Morgunblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976
Birgir Isl. Gunnarsson, borgarstjóri:
Um 500 milljónum varið til
skólamannvirkia á þessu ári
BORGARFULLTRUl Kristján Benediktsson (F) lagði fram eftirfar-
andi fyrirspurn á sfðasta borgarst jðrnarfundi 4.11.
1. Hve miklu er lokið af áætluðum framkvæmdum ársin: a) hjá
borgarsjóði? b) á vegum fyrirtækja borgarinnar?
2. Er eitthvað af áætluðum framkvæmdum sem a) ekki er byrjað á? b)
verður ekki lokið á árinu?
Borgarstjóri Birgir Isleifur Gunnarsson, gaf mjög greinargott yfirlit
um framkvæmdir borgarinnar og fer það hér á eftir.
I. Byggingarframkvæmdir sam- g) Barnaheimili:
kvæmt áætlun um eignabreyting- Lokið er gagngerum endurbót-
ar borgarsjóðs. um á Laufásborg og tekið hefur
1. Helztu framkvæmdir, sem
lýkur í ár, eða er þegar lokið að
mestu, eru þessar:
a) Skólar:
■ Annar áfangi Fossvogsskóla, 10
færanlegar kennslustofur, sund-
laug við Breiðholtsskóla og verk
stæðishús Fjölbrautaskóla (3. áf
l. st.), sem reist er á vegum sér
stakrar byggingarnefndar, en
borg og ríki greiða hlut sinn
kostnaði við þá framkvæmd jafn-
óðum og hann fellur til. Þá lýkur
einnig frágangi við Fellaskóla,
kennsluálmu Fjölbrautaskólans,
íþróttahús Hagaskóla, I. áfanga
Hólabrekkuskóla og Öskjuhlíðar-
skóla sem rikið tók yfir á sínum
tíma á sama hátt og eldri áfanga
Vogaskóla.
Áætlaður kostnaður við gerð
skólamannvirkja á þessu ári nam
i heild 492.5 m.kr., en verður að
líkindum nálægt 510.0 m.kr., eða
17.5 m.kr. umfram áætlunarfjár-
hæð, og hiutur borgarsjóðs verður
351.1 m.kr. í stað 302.2 m.kr.
b) Borgarbókasafn:
Gert er ráð fyrir þvf, að breyt-
ingum á leiguhúsnæði safnsins að
Þingholtsstræti 27 Ijúki í ár og
jafnframt breytingum ( húsa-
kynnum aðalsafns að Þingholts-
stræti 29 A. Unnið er áfram að
hönnun safnbyggingarinnar, sem
á að reisa f nýja miðbænum.
c) Æskulýðsmannvirki:
Lokið hefur verið við félagsmið-
stöð í Bústaðasókn er er fyrirhug-
að að opna hana í þessum mánuði.
Lokið hefur verið við bátaskýli
í Nauthólsvík og lagfæringu á
bryggju þar.
Þá verður senn lokið frágangi
lóðar við Tónabæ.
Fyrir hugað var að verja 39.5
m. kr. til framkvæmda á sviði
æskulýðsmála nú í ár og mun sú
áætlun standast.
d) Iþróttamannvirki:
Framkvæmdum hefur verið
lokið samkvæmt áætlun og er
aðallega um að ræða byggingu
búningsklefa víð Sundlaug
Vesturbæjar, vallarhús í Árbæ,
framlag til útivistarsvæðisins I
Bláfjöllum og til mannvirkjagerð-
ar i Laugardal. Áætlaður hluti
borgarsjóðs I framkvæmdakostn-
aði er 50.0 m.kr.
e) Sjúkrastofnanir:
Heilsugæzlustöðin í Árbæjar-
hverfi stendur nú tilbúin að öðru
leyti en því, að ýmis lausabúnað-
ur er ókominn, enda hefur ekki
fengizt heimild til ráðningar
starfsfólks, lækna og hjúkrunar-
liðs. Þá er lokið nauðsynlegum
breytingum til reksturs heilsu-
gæzlustöðvar í Domus Medica.
Miklar tafir hafa verið við 2.
áfanga Arnarholts og hefur nú
verið samið við verktakann að
hann fari af verkinu að öðru leyti
en því, að hann mun hafa inn-
réttingasmiði með höndum.
Hlutur borgarsjóðs í kostnaði
við framkvæmdir á sviði heil-
brigðismála var áætlaður 145.3
m.kr., en verður að líkindum ná-
lægt 123.0 m.kr.
f) Stofnanir fyrir aldraða:
Hafnarbúðum hefur verið
breytt í hjúkrunarheimili fyrir
aldraða og verður heimilið senn
tilbúið til notkunar.
Fyrir hugað var að verja 217.0
m.kr. til framkvæmda í þágu aldr-
aðra á árinu, en nú má gera ráð
fyrir því, að heildarkostnaður
vegna þessara framkvæmda verði
233.0 m.kr. í ár.
verið í notkun nýtt skóladagheim-
ili í Austurbæ.
Áætlaður hlutur borgarsjóðs í
stofnkostnaði barnaheimila var
115.0 m.kr., en hann verður að
óbreyttu um 96.0 m.kr., eða um
19.0 m.kr. undir áætlun.
2. Helztu framkvæmdir, sem
ekki var byrjað á eða eru í gangi:
a) Skólar:
Ekki var byrjað á smfði íþrótta-
húss við Hlíðaskóla, enda breytt-
ust hugmyndir um gerð húsnæðis-
háð breytingum á byggingarvísi-
tölu.
Gatnagerð
Áætlaðar framkvæmdir við ný-
byggingu gatna og holræsa eru
samkv. fjárhagsáætlun að upp-
hæð 760.9 m.kr. Um s.l. mánaða-
mót hafði verið unnið fyrir um
680 m.kr., þ.e. tæpl. 90% af fjár-
veitingunni.
Á bls. 4 — 8 í framkvæmdaáætl-
un gatnagerðarinnar fyrir árið
1976 er sýnd sundurliðun á ný-
byggingaframkvæmdum. Gerð
ibúða- og iðnaðargatna er lokið
samkv. áætluninni, en stærstu
kostnaðarliðirnir eru við lagn-
ingu Vatnagarða og Sævarhöfða
svo og við Klettagarða og Holta-
veg. Þá hafa umferðargötur verið
gerðar eins og áætlað hafði verið,
þ.e. Kringlumýrarbraut frá
Borgartúni að Sætúni, Sætún
eystri akrein frá Kringlumýrar-
Hjúkrunarheimili fyrir aldraða
senn tilbúið í Hafnarbúðum
ins og hefur það nú verið hannað
að nýju.
Framkvæmdum við Sundlaug
Fjölbrautaskólans miðar öllu
hægar en gert var ráð fyrir, en
þess ber að gæta, að mannvirkinu
á ekki að ljúka fyrr en 1978.
Byrjunarframkvæmdir eru
hafnar við 2. áfanga Hólabrekku-
skóla og 3. áfanga við Hvassa-
leitisskóla.
ölduselsskóli verður fokheldur
um áramót.
Að öðru leyti vísast til með-
fylgjandi yfirlits um skólabygg-
ingar.
c) Æskulýðsmannvirki:
Innan skamms fer fram útboð á
jarðvinnu og botnplötu fyrirhug-
aðrar félagsmiðstöðvar í Árbæjar-
hverfi, en það hefur dregizt nokk-
uð vegna áforma um að reisa
bókasafn i tengslum við félags-
miðstöðina. Ekki reyndist unnt að
ráðast í viðgerð á Tónabæ, utan-
húss, i ár.
d) Sjúkrastofnanir:
Utboðslýsingar eru nú tilbúnar
vegna byggingar B-álmu Borgar-
spítalans og útboðs að vænta fljót-
lega og framkvæmdir við 2.
áfanga Arnarholts hafa dregizt
mjög í höndum verktaka.
Áætlað var að gera þjónustu-
álmu Borgarspitalans fokhelda á
þessu ári, en síðar var í verksamn-
ingi gert ráð fyrir þvi, :ð lokið
yrði við að steypa álmuna upp
fyrir 15. þ.m.
e) Stofnanir fyrir aldraða:
Smíði ibúða fyrir aldraða í
Furugerði hefur gengið öllu hæg-
ar en gert var ráð fyrir í áætlun,
en vonir standa til, að sú töf vinn-
ist að mestu leyti upp á næsta ári.
Búið er að grafa grunn fyrir hús-
inu, sem rísa á við Lönguhlíð, og
gerð sökkla lýkur á næstu dögum.
Grafnir hafa verið grunnar
allra húsanna við Dalbraut og
uppsláttur sökkla er að hef jast.
f) Barnaheimili:
Fyrirhugað var að byrja á smíði
dagheimilis í Hólahverfi á þessu
ári, en af þvi hefur ekki orðið, þar
sem staðið hefur á teikningum, en
menntamálaráðuneytið hefur
þann undirbúning með höndum.
Hins vegar verður sú framkvæmd
búin til útboðs fyrir áramót.
Framkvæmdum við leikskólana
í Hóla- og Seljahverfum hefur
miðað vel og verða skólarnir
væntanlega teknir í notkun næsta
vor.
Af öðrum atriðum, sem rétt er
að nefna um framkvæmdir á veg-
um borgarsjóðs, er ekki ljóst,
hvort framlag til byggingar
Borgarleikhúss stenzt áætlun m.a.
vegna uppgjörs á gatnagerðar-
gjaldi.
Til umhverfis og útivistar var
áætlað að verja 59.3 m.kr. Lokið
verður við gerð útivistarsvæðis f
Fossvogi og við Leirubakka
samkv. áætlun, að mestu við 2 af 3
grenndarvöllum í Fellahverfi,
gerð reið- og göngustígs frá
Reykjanesbraut að Vatnsveitu-
húsi og bækistöðvar á Miklatúni
og í Mjódd. Auk þess hefur verið
unnið við nokkur verk, sem ekki
voru á áætlun undir þessum gjl.,
s.s. ræktun lóðar Blindraheimilis
við Hamrahlíð, jöfnun svæða við
Umferðarmiðstöð og væntanlegar
kirkjulóðir í Breiðholti, en þar
heur verið komið upp sparkvöll-
um til bráðabirgða, og gróðursetn-
ing trjáplantna í Elliðaárdal. Hins
vegar hefur ekki verað unnið við
gerð fyrirhugaðrar smábátahafn-
ar undan Gelgjutanga, en stað-
setning hafnarinnar hefur verið
nokkuð umdeild og ekki endan-
lega ákveðin I borgarráði.
Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir
15 m.kr. framlagi til bygginga
leikvalla. Hinn 1. þ.m. höfðu eftir-
talin verkefni verið leyst á þessu
sviði: Starfsvöllurinn við
Meistaravelli, sem þurfti að vfkja
vegna framkvæmda á Eiðsgranda,
var fluttur á opið leiksvæði við
Vesturvallagötu, hús voru sett á
starfsvelli við Vesturberg,
Blöndubakka og Rofabæ, og unn-
ið er að gerð leikvallar við Fífu-
sel. Verði ráðizt i þær fram-
kvæmdir má reikna með, að fjár-
veiting ársins verði notuð að
fullu. Þá er rétt að fram komi, að
framlag borgarsjóðs til bygg-
ingarsjóðs verkamanna verður
væntanfega um 23 m.kr. hærra en
áætlað var, þar sem framlagið er
braut að Laugarnesvegi,
Stekkjarbakki og Höfðabakki, þó
hefur ekki verið lögð hitalögn, f
tvær síðast nefndu göturnar og
þvi heldur ekki yfirlag.
Áætlað var að verja rúml. 70
m.kr. til að leggja yfirlög á ný-
byggðar götur og mun láta nærri
að lokið verði við u.þ.b. helming
þeirra framkvæmda á árinu, en
fresta verður til næsta árs lagn-
ingu yfirlaga á Grandaveg, hluta
Síðumúla og Kleppsmýrarveg, svo
og á Breiðholtsbraut, Vesturhóla
og Suðurhóla.
Til gangstéttargerðar var áætl-
að að verja rúml. 6 m.kr., en af
þeim framkvæmdum er nú ljóst
að fresta verður u.þ.b. helmingi.
Til gangstiga var hins vegar áætl-
að að verja um 26 m.kr. og mun
um 75% af þeim framkvæmdum
verða lokið á árinu, en um 25%
frestast til næsta árs.
Til nýrra hverfa var áætlað að
verja um 370 m.kr. Þar verður
unnið samkv. áætlun við nýja
miðbæinn, Stekkjarbakka,
Mjóddina, Stokkaselshverfi og í
Hólahverfi, en að hluta við
iðnaðarhverfi við Vesturlandsveg
og við miðhluta Seljahverfis.
Einnig frestast fyrirhugaðar
framkvæmdir við Eiðsgranda.
Auk þess, sem að framan grein-
ir hefur verið unnið við ýmis önn-
ur verkefni samkv. áætlun, s.s.
gerð götukanta og ræktun og frá-
gang.
Með þessu yfirliti hefur verið
leitazt við að svara 1. og 2. lið
fyrirspurnarinnar að þvf er tekur
til gatna-og holræsagerðar.
Rafmagnsveita Reykjavfkur
I framkvæmdaáætlun Raf-
magnsveitunnar er gert ráð fyrir
603.7 m.kr. til aukninga á veitu-
kerfi, en áætluð útkoma er um
490 m.kr. I nágrannabæjum á
orkuveitusvæði veitunnar hafa
framkvæmdir orðið um 31 m.kr.
minni en áætlað hafði verið, aðal-
lega vegna breytinga á áætluðum
gatnagerðarframkvæmdum. I
Reykjavik verða framkvæmdirn-
ar hins vegar um 81 m.kr. undir
áætlun og er þar aðallega í nýjum
borgarhverfum, svo og seinkun á
byggingarframkvæmdum við
aðveitu- og dreifistöðvar.
Að öðrum framkvæmdum
Rafmagnsveitunnar er rétt að
nefna, að áætlaður kostnaður við
þrýstivatnspípu verður rúml. 17
m.kr. undir áætlun, en fyrirfram-
greiðsla vegna efniskaupa flyzt
fram i ársbyrjun 1977. Þá hafði
verið gert ráð fyrir um 70 m.kr.
fjárveitingu til endurbyggingar á
Elliðavatnsstiflu, en áætlaður
kostnaður á árinu verður aðeins
um 5 m.kr. Framkvæmdir frestast
að mestu til næsta árs, þar sem
samningur um landakaup tók
lengri tima en áætlað var.
Vatnsveita Reykjavfkur
I öllum aðalatriðum hefur verið
unnið eftir framkvæmdaáætlun
Vatnsveitunnar á árinu. Þannig
hefur verið unnið að ýmsum frá-
gangi við vatnsgeymi i Litlu-Hlið
og að hönnun vatnsgeyma í Vatns-
endahverfi. Lokið er öllum frá-
gangi á dælustöð við Eiríksgötu
og hefur vatnsþrýstingur á Skóla-
vörðuholti batnað verulega, en
eftir eru miklar lagfæringar á
dreifikerfinu, aðallega þó á heim-
æðum, áður en vatnsnotkun í
hverfinu er komin í eðlilegt horf.
Þessar framkvæmdir verða nokk-
að dýrari en áætlað hafði verið.
Dælustöðin á Hraunbrún er hins
vegar enn í hönnun, en gert er ráð
fyrir, að undirstöður hennar verði
steyptar á árinu.
Kostnaðarsömustu aðgeróirnar
við vatnsból hafa verið boranir á
Myllulækjarsvæðinu, en auk þess
hefur verið undirbúið neðanjarð-
ar vatnsból hjá Jaðri. Á árinu
hafa allir nýtanlegir brunnar á
Heiðmerkursvæðinu verið prófað-
ir og er nú fundið grunnvatns,
sem er meira en það vatn, sem
Gvendarbrunnar hafa gefið. Árið
1976 hefur þannig markað tíma-
mót f leit að nýjum vantsbólum í
Heiðmörk, en borunum verður
haldið áfram á Myllulækjarsvæð-
inu í vetur og eru taldar líkur á að
auka megi afköstin verulega,
enda eigi varlegt annað en að
hafa allmikil aukaafköst í dælu-
stöðvunum af rekstrarástæðum,
þegar Gvendarbrunnar verða
lagðir niður.
Unnið hefur verið við bækistöð
Vantsveitunnar samkv. áætlun og
við pfpulagnir að mestu leyti eftir
útboðum i samvinnu við gatna- og
holræsadeild eins og venja hefur
verið. Framkvæmdir i Hólahverfi
verða nokkuð meiri en áætlað
hafði verið, auk þess sem lagt var
dreifikerfi i Stokkaselshverfi og
Vatnagarða, sem ekki voru á áætl-
un. Hins vegar eru ekki hafnar
framkvæmdir við lögn vatnsæða í
Súðarvog, Stekkjarbakka og í
Selási.
Þá er að ljúka framkvæmdum
við lögn 2., 3. og 4. áfanga lögn
aðalæðar til Heiðmerkur og vinna
við 5. áfanga er að hefjast. Unnið
er að hönnun og undirbúningi út-
boðs á sfðustu áföngum verksins.
I Kringlumýrarbraut hafa verið
lagðar þveranir við Borgartún og
Sætún eins og ráðgert hafði verið.
Hitaveita Reykjavfkur
Boranir og virkjanir á borhol-
um i Mosfellssveit hafa gengið
samkv. áætlun og fyrir áramót
verður lokið við lögn safnæða og
einangrun Skammadalsæðar frá
Reykjahlíð að Reykjum. Til þess-
ara framkvæmda er áætlað að
verja um 390 m.kr.
Lokið hefur verið við lögn
dreifikerfa í Reykjavík i sam-
ræmi við framkvæmdir við gatna-
gerð. Kostnaður verður nokkuð
meiri en áætlað hafði verið.
I Hafnarfirði og Garðabæ verð-
ur lokið við lögn dreifikerfa fyrir
áramót. Kostnaður við tögn dreifi-
kerfa i nágrannabæjunum varð
verulega hærri á árinu en upphaf-
lega var ráðgert, en var brúaður
meó lántöku, sem borgarráð sam-
þykkti fyrr á árinu, auknum
heimæðagjöldum og lækkun
efnisbirgða.
Framhald á bls. 29