Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
260. tlb. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1976
Prentsmidja Morgunblaðsins.
Sýrlendingar í
nýju hlutverki
Aley, 8. nóvember. AP. Reuter.
SÝRLENZKA herliðið f Líbanon
tðk að sér hlutverk friðargæzlu-
liðs f dag, ruddi burtu vegatálm-
unum Palestfnumanna og sðtti f
átt að Beirút til að framfylgja
sfðasta vopnahléinu.
Þar með hefur í fyrsta skipti
verið hafizt handa um að hrinda í
framkvæmd áætlun um frið í
Libanon er leiðtogar Arabaland-
anna samþykktu fyrir þremur
vikum. 21.000 hermenn Sýrlend-
inga verða meginstofn friðar-
gæzluliðs Arabalandanna.en það
verður einnig skipað nokkur þús-
und hermönnum frá Saudi-
Arabíu, Súdan, Jemen, Líbýu og
Arabíska furstasambandinu.
100 manna framvarðarsveit
Sýrlendinga tók sér stöðu rétt hjá
Aley og sveitir þeirra sóttu til
múhameðska þorpsins Chouit þar
sem stórskotahrfð geisaði þar til
Sýrlendingar komu sér fyrir.
Stórskotaliðsbardagi geisaði
einnig nálægt landamærum ísra-
els í suðri og hægrisinnar sögðu
að óvinurinn hefði misst 18 menn
fallna. Aðrar sveitir Sýrlendinga
tóku sér stöðu í fjöllunum norð-
Framhald á bls. 46
Callaghan vann
með naumindum
London, 8. nóvember. Reuter.
BREZKA stjórnin sigraói
naumlega í tnikilvægum
atkvæðagreiðslum í kvöld
með þvf að smala saman
hverjum einasta þing-
manni Verkamannaflokks-
ins, þar á meðal konu með
barn á brjðsti.
Þetta var fyrsta prófraun
stjórnarinnar síðan hún lýsti því
yfir að hún mundi hvergi hvika
frá stefnu sinni þótt ósigrar í
tvennum aukakosningum f sfð-
ustu viku hafi leitt til þess að hún
hefur aðeins eins atkvæðis meiri-
hluta á þingi.
Nokkrir veikir þingmenn
Verkamannaflokksins og Ihalds-
flokksins væru fluttir í sjúkrabör-
um til að taka þátt í atkvæða-
greiðslunni og 27 ára gömul þing-
kona, Helena Hayman, gaf
tveggja vikna gömlum syni sínum
brjóst á meðan atkvæðagreiðslan
fór fram.
Tillaga stjórnarinnar um að
takmarka ræðutíma var sam-
þykkt. Frumvarp um þjóðnýtingu
skipa- og flugvélaiðnaðarins var
samþykkt méð aðeins eins at-
kvæðis mun. Hins vegar voru
frumvarp um umbætur í húsnæð-
ismálum landbúnaðarverka-
manna og frumvarp um stöðlun
Framhald á bls. 46
Karl Gústaf Svíakonungur og Sylvía drottning er þau komu til Frakklands í gær í
þriggja daga einkaheimsðkn.
Crosland leggur aherzlu
á samninga við íslendinga
London, 8. nóvember. Reuter.
ANTHONY Crosland,
utanríkisráðherra Breta,
lagði í dag áherzlu á nauð-
syn þess að Efnahags-
bandalagið semdi um
áframhaldandi veiðar við
tsland þegar samningur
Breta og íslendinga renn-
ur út 1. desember. Hann
hvatti jafnframt til skjðtra
samninga um fiskveiðar
víð Norðmenn sem færa
fiskveiðilögsögu sína út í
200 mflur eftir áramót.
Crosland sagði á fundi í félagi
erlendra blaðamanna að nauðsyn-
legt væri að ljúka fljótt endur-
skoðun fiskveiðistefnu bandalags-
ins sjálfs.
Hann sagði að framtið brezka
sjávarútvegsins væri í húfi. Rúm-
ur helmingur afla bandalagsins
yrði veiddur á brezkum miðum
þegar Bretar færðu út í 200 mílur
en Bretar veiddu óverulegt magn
á miðum annarra bandalagsríkja.
Hörð átök blossa
upp í S-Angola
Þótt Efnahagsbandalagíð hafi
samþykkt að færa út fiskveiðilög-
sögu aðildarlandanna í 200 mílur
1. janúar hefur ekki tekizt sam-
komulag um tillögu Breta um 50
mílna einkalögsögu. Umræður
standa enn yfir um einkalögsögu.
Jafnframt hófust f BrUssel í dag
viðræður Bandaríkjanna og Efna-
hagsbandalagslandanna um rétt
sjómanna frá bandalagslöndun-
um til veiða i bandariskri fisk-
veiðilögsögu eftir útfærslu henn-
ar i 200 mílur.
Viðræðurnar snúast um tækni-
leg og lögfræðileg atriði sam-
kvæmt heimildum i Brussel en
eiga að búa i haginn fyrir víðtæk-
ar viðræður síðar.
Þar með koma EBE-löndin í
fyrsta skipti fram sem einn aðili í
viðræðum við fiskveiðiþjóðir utan
bandalagsins eins og samþykkt
var 30. október þegar ákveðið var
að færa fiskveiðilögsöguna út I
200 mílur. Viðræður hefjast við
íslendinga sfðar í vikunni og síð-
an við Norðmenn.
ísrael í
Unesco?
Nairobi, 8. nóvembcr. Rcuíer.
AÐILD tsraels að Unesco var
nánast tryggð f dag þegar sam-
þykkt var tillaga sem viður-
kennir rétt allra aðildarrfkja
til að tilheyra þeim ríkjahópi
Unesco sem þau vilja tilheyra.
Israel vill tilheyra ríkjahópi
Evrópu og samkvæmt tillög-
unni eiga ríkjahóparnir að
samþykkja hvort nýtt land
skuli tilheyra þeim.
Tillagan var samþykkt með
70 atkvæðum, enginn var á
móti en 17 sátu hjá.
Jafnframt bendir margt til
Framhald á bls. 46
Oshakati, 8. nóvember. Reuter. AP.
ÞUSUNDIR flóttamanna
streymdu í dag yfir landamær-
in til Suðvestur-Afríku
(Namibfu) frá suðurhlutum
Angola þar sem harðir bardag-
ar hafa blossað upp.
Flugvélum, skriðdrekum og
stórskotaliði er beitt f bardög-
um angólska stjórnarhersins og
skæruliðahreyfingarinnar
Unita. Stjórnarherinn nýtur
stuðnings kúbanskra hermanna
og skæruliða frelsishers Suð-
vestur-Afríku, SWAPO.
Eftir nokkra daga verður eitt
ár liðið síðan Angola hlaut
sjálfstæði. Unita og hreyfingin
FNLA biðu ósigur fyrir
marxistahreyfingunni MPLA í
borgarastriðinu, en Unita hefur
Savimb'i
haldið áfram að veita viðnám
siðan borgarastriðinu lauk.
Flóttamennirnir segja að bar-
dagar geisi bæði i þorpum og á
landsbyggðinni. Um 3.000
flóttamenn hafa streymt til
Suðvestur-Afrfku undanfarna
daga og þar eru nú 8.000 flótta-
menn frá Angola, þar af marg-
ar konur og börn. 1 Oshakati
heyrist skothrfð frá bardaga-
svæðum í Angola.
Talsmaður Suður-
Afrikustjórnar sagði f dag að
liklega væru 15—18.000
kúbanskir hermenn í Angola.
Suður-Afríski herinn annast
flóttamennina sem koma frá
Angola.
Jonas Savimbi, yfirmaður
Framhald á bls. 46
Jarðskjálftar
víða um heim
London, 8. nóvember. AP. Reuter.
JARÐSKJALFTAR urðu f Iran,
Filippseyjum, Grikklandi og Jap-
an um helgina og f dag og fréttir
bárust af jarðskjálfta f Kína. Eld-
gos hófst í Indónesfu. Sextán hafa
beðið bana og 32 slasazt í jarð-
skjálftanum f tran.
Bandarfskir jarðskjálftafræð-
ingar telja að ekkert samband sé
á milli skjálft anna.
Jarðskjálftinn í íran varð í gær-
morgun og mældist 6.2 stig á
Richterskvarða. Flestir biðu bana
í fjallaþorpinu Vandik, um 600
km norðaustur af Teheran, þar
sem 150 múrsteinshús hrundu. 10
fleiri kíppir fundurst á svæoinu i
dag en ollu ekki tjóni.
í Hong Kong skýrðu vísinda-
menn frá þvi að jarðskjálfti sem
hefði mælzt 6.3 stig á Richters-
kvarða hefði orðið í gærmorgun í
Framhald á bls. 47