Morgunblaðið - 09.11.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
21
IttovjjunlJlaíúí*
líftrðtlirl
Danir munu leika
hér 1. og 2. des.
FJORIR LEIKMANNA ÚLYMPÍUUÐS
SOVÉTRÍKJANNA KOMA MEÐ MAI
Fjórir leikmanna sovézka liðs-
ins MAI (Moscow Aircraft
Engineering College) sem leika
mun við Val I Evrópubikarkeppni
bikarhafa, léku með sovézka
landsliðinu á Olympíuleikunum f
Montreal i sumar. Kunnastur
þessara leikmanna er vafalaust
Vladimir Maksimov, sem leikið
hefur fjölmarga landsleiki fyrir
Sovétmenn og verið meðal mark-
hæstu leikmanna i heims-
meistarakeppni. Hefur Maksimov
leikið með sovézka landsliðinu
hérlendis og munu örugglega
margir handknattleiksunnendur
muna vel eftir honum.
Valsmönnum hafa nú borizt
nokkrar upplýsingar um MAI og
segir m.a. í þeim, að þarna sé um
að ræða bezta stúdentalið Sovét-
NO MUN endanlega frá þvf
gengið að Danir koma hingað og
leika tvo landsleiki ( handknatt-
leik 1. og 2. desember n.k. Verða
þetta jafnframt fyrstu leikirnir
sem pólski landsliðsþjálfarinn
stjórnar fslenzka landsliðinu I, en
hann hefur að undanförnu verið
með liðið á æfingum, auk þess
sem hann hefur notað tækifærið
til að fylgjast með handknatt-
leiksleikjum og sjá út réttu
mennina. Verða leikirnir við
Dani jafnframt fyrsta stóra
skrefið I undirbúningi tslendinga
fyrir þátttöku sína I B-
heimsmeistarakeppninni f hand-
knattleik I Austurrfki f vetur.
Áformað var að leika landsleik
við Dani f Danmörku 12. desem-
ber, en þeim leik hefur nú verið
frestað. Mun að öllum lfkindum
verða leikið þar ytra milli jóla og
nýjárs, en þá mun fslenzka lands-
liðið fara f keppnisferð tíl
Berlfnar og leika þar við úrvals-
lið. Áformaðir landsleikir við
Austur-Þjóðverja sem fram áttu
að fara f desember verða hins
vegar felldir niður. Munu Þjóð-
verjarnir ekki hafa verið tilbúnir
til að taka á móti lslendingum,
þegar á hólminn var komið.
Mikill fengur verður það að
teljast fyrir HSt að fá danska
landsliðið hingað til leikja, en
landsleikir tslendinga og Dana
hafa oftast verið mjög skemmti-
legir og miklir „stemmningsleik-
ir“.
ISLENDINGAR RÁKU
LESTINA Á NORÐUR-
LANDAMÓTINU í BLAKI
SVO SEM vænta mátti töpuðu
tslendingar öllum leikjum sfnum
f Norðurlandamótinu f blaki sem
fram fór f Bergen og lauk um
helgina. Höfnuðu tslendingar f
neðsta sætinu.en Finnar uðru
sigurvegarar f mótnu — unnu
alla leiki sfna nokkuð örugglega.
Svfar hlutu silfurverðlaunun,
Danir urðu f þriðja sæti og Norð-
menn f f jórða sæti.
tslendingum gekk bezt f leik
sfnum við Norðmenn, en f honum
unnu þeir eina hrinu, og er þetta
f fyrsta sinn sem blaklandsliðið
vinnur hrinu f landsleik erlendis.
Það hefur hins vegar sigrað Fær-
eyinga f landsleik hér heima, og
einnig unnið hrinu af Norðmönn-
um f landsleik sem fram fór f
Hafnarfirði.
Karl Ben. var
maður kvöldsins
Islandsmótið I handknattleik tók nokkuð nýja steffnu á sunnudagskvöldið er
Víkingar báru sigurorð aff Valsmönnum I miklum og skemmtilegum baráttu
leik í Laugardagshollinni Þar með má segja að mótið hafi opnast mjög mikið,
en sigur Valsmanna I leik þessum hefði þýtt það aðforysta þeirra heffði orðið
það góð, að erfitt heffði verið ffyrir hin liðin að vinna hana upp.
En efftir sigur Víkinga eiga fflest liðin nokkuð jafna möguleika, og má búast
við harðnandi baráttu I leikjunum sem framundan eru. í annarri deild er
einnig mjög skemmtileg og tvísýn barátta, en þar haffa nú öll liðin tapað stigi
eða stigum. Sagt er frá leikjum helgarinnar á bls. 23, 24 og 25. Mynd þessi
er úr leik Vals og Víkings á sunnudagskvöldið og gefur hugmynd um
baráttuna sem var í leiknum. Jóhannes Steffánsson Valsmaður reynir að taka
á móti línusendingu, en Ólaffur Einarsson Víkingur nær að hinda hann.
- stjórnaði liðum Víkings og IR í sigurleikjum þeirra
KARL Benediktsson, handknatt-
leiksþjálfari, var sá sem ástæðu
hafði til þess að hrósa sigri eftir
leiki 1. deildar keppninar f hand-
knattleik sem fram fóru f Laugar-
dalshöllinni á sunnudaginn. Karl
þjálfar nú tvö lið sem leika f
deildinni, tR og Vfking, og bæði
unnu þau sigra á sunnudags-
kvöldið.
Þegar Karl mætti til leiks í
Laugardalshöllinni á sunnudag-
inn höfðu Valsmenn náð góðri
forystu I leik sinum við Víkinga.
En strax og Karl tók að stjórna
liðinu fór að ganga betur. Hann
ákvað að taka hættulegasta leik-
mann Valsliðsins, Jón Karlsson,
úr umferð og við það riðlaðist
sóknarleikur Valsmanna mjög
mikið.
Þegar röskar 5 mínútur voru
eftir af leik Víkings og Vals varð
Karl að yfirgefa Víkingana til
þess að fara að búa ÍR-inga undir
leikinn við Fram. Hefur örugg-
lega verið erfitt fyrir Karl að
standa upp og fara, því spennan f
leik Vals og Víkings var þá komin
i hgmark og Víkingur búinn að ná
forystunni. Tók einn leikmanna
Víkingsliðsins, Jón Sigurðsson,
við stjórn Víkinga á lokamínútun-
um og fórst það hlutverk vel úr
hendi.
Og ekki verður annað séð en að
Karl hafi náð að undirbúa ÍR-inga
vel á þeim stutta tima sem hann
hafði til stefnu, þar sem þeir
höfðu oftast yfir í leik sínum við
Framara og unnu sætan sigur.
STAÐAN
1 DEILD
Staðan I 1. deildar keppni íslands-
mótsins i handknattleik ei nú þessi:
Valur
ÍR
Haukar
FH
Vikingur
Fram
Þróttur
Grótta
113:87
106:106
85:78
92:82
89:89
85:91
88:103
97:120
ríkjanna, og þarf vist örugglega
engan að undra það. MAI og hef-
ur til þessa oftsinnis tekið þátt í
Evrópubikarkeppni i handknatt-
leik, og einu sinni orðið Evrópu-
meistari.
Ekki hefur endanlega verið
gengið frá leikdögum Vals og
MAI í Evrópubikarkeppninni en
ekki er ólíklegt að Sovétmennirn-
ir leiki hér um næstu helgi. Verð-
ur leikur þeirra fyrsti stórleikur
vertiðarinnar, og fróðlegt að sjá
hvernig Valsliðinu vegnar i
baráttunni við hina sterku Sovét-
menn.
Gunnar Aust-
1jorð kjorinn
„knattspymu-
maður" Akureyrar
NÝLEGA var Gunnar Austfjörð
kjörinn knattspyrnumaður ársins
1976 á Akureyri. Þetta er í annað
sinn sem til sllkrar útnefningar er
efnt, en félagi Gunnars úr Þór,
Pétur Sigurðsson. var kjörinn I
fyrra. Útnefning þessi er gerð að
tillhlutan gullsmiðanna Sigur-
tryggs og Péturs á Akureyri. sem
gáfu veglega styttu sem verðlaun
I fyrra.
Gunnar Austfjörð er öllum
áhugamönnum um knattspyrnu
vel kunnur. Hann lék um árabil
með ÍBA og nú með Þór. Hefur
hann verið talinn meðal sterk-
ustu varnarleikmanna I Islenzkri
knattspyrnu um langt skeið.
Þórður kjörinn
í Eyjum
Á LOKAHÁTÍÐ knattspyrnu
manna I Vestmannaeyjum að
Hótel Vestmannaeyjum á laugar
daginn var tilkynnt kjör knatt-
spurnumanns Vestmannaeyja
1976. Fyrir valinu varð Þórður
Hallgrlmsson. Það er þriggja
manna nefnd, sem velur knatt-
spurnumanninn. Þetta er annað
árið sem viðurkenningin er veitt,
I fyrra hlaut Ársæll Sveinsson
viðurkenninguna. Markakóngs
styttuna hlaut Órn Óskarsson
með 25 mörk, en hann hlaut
einnig styttuna ! fyrra
Á lokahátlðina var mættur
George Skinner, þjálfari Eyja
manna frá I sumar, en hann var
kominn alla leið frá Englandi til
að sitja hófið. í leiðinni var geng
ið frá samningum við Skinner, og
mun hann koma aftur hingað til
lands næsta sumar og þjálfa lið
ÍBV. Rikir mikil ánægja i Eyjum
yfir því að Skinner skuli koma
aftur, þvi hann aflaði sér mikilla
vinsælda þars.l sumar.