Morgunblaðið - 18.11.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976
3
Sinfóníuhljóm-
sveitin:
Brasilísk
stúíka ein-
leikari á
tónleikum
í kvöld
FJÓRÐU tónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar Ís-
lands á þessu starfsári
hefjast kl. 20:30 I
Háskólabfói í kvöld.
Stjórnandi er Karsten
Andersen, en einleikari
er brasflfsk stúlka,
Christina Ortiz. Á efnis-
skrá eru verk eftir Karl
O. Runólfsson, Carl
Nielsen og pfanókonsert
eftir Schuman.
Christina Ortiz á æfingu f Háskólabfói f gær.
Ljósmynd Frióþjófur
Christina Ortiz hefur
áður leikið með Sinfóní-
unni, í janúar 1975. Hún
er fædd í Brazilíu og hóf
píanónám fimm ára
gömul. Aðeins fimmtán
ára hlaut hún fyrstu
verðlaun í píanókeppni í
Rio de Janeiro og fylgdi
þeim verðlaunum
styrkur til frekari náms í
París. Árið 1966 vann
hún Enesco-verðlaunin í
Búkarest og ári síðar
fyrstu verðlaun í alþjóð-
legri píanókeppni i París.
Fleiri verðlaun hafa fylgt
í kjölfarið og hefur Ortiz
hlotið mikið lof gagnrýn-
enda og er eftirsóttur
einleikari. Hefur hún
leikið með mörgum
þekktustu hljómsveitum
Evrópu og Ameríku.
30 konum sagt
upp á Self ossi
PRJÓNASTOFA SELFOSS h.f.
hefur sagt upp öllu starfsfólki
sfnu frá og með næstu áramótum
vegna verkefnaskorts. Rúmlega
30 konur hafa starfað hjá fyrir-
tækinu og hefur þar ýmist verið
um að ræða hálfsdags starfsmenn
eða heilsdags. Pétur Sigurðsson
hjá Prjónastofu Selfoss h.f. sagði
f samtafi við blaðið, að fyrirtækið
hefði að undanförnu einkum
saumað ýmsan fatnað fyrir Hag-
kaup f Reykjavfk en nú væri
fyrirsjáanlegt að ekki væru fyrir
hendi næg verkefni en mikið
hefur verið leitað nýrra verkefna
en ekki tekizt.
Lauk doktors-
prófi frá
Princeton
NÝLEGA eða hinn 25. október
1976 lauk Þorvaldur Gylfason
hagfræðingur doktorsprófi við
háskólann f Princeton f Banda-
rfkjunum. Ritgerð Þorvalds
fjallaði um „Verðbólgu, atvinnu-
leyst og hagvöxt". Fyrir hana
hlaut hann ágætiseinkunn.
Þorvaldur Gylfason lauk hag-
fræðiprófi I Manchester 1973, en
hélt síðan til framhaldsnáms við
Princetonháskolann. Hefur hann
nú verið ráðinn starfsmaður
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Washington í næstu tvö ár. Hann
hefur þau sumur, sem hann hefur
komið heim, unnið í hagfræði-
deild Seðlabanka Islands og siðari
árin i Þjóðhagsstofnuninni.
Hefur Jón Sigurðsson hagrann-
sóknastjóri fylgzt með starfi hans
við háskólann f Princeton.
Þorvaldur Gylfason er kvæntur
önnu Bjarnadóttur, sem stundar
háskólanám f landafræði.
Pétur sagði að ástæða þessa
verkefnaskorts væri slæm sam-
keppnisaðstaða innlendra sauma-
stofa við verð á innfluttum fatn-
aði. Nefndi hann sem dæmi, að
þrátt fyrir mikla hagræðingu og
góðan tæknibúnað hjá Prjóna-
stofu Selfoss, hefðu tilbúnar, inn-
fluttar karlmannabuxur í haust
kostað 300 krónum minna en.
hægt er að verðleggja innlenda
framleiðslu. Launagreiðslur og
launatengd gjöld hjá Prjóna-
stofunni hafa síðustu mánuði
numið rúmlega 2 milljónum
króna á mánuði.
Þorvaldur Gylfason
Slasaðist í
Lækjargötu
ALDRAÐUR maður slasaðist
allmikið f umferðarslysi f
Lækjargötu um kvöldmatarleytið
f gær. Hann varð fyrir bfl á móts
við Skólabrú og hlaut fótbrot og
óttazt var að hann hefði hlotið
innvortis meiðsli. Frh. á bls. 23
IPAX
KRISTJAN O.
SKAGFJÖRÐ HF
-gruppen-
CIPAX
Holmsgötu 4 - Reykjavík - Sími 24120
ÞAÐ TILKYNNIST HÉR MEÐ, AÐ CIPAX PLAST
A/S, AURSKOG, NOREGI, HEFUR VEITT
KRISTJÁNI Ó. SKAGFJÖRÐ H.F. EINKAUMBOÐ
FYRIR FRAMLEIÐSLU SfNA Á ÍSLANDI
Samkvæmt ofanrituðu, er okkur ánægja að
tilkynna viðskiptavinum okkar, að við getum
nú boðið hina frábæru CIPAX fiskkassa.
CIPAX fiskkassarnir eru framleiddir með
nýrri aðferð svokallaðri ,,rotasjon“ steypu og
úr mjög sterku plastefni, (þverbundnu
polyethylene XL). CIPAX fiskkassarnir
springa ekki og þola högg og slæma meðferð
allt niður að —40°C. Þessir eiginleikar eru
einsdæmi og gera meira en að uppfylla þær
kröfur sem almennt eru gerðar til plastefna.
CIPAX kassarnir eru fáanlegir í tveimur stærð-
um (70 og 90) og eru þannig hannaðir, að þeir
falla að þeim fiskkössum sem mest hafa verið
notaðir hérlendis til þessa.
OHAPP
GETUR
HENT
ÁN ÞESS
AÐ SKAÐI
SÉSKEÐUR