Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1976
13
Siðbótin
Skrifla
Eftir Braga Kristjónsson
ISLENZKT þjóðfélag er um
margt einstakt fyrirbæri. Þar ráð-
ast málefni ekki eftir sömu lög-
málum og f öðrum þjóðfélögum.
Vmsar félagsvfsindakenningar
eiga lftt við íslenzkar aðstæður.
Sumir telja, að Island sé ekki rfki
— heldur þorp. Byggð náinna
þorpsbúa þar sem hnýsni og gægj-
ur eru helzta fþróttin f andlegu
fásinni þorpsins.
Jafnvel lærðum mönnum f
stjórnmálavfsindum hefur gengið
brösulega að fóta sig f dularfull-
um speglasal fslenzkra stjórn-
mála.
Þrfskiptingin
tslendingum má skipta f þrjár
heildir, en margvfsleg tengsl eru
þó milli þeirra innbyrðis:
I fyrsta lagi eru pólitfskir flokk-
ar. Fram til þessa hafa flokkarnir
verið lokaðir, þ.e. þeir hafa starf-
að svipað og huldufélög og puk-
urslegt athæfi hefur einkennt
starfsemi þeirra, þótt í fæstum
tilfellum hafi nokkuð verið að
fela. Flokkarnir eru oft ákvörðun-
araðiljar í stórmálum, en öll loka-
ákvarðanataka hefur þó verið hjá
forystu flokks.
I öðru lagi skiptast Islendingar
f félög. Hér er átt við félagasam-
tök á borð við frímúrara, odd-
fellowa, Ijónamenn, rotarymenn,
kiwanismenn o.fl. Sum þessara
félaga eru hrein huldufélög, önn-
ur matarneyslu- og líknarfélög.
Huldufélögin hafa andlega upp-
byggingu meðlimanna, að mark-
miði — hin veraldlega og lfkam-
lega velferð þeirra. Af huldufé-
lögunum eru frímúrarar taldir
dularfyllstir og merkilegastir,
enda elstir. Áhrifamenn hafa
ávallt skipað sér í raðir þess fé-
lagsskapar, þingmenn, ráðherrar,
dómarar og aðrir landstólpar. Frf-
múrarareglan er ekki fyrir
vinstrisinnað fólk, enda telur það
sig ef til vill ekki eiga erindi til
samdrykkju, þar sem gagnkvæm-
ur bróðurhugur og alvaldslotning,
samhliða mikilli formdýrkun eru
helstu viðfangsefnin.
1 þriðja lagi má, ef vel er að
gætt, finna verulega ættbálka-
skiptingu á tslandi. Nokkrar ættir
hafa á s.l. 100 árum komist til
umtalsverðra valda og yfir all-
vænan auð. Atbeini afkomenda
og annarra ættmenna og sifjaðra
snýst um að gæta og ávaxta þessa
arfs, — og hefur það tekist furðu
vel í ýmsum tilfellum. Ættar-
tengsl og varsla ættarhagsmuna
er orðið svo snúið mál á Islandi,
að í rauninni væri ýmsum opin-
berum embættismönnum nauð-
syn að ráða til sfn ættfróða menn,
einkum þó saksóknara og skatt-
stjórum.
„Hinir æfðu
stjórnmálamenn.“
Alþingi hefur verið samnefnari
þessarar þrískiptingar. Það hefur
þó breyst nokkuð.
Margir eru nú þeirrar skoðun-
ar, að alþingi sé orðið einskonar
huldufélag þingmannanna, þar
sem stéttarleg samkennd ræður
ofar öllu öðru. Það væri ekki ofur
kynlegt, þótt áhrifa frá huldufé-
lögum gætti í þinginu, þar sem
margir þingmanna og ráðherra
hafa tilheyrt þessum félögum, þar
sem gagnkvæm vild og siðbæt-
andi mannrækt eru æðstu boðorð.
En fleira kemur til: hinir æfðu
stjórnmálamenn þykja margir
hverjir án teljandi tengsla við lif-
andi starfið utan þinghússmúr-
anna eða virðast a.m.k. nokkuð
steinrunnir, þegar á reynir. Karp
og þóf þessara aðilja í þinginu um
hin margvfslegu löggjafarmálefni
hefur — eftir að sjónvarp hófst
og dagblöð breyttu frásagnar-
hætti úr þingsölunum — haft nei-
kvæð áhrif á marga háttvirta kjós-
endur og virðing alþingis sem
stofnunar hefur dvfnað með þjóð-
inni. Upphafin og drýldniskennd
framganga þingfólksstéttarinnar
frammi fyrir næmu ljósopi
myndavélanna, hefur slævt aðdá-
un stuðningsmanna hennar.
Ávanahugsun þessara atvinnu-
stjórnmálamanna hefur hneppt
marga þeirra f fjötra doðans og
gert þá fanga í pappíramoði hinn-
ar opinberu stjórnsýslu. Sæmileg
kunnátta f látbragði og háttvfsi í
framkomu gæti þó verið skref í
áttina að aukinni tiltrú fólks.
Námskeið f tiskuskóla eða leiklist-
arskóla rfkisins, myndi gagna
þingfólkinu umtalsvert.
En fleira kemur til: ýmis sam-
tök, þ.e. vinnuseljendur og vinnu-
kaupendur hafa undanfarin ár
sælst eftir sífellt auknu valdi,
sem áður var hjá alþingi og ríkis-
stjórn. Margir hagsmunahópar
hafa bundist sterkum samtökum
og náð taki á slagæðum þjóðfé-
lagsins og oft fengið góða úrlausn
fyrir sig.
Vald stjórnmálamannanna hef-
ur og færst í sífellt ríkara mæli til
embættismanna, sem aftur sækja
þekkingu sfna til sérfræðinga á
mjög eða tiltölulega afmörkuðu
sviði. Vélræn gagnavinnsla og
tölvur stjórna ákvarðanatöku í
ótrúlega ríkum mæli og margvís-
legar framtíðarspár, harla mis-
jafnar að gæðum, torvelda stjórn-
málafólki heildarsýn um ástandið
í þjóðfélaginu, þótt einstakir
þættir geti legið mjög Ijóst fyrir.
Opinber stjórnsýsla hefur
margfaldast og starfsfólki opin-
berra aðilja fjölgað uggvænlega.
Opinberar framkvæmdir hafa,
vegna ofskipulagningar eða
bruðls, oft orðið fáránlega dýrar.
I kjölfar sfvaxtar hins opinbera
hefur skattábyrði aukist á þeim
sem einfaldast er að skattleggja.
Heildarsýn um raunverulegt
ástand í þjóðfélaginu er erfið.
Þess vegna hefur ekki farið fram
nægilega raunsæ umræða um
ástandið f þjóðfélaginu. Það er
fyrst nú tekið að brydda á nokk-
urri alvöruviðleitni f þá átt.
Við svipaðar aðstæður í oft-
tilvitnuðu nágrannalandi kom
Glistrup lögmaður fram á sjónar-
sviðið og hleypti öllu í bál og
brand með árásum sínum á
ríkjandi öfl þjóðfélagsins og
hefðunna, en óvinsæla starfs-
hætti ýmissa þátta opinberrar
umsýslu.
Blöðin búa til menn og það voru
dönsku síðdegis- og vikublöðin
sem komu þessum skemmtilega
lögmanni á framfæri og blésu
hann út, þar til það hafði síast inn
í vitund fjöldans að hann réði yfir
albatalyfi sem læknað gæti þau
mein þjóðarlíkamans, sem
ræktarleysi og doði stjórnmála-
fólksins hafði valdið.
Glistrup er vinsæll fyrir eðli-
lega framkomu, skammir um
stjórnmálamenn og rfkjandi öfl
og skrum um eigið ágæti.
Þar eins og hér höfðu atvinnu-
stjórnmálamenn smám saman
þróað með sér ákveðið framkomu-
form og látbragð, einskonar sam-
bland af drýldni og jarðarfarar-
svip — kallað ábyrgðartilfinning.
Allt var það fremur dapurlegt að
heyra og sjá. Svör við
spurningum fréttamanna voru
tviræð og loðin. Allt var í enda-
lausri athugun og nefndum og
fólki fannst það ekki fá svör við
því sem um var spurt — og það
taldi sig eiga rétt á.
Siðbótarmennirnir.
En þegar neyðin er stærst,
koma æðri máttarvöld oft til
hjálpar. Þegar þannig er komið,
að almenningur — þessi grái,
óskiljanlegi massi — hefur fengið
nóg, spretta úr djúpi hans sið-
bótarmenn og taka að vanda um:
skammast og skruma, uppnefna
og hæða. Þannig hefur þetta jafn-
an verið í sögunni og síðar, þegar
öldurnar hefur lægt, reynast
sumir þessara manna lifa lengur
en það sem þeir skömmuðu og
hæddu.
Vilmundarnir eru orðnir
fjölmennir í íslenskri blaða-
mannastétt, en enginn þeirra
jafnast á við höfuðpaurinn
sjálfan. Aðstæður hans eru líka
Röntgenaugu vilmundanna hafa
einkum beinst að samtryggingu
stjórnmálaflokkanna. Vmislegt
bendir nú til, að nýjar vfddir séu
framundan i siðbótarviðleitninni.
einstæðar: ekki aðeins er hann
sonur kerfisins og eins fremsta
skapara þess, heldur einnig
tengdasonur þess.
Það hlýtur að vera f senn bæði
kross hans og upprisa. Það er lfka
alveg tvímælalaust að bál og
brandur þessa aðilja hafa þegar
orðið til góðs og ekki undarlegt,
þótt taugar hans séu þandar að
mörkum f siðvæðingarstarfanum.
Fyrst í stað beitti höfuðpaurinn
sér einkum gegn flokkavaldi og
þeirri spilltu samtryggingu sem
hann taldi leynast þar að baki, —
og í ljós hefur komið.
Ályktun ungra jafnaðarmanna
frá í fyrra, bendir þó til að starfs-
svið siðbótarmannsins sé að
færast í aðrar vfddir. Samtökin
gerðu ályktun um, að frímúrarar
skyldu ekki mega gegna opinber-
um embættum hérlendis. Ef þessi
draumsýn yrði veruleiki, myndi
vænn hluti opinberra embættis:
manna missa atvinnuna, þ. á m.
þingmenn og hærra settir; um-
talsverð röskun yrði í dómstóla-
kerfinu og margir dugmestu
stuðningsmenn alþýðuflokks,
framsóknarflokks og sjálfstæðis-
flokks yrðu óvirkir á þeim
vettvangi. Enda hefur þessari
ályktun ekki verið fylgt eftir svo
orð sé á gerandi.
Þó er yissulega á öllu von f því
sem öðrú og verður fróðlegt að
fylgjast með, þegar höfuðpaurinn
hefur siðbætt samtryggingu
flokkanna og hin lokuðu og opnu
félagasamtök. Sennilega mun
hann þá snúa sér að þriðja aflinu:
því sem dýpst liggur í rökkur-
heimum samfélagsins: ættbálka-
samtryggingunni.
Og þá verður vissulega mikill
kostur að hafa rannsóknarlög-
reglu rfkisins undir mildri stjórn
lífsþreytts framsóknarmanns,
skipaða bókhaldsfróðum ætt-
fræðingum og uppeldis-
fræðingum.
Nýjasta gerðin af Apeco ljósritunarvélum
heitir M 420. Þessi vél hefur ýmsa kosti, sem
gera hana aðgengilegri en aðrar
ljósritunarvélar.
APECO M420 er:
Lítil og nett rúlluvél.
Tekur varla meira pláss en ritvél.
Lengd ljósritsins má stilla frá 20—36 cm. <
Ódýrari en flestar sambærilegar vélar.
Auðveld í notkun.
Með pappírsstilli. ^ ’
Hafið samband við
sölumenn okkar strax í dag.
Sýningarvél í söludeild,
Hverfisgötu 33.
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
%
+ .=. + ^
\v. Hverfisgötu 33
4 'ElANU’ Sími 20560 - Pósthólf 377
Litla ijósritunarvélin
meðstóru ■
kostina