Morgunblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1976 Hagamýs sækja ad 16 ára stúlku: „Allt í einu vafdist, eitthvað loðið utan um lappirnar á mér Færri kvartanir um rottur og mýs til meindýraeyðis en í fyrra — ALLT í einu fann ég eitt-' hvað loðið vefjast utan um lappirnar á mér og er ég leit niður sá ég að hópur að ég held hagamúsa, var við fætur mér. Mér brá vitanlega mjög, barði frá mér, hljóp af stað og losnaði þannig frá þessu ófögnuði. Þannig mæltist 16 ára stúlku, Áslaugu Finnsdóttur, er Morgunblaðið ræddi við hana i gær. Fyrir nokkru varð hún fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að 10—15 hagamýs sóttu að henni þar sem hún var á gangi á mótum Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar. Sem von var brá Aslaugu mjög við þessa árás og fékk hún snert af taugaáfalli, auk þess sem fæturnir hlupu upp og á þá komu hvítir flekkir. Sagði Ás- laug, að þrjú af dýrunum hefðu verið stærri en hin, sem voru greinilega hagamýs að hennar sögn. Af þessu tilefni hafði Morgunblaðið samband við Ás- mund Reykdal, verkstjóra hjá Reykjavfkurborg, og spurðist fyrir um hvort óvenju mikið hefði verið um rottur og mýs í haust. Sagði Asmundur það síð- ur en svo hafa verið og miðað við fyrrahaust þá væru kvartanir um þessi dýr nokkr- um hundruðum færri. Sagði As- mundur að ef fólk yrði vart við rottur eða mýs ætti það um ieið að láta meindýraeyði vita. Um tilfellið sem sagt er frá hér að framan sagði Ásmundur, að ekki væri ólíklegt að stúlkan hefði stigið niður í músahóp, sem verið hefði að flytjast búferlum. Ekki væri ósennilegt að þær hefðu orðið að flytja hreiður sitt vegna bygginga- framkvæmda í nýja miðbæn- um, án þess þó að hann vildi nokkuð fullyrða um það. „Látum strætó bíða — við bfðum ekki svo sjaldan eftir honum“ Jarðsig veldur vega- skemmdum Siglufirði 17. nóvember. MIKIÐ jarðsig hefur orðið á veg- inum til Sigluf jarðar við Almenn- ingsnöf að undanförnu. Telja vegagerðarmenn að vatn grafi undan veginum þarna og svæðinu f kring og vilja vara ökumenn við, sem þarna fara um. Hefur jörð áður sigið á þessum stað, en ekki eins mikið og nú og segja má að allt svæðið sé á hreyfingu. Eldborg landaði hér 1 dag 370 tonnum af loðnu og Ásgeir kom inn með 360 lestir. Skipin fengu þennan afla um 14 tima stfm norð- vestur af Siglufirði, en þar er nú vonzkuveður og erfitt að athafna sig. — mj. Fataverksmiðja SÍS gengur fyrir: Gráf eldur f ær ekki all- ar tegundir af skinnum Vængjamenn bíða enn sérfræðings að vestan Starfsfólkið óskar eftir hluthafafundi FORRÁÐAMENN Vængja bíða enn eftir Bandarfkjamanni þeim, sem ætlað er að ábyrjast allt við- hald flugvéla félagsins og annast eftirlit með þeim. Að sögn Ómars Ragnar Jóhannesson skólastjóri látinn RAGNAR Jóhannesson fyrr- verandi skólastjóri andaðist f Borgarspftalanum sfðastliðinn þriðjudag, 63 ára að aldri. Ragnar Framhald á bls. 22 Öskarssonar hjá Vængjum eru Ifkur á að koma manns þessa hafi tafizt vegna þess hversu langan tfma það tekur þá Bandarfkja- menn að fá vegabréf sem eru að fara f sfna fyrstu utanferð. Meðan maðurinn kemur ekki fær félagið hins vegar ekki flugrekstrarleyfi samkvæmt ákvörðun loftferðaeft- irlitsins. Starfsfólk Vængja, sem jafn- framt er yfirleitt hluthafar f fé- laginu, hefur óskað eftir því við stjórn félagsins að kallaður verði saman hluthafafundur til að ræða stöðu félagsinsr. Hins vegar þurfa hluthafarnir að hafa yfir 20% hlutafjárfeignar á bak við sig til að stjórhin 'beri að kalla saman Framhald á bls. 22 FYRIRTÆKIÐ Gráfeldur h.f. í Reykjavík hefur f sumar og haust átt f nokkr- um erfiðleikum vegna þess að fyrirtækið hefur ekki getað fengið til vinnslu nema hluta af þeim mokkaskinnum, sem það þarf í framleiðslu sína. Agnar Fr. Svanbjörns- son, framkvæmdastjóri Gráfeldar h.f., sagði í sam- tali við Mbl. í gær, að fyrir- tækið keypti öll mokka- skinn til framleiðslu sinnar frá Iðnaðardeild SÍS en í sumar og þá sér- staklega f haust hefði Iðnaðardeildin ekki getað afgreitt til þeirra allar þær tegundir af skinnum, sem óskað hefði verið eftir. Af hálfu Iðnaðardeildarinnar, sagði Agnar, hefur þvf verið borið við, að Skinna- verksmiðjan Iðunn yrði að láta fataverksmiðju SÍS, Heklu, ganga fyrir um hráefni til að framleiða Framhald á bls. 22 Ráðinn yfirlæknir lyflækningadeildar ÞÓRÐUR Harðarson hefur verið ráðinn yfirlæknir lyflækninga- deildar Borgarspítalans. Þórður er fæddur 14. marz 1940 í Reykjavík, sonur Harðar Þórðar- sonar og Ingibjargar Oddsdóttur. Þórður lauk stúdentsprófi 1960 og kandídatsprófi í læknisfræði 1967. Hann stundaði framhaldsnám i hjartasjúkdómum í Bretlandi og Bandaríkjunum. Siðan hann kom frá námi hefur hann einkum starfað á Landspítalanum. Þórður er kvæntur Sólrúnu Jensdóttur og eiga þau einn son. Munar 3,3 milljónum á tveggja nerbergja íbúd Bæjarstjórn Sauðárkróks: Óhæfa ef Loð- skinn fær ekki nóg hráefni Sauðárkróki 17. nóvember SVOHLJÓÐANDI tillaga var samþykkt samhljóða 1 bæjar- stjórn Sauðárkróks þann 16. þessa mánaðar. „Bæjarstjórn Sauðárkróks samþykkir að skora á stjórnvöld að hlutast til um að Loðskinn hf. fái hráefni til starfsemi sinnar svo rekstur þessa fyrirtækis geti gengið áfram með eðli- legum hætti. Bæjarstjórn þykir óhæfa ef þessi iðnaður verður fluttur aftur til þeirra staða, sem hafa meiri möguleika á öðrum fjöl- breyttum iðnaði en Sauðár- króksbær enn þá hefur.“ - jón Ragnar Jóhannesson FYRSTU fbúðirnar hafa nú verið afhentar 1 f jölbýlishúsinu að Hagamel 51—53, en Byggung, Byggingarsamvinnufélag ungs fólks, stóð að byggingu hússins, Verð fbúða 1 húsinu er mun ódýrara til félagsmanna en gengur og gerist á hinum Takmarkið er: Engin slysaalda í ár Medaltjón af völdum árekstra er 70 þús. kr. Rætt við Ólaf Bergsson TJÓN af völdum bifreiða- árekstra er gffurlegt á ári hverju. Það er margvfslegt, bæði eignatjón og heilsutjón, og er erfitt að meta það til fjár. Fólk, sem af einhverjum ástæð- um verður fyrir meiðslum f umferðinni getur beðið óbætanlegt tjón á heilsu sinni og á ári hverju bfða margir bana f umferðarslysum. Mbl. ræddi við Ólaf Bergsson, deildarstjóra hjá Bifreiðadeild Sjóvá, og spurði hann m.a. hversu mikið kostuðu þeir árekstrar og slys sem verða hér árlega: „Til okkar komu á sfðasta ári um 4500 tjón vegna allra greina bifreiðatrygginga og er þeim skipt niður í flokka. Tjón vegna ábyrgðartryggingar sem við greiddum á síðasta ári voru rúmlega 160 milljónir og þar við bætist það tjón sem aðrir urðu fyrir og tryggingafélögin greiddu ekki. Gera má því ráð fyrir, að um 1.500 milljónir á ári fari í tjónagreiðslur hjá öll- um tryggingafélögunum. Allur kostnaður vegna við- gerða hefur aukizt mjög á undanförnum árum og má sem dæmi nefna að fyrir aðeins tveimur árum kostaði bretti á Framhald á bls. 22 Fklð var aftan á þessa blfrrlð. Lesendur geta spreytt slg á að gizka á hvað kostaði að lagfcra hana en það sem skemmdist var: Stuðari, afturhjólaskál, aurhiff, stuðarafestingar, hljððkútur, lok á vélar- hlff og „svunta" undir vélarhlffinni. I næsta umferðarþætti, á morgun, munum vfð segja hvað viðgerðin kostaðl og birta jafnframt fleiri myndir af skemmdum bifrefðum. almenna markaði. Þannig kostar tveggja herbergja fbúð í húsinu 48 fermetrar, 2.2 milljónir til félagsmanna, en þess konar fbúð I húsinu var nýlega seld á almennum markaði á 5.5 milljónir. Ibúðirnar afhendast tilbúnar undir tréverk með fullfrágenginni sameign. Þriggja herbergja fbúð, 72 fm, kostar 3.361 milljónir, en þriggja herbergja, 83 fm, kostar 3.749 milljónir. Stjórn Byggung hefur ákveðið að sækja um lóðir í næstu úthlutun Reykjavíkurborgar. Steingrfmur Sigurðsson Steingrímur opnar þrítugustu sýninguna STEINGRÍMUR Sigurðsson list- málari opnar sfna þrftugustu mál- verkasýningu f Félagsheimili ölfusinga f Hveragerði kl. 21 f kvöld, fimmtudag. Sýningin verður opin daglega kl. 10 — 23.30 fram til sunnudagskvölds 21. nóvember og lýkur henni á miðnætti. Steingrímur sagði, er Morgun- blaðið ræddi við hann, að á sýn- ingunni yrðu 57 myndir, flestar vatnslitamyndir unnar f aquerelle, þá væru einnig nokkr- ar akrfl- og pastel-myndir. — Myndirnar hef ég málað sfðan f apríl, er ég settist að i Hveragerði. Ég bý nú f Hlíðar- haga, en þaðan er fagurt útsýni og uni ég mér þar betur og betur. Þá mála ég mikið við sjóinn og skrepp oft niður á Stokkseyri og Eyrarbakka. I tilefni þessar þrftugustu sýn- ingar Steingríms mun Alfreð W. Þórðarson leika lög eftir sjálfan sig og aðra á píanó. Steingrfmur segir, að Alfreð sé þekktastur undir nafninu Alli Wosi og sé Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.