Morgunblaðið - 09.11.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÖVEMBER 1976
23
13 marka sigur Fylkis
í „delluleik" við ÍBK
n
LEIKUR Fylkir og ÍBK I 2. deild-
ar keppninni I handknattleik á
iaugardaginn var ekki upp á
marga fiska. Þegar f upphafi
leiksins tóku Fylkismenn örugga
forystu og héldu henni til leiks-
loka, en úrslitin urðu 28—15 fyrir
Fylki. Var greinilegt að leikmenn
beggja liða litu fyrst og fremst á
leik þennan sem skylduverk, og
voru sumir leikmanna Fylkis
búnir að fara i bað og komnir f
sparifötin, áður en leiknum lauk.
Það þarf varla að búast við öðru
en að Keflavíkurliðið fari bein-
ustu leið niður í 3. deild á þessu
keppnistímabili. A.m.k. þarf mik-
il breyting til bóta að verða ef svo
á ekki að fara. Liðið er ókaflega
tætingslegt og slakt bæði í sókn
og vörn, enda mun það engan
þjálfara hafa og mjög takmarkaða
aðstöðu til æfinga. Má það merki-
legt teljast að í jafnstórum bæ og
Keflavík er orðin að ekki skuli
vera til bærilegt íþróttahús, né
horfur á því að það komi í náinni
framtíð.
Sem fyrr greinir tók Fylkir
strax góða forystu I leik þessum.
Eftir 15 mínútna leik var staðan
8—2 og í hálfleik 16—7. I seinni
háifleik var hið sama uppi á ten-
ingnum. Fylkir jók forystu sina,
þrátt fyrir mikla ónákvæmni I
leik slnum og sigraði 28—15.
Bezti maður Keflavíkurliðsins I
leik þessum var Guðmundur
Jóhannesson, og var hann raunar
sá eini sem eitthvað ógnaði að
ráði. I Fylkisliðinu áttu þeir
Einar Ágústsson og Gunnar Bald-
ursson einna beztan leik, en Fylk-
isliðið er sennilega betra um þess-
ar mundir en það hefur verið
undanfarna vetur.
Maður leiksins: Gunnar Bald-
ursson, Fylki.
Mörk Fylkis: Gunnar Baldurs-
son 9, Einar Ágústsson 7 (2v)
Guðmundur Sigurbjörnsson 4,
Örn Jensson 3, Halldór Sigurðs-
son 2, Stefán Hjálmarsson 2 (1 v),
Ágúst Sigurðsson 1.
Mörk Keflavfkur: Grétar Grét-
arsson 6, Guðmundur Jóhannes-
son 3, Magnús Garðarsson 2,
Sævar Halldórsson 1, Einar Leifs-
son 1, Sigurður Björgvinsson 1
(v), Þórir Sigfússon 1. — stjl.
STAÐAN
Staðan f 2. deild Islandsmótsins
f handknattleik er nú þessi:
Björn Jóhannesson Ármenningur skorar fyrir lið sitt f leiknum við KA.
ÁRMENNINGAR LÖGÐU KA
Ármann
KA
KR
Stjarnan
Fylkir
Þór
Leiknir
Keflavfk
1 0
1 1
1 1
1 1
0 2
92-81
96-80
96-81
77-65
75-78
66-67
101-119
1
3
0 0 4 70-105 0
ÁRMENNINGAR unnu mjög mikil-
vægan sigur I 2. deildar keppninni I
handknattleik á laugardaginn, er
þeir sigruðu KA frá Akureyri með 24
mörkum gegn 22 I leik liðanna sem
fram fór I Laugardalshöllinni. Sá sig-
ur var verðskuldaður, þar sem Ár-
mannsliðið lék betri handknattleik
og hefur greinilega yfir meiri breidd
að ráða. Verður ekki annað sagt en
að lið þetta lofi mjög góðu, en það er
að stofni til skipað kornungum leik-
mönnum.
Hins vegar olli KA-liðið
nokkrum vonbrigðum I leiknum. Það
sýndi öðru hverju ágæt tilþrif en datt
þess á milli niður. Vörn liðsins lét
stundum fara illa með sig, og mark-
varzla þess var heldur slök, þegar á
heildína er litið.
Þórsaramir ráku af sér slyðruorðið
með 6 marka sigri yfir KR-ingum
ÞÓR frá Akureyri vann mjög svo
óvæntan sigur I 2. deildar keppni
jslandsmótsins I handknattleik á
laugardaginn, er liðið bar sigurorð af
KR-ingum í leik sem fram fór t
Laugardalshöllinni. Urðu úrslit leiks
ins 27—21 fyrir Þór eftir að staðan
hafði verið 15—10 þeim I vil I hálf-
leik. Þar með hafa öll liðin I 2.
deildinni tapað stigi I keppninni !
vetur, og má Ijóst vera að baráttan
verður þar mjög tvisýn og skemmti-
leg — jafnvel skemmtilegri en I 1.
deild. Það má einnig Ijóst vera, að í
2. deild eru nú a.m.k. þrjú — fjögur
lið sem eru jafngóð eða betri en sum
liðanna sem leika I 1. deild og æfing-
in hjá þessum liðum sýnu betri
heldur en hjá mörgum 1. deildar
liðanna.
Ekki verður annað sagt en að Þórs-
liðið hafi náð að sýna ágætan leik á
laugardaginn, mun betri en búizt var
við, þar sem Þórsararnir hafa verið
taldir slakari en hitt Akureyrarliðið, KA
Mjög mikil ógnun er i sóknarleik Þórs-
liðsins — þar eru nokkrar góðar skytt-
ur og linumenn sem kunna hlutverk
sitt vel, hreyfa sig mikið og skapa
þannig bæði sjálfum sér og skyttum
liðsins tækifæri. Beztu skyttur Þórs-
liðins eru sem áður þeir Sigtryggur og
Þorbjörn, en Ellas er einnig drjúgur og
átti mjög fallegar sendingar sem gáfu
mörk, auk þess sem hann var bezti
maður liðs sins i vörninni. Nái Þórs-
liðið að fylgja þessum sigri slnum eftir
með állka góðum leik, og liðið sýndi
gegn KR er það spá undirritaðs að það
verði ekki auðvelt viðfangs i 2 deildar
keppninni i vetur.
KR-ingar vanmátu greinilega and-
stæðinga sina I þessum leik, og það
var þeim dýrkeypt. í upphafi leiksins
var oft tekin mjög vafasöm áhætta i
sóknarleiknum, og varnarleikur liðsins
var einnig óákveðinn og skapaði skytt-
um Þórsliðsins svigrúm Fljótlega
gripu KR-ingar til þess ráðs að taka
Elías Jónasson úr umferð, en það bar
alls ekki tilætlaðan árangur, þar sem
þá losnaði meira um Sigtrygg og Þor-
björn, Var Þorbjörn þá einnig tekinn úr
umferð, en ekki gaf það heldur
árangur.
Þói* náði strax forystu I leiknum og
var staðan t.d 3—— 1 eftir 8 min.,
8—3 eftir 1 5 min og 1 3—9 eftir 25
min. í seinni hálfleik var hið sama uppi
á teningnum Oftast munaði 5—-7
mörkum. Það var aðeins um miðjan
hálfleikinn sem KR tókst að minnka
muninn i 4 mörk er staðan var
19—15 fyrír Þór. Úrslit urðu svo
27—21 fyrir norðanmenn, sem fyrr
segir
Maður leiksins: Elías Jónasson. Þór.
MÖRK KR: Hilmar Björnsson 7,
Símon Unndórsson 6, Ingi Seinn
Björgvinsson 3. Haukur Ottesen 2,
Sigurður Óskarsson 1, Ævar Sigurðs-
son 1, Kristján Ingason 1.
MÖRK ÞÓRS: Sigtryggur
Guðlaugsson 8(3v), Þorbjörn Jensson
6, Elfas Jónason 5, Óskar Gunnarsson
3, Einar Björnsson 3, Árni Gunnarsson
2
Góðir dómarar þessa leiks voru
Gunnar Kjartansson og Ólafur Stein-
grímsson.
—stjl.
FH STULKURNAR MATTU ÞAKKA
FYRIR SIGUR YFIR UGK
FH sigraði Breiðablik 14—12 ! leik
liðanna ! 1. deildar keppni kvenna I
handknattleik sem fram fór ! Ásgarði
i Garðabæ á sunnudaginn. Heldur
var leikur þessi óburðugur, og bar
þess glögglega vitni að stúlkurnar
eru engan veginn I sæmilegri æfingu
enn. Virðist ætla að ganga heldur illa
að koma handknattleik kvenna á
viðunandi stig hérlendis, enda varla
von á góðu þegar áhugi stúlknanna
virðist vera I lágmarki.
Leikurinn á sunnudaginn bauð upp
á urmul af röngum sendingum og
mistökum hjá báðum liðum. Oft-
sinnis sendu stúlkurnar knöttinn
beint I hendur mótherja eða þá að
reynd voru skot eða llnusendingar
hreinlega út I bláinn.
FH—liðið hafði betur allt frá upp-
hafi og var með 3 marka forystu !
hálfleik, en Þá var staðan 6—3. í
seinni hálfleiknum sóttu Breiðabliks-
stúlkurnar svo heldur I sig veðrið og
náðu að jafna 11 —11 þegar
skammt var til leiksloka. En þar með
var Ifka draumurinn úti hjá þeim.
FH—stúlkurnar léku nokkuð yfir-
vegað á lokamínútunum og tókst að
tryggja sér sigurinn.
Beztar I liði UBK I þessum leik
voru Svava Svansdóttir, mark-
vörður, og Alda Helgadóttir, en Aida
virðist vera eina stulkan I Breiða-
bliksliðinu sem getur skotið
sæmilega. Beztar hjá FH voru
Ármenningar höfðu forystu í
leiknum frá upphafi til enda, ef fyrstu
mínútur hans eru undanskildar. Um
miðjan fyrri hálfleik var staðan 7—6
fyrir Ármann, en siðan seig Reykja-
víkurliðið hægt og örugglega framúr
og hafði 4 marka forystu f hálfleik
1 2—8. Þann mun tókst KA að minnka
niður í eitt mark strax í upphafi seinni
hálfleiks og oftsinnis í seinni hálf-
leiknum munaði aðeins einu marki. En
Ármenningar létu ekki að sér hæða, og
léku mjög skynsamlega þegar mest á
reið. Héldu þá knettinum og biðu eftir
tækifærum, þannig að KA-liðið náði
aldrei að jafna. Voru tvær síðustu
minútur leiksins mjög spennandi, en
þá freistaði KA þess að leika „maður á
mann". Voru 5 mörk skoruð á þessum
lokaminútum, en ÁrmennLngar höfðu
betur i þeirri baráttu eins og oftast i
leiknum.
Sem fyrr greinir leikur Ármannsliðið
nú léttan og skemmtilegan handknatt-
leik Liðið nýtir vallarbreiddina vel og
það er góð ógnun i sókn þess. í
vörninni var gengið vel út á móti
hættulegustu leikmönnum KA-liðsins
og þess freistað að stöðva þá áður en
þeir komust í skotfæri. Beztu leikmenn
Ármannsliðsins voru þeir Vilberg Sig-
tryggsson Pétur Ingólfsson og Friðrik
Jóhannsson.
KA-liðið sýndi öðru hverju meistara-
leg tilþrif, en náði síðan ekki að fylgja
þeim eftir. Sum mörkin sem KA skor-
aði i þessum leik voru stórkostlega
falleg, og átti hinn ágæti línumaður
liðsins Þorleifur Ananiasson þá oftast
hlut að máli. Beztu leikmenn KA i
leiknum voru þeir Jóhann Einarsson
Hörður Hilmarsson og Þorleifur
Ananíasson
Maður leiksins: Vilberg Sigtryggs-
son, Ármanni
MÖRK ÁRMANNS: Pétur Ingólfs-
son 5, Björn Jóhannesson 4, Vilberg
Sigtryggsson 4, Hörður Harðarson 4
(3v) Friðrik Jóhannsson 3, Óskar Ás-
mundsson 2, Þráinn Ásmundsson,2
MÖRK KA: Sigurður Sigurðsson 4,
Hörður Hilmarsson 4, Jóhann Einars-
son 4, Ármann Sverrisson 3 (1v),
Halldór Rafnsson 3. Þorleifur Ananias-
son 3, Hermann Haaldsson 1
— stjl.
Kristjana Arandóttir, Margrét
Brandsdóttir og Katrín Danivals-
dóttir. Annars hefur FH—liðið alia
burði til þess að ná árangri,
—spurningin hlýtur fyrst og frmst
að vera sú hvort stúlkurnar vilja
leggja það á sig sem þarf til þess.
Maður leiksins: Svava
Svansdóttir, Breiðabliki.
Mörk Breiðabliks: Aida
Helgadóttir 6 (2v), Arndís
Björnsdóttir 3, Þórunn Daðadóttir 2,
Björg Gisladóttir, T.
Mörk FH. Kristjana Aradóttir 6
(1v). Margrét Brandsdóttir 3, Katrin
Danivalsdóttir, 2 (1v), Sigfriður
Sigurgeirsdóttir 2, Svanhvít
Magnúsdóttir 1 (v).
Einkunnagjölln
LIÐ FIl
Hjalti Einarsson 2
Sæmundur Stefánsson 3
Guðmundur A Stefánsson 1
Geir Halisteinsson 4
Árni Guðjónsson 1
Júlfus Pálsson 2
Þórarinn Ragnarsson 3
Viðar Sfmonarson 2
Janus Guðlaugsson 2
Helgi Ragnarsson 2
Birgir Finnbogason 2
Guðmundur Magnússon 1
LIÐGROTTG
Guðmundur Ingimundarson 1
Stefán Stefánsson 1
Grétar Vilmundarson 1
Gunnar Lúðvfksson 2
Axel Friðriksson 2
Þðr Ottesen 3
Arni Indriðason 2
Sigurður Pétursson 1
Hörður Kristjánsson 2
Halldðr Kristjánsson 1
Magnús Margeirsson 2
Magnús Sigurðsson 1
LIÐHAUKA:
Gunnar Einarsson 4
Jðn Hauksson 3
Olafur Olafsson 1
Sturia Haraldsson 1
Stefán Jðnsson 2
Hörður Sigmarsson 2
Svavar Geirsson 3
Þorgeir Haraldsson 1
Ingimar Haraldsson 2
Sigurgeir Marteinsson 1
Frosti Sæmundsson 2
LIÐ ÞROTTAR:
Kristján Sigmundsson 1
Sigurður Sveinsson I
Trausti Þorgrlmsson 2
Konráð Jónsson 2
Halldðr Bragason 1
Gunnar Arnason 1
Sveinlaugur Kristjánsson 2
Sævar Ragnarsson 1
Jðhann Frímannsson 1
Gunnar Gunnarsson 2
Sigurður Ragnarsson 1
Bjarni Jðnsson 1
LIÐ VIKINGS:
Rðsmundur Jðnsson 3
Grétar Leifsson 1
Magnús Guðmundsson 2
Jón Sigurðsson 2
Einar Jðhannesson 1
Olafur Einarsson 3
Erlendur Hermannsson 2
Oiafur Jónsson 2
Þorbergur Aðaisteinsson 2
Viggð Sigurðsson 2
Björgvin Björgvinsson 4
LIÐ VALS:
Olafur Benediktsson 2
Jón Karlsson 2
Jðn Pétur Jönsson 3
Jðhannes Stefánsson 2
Stefán Gunnarsson 1
Þorbjörn Guðmundsson 3
Jóhann 1. Gunnarsson 1
Steindór Gunnarsson 3
Björn Björnsson 1
Bjarni Guðmundsson 2
LIOIR:
örn Guðmundsson 2
Bjarni Hákonarson i
Bjarni Bessason 3
Sigurður Gfsiason 2
Sigurður Svavarsson 2
Ágúst Svavarsson 3
Hörður Arnason 1
Vilhjálmur Sigurgeirsson 1
Hörður Hákonarson 3
Brynjólfur Markússon 3
LIÐ FRAM:
Jón Sigurðsson 1
Guðjón Erlendsson 2
Birgir Jðhannesson 1
Jón A. Rúnarsson 2
JensJensson 2
Arni Sverrisson 2
Gústaf Björnsson 1
Sigurbergur Sigsteinsson 3
Pétur Jöhannesson 2
Arnar Guðlaugsson 3
Pálmi Pálmason 2
Kjartan Gfslason )
ioi««awraBMKiamq^^