einnig á vesturleið,
ók fram úr hinni og lenti á konunni. Hún var flutt á slysadeild en reyndist ekki alvarlega slösuð.
Miklar umferðartafir urðu á meðan lögreglumenn gerðu mælingar á slysstaðnum. Ljósmyndin er af
vettvangi, og hafa plastmerki verið sett upp þar sem skór konunnar eru.
ÞAÐ KOM fram á aðalfundi Tafl-
félags Reykjavfkur nýverið, að
gffurlegt tap varð á alþjóðlega
skákmótinu, sem félagið stóð fyr-
ir f Hagaskóla s.l. haust. Sam-
kvæmt bráðabirgðauppgjöri er
tapið 1,6 milljónir króna. Skuldir
félagsins vegna mótsins eru nú
tæpar 2.3 milljónir króna og aðr-
ar skuldir rúm ein milljón.
Lausaskuldir félagsins nema alls
3.3 milljónum króna, þar af gjald-
falla skuldir að upphæð 2,4 millj-
ónir fyrir áramót og engir pening-
ar til, að sögn Olafs H. Ólafssonar
ritara félagsins.
1 skýrslu stjórnar félagsins
kemur fram að allur tilkostnaður
við alþjóðlegu skákmótin hefur
margfaldast ár frá ári á meðan
styrkir rfkis og borgar hafa litið
hækkað. Segir f skýrslunni að
styrkir þessara aðila verði að
hækka úr 500 þúsundum í 1600
þúsund á næsta ári ef endar eiga
að ná saman. Fáist opinberir
styrkir ekki hækkaðir sé félags-
samtökum eins og Taflfélagi
Reykjavíkur ekki stætt á þvf að
leggja út I annað eins fjármála-
ævintýri og að halda alþjóðlegt
skákmót.
A aðalfundinum baðst Guðfinn-
ur Kjartansson undan endurkjöri
sem formaður TR. Var í hans stað
kjörinn formaður Ólafur Björns-
son. Sagði Ólafur H. Ólafsson rit-
ari að hinnar nýju stjórnar biði
mikið starf i bönkum landsins,
eins og reikningar félagsins
bentu til.
„....ella segi ráð-
herra af sér”
Nemendaráð Tækniskóla Is-
lands hefur sent menntamálaráð-
herra, Vilhjálmi Hjálmarssyni,
eftirfarandi:
„Aðalfundur nemendaráðs
Tækniskóla Islands mótmælir
harðlega þeim gerræðislegu
vinnubrögðum, sem viðhöfð hafa
verið við samning og frágang út-
hlutunarreglna Lánasjóðs ís-
lenzkra námsmanna.
Aðalfundur N.T.Í. krefst þess,
að ráðherra dragi undirskrift sína
til baka og leiðrétti úthlutunar-
reglur þannig að sanngjarnar
megi teljast, ella segi ráðherra af
sér.
f.f. Nemendaráðs T.I.
Hermann Hermannsson,"
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
AUGLYSINGA-
SIMINN KR:
22480
PHILCO þVOTTAVÉLAR
frábaerqæði
1. Heitt og kalt vatn inn — sparar tíma og
rafmagnskostnað.
2. Vinduhraði allt að 850 snún/mín — flýtir
þurrkun ótrúlega.
3. 4 hitastig (32/45/60/90°C) — hentar.öll-
um þvotti.
4. 2 stillingar fyrir vatnsmagn—orkusparnaður.
5. Viðurkennt ullarkerfi.
6. Stór þvottabelgur — þvær betur fulla vél.
7. 3 mismunandi hraðar í þvotti og tveir í vindu
—tryggir rétta meðferð alls þvottar.
8. Stór hurð — auðveldar hleðslu.
9. 3 hólf fyrir sápu og mýkingarefni.
10. Fjöldi kerfa — hentar þörfum og þoli alls
þvottar.
11. Nýtt stjórnborð skýrir með táknum hvert
þvottakerfi.
12. Fullkomin viðgerðarþjónusta — yðar hagur.
3FALT SÁPUHÓLF
PHILCO ÞURRKARI
ln
BHB 5FTÍ1
Sparið rým::
Þurrkarinn ofan á þvottavél-
inni og handhægt útdregið
vinnuborð á milli.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 SÆTÚNI 8 —15655