Morgunblaðið - 02.11.1976, Blaðsíða 15
MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1976
15
. . . idnkynning á Egilsstöðum
Björn Guttormsson mundar hér tæki það sem hann vann við.
„Einasti
Björn Gutt-
ormsson í
þióðskránni”
Stundaði búskap í 50 ár,
vinnur nú í iðnaði
Á ferð okkar um Brúnás hf. geng-
um við fram á aldraðan mann sem
handlék stóran skurðarhníf.
Maðurinn sagðist vera að skera
niður sýnishorn af filmunni sem
fer í einkaframleiddu hurðirnar
hjá Brúnási — Já já, þetta eru
nokkrar gerðir og litir. Allt eru
þetta reyndar plastefni, en þetta
lfkist þó eik, spæni og þess háttar.
— Ja, ég er búinn að vera hérna
i hurðagerðinni síðan sú starf-
semi hófst, en þá var ég reyndar
búinn að vera hjá þessu ágæta
fyrirtæki í eitt ár. Ég kann vel við
mig hérna. Hér vinnur gott fólk
og glaðlegt. Ég var áður bóndi,
hafði stundað búskap í 50 ár. Eg
stundaði búskap á Ketilsstöðum í
Hjaltastaðaþinghá og heiti Björn
Guttormsson.
— Það er nú reyndar nokkuð
merkilegt nafn, strákur minn.
Það er nú nefnilega svo að hjá
þjóðskránni er enginn annar
Björn Guttormsson á skrá, sagði
Björn og brosti breitt. Það er
aðeins einn Björn Guttormsson á
þjóðskránni, og það er ég. Það eru
ekki margir sem eiga sér engan
nafna í dag. Ég er eini Björn
Guttormsson á Islani og hjá onum
stendur þú nú.
—áá
kölluð Ussa. Ussa er eini kven-
maðurinn sem starfar hjá Brún-
ási. Hún sagðist ekki beint hafa
neinn sérstakan fastan starfa inn-
an fyrirtækisins, heldur hlypi
svona f það sem mest lægi á. í
þetta sinn væri hún f glersam-
setningunni, þvf þar væri nokkuð
stór pöntun sem þyrfti að ljúka.
— Ég hef ekkert út á greyin að
setja, sagði hún þegar við spurð-
um hana hvernig væri að vera
svona ein innan um alla þessa
karlmenn. Maður verður að veita
greyjunum örlftið aðhald, og
passa að þeir geri ekki neinar
vitleysur, sagði hún og glotti
kfmnislega til vinnufélaga sinna,
þeirra Gunnlaugs og Sigfúsar.
— Hún er alveg ágæt greyið,
sögðu þeir þegar við spurðum þá
um þennan starfsfélaga þeirra af
veikara kyninu. — Hún vinnur
verk sitt vel, sagði Gunnlaugur.
— Hún gantast stundum við
okkur, sagði Fúsi. Ussa sagðist
bara kunna vel við sig hjá Brún-
ási, en þó væri aldrei að vita hvað
framtíðin bæri f skauti sér. Senni-
lega ætti hún eftir að giftast og
helga sig heimili, í stað þess að
vinna svona í verksmiðju.
— áá.
Bamavagnar
og kerrur
barnavagnar, kerrur og kerruvagnar eru norsk gæöavara
gerö fyrir norölægar slóðir.
Tvíburavagnar og — kerrur einnig jafnan fyrirliggjandi.
Mikið úrval — sanngjarnt verð
Sendum gegn póstkröfu — Fást einnig víða um land
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 — simi 84670
TEPPI — TEPPI — TEPPI — TEPPI — TEPPI
GÓLFTEPPI
ULLARTEPPI — NYLONTEPPI — ACRYLTEPPI
__ STÖKTEPPI OG MOTTUR
Q_ TEPPARENNINGAR í METRAVÍS, BREIDD 69 CM OG 91 CM
Q_ VIÐ SNÍÐUM, TÖKUM MÁL OG ÖNNUMST ÁSETNINGU
LU GREIÐSLUSKILMÁLAR
h-
TEPPAVERZLUNIN
1 FRIÐRIK BERTELSEN,
H LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266
I
TEPPI - TEPPI - TEPPI - TEPPI -
TEPPI
TEPPI — TEPPI — TEPPI — TEPPI — TEPPI,— TEPPI