Morgunblaðið - 18.11.1976, Blaðsíða 17
'l
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1976
17
Akureyri:
Forstöðumadur-
inn einn af nem-
endum skólans
Akureyri, 11. nóv.
NÁMSFLOKKAR Akur-
eyrar hafa nú starfað f
mörg ár, fyrst undir
stjðrn Jðns Sigurgeirs-
sonar og Þðrarins Guð-
mundssonar, en sfðan
1971 hefir Bárður Hall-
dðrsson veitt þeim for-
stöðu. Nemendur hafa
flestir orðið um 220, en
eru nú um 130 talsins.
Þeir eru á öllum aldri,
allt frá börnum (f barna-
flokkum f ensku) og til
fðlks á áttræðisaldri.
Elzti nemandinn mun
vera 76 ára. Aberandi
stærsti hlutinn er þð hús-
mæður á þrítugs- og fer-
tugsaidri.
Þess má geta, að for-
stöðumaður Námsflokk-
anna er meðal nemenda,
og mun það vera nokkuð
ðvenjulegt. Hann leggur
stund á ftölsku, þar sem
Sigurður Dementz Franz-
son er kennarinn. Skðla-
meistari M.A. leggur
stund á bókband, og
Steindðr Steindðrsson
fyrrverandi skðlameist-
ari hefir verið allt í senn,
nemandi, kennari og
prófdómari við Náms-
flokkana, þð ekki í sömu
greinum.
Námsgreinar eru enska.
þýzka, franska, spænska,
ítalska, sænska, bókfærsla, vél-
ritun og bókband. í sumum
greinum eru flokkarnir fleiri
en einn. Kennarar eru nú 9, en
hafa flestir orðið 14. Fyrst
framan af fór starfsemin fram í
Iðnskólahúsinu, en nú sfðustu 3
árin að mestu í Verzlunar-
mannafálagshúsinu við Gránu-
félagsgötu og nú i vetur i húsi
Gagnfræðaskólans.
öldungadeild var fyrst starf-
rækt á Akureyri á vegum
Námsflokkanna veturinn
1974—1975, að mestu utan við
lög og rétt og með óverulegum
styrk frá rikinu. Þeir 16 nem-
endur, sem þar riðu á vaðið og
gerðust brautryðjendur, urðu
að bera allmikinn kostnað sjálf-
ir, en Akureyrarbær styrkti
þessa starfsemi vel. Veturinn
eftir og síðan hefir þessi
kennsls farið fram á vegum
Menntaskólans á Akureyri.
Nemendur í öldungadeild
munu nú vera um 75.
Þá hefur nú um nokkurra ára
skeið verið starfrækt gagn-
fræðadeild við Námsflokkana,
en er nú (til áramóta) rekin í
samvinnu við Iðnskólann.
Kennslan verður hins vegar al-
gerlega á vegum Námsflokk-
anna frá áramótum til vors,
þegar nemendurnir, 9 talsins,
munu þreyta gagnfræðapróf.
Sv.P.
Bárður Halldórsson forstöðumaður Námsflokkanna (t.v.) f
ftölskutfma hjá Sigurði Demetz Franzsyni.
Kammer-
tónleikar
EITT af vaxtartáknum á öllum
umsvifum manna eru nýstofnarnir,
sem ýmist spretta upp vegna eftir-
spurnar samfélagsins eða þá að ný-
menntaðir einstaklingar og samtök
hasla sér völl og reyna að skapa sér
aðstöðu til að nýta menntun sína
Tónlistarskólarnir I landinu eru
dæmi um vaxandi þörf fyrir kennslu
tónlistar en Kammersveit Reykjavlk-
ur er dæmi um útvikkun viðfangs-
efna. Nú er tónlistarstarfsemi í land-
inu orðin svo margþætt, að nauð-
synlegt verður innan tiðar að stofna
tónlistarráð, er hafi umsjón með
framkvæmdum og fjárjöfnun fyrir
þessa starfsemi Nú berjast allir
gegn öllum til að herja út styrki og
þeir sem hafa náð þvi að komast að
hafa um árabil þegið stórar fjárhæð-
ir, jafnvel þó öll starfsemi, sem var
forsenda styrkveitingarinnar, væri
löngu hætt. Þessi þráseta viðgengst
vegna aðgæzluleysis og vankunn-
áttu stjórnenda og sýnir hversu
styrkveitingum hefur verið útdeilt af
miklu handahófi.
Kammersveit Reykjavikur hóf
þriðja starfsár sitt á sunnudaginn
var, með flutningi nútimatónlistar.
Fyrsta verkið á efnisskránni var
Leifur Þórarinsson
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
ftondi eftir Bohuslav Martinu
(1890) Undirritaður missti þvi mið-
ur af tveim fyrstu köflum verksins
M rtinu er skemmtilegt tónskáld og
verk hans ávalt ..musikantlsk".
Rondi var vel spilað en siðasti kafl-
inn hefði mátt leika með meiri galsa
og slafneskum tónblæ
Annað verkið á þessum tónleikum
var Angelus Domini, eftir Leif
Þórarinsson, við texta eftir Halldór
Laxness Þetta er i þriðja sinn sem
undirritaður heyrir verkið og eins og
öll góð tónlist, stækkaði verkið við
nánari kynni. Það sem helzt mætti
tina til er óeðlileg lengd forspils og
nokkuð einhæft hrynferli sönglin-
unnar, sem að mestu var nóta á
hvert atkvæði og þar af leiðandi ekki
i nógu sterkum hrynrænum tengsl-
um við textann Það var mikill þokki
yfir flutningnum, nema helzt i kafl-
anum Heill drottins orði, sem orkaði
óþægilega andsnúinn verkinu I
heild Rut Magnússon söng verkið
að þessu sinni, sem má vera að sé
ástæðan fyrir ánægjulegri endur-
upplifun verksins Slðasta verkið var
Kvintett eftir Serge Prokofjeff. Kvint-
ett þessi er skemmtileg tónsmlð,
margslungin og erfið i flutningi,
sem var i heild góður, þó brygði
fyrir ónákvæmni I takti og kæmi fyrir
að innkomur heppnuðust ekki sem
skyldi.
Kammersveit Reykjavíkur er ekki
aðeins merk nýjung, til að auka
valkosti um hlustun tónverka. held-
ur er hér um að ræða stofnun, sem I
framtíðinni gæti veitt Sinfónluhljóm-
sveit íslands þá samkeppni, bæði
um hljóðfæraleikara og hjómflutn-
ing, sem mjög skortir nú og á sinn
þátt i atorku- og áhugaleysi Isl.
hljóðfæraleikara, sem þeir oft á tið-
um afsaka með ásökunum á hendur
stjórnendum Ef isl. tónleikagestir
hafa i raun og veru áhuga á góðri
tónlist, ættu þeir að styðja við bakið
á Kammersveit Reykjavlkur I þeirri
von, að hún sé vísir að sjálfstæðri
stofnun. sem i framtiðinni verði þess
megnug að rjúfa þá einokun, sem
Rlkisútvarpið hefur haft á flutningi
tónlistar her á landi
Það eru smáatriðin
sem gera
AUTOBIANCHI
A112 Elegant
að svona
skemmtilegum bíl.
ítalir kunna að nostra við smáatriðin
og þess ber AUTOBIANCHI
greinileg merki, hann er vel gerður
bíll, — aö auki stenst hann þær
gæðakröfur um aksturseiginleika
og öryggi, sem SAAB gerir til
smábíla. Til afgreiöslu nú þegar.
Það er þess virði að skoða
AUTOBIANCHI.
BDORNSSON A^o
SKEIFAN 11 REYKJAVÍK SIMI 81530
Italski ^
smábillinn
Söluumboð á Akureyri
Bláfell s.f.
X