Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1976
Grein og myndir:
Þórleifur Ólafsson
„Það er miklu auðveldara að þjálfa háhyrninga, en
höfiunga. Höfrungar eru eins og mennirnir, sumir
bráðgáfaðir, en aðrir nautheimskir og læra aldrei neitt.
Hins vegar hefur aldrei veiðst heimskur háhyrningur og
þeir læra yfirleitt á 3 vikum það, sem höfrungar læra á
minnst þrem mánuðum,“ sagði enski dýratemjarinn
Martin Padley við blaðamann Morgunblaðsins skömmu
eftir að DC-6B flugvél
Iscargo var lögð af stað
frá Höfn í Hornafirði s.l.
fimmtudag til Nizza f
Frakklandi með háhyrninginn Jóhönnu innanborðs, f
sædýrasafnið Marineland, sem er einkaeign Frakkans
Roland de la Poype. Um leið og Iscargo-vélin sleppti
hjólunum frá flugbrautinni á Höfn hrópaði Padley
„júbbí, júbbí,“ svo mikil var gleði hans, enda hafði veiði
Jóhönnu kostað gífurlegt fé og fyrirhöfn. Fyrst fór
Marineland að huga að veiði háhyrnings hér við land
fyrir þremur árum og samkvæmt tölum sem Mbl. fékk
uppgefnar í Marineland er ekki fjarri lagi að veiði og
flutningur „Jóhönnu“ til Marineland hafi kostað 110
þúsund dollara eða um 22 milljónir króna.
Það gekk vel að koma
kerinu, sem „Jóhanna“ var
geymd í fyrir í flug-
vélinni, enda margar hjálp-
fúsar hendur á lofti. Þegar búið
var að skorða það af í vélinni
var strax farið í loftið og stefna
um, og því ættu háhyrningar þá
ekki að geta það?“
Heppilegasta
stærðin 3.5 metrar
Að vísu sagðist Padley álíta
að „Jóhanna" væri lítið eitt of
„Höfrungar geta ver-
ið nautheimskir en
heimsKur há
hyrningur
n helur
aldrel
velðst
99
Jóhanna tekin út 'r Iscargo-vélinni I Nizza.
/í.wí- ■/
Það er gott að slappa af f rigning-
unni.
SAGT FRÁ FÖR HÁHYRNINGS-
INS JÓHÖNNU" MEÐISCARGO
TIL NIZZA í FRAKKLANDI
Hér brosir Calypso sfnu bifðasta til stúlkunnar, seni er að klappa
honum.
tekin á Nizza, þá frægu borg á
frönsku Riveríunni. Hallgrím-
ur Jónsson flugstjóri fékk leyfi
til að fljúga í 7000 feta hæð aila
leiðina. Var það gert til þess að
loftþrýstingurinn yrði sem lík-
astur því sem ha n er v sjávar-
mál. Þótt flogið væri í þessari
hæð, haggaðist vélin aldrei á
leiðinni, enda sneiddi Hallgrím-
ur meðfram öllum „skýjafront-
um“ sem sáust á leiðinni.
„Jóhanna" lá á 60 sm þykkri
svampdýnu á leiðinni í karinu,
en það var síðan klætt að innan
með nælon dúk sem Seglagerð-
in Ægir saumaði og vatns-
heldum krossviði. Áður en
„Jóhanna" var sett um borð í
flugvélina var sérstakur áburð-
ur borinn á hornið á henni,
sömuleiðis á bægslin, sporðinn
og trýnið. Þá var handklæða-
efni sett yfir hana og sífellt
ausið yfir vatni.
Strax og vélin hafði náð fullri
hæð var dælt 600 lítrum af
vatni í búrið með handdælu, en
vatnið var sett um borð I tunn-
um, sfðan var settur skelís út i
vatnið til að halda þvf sem köld-
ustu. Nú var handdælan flutt
yfir f kerið og stanzlaust dælt
vatni yfir, efri hluta hvalsins.
Litlum vatnsúðara tengdum við
rafmagnsdælu var komið fyrir
ofan við hyrnuna á „Jóhönnu”
og úðað f sifellu vatni yfir.
Svona gekk það til Frakklands,
og skiptust menn á við verkið.
„Það sést strax á háhyrning-
um, hvort þeim lfður vel eða
illa,“ sagði Martin Padley,
„þegar þeim lfður vel stendur
hyrnan beint upp í loftið, en
þegar þeim iíður illa vfsar hún
niður.
Eini
háhyrningurinn
á meginlandi
Evrópu
„Sem stendur er þetta eini
háhyrningurinn á megilandi
Evrópu. Það var einn í Wind-
sorgarðinum í Bretlandi, en
hann hefur nú verið fluttur til
Bandarfkjanna. Háhyrningar
hafa aldrei eignast afkvæini í
dýragörðum og er ástæðan ein-
faldlega sú að bæði kynin hafa
aldrei verið saman í búri, en sá
brezki hefur nú hitt kynsystur
sfna f Bandarfkjunum.
Já, ég geri mér góðar vonir
um, að „Jóhanna“ geti eignast
afkvæmi þ.e.a.s. ef við náum
karldýri handa henni og að þvf
stefnum við. Höfrungar hafa
oft átt afkvæmi f sædýrasöfn-
stór fyrir dýrasöfn, en hún væri
4.5 metrar að lengd, en heppi-
legasta stærðin væri 3.5 metrar
þegar hvalirnir væru fluttir í
söfnin. Háhyrningar af þeirri
stærð væru fljótari að læra hin-
ar ýmsu kúnstir, fyrst og
fremst vegna þess hve miklu
léttari þeir eru en hinir eldri.
„Jóhanna" verður fyrst um
sinn ein í lauginni f Marine-
land, en eftir 2 vikur til mánuð
hefzt þjálfun hennar. Þá verð-
ur nokkrum höfrungum sleppt
í laugina til hennar, þá getur
hún séð hvernig þeir fara að, og
fljótlega úr því fer hún að
skemmta áhorfendum Marine-
lands."
Kemur frá Hull
„Sjálfur er ég fæddur og upp-
aiinn f Hull f Bretlandi og lærði
rafmagnsfræði. Sfðan vann ég
eilítið við efnafræðistörf og fór
f þvf sambandi til Kanada og
var þar f 314 ár. Eftir þann tíma
fór ég í frf til Bretlands og var í
raun orðinn þreyttur á tækn-
inni. Einn daginn rölti ég inn f
dýragarðinn í Yorkshire, og
þegar ég kom þangað voru
starfsmennirnir f verkfalli. Mér
leist ekkert á aðbúnað dýranna
og fór því að hjálpa fram-
kvæmdastjóranum. Ég vann
þarna í nokkra daga og ætlaði
að þvf búnu á ný til Kanada,
enda fríið búið. Framkvæmda-
stjóri dýragarðsins bað mig þá
að starfa áfram hjá sér. — Eg
hugsaði mig nokkuð um og
svaraði síðan: „Allt f lagi ef ég
fæ að hugsa um höfrungana."
Það var í lagi og síðan eru liðin
átta ár, en s.l. sex ár hef ég
starfað á vegum Marinelands
milli Nizza og Cannes."
7 höfrungar f Marineland
„Við erum með 7 höfrunga í
Marineland, 2 kvenkyns og 5
karla, þá erum við með nokkur
sæljón, mörgæsir, seli og fleiri
dýr fyrir utan fiska. Marine-
land átti um nokkurn tfma einn
háhyrning, en hann lézt í fyrra.
Ástæðuna fyrir því tel ég vera
að vatnið í lauginni var of heitt
fyrir hann, og fékk hann ein-
hverja veiki og dó síðan f fyrra.
Við áttum í svipuðum erfiðleik-
um með höfrungana f fyrstu, en
s.l. 8 ár hafa þeir dafnað vel í
sædýrasöfnum. Mikil samvinna
er nú á milli dýarsafna f heim-
inum hvað viðvíkur umönnun
höfrunga og háhyrninga.
Helztu vandkvæðin við um-
önnun háhyrninga er hve stórir
þeir geta orðið, eða allt að 10
metra langir. Af þeirri ástæðu
þarf mjög stórar laugar undir
þá og ennfremur verða þeir
mjög þurftafrekir með árunum.
Laugin, sem „Jóhanna" veður f,
er 27x32 metrar að stærð og
4—5 metrar að dýpt, og á að
tefjast nógu stór fyrir tvo há-
hyrninga. Til þess að „Jó-
hönnu“ lfði betur höfum við
skipt um hreinsitæki og tökum
nú sjóinn á 15 metra dýpi 400
metra frá landi. Sjórinn sem
við tökum er 11—12° heitur.
Rotaði mig
þegar ég ætlaði
að taka
blóðsýni
„Það er ótrúlegt hvað
höfrungarnir geta lært mikið á
stuttum tfma, og hinn inni-
byggði radar þeirra er ótrúlega
nákvæmur, en samt teljast
skynfæri háhyrninganna enn
nákvæmari, enda er heili
þeirra miklu stærri.
Ég lék mér að því f fyrra að
þjálfa einn af höfrungunum