Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
FYRSTI leikur tslandsmótsins I
körfuknattleik á þessu keppnis-
tímabili fór fram I Njarðvík á
laugardag og áttust þar við
UMFN og Breiðablik. Njarð-
vlkingar unnu leikinn með 50
stiga mun og hefðu þeir eflaust
getað unnið stærri sigur ef þeir
hefðu kært sig um, en þetta var
aðeins létt æfing hjá þeim, eins
og þeir sögðu.
Það verður að segjast með sanni
að Blikarnir voru ákaflega lélegir
i leiknum og hætt er við að þeir
vinni ekki leik í vetur, að minnsta
kosti ef engar breytingar verða á
leik liðsins. Annars var gangur
leiksins þannig að Stefán Bjarka-
son skoraói fyrstu körfu mótsins,
rétt áður en hann sneri sig svo illa
að hann varð að yfirgefa völlinn
og verður hann líklega frá í
háifan mánuð, en nóg um það,
Njarðvíkingar áttu mjög auðvelt
með slaka Blika og juku muninn
jafnt og þétt og höfðu rúmlega
helmings forystu í leikhlei,
50—23. I seinni hálfleik héldu
Njarðvíkingar svo áfram að auka
muninn og leiknum lauk með
yfirburðasigri þeirra 94 stigum
gegn 44, það er 50 stiga mun. Eins
og áður sagði voru Blikarnir afar
slakir I þessum leik og verða þeir
að öllum líkindum á botni deildar-
innar þegar yfir lýkur. Það eru
aðeins tveir menn sem eitthvað
geta, en það eru Guttormur Ölafs-
son þjálfari þeirra, sem er gamal-
reyndur leikmaður í fyrstu deild
og með landsliðinu. Þá vakti
frammistaða ungs leikmanns,
Agústs Líndals, verðskuldaða at-
hygli, en hann var afar frískur og
lék oft laglega á Njarðvíkingana.
Hann varð stigahæstur Blikanna
með 19 stig en Guttormur var
næstur með 10 stig.
Njarðvíkingar verða varla
dæmdir af þessum leik, til þess
var mótstaðan allt of veik, auk
þess sem þeir Jónas Jóhannesson
og Brynjar Sigmundsson gátu
lítið leikið með vegna þreytu og
meiðsla og Stefán Bjarkason
meiddist snemma í leiknum og
varð að yfirgefa völlinn. I stað
þeirra léku varamennirnir nær
allan leikinn og komu þeir vel frá
honum, en þó sérstaklega þeir
Þorsteinn Bjarnason og Geir Þor-
steinsson. Njarðvíkingar lögðu
litla áherzlu á stigaskorun í
leiknum, en einbeittu sér að leik-
kerfunum og tókust þau oft vel,
en þó var leikur þeirra engan
veginn sannfærandi og hittnin
var fremur slök, enda var þjálfari
þeirra ekkert hrifinn eftir leikinn
þrátt fyrir þennan stórsigur og
svo mikið skammaði hann leik-
mennina að þeir voru þeirri
stundu fegnastir er þeir voru
teknir útaf.
Eins og áður sagði áttu þeir
Þorsteinn Bjarnason og Geir Þor-
steinsson góðan leik ásamt
Gunnari Þorvarðarsyni, en þeir
voru einnig stigahæstir Njarð-
víkinga. Gunnar með 22 stig, Þor-
steinn með 20 og Geir 13 stig.
H.G.
Kristinn Jörundsson — átti góðan
leik með IR.
Næstu leikir
Næstu leikir I 1. deildar keppni
Islandsmótsins í körfuknattleik
verða 13. nóvember n.k. Þá leika í
Hagaskólahúsinu fyrst KR og IR
og sfðan Armann og IS. 1
Kennaraskólahúsinu Ieika Valur
og UMFN og 14. nóvember leika
svo Breiðablik og Fram í Asgarði
í Garðabæ en Kópavogsbúar
munu hafa heimavöll sinn i
Garðabæ í vetur.
Lárus Hólm skorar f leiknum gegn Armanni, bræðurnir Jón og Guðmundur Sigurðssynir fylgjast
spenntir með.
ÁRMEIMNINGAR MÖRÐU
VAL Á ENDASPRETTINUM
LEIKUR Ármanns og Vals var
nokkuð spennandi og vel leikinn
á köflum en eins og venjulega
voru það Armenningar sem sigr-
uðu eftir að Valsmenn höfðu
velgt þeim talsvert undir uggum,
sérstaklega f fyrri hálfleik, en þá
hafði Valur forystuna þar til 4
mfnútur voru eftir og náðu Ár-
menningar þá forystunni og voru
yfir það sem eftir var leiksins og
unnu þeir með 81 stigi gegn 71.
Annars var gangur leiksins
þannig eins og áður sagði að
Valur náði forystunni og var
Þórir Magnússon fremstur f
flokki þeirra, en góður leikur
Jóns Sigurðssonar og Jimmy
Rogers færði Ármanni forystuna
og það má segja að það hafi verið
Jón og Jimmy sem unnu Val.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn og
þegar 2 mínútur voru eftir af
honum var staðan jöfn 32—32 en
Fram stóð í (R fram að leik-
hléi en þar með var draumurínn úti
LEIKUR IR og Fram skiptist eig-
inlega 1 tvennt, skemmtilegan
baráttuleik f fyrri hálfleik og af-
ar slakan seinni hálfleik þar sem
ekki stóð steinn yfir steini hjá
Frömurum sem aðeins skoruðu
25 stig f hálfleiknum.
Eins og áður sagði var fyrri
hálfleikur afar jafn og spennandi
og átti þá Jónas Ketilsson mjög
góðan leik fyrir Fram, en það
dugði ekki gegn ákveðnum IR-
ingum sem höfðu nauma forystu f
leikhléi, 42—40. Iseinni halfieik
tóku iR-ingar svo leikinn f sínar
hendur og kafsigldu lélega og
þreytta Framara, sem ekki skor-
uðu nema 25 stig og lauk leiknum
með góðum sigri ÍR-inga 83—65
eða 18 stiga mun. Annars verður
að viðurkenna að frammistaða
Framara var alls ekki svo slæm
þegar tekið er tillit til þess að þá
vantaði bezta mann sinn,
Guðmund Böðvarsson, sem var að
spila blak með íslenska lands-
liðinu á Norðurlandamótinu í
Bergen og munar ábyggilega um
minna. Þá er rétt að geta þess að
ungu mennirnir f Fram-liðinu éru
flestir á æfingum með unglinga-
landsliðinu og æfa því og spila
það mikið að þreytan segir til sín
og njóta þeir sín því ekki í
leikjum liðsins. Bezti maður
liðsins f þessum leik var Jónas
Ketilsson, sem einnig varð stiga-
hæstur með 15 stig, en þeir Helgi
Valdimarsson og Þorvaldur Geirs-
son áttu einnig þokkalegan leik
og skoruðu þeir báðir 12 stig.
IR er jafnara lið en flest fyrstu
deildar liðin og byggist leikur
liðsins því ekki eins mikið upp á
fáum einstaklingum og verður
það að teljast mjög mikill kostur
og má því reikna með því að þeir
nái góðum árangri í vetur. Þá er
Agnar Friðriksson aftur byrjaður
að leika með liðinu og er hann
mikill styrkur fyrir það, og enda
þótt hann sé ekki kominn f sitt
gamla form átti hann nokkuð
góðan leik og hitti vel. Annars var
Kristinn Jörundsson beztur ÍR-
inga í þessum leik, en hann er
sívinnandi og hefur gott auga
fyrir spili og gegnumbrotum.
Stigahæstu menn liðsins urðu
þeir Jón Jörundsson með 16 stig,
Kristinn Jörundsson og Kölbeinn
Kristinsson voru með 14 stig og
Agnar Friðriksson skoraði 12 stig.
H.G.
þá sigu Ármenningar fram úr og
höfðu 5 stiga forystu í leikhléi
38—33. Svipaður munur hélzt svo
út allan seinni hálfleikinn og
tókst Valsmönnum aldrei að ógna
sigri Armanns verulega þrátt
fyrir góðan leik þeirra Þóris
Magnússonar og Hafsteins Haf-
steinssonar og lauk leiknum með
sigri Ármanns 81—71.
Þrátt fyrir ósigur I leiknum
mega Valsmenn vel við una þvf að
þeir stóðu sig mun betur en f
leiknum gegn Ármanni f Reykja-
víkurmótinu, en hann vann Ar-
mann með 25 stiga mun. Vals-
menn geta vel átt góða leiki og
þrátt fyrir tap f þessum leik eru
þeir til alls vfsir og ættu að geta
unnið hvaða lið sem er. Beztu
menn Vals í leiknum voru þeir
Þórir Magnússon, Hafsteinn Haf-
steinsson og Torfi Magnússon, en
Þórir varð stigahæstur
Valsmanna með 26 stig, en næstir
voru Torfi með 19 stig og Kristján
með 12.
Beztu menn Ármanns voru eins
og venjulega þeir Jón Sigurðsson
og Jimmy Rogers, en þeir skoruðu
báðir 21 stig, næstur var Björn
Magnúson með 12 stig. Þegar Jón
og Jimmy eru f essinu sínu eru
þeir öllum liðum erfiðir og meðan
svo er verður að telja Ármenn-
inga nokkuð sigurstranglega I Is-
landsmótinu en það er aldrei
neinn öruggur fyrir fram og bar-
áttan á toppnum verður örugg-
lega erfið og spennandi.
H.G.
Eins og létt æfing
sögðu UMFN-ingar
sem unnu Breiða-
blik með 50 stiga mun